Morgunblaðið - 23.07.2007, Blaðsíða 12
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Þórudalsheiði Vegurinn um Þórudalsheiði liggur meðfram raflínu sem
flytur rafmagn frá Kárahnjúkavirkjun til álversins í Reyðarfirði.
Eftir Sigurð Aðalsteinsson
MEÐ því að fara um Þórudalsheiði
og Öxi frá Reyðarfirði suður í Beru-
fjarðarbotn er hægt að stytta leiðina
milli staðanna um 47 kílómetra, mið-
að við að fara Suðurfirði um Fá-
skrúðsfjarðargöng, Fáskrúðsfjörð,
Stöðvarfjörð og Breiðdalsvík. Leiðin
frá Reyðarfirði í Berufjarðarbotn
um Suðurfirði er 106 kílómetra löng
en aðeins 59 kílómetrar sé farið um
Þórudalsheiði og Öxi. Það er aðeins
10 kílómetrum styttra að fara frá
Reyðarfirði um Egilsstaði og Öxi en
Fáskrúðsfjarðargöng og Suðurfirð-
ina, eða 96 kílómetrar.
Vegurinn um Öxi styttir hins veg-
ar leiðina frá Egilsstöðum í Beru-
fjarðarbotn um 73 kílómetra, miðað
við að fara Fjarðaleiðina um Reyð-
arfjörð, Fáskrúðsfjarðargöng, Fá-
skrúðsfjörð, Stöðvarfjörð og Breið-
dalsvík. Frá Egilsstöðum í
Berufjarðarbotn um Öxi eru 63 kíló-
metrar en 126 kílómetrar um Breið-
dalsheiði og 139 kílómetrar um Suð-
urfirði.
Samkvæmt upplýsingum vega-
gerðarinnar er vegurinn um Þóru-
dalsheiði vel fær öllum fjórhjóla-
drifnum bílum, en samkvæmt
reynslu manna má líka komast hana
á venjulegum fólksbílum með lagi,
vegurinn er á köflum nokkuð brattur
og malarlagið ofan á honum gróft.
Þórudalsheiði styttir
veginn um 47 kílómetra
, #
(-
. #!#
, -
"
"
"
"
Vegurinn er sagður vel ökufær fjórhjóladrifnum bílum
12 MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AUSTURLAND
Þriðjudagskvöldið 24. júlí
verður farin göngu- og
fræðsluferð um Elliðaárdal
undir leiðsögn Einars Gunn-
laugssonar, jarðfræðings.
Jarðfræði Elliðaárdals er
stórkostleg. Í dalnum má t.d. finna jökulrákaðar grágrýtisklappir, hraun frá
nútíma, sjávarhjalla og merkileg setlög. Gangan hefst við Minjasafnið í
Elliðaárdal kl. 19:30.
• Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
Jarðfræði í
Elliðaárdal
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
80
05
0
6.
2
0
0
7
Eftir Sigurð Aðalsteinsson
Eiðar | Anna Magnúsdóttir rekur
hestaleigu ásamt manni sínum, Ás-
keli Einarssyni, á Eiðum í Eiða-
þinghá á Fljótsdalshéraði. Hún vinn-
ur mikið með fötluðum.
Hestaleigan hefur verið starfrækt
í um 20 ár, fyrst á Tókastöðum í 12
ár, en þau bjuggu með sauðfé til
þess tíma er riðuveiki kom upp í
fjárstofninum og hann var skorinn
niður. „Þá fórum við í þetta og höf-
um verið við þetta í tuttugu ár,“ seg-
ir Anna.
„Nú erum við með 25 hesta og höf-
um tvær ungar konur í vinnu hjá
okkur við þetta og tökum á móti
1.200 til 1.400 viðskiptavinum á góðu
sumri,“ segir Anna.
Hún hefur unnið mikið með fötl-
uðum. „Það var fyrir um það bil
fimm árum að ég fór á námskeið í
reiðmennsku fatlaðra sem haldið var
á vegum Íþróttasambands Íslands á
Sauðárkróki. Þar lærði ég mikið um
hvað fatlaðir hafa gott af því að fara
á hestbak. Það hreyfast svo margir
vöðvar í líkamanum við það að fara á
hestbak, jafnvel þótt hesturinn fari
bara á feti. Svo er þetta ekki síður
upplyfting fyrir þá sem eru fatlaðir
en hina,“ segir Anna.
Reiðtúrarnir eru afar vinsælir hjá
börnunum, það sést berlega á hópi
frá Egilsstöðum sem var hjá Önnu
þegar fréttaritari leit til hennar. Þau
ljóma eins og sólir að loknum útreið-
artúrnum. Það sést hvernig fólkið
slaknar allt niður við samskiptin við
hestana.
Á eftir er boðið upp á kaffi og
ávexti, sem er vel þegið til að skola
ferðarykinu niður. Reiðtúrinn sjálf-
ur tekur að jafnaði tuttugu mínútur
en um klukkutíma með undirbúningi
og frágangi.
„Ég hef verið í því að fara með
fatlaða á hestbak síðustu fjögur árin,
aðallega fimm til sex einstaklinga
sem búa á Egilsstöðum, að meðaltali
einu sinni í viku allt árið. Þetta er
erfiðara á veturna, þá hamlar veður
því stundum að við komumst á bak,
mig vantar bara reiðskemmu til að
geta haldið dagskránni allan vet-
urinn. Einnig hef ég verið með
krakka sem voru í sumarbúðum fyr-
ir fatlaða í Kirkjumiðstöðinni hér á
Eiðum í stífu prógrammi með dvöl-
inni þar,“ segir Anna.
Hún hefur unnið með fötluðum í
fjórtán ár og vann á Kópavogshæl-
inu þegar hún var sautján ára. „Því
gleymi ég aldrei; koma þangað til
vinnu, stelpa úr sveit og hafði aldrei
séð fatlað fólk áður,“ segir Anna.
Hestarnir verða að vera hlýðnir,
sterkir, góðir á taugum og rólegir,
að sögn Önnu, það á einnig við um
hesta fyrir almenna ferðamenn.
„Flestir fatlaðir geta riðið í venju-
legum hnakk, ég er þó með einn
hnakk sérsmíðaðan. Hann var smíð-
aður fyrir mig í Keflavík á sínum
tíma. Er með baki og örmum sem
fest eru á hann og ólum til að festa
einstaklinginn niður í hann, nokkurs
konar öryggisbeltum. Rauði kross-
inn á Egilsstöðum aðstoðaði mig
fjárhagslega við að komast yfir
hann.
Síðan erum við líka með mikið
fatlaða einstaklinga sem ekki geta
setið í hnakki og verða að liggja á
hestinum með höfuðið aftur á lend
og við göngum með þeim, hitinn frá
hestinum og hreyfingin gerir þess-
um einstaklingum gott, ég finn
hvernig fólkið slaknar niður á hest-
bakinu,“ segir Anna Magnúsdóttir,
hestamaður og stuðningsfulltrúi á
Eiðum.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Upplifun Kári Sveinsson og Eðvarð Kristjánsson komnir á bak hestum sínum og aðstoðarfólkið gerir klárt.
Hestamaður Anna Magnúsdóttir rekur hestaleigu á Eiðum, þangað sækja
þjónustu bæði fatlaðir sem aðrir.
Upplyfting fyrir fatlaða
Anna Magnúsdótt-
ir rekur hesta-
leigu á Eiðum
Eftir Sigurð Aðalsteinsson
Fljótsdalshérað | Slysin gera ekki
boð á undan sér. Það fékk tófu-
garmurinn sem lenti undir bílnum
hjá Írisi Dóróteu Randversdóttur á
Egilsstöðum að reyna.
Íris ók eftir hringveginum við
Urriðavatn í Fellum á Fljótsdals-
héraði þegar tófan skaust í veg fyr-
ir bílinn. Árekstur varð eigi umflú-
inn og tófugreyið drapst.
Við eftirgrennslan hjá vísustu
refaveiðimönnum kom í ljós að
þetta er geld læða, mórauð eins og
allir sjá, að öllum líkindum árs-
gömul og ekki lögst í greni. Dýrið
var komið í góðan sumarfeld og
meira en í meðallagi feitt.
Tófan sú arna fer nú í upp-
stoppun hjá Reimari Ásgeirssyni á
Egilsstöðum. Þá verður hægt að
gera frekari rannsóknir á henni til
að aldursgreina hana betur en til
þess þarf að senda tönn til rann-
sóknar. Komi í ljós að hún er eldri
en nú er talið er hægt að sjá hvort
hún hefur átt hvolpa og jafnvel hve
marga um dagana. Íris segir að tóf-
unni sé ætlaður staður á hrein-
dýrasetrinu Á hreindýraslóðum í
Skjöldólfsstaðaskóla á Jökuldal
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Óhapp Íris Dórótea Randversdóttir
á Egilsstöðum við bílinn sem slys-
inu olli og með tófuna sem nú bíður
uppstoppunar.
Fórnarlamb-
ið verður
stoppað upp