Morgunblaðið - 23.07.2007, Síða 1

Morgunblaðið - 23.07.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 199. TBL. 95. ÁRG. MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is KÓNGAR UM STUND HÚN ANNA Á EIÐUM ER MEÐ HESTALEIGU OG LEGGUR SÉRSTAKA RÆKT VIÐ FATLAÐA >> 12 HIMNESKT REGN OG TÖFRAHATTUR ÁSTRALÍA FRÉTTABRÉF >> 22 GOLFVELLIR landsins voru þétt- skipaðir í gær, eins og þeir hafa raunar verið allan júlímánuð. Talsmenn golfvallanna segja að tímarnir fullbókist iðulega snemma á morgnana, en fólk sé farið að spila nánast allan sólar- hringinn. Gísli Páll Jónsson, vall- arstjóri á Grafarholtsvelli, segir algengt að fólk mæti seint á kvöldin eftir vinnu og taki einn hring. „Svo höfum við rekið okk- ur á það þegar við mætum til vinnu rétt fyrir sjö á morgnana, að þá er fólk sem hefur mætt eld- snemma að klára hringinn.“ Tryggvi Zophonias Pálsson hjá Golfklúbbi Akureyrar segir að fólk komi hvaðanæva að af land- inu á Jaðarsvöll og eins sé mikið um erlenda kylfinga sem vilji spila í miðnætursólinni. Á Jað- arsvelli er árlega haldið al- þjóðlega golfmótið Arctic Open og segir Tryggvi mótið aldrei hafa verið jafnfjölmennt og í ár. Fólk á öllum aldri sækir golf- vellina og segja starfsmenn þeirra algengt að heilu fjölskyld- urnar spili saman. Fannar Freyr Ívarsson, starfsmaður Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, segir nýliðunina mesta hjá ungu kyn- slóðinni, en þó sé ánægjulegt að sjá hve mikið af eldra fólki sé óhrætt við að byrja að læra, enda aldrei of seint að byrja. „Einn kylfingur hjá okkur er kominn yf- ir nírætt en hann byrjaði í golfinu um sextugt. Hann spilar á hverj- um degi hjá okkur.“ Á Hvaleyrarvelli var í gær keppt í Bleika bikarnum á vegum Krabbameinsfélagsins og var þar bæði keppt um golffimi sem í því hver bæri frumlegasta hattinn. Golfið leikið allan sólarhringinn Morgunblaðið/Sverrir Litríkar Bleiki bikarinn er meðal margra fjölbreytilegra móta í sumar. Eftir Boga Þór Arason og Friðrik Ársælsson BRESK stjórnvöld vöruðu í gær við frekari flóðum í Englandi og Wales á næstu dögum eftir mikla vatnavexti í ám frá því á föstudaginn var. Hundr- uðum manna var bjargað úr umflotn- um húsum og bílum, meðal annars með þyrlum breska flughersins. Talsmaður hans sagði þetta mestu björgunaraðgerðir þyrlna flughers- ins á friðartímum. Breska ríkisútvarpið BBC skýrði frá því í gærkvöldi að um 150.000 heimili væru án drykkjarvatns í Gloucesterskíri eftir að vatn og skólp flæddi inn í vatnshreinsunarstöðvar. Talið var að 200.000 manns til við- bótar yrðu án drykkjarvatns á næstu dögum. Óttast var að heimili um hálfrar milljónar manna í Gloucest- erskíri yrðu rafmagnslaus og breska flughernum var falið að vernda raf- stöð sem var umflotin vatni. Stjórnin gagnrýnd Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, stýrði fundi almanna- varnaráðs stjórnarinnar í gærkvöldi og hyggst skoða flóðasvæðin í dag. Spáð var meiri rigningu í Bret- landi næstu daga. Flóðin voru í rén- un á sumum svæðum í Gloucester- skíri en lögreglan sagði að ástandið versnaði annars staðar. Hilary Benn umhverfisráðherra sagði að hætta væri á frekari flóðum, einkum í ánum Severn og Thames. Stjórnin sætti harðri gagnrýni stjórnarandstæðinga sem sökuðu hana um að hafa brugðist of seint við flóðahættunni. David Cameron, leið- togi Íhaldsflokksins, krafðist op- inberrar rannsóknar á viðbrögðum stjórnvalda. Barbara Young, framkvæmda- stjóri Umhverfisstofnunar Bret- lands, sagði að slík flóð kynnu að verða algengari á næstu árum vegna loftslagsbreytinga.  