Morgunblaðið - 23.07.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.07.2007, Blaðsíða 20
Heilbrigðisgagna- grunnur Alberta ríkis í Kanada (Alberta Health Care data- base) var skoðaður og konur með silíkonp- úða voru bornar sam- an við upplýsingar í krabbameinsskrá Al- berta ríkis (Alberta Cancer Registry). Rannsóknin náði til 11.676 kvenna með silíkonpúða, 41 kona reyndist hafa fengið krabbamein. Þessi tala er verulega lægri en áætlaður fjöldi kvenna í hættu að fá krabba- mein. (Berkel. New Engl. J.Med 1992) Farið var yfir sjúkraskýrslur 3.182 kvenna í Kaliforníu með silí- konbrjóstapúða og tengt við krabbameinsskrána í Los Angeles ( Los Angeles County Cancer Registry). 31 kona fékk krabba- mein í brjóst en ætlaður fjöldi samkvæmt almennri áhættu án silíkons var 49. (Deapen PRS 1997) Af 3.473 konum í Svíþjóð með silíkonbrjóstapúða fengu 18 brjóstakrabbamein en áætlaður fjöldi samkvæmt almennri áhættu var 25. (McLaughlin. J.Nat Cancer Inst. 1998) Ég læt þessar 3 greinar nægja hér. Tilvitnanirnar í yfirlitsgrein- inni eru 93, ítarlegri frásögn á heima í læknaritum. VEGNA nýlegra skrifa og sjón- varpsviðtala um brjóstapúða sem innihalda silíkon er rétt að koma á framfæri niðurstöðum rannsókna sem beinst hafa að spurningum um hvort slíkir púðar auki líkur á krabbameini annars vegar og hins vegar tengsl þeirra við ýmis óljós gigtareinkenni, eymsli og þreytu. I. Krabbamein. Einkum er þrennt sem spyrja má um tengsl milli silíkonbrjóstap- úða og brjóstakrabbameins. Í fyrsta lagi hvort tíðni brjósta- krabbameins aukist hjá konum með silíkonbrjóstapúða. Svar/Nei Í öðru lagi hvort þær greinist með slíkt krabbamein á hærra stigi. Svar/Nei Í þriðja lagi hvort krabbamein endurtaki sig oftar meðal kvenna með silíkonpúða. Svar/Nei Leitast er við að svara þessum spurn- ingum hér að neðan. Þessi svör eru ekki staðlausir stafir held- ur niðurstöður fjölda rannsókna sem birtar hafa verið í læknarit- um síðustu 10-15 árin. 1) Er aukin tíðni krabbameins í bjóst- um kvenna með silí- kon ? Mjög viðamikil yf- irlitsgrein birtist í Plastic and Re- constructive Surgery í maí 2001. Gagnagrunnur sem notaður var náði til 65.000 rita á tímabilinu 1992-1998, meira en 4.770 birtar greinar, útdrættir, yfirlit og bréf til ritstjóra voru skimuð með tilliti til lykilorðanna brjóstakrabbamein og silicon. Ameríska krabbameinsfélagið (American Cancer Society) gerir ráð fyrir að 12,5% kvenna í Banda- ríkjunum fái brjóstakrabbamein og áætlað er að ein og hálf milljón kvenna í Bandaríkjunum sé með silíkonbrjóstapúða. Það er því ljóst að einhver hópur kvenna með slíka brjóstapúða mun fá brjósta- krabbamein þó engin tenging hafi fundist milli krabbameins og silí- kons. Athygli skal vakin á nokkrum niðurstöðum sem nefndar eru í ofangreindri yfirlitsgrein: Sigurður E. Þorvaldsson skrifar í tilefni skrifa og viðtala um brjóstapúða sem innihalda silíkon Sigurður E. Þorvaldsson »Niðurstaða rann-sóknarinnar var að engin tengsl silíkon- brjóstapúða og stoðvefs- einkenna fundust í þess- ari rannsókn. Höfundur er lýtalæknir. Eru tengsl milli silíkonbrjóstapúða og krabbameins eða langvinnra sjúkdóma? 2) Greinist krabbamein seinna og á hærri stigum hjá konum með silíkonpúða í brjóstum? Í danskri rannsókn var sýnt fram á að stig krabbameins við greiningu hjá konum með brjós- tapúða var það sama og hjá öðrum konum sem greindust með brjósta- krabbamein. (Friis.Int J.Cancer 1997) 3) Er kona sem misst hefur brjóst vegna krabbameins og fer í brjóstauppbyggingu með sílikon í meiri hættu á að fá krabbamein aftur? Fylgst var með 289 konum í 10- 20 ár (meðaltími 13 ár). Nið- urstaðan var sú að hætta á end- urkomu æxlis á brjóstvegg eða fjarmeinvörpum (holhönd, bein) var minni hjá konum sem kusu að fara í brjóstauppbyggingu borið saman við þær sem ekki fóru í slíka aðgerð. (Petit.Tumori 1998) II. Síþreyta, vöðvaeymsli, gigt Umræða um tengsl þessara óljósu einkenna við silíkon er ekki ný af nálinni. Ameríska gigtlækna- félagið „American College of Rheumatology“ sendi frá sér fyrir mörgum árum álit byggt á rann- sóknarniðurstöðum sem birtar voru í „New England Journal of Medicine“ 1994 og 1995. Fyrri rannsóknin (1994. Dr.Gabriel o.fl) var frá Mayo Clinic í Rochester Minnesota. Fylgst var með konum í Olmsted-sýslu (sýsla Mayo Cli- nic). Fylgst var með 749 konum með brjóstapúða að meðaltali í 8 ár og 1.498 konum án brjóstapúða í 8 ár. Stoðvefseinkenni sem fylgst var með voru mörg, meðal annars liðagigt, rauðir úlfar (lupus), fjöl- vöðvagigt, slitgigt, psoriasis, hersl- ismein (scleroderma) og æðabólga. Enginn munur fannst á tíðni þessara einkenna hjá þessum tveim hópum og niðurstaða rann- sóknarinnar var því að engin tengsl silíkonbrjóstapúða og stoð- vefseinkenna fundust í þessari rannsókn. Síðari rannsóknin er nefnd „The Harvard Nurses Study“. Fylgst var með almennu heilsufari hjá stórum hópi hjúkrunarfræðinga, alls rúmlega 80 þúsund konum, frá 1976 til 1995. Af þessum fjölda kvenna höfðu 1861 farið í silíkon- brjóstastækkun og verið með silí- konpúða að meðaltali í 10 ár. Nið- urstaða þessarar rannsóknar var að konur með silíkonbrjóstapúða höfðu ekki stoðvefseinkenni oftar en aðrar konur í samanburð- arhópnum. Ég hef nefnt þau rit sem ég styðst við í samantekt þessari svo áhugasamir geti lesið frumtextann og ef til vill fleiri tilvitnanir. Læknisfræðibókasafn Landspítala Háskólasjúkrahúss kaupir þau læknarit sem hér hefur verið vitn- að í. 20 MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN HAFRANNSÓKNASTOFNUN og sjávarútvegsráðherra hafa keppst við að undanförnu að draga upp sem dekksta mynd af ástandi þorsk- stofnsins. Dregnir hafa verið út úr þeir þættir sem vissulega gefa ástæðu til þess að sýna aðgát en gert hef- ur verið lítið úr öðrum upplýsingum sem segja aðra sögu. Sér- staklega finnst mér að- finnsluvert að látið hefur verið eins og að hrun þorskstofnsins sé á næstunni ef áfram verði stuðst við núver- andi aflareglu og veiða árlega 25% af veiði- stofni. Léleg nýliðun síð- ustu 6 ár, lækkandi meðalþyngd og óhag- stæð aldurssamsetning hrygningarstofnsins eru vísbendingar sem taka verður alvarlega, en fleira þarf að taka til skoðunar til þess að fá heildstæða mynd af stöðu þorskstofnsins og meta líklegustu þró- un að óbreyttri veiði. Hrygningarstofninn hefur stækkað verulega frá 1993, þegar hann varð hvað minnstur. Árið 2005 var hrygningarstofninn talinn vera um 230 þúsund tonn og hafði þá lið- lega tvöfaldast frá 1993. Stofninn var 2005 með stærsta móti allt frá 1970. Árin 1971–3 var hann svip- aður og heldur stærri 1979–81, en hin árin 30 var hrygningarstofninn minni. Síðustu tvö árin hefur hann minnkað nokkuð og er metinn um 180 þúsund tonn þetta árið. Stofn- vísitala stórþorsks er um 90% hærri 2006 en hún var 2001. Að mati Hafrannsóknastofnunar er lík- legast er hrygningarstofninn hald- ist óbreyttur að stærð næstu fjögur árin miðað við óbreytta 25% afla- reglu. Að svipaðri niðurstöðu kemst Alþjóðafiskveiðiráðið, ICES, sem telur reyndar að hrygningarstofn- inn muni vaxi lítillega frá 2007 til 2010. Svip- aða sögu er að segja af viðmiðunarstofni þorsksins. Hann var í sögulegu lágmarki um miðjan síðasta áratug, en hefur vaxið síðan og er metinn 650 þús. tonn í upphafi árs 2007. Hafrann- sóknastofnun telur lík- legast að viðmið- unarstofninn verði um 600 þús. tonn árið 2011, ef fylgt yrði óbreyttri aflareglu. Samkvæmt þessum upplýsingum er staða þorskstofnsins nú að mörgu leyti frekar góð í samanburði við það sem verið hefur síðan 1970. Fleira þarf að skoða. Veiðihlutfall og veiðiálag gefa mik- ilvægar upplýsingar. Hvort tveggja hefur farið lækkandi síðustu ár. Veiðihlutfall 5-10 ára þorsks var 75% um aldamótin, en hefur lækkað í 60% á þessu ári og mun lækka í 50% fram til 2009 að mati ICES að óbreyttri afla- reglu. Veiðiálag var um 40% um aldamótin og hefur lækkað niður í 30% nú og mun lækka enn frekar og verða 26% árið 2009 samkvæmt mati ICES. Hvort tveggja mun gerast að óbreyttri aflareglu og stuðla áfram að sterkari þorsk- stofni. Þá vil ég nefna að í skýrslu Haf- rannsóknastofnunar kemur fram að afli á sóknareiningