Morgunblaðið - 23.07.2007, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.07.2007, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is ÞÝSK stjórnvöld íhuga nú að grípa til lagasetningar til þess að koma í veg fyrir yfirtöku erlendra fjárfest- ingasjóða eða fyrirtækja á mikil- vægum stórfyrirtækjum í þýskum iðnaði. Þá ekki síst fyrirtækjum sem eru mikilvæg fyrir framþróun í þýsku atvinnulífi eða geta hugsan- lega haft þýðingu fyrir öryggi þýska sambandslýðveldisins. Samkvæmt núgildandi þýskum lögum er fátt ef nokkuð sem stjórnvöld geta gert til þess að hindra yfirtökur fjárfest- ingasjóða eða yfirtökur erlendra að- ila á slíkum fyrirtækjum. Einmitt af þessum sökum eru þessi mál til skoðunar innan ríkisstjórnar An- gelu Merkel. Hún hefur þannig látið hafa eftir sér að stórir fjárfestinga- sjóðir í ríkiseign í Rússlandi, Kína eða Miðausturlöndum kaupi oft hlutbréf í evrópskum fyrirtækjum í pólitískum en ekki viðskiptalegum tilgangi. Því eigi Evrópusambandið að vernda fyrirtæki gegn slíkum uppkaupum. Óttast hugsanleg kaup Rússa Það eru ekki síst áhyggjur af hugsanlegum uppkaupum rúss- neskra aðila á þýskum orkufyrir- tækjum sem hafa orðið til þess að hrinda af stað opinberri umræðu um málið í Þýskalandi. Viðleitni eða kröfur af hálfu Þjóðverja í þessum efnum kunna þó vafalaust að valda deilum því eins og kunnugt er vinn- ur framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins að því að opna fyrir meiri samkeppni í sölu á orku innan þess. Ekki jafnlangt og Frakkar. Það er vafalaust þess vegna sem þýska ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á það að ekki standi til að feta í fótspor Frakka og ganga jafn- langt og þeir en samkvæmt frönsk- um lögum geta stjórnvöld þar í reynd komið í veg fyrir erlenda yf- irtöku á nánast hvaða frönsku stór- fyrirtæki með því að vísa til mik- ilvægra franskra hagsmuna. Þá hafa bæði núverandi og fyrrverandi rík- isstjórn Frakklands rætt opinskátt um að nauðsyn þess að til verði mjög stór fyrirtæki í eigu ríkisins sem geti staðið í farbroddi bæði í Evrópu og í heiminum í krafti stærðar sinnar. Áform Þjóðverja ganga ekki í þá átt heldur er aðeins rætt um vernd- un þjóðhagslegra mikilvægra iðn- greina. Ekki kemur heldur til greina að þýska ríkið kaupi stóra eignarhluti í mikilvægum þýskum fyrirtækjum, eins og vinstri menn í Þýskalandi hafa stungið upp á, til þess að hindra yfirtökur á þeim. Þjóðverjar íhuga lög gegn er- lendum yfirtökum fyrirtækja Reuters Angela Merkel Kanslari Þýskalands hefur ákveðnar skoðanir á hlutdeild erlendra aðila í þýskum fyrirtækjum, þó ekki jafn sterkar og Frakkar. Í HNOTSKURN »Þjóðverjar eru helstu við-skiptavinir Rússa í orku- geiranum, um 40% gasolíu- neyslu þeirra kemur frá Rússlandi. »Árið 2005 fjárfestu Kín-verjar fyrir 137 milljónir evra í Þýskalandi en Rússar fyrir 102 milljónir evra. »Merkel hefur kallað eftirsvipuðum ráðagerðum innan Evrópusambandsins. Talið að Bretar mótmæli. ● BÍLARISINN General Motors (GM) hefur end- urheimt toppsæti sitt og er sá bíla- framleiðandi sem seldi flesta bíla á öðrum fjórðungi þessa árs. Toyota, sem náði í fyrsta sinn þeim áfanga að selja mest allra á fyrsta ársfjórðungi, hef- ur þó verið spáð mestri sölu á árinu í heild segir á vef CNN. Þar með myndi Toyota velta GM úr sessi en GM hef- ur vermt toppsætið síðustu 76 ár. Alls seldi GM 2,41 milljón bíla á öðrum