Mestu björgunaraðgerðir | 15 Útlit fyrir frekari flóð Hundruðum manna bjargað úr um- flotnum húsum og bílum í Englandi Reuters Aftakaflóð Loftmynd af bænum Upton við ána Severn sem flæddi yfir bakka sína í miðhluta Englands eftir steypirigningu. Þyrlur notaðar í mestu björgunaraðgerðum breska flughersins á friðartímum FRÉTTASKÝRING Eftir Arndísi Þórarinsdóttur arndis@mbl.is „JÁ, það má næstum því segja að línuritið líti út eins og jarðskjálftamælir,“ sagði Ingi- björg Þórðardóttir, formaður Félags fast- eignasala, spurð um mikla veltu á fast- eignamarkaði frá því í vor, en segir viðskiptin hafa verið lífleg allt þetta ár. Samkvæmt tölum Fasteignamats ríkisins var velta á fasteignamarkaði á höfuðborg- arsvæðinu rúmir þrír milljarðar á viku í júlí í fyrra en samkvæmt síðustu tölum hefur vikuleg velta verið nærri tíu milljörðum síð- ustu tvær vikur. Kaupsamningar voru 71,9% fleiri í júní 2007 en þeir voru í júní 2006. Að sama skapi hefur vísitala íbúðaverðs hækk- að um hálft prósent síðan í júní. Að sögn Ásgeirs Jónssonar, forstöðu- manns greiningardeildar Kaupþings, eru skýringarnar margþættar. „Síðastliðið vor kom töluverður verð- bólguskellur í kjölfar veikingar krónunnar um vorið og þegar verðbólgan hækkar frýs fasteignamarkaðurinn, því fólk hikar við að kaupa. Hagkerfið virtist vera að hægja á sér og það stefndi í offramboð á íbúðum þann vetur,“ segir Ásgeir. Hann segir að hins veg- ar hafi komið á daginn að eftirspurnin hafi náð að halda í við aukið framboð vegna áframhaldandi uppsveiflu í efnahagslífinu. Nú er nánast ekkert atvinnuleysi, töluvert launaskrið og skattalækkanir hafa enn- fremur aukið kaupmátt. Fólk hefur því bæði ráð og þor til að leggja út í fasteignakaup. Meðfram þessu hefur leiguverð hækkað, en það er enn einn hvatinn að því að fólk kýs frekar að kaupa en leigja, eigi það þess kost. Það bendir því flest til þess að hagkerfið sé aftur að taka við sér. Mikil fólksfjölgun Byggingarverktakar hafa einbeitt sér frekar að því að byggja atvinnuhúsnæði en íbúðarhúsnæði og því varð offramboð ekki jafnmikið og ætlað var. Telja má að hluti skýringarinnar á hinni miklu veltu séu við- skipti með atvinnuhúsnæði. Enn mun þó vera talsvert af óseldum nýjum íbúðum, en seljendur hafa flestir verið tregir til þess að lækka verðið þótt illa gangi að selja. Ásgeir segir að skýringarinnar á því að viðskiptin hafa verið jafnfjörug og raun ber vitni undanfarið sé að hluta til að leita í fólksfjölgun – fyrst og fremst á höfuðborg- arsvæðinu. „Það sem hefur gerst síðan í vor er að Ísland varð aðili að evrópskum vinnu- markaði í maí í fyrra. Síðan þá hafa um 1.000 útlendingar flust til landsins á mánuði.“ Ingibjörg Þórðardóttir segir jafnframt að fólk líti í stöðugt auknum mæli á fasteignir sem fjárfestingu – fjárfestingu sem er að auki hægt að búa í á meðan hún ávaxtast. Fjör á fast- eignamark- aði í sumar Kaupsamningar 71,9% fleiri en þeir voru í fyrra „DÆTUR mínar hafa átt í vand- ræðum með að komast á áfanga- stað, þar sem samgöngur hafa fallið niður og þar fram eftir götunum. Þetta hefur samt ekki haft bein áhrif á sjálfa mig, flóðin eru á sér- stökum stöðum hérna í borginni og ég bý sem betur fer ekki þar,“ segir Borghildur Guðmundsdóttir, sem búsett hefur verið í Birmingham um allnokkurt skeið. Að hennar sögn gerði vitlaust veður á fimmtu- daginn í síðustu viku. Á föstudag og aðfaranótt laugardags rigndi linnu- laust, en í gær var aðeins farið að birta til. „Þetta er ekki svo slæmt hér. Fólk fer ferða sinna en helsta röskunin sem vatnsflaumurinn hef- ur í för með sér eru samgöngu- truflanirnar. Svo hefur maður heyrt af fólki sem býr í bæjum fyrir sunnan og vestan Birmingham sem hefur orðið fyrir miklu eignatjóni vegna flóðanna,“ segir Borghildur. „Þetta er ekki svo slæmt hér“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.