Morgunblaðið - 23.07.2007, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 23.07.2007, Blaðsíða 40
40 MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ / KRINGLUNNI VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á WWW.SAMBIO.IS HLJÓÐ OG MYND VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA HARRY POTTER 5 kl. 2 - 4 - 5 - 7 - 8 - 10 B.i.10.ára HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 B.i.10.ára DIGITAL HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 LÚXUS VIP EVAN ALMIGHTY kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ BLIND DATING kl. 8 B.i.10.ára SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ SHREK 3 m/ensku tali kl. 8 - 10:10 LEYFÐ OCEAN'S 13 kl.10:10 B.i.7.ára PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 4 B.i.10.ára / ÁLFABAKKA HARRY POTTER 5 kl. 6 - 7 - 9 - 10 B.i. 10 ára DIGITAL SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ SHREK 3 m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 10 B.i. 10 ára eeee FGG - Fréttablaðið eeee ÓHT - Rás2 eeee Morgunblaðið eeee RUV eeee DV eeee Tommi - Kvikmyndir.is ÞAÐ ÞÓTTU tíðindi víða um heim þegar sjöunda og síðasta bókin í bálkinum mikla um galdrastrákinn Harry Potter kom út sl. laugardag, enda hafa bækurnar notið meiri vinsælda en dæmi eru um. Fyrstu sex bækurnar hafa þannig selst í 325 milljónum eintaka og flest benti til þess að sjöunda bókin myndi slá flest sölumet – í Banda- ríkjunum einum var fyrsta upp- lagið af Harry Potter and the Deathly Hallows tólf milljónir ein- taka. Þessi dæmalausa velgengni hef- ur ekki aðeins gert höfundinn, Jo- anne Rowling, að einni ríkustu konu heims, heldur hefur hún líka haft gríðarleg áhrif á bókamark- aðinn ytra, sett ný viðmið í útgáfu á barnabókum og um leið gert út- gáfufyrirtæki bókanna, Blooms- bury, að einu því öflugasta á sínu sviði. Segir sitt að verðmæti fyr- irtækisins á hlutabréfamarkaði hækkaði um tugi milljarða við það eitt að síðasta bókin kom út, enda sjá menn ekki fyrir sér að annað eins æði eigi eftir að grípa um sig aftur. Byrjað á morði Í góðum barnabókum blanda menn saman hinu óttalega og hinu fallega, hvort fyrir sig er lítils virði án hins, og því er einmitt svo farið í bókunum um Harry Potter. Gleymum því ekki að fyrsta bókin, Harry Potter og viskusteinninn, sem kom út fyrir tíu árum, hefst með því að ung hjón eru myrt á óttalegan hátt. Fjölmargir aðrir láta lífið í bókunum, aldrei þó fleiri en í þeirri bók sem hér er fjallað um, þeir skipta tugum, og all- margir af þeim í góða liðinu, ef svo má segja, þar á meðal persónur sem fylgt hafa okkur í gegnum bækurnar allar. Þrátt fyrir það eru þær ekki bara óttalegar, þær eru líka skemmtilegar og meira að segja fyndnar á köflum. Það er nokkur kúnst að flétta þetta saman svo vel sé og Rowling kemst alla jafna vel frá sínu. Hún er ekki mikill stílisti, eins og ýmsir hafa bent á, og margar sögu- persónurnar ná varla að lifna við í bókunum og fyrir vikið er manni nánast saman um sumar þeirra; hver sá þannig á eftir Sirius Black sem Bellatrix frænka hans myrti í Harry Potter og Fönixreglunni? Morð á morð ofan Smám saman hefur tónninn í bókunum orðið myrkari, atburðir óttalegri og dauðsföllin fleiri. Þær hafa líka lengst, eða lengdust í það minnsta fram að fimmtu bókinni, Harry Potter og Fönixreglan, en styttust svo aftur, þó sjöunda bók- in sé nærfellt þrefalt lengri en sú fyrsta. Fyrir vikið hefur Rowling haldið í lesendur sína ólíkt því sem vill verða með barnabókaraðir sem þessa, því alla jafna les tvítugur lesandi ekki sömu bækur og hann las tíu ára gamall. Sögupersónurnar í bókinni hafa líka þroskast, eða í það minnsta elst, og frá því að vera börn hafa þau breyst í unglinga með tilheyr- andi tilfinningaróti og geðsveiflum sem hafa oftar en ekki komið þeim í enn frekara klandur. Það dregur reyndar nokkuð úr gamninu við að lesa síðustu bækurnar tvær eða þrjár, og er til að mynda mjög áberandi um miðbik sjöundu bók- arinnar, að lesandinn verður þreyttur á því hvað Harry Potter (og vinir hans svosem líka) er ótta- leg gelgja; hvernig er hægt að vera aðal, en samt svo mikill kjáni? Þannig kemur hann öllu í óefni með skapsveiflum sínum oftar en einu sinni í bókinni, lætur tilfinn- ingarnar leiða sig í gildru, notar nafn Voldemorts þó það komi hon- um og félögum hans í klandur, fyll- ist þráhyggju á óheppilegum tíma og undirbýr svik sem verður þó ekkert úr sem betur fer. Fyrir vik- ið þarf hann oftar en ekki að treysta á aðra til að bjarga sér eða hreina heppni. Það má segja að hann verði eiginlega ekki að manni fyrr en í lokaorrustunni (eða rétt- ara sagt lokaorrustunum) þegar allt er útkljáð. Rowling hefur lýst því hvernig sögupersónan vitraðist henni í lest fyrir sautján árum og hvernig hún skipulagði bækurnar í hörgul áður en hún hófst handa við að skrifa þær. Það kemur og í ljós er greið- ist úr flækjunni í lokin að sagan er samhangandi, enda skipta atburðir í fyrstu bókinni talsverðu máli í þeirri síðustu. Að sama skapi skýrðist ýmislegt sem áður var hulið og þannig kemur vel fram hve Dumbledore var gallaður mað- ur, eins og við öll, og verður fyrir vikið mun viðkunnanlegri en sú táknmynd visku og góðmennsku sem hann hefur verið að segja í gegnum allar bækurnar. Óhnýttir endar Ekki vil ég spilla ánægju manna af að lesa bókina og því best að segja sem minnst um sögulokin, en þó má geta þess að spádómurinn í Harry Potter og Fönixreglunni um að þeir verði að fella hvor annan því hvorugur muni lifa ef annar kemst af, „either must die at the hand of the other for neither shall live if the other survives“, er þó hárrétt. Lausnin á öllu saman, lokaorr- usturnar, er um margt fyr- irsjáanleg, og eins niðurstöður þeirra og örlög Severus Snape leiða líka betur í ljós það sem mátti lesa úr Harry Potter og Fönixreglunni og Harry Potter og blendingsprinsinum (nei, hann er ekki pabbi Harry Potter). Ýmsir endar eru og enn óhnýtt- ir, atvik óútskýrð og hér og þar má rekast á rökleysur. Því verður ekki neitað að þó að lestur bók- anna sjö sé hin besta skemmtun, og sú síðasta eiginlega sú skemmtilegasta, meðal annars fyr- ir magnaða uppákomu í Gringott- „bankanum“ og loka-lokaorr- ustuna, þá eru þær fulllangar – þessa sögu mátti segja í styttra máli en á 3.559 síðum. Vinsældir Sala á nýjustu Harry Potter bókinni hófst seint síðastliðið föstudagskvöld. Ef marka má dóm gagnrýnanda er bókin sú skemmtilegasta í bókaflokknum. 3.559 síðum og mörgum morðum síðar Árni Matthíasson BÆKUR Harry Potter and the Deathly Hallows eftir Joanne Rowling. Bloomsbury gefur út 2007. 607 síður innb. Morgunblaðið/Sverrir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.