ársfjórðungi og Toyota 2,36 milljónir bíla. Munurinn milli bílaframleiðend- anna á fyrri helmingi ársins er hins vegar aðeins 40 þúsund bílar og þar hefur Toyota enn vinninginn, eftir að hafa selt 90 þúsund fleiri bíla en GM á fyrsta ársfjórðungi. GM aftur í toppsætið Toyota Gæti selt flesta bíla á árinu. ● Að mati greiningardeilda Lands- bankans og Kaupþings mun vaxta- lækkunarferli Seðlabankans ekki hefjast fyrr en í mars á næsta ári. Ótti við fall íslensku krónunnar og vísbendingar um endurnýjaða upp- sveiflu á húsnæðismarkaði eru nefnd sem helstu skýringar á að markaðsvextir muni haldast háir. Í Fókus greiningardeildar Lands- bankans segir að ávöxtunarkrafan á markaði endurspegli væntingar um snarpa gengislækkun. Hálffimmfréttir Kaupþings benda á aukinn fjölda þinglýstra kaupsamn- inga, og að hækkun húsnæðisverðs hafi lagt til 3,6% hækkun vísitölu neysluverðs á ársgrundvelli. Vaxtalækkun ekki fyrr en í mars 2008? ● Á ÖÐRUM fjórðungi ársins seldi Harley Davidson meira en 95 þús- und eintök af þunghljóða smótor- hjólum sínum á heimsvísu. Sölu- tekjur tímabilsins námu nær eitt hundrað milljörðum króna sem er 17% meira en á sama tíma í fyrra. Hagnaður tímabilsins nam um átján milljörðum krópna og stjórnendur Harley gera ráð fyrir áframhaldandi góðum hagnaði á næstu árum. Sala í heimalandinu, Bandaríkj- unum, hefur þó engan veginn verið í takt við væntingar en mikil söluaukn- ing á Harley-hjólum í Evrópu hefur vegið það upp og gott betur. Evrópubúar kaupa Harley mótorhjól HAGNAÐUR bandaríska hugbún- aðarrisans á fjórða ársfjórðungi síð- asta rekstrarárs nam um 3,0 millj- örðum dollara, eða 180 milljörðum íslenskra króna sem er um 7% aukn- ing frá sama tímabili á síðasta ári. Tekjur fyrirtækisins á ársfjórð- ungnum námu 13,4 milljörðum doll- ara og jukust um 13% milli ára. Heildartekjur rekstrarársins fóru í fyrsta skipti yfir 50 milljarða dollara, en þær námu 51,1 milljarði. Afkoma Microsoft var undir spám fjármálasérfræðinga vestanhafs og féll gengi hlutabréfa félagsins um 2% eftir að uppgjörið var kynnt. Samkvæmt breska blaðinu Gu- ardian hefur ákvörðun Microsoft um að leggja einn milljarð dollara til hliðar vegna vandræða leikjatölv- unnar Xbox haft áhrif á afkomuna. Aukinn hagnaður hjá Microsoft Reuters BYR, sameinaður sparisjóður Kópa- vogs, Hafnarfjarðar og vélstjóra, hefur gengið frá samningi um fyrsta sambankalán sitt fyrir samtals 110 milljónir evra, um níu milljarða króna til þriggja ára. Í tilkynningu frá BYR segir að sparisjóðurinn hafi hlotið góðar viðtökur á alþjóðlegum sambankalánamarkaði og að um- frameftirspurn hafi verið meðal fjár- festa. Upphaflega hafi staðið til að taka 50 milljóna evra lán, en vegna eftirspurnar hafi upphæðin hækkað. Yfirumsjón með láninu höfðu Bay- ern LB, HSH Nordbank og Raiffei- sen Zentralbank Österreich AG, en alls voru 14 alþjóðlegir bankar þátt- takendur. Fyrsta sambankalánið HAGNAÐUR bandaríska fyrirtæk- isins Nasdaq, sem rekur samnefnda kauphöll, á öðrum ársfjórðungi þre- faldaðist miðað við sama tímabil í fyrra. Alls hagnaðist félagið um 56,1 milljón Bandaríkjadala á öðrum fjórðungi, eða um 3,3 milljarða króna. Í fyrra nam hagnaður fjórð- ungsins 16,6 milljónum dala. Reiknað er með því að heildar- hagnaður ársins verði á bilinu 171- 181 milljónir dala. Nasdaq þrefaldar hagnað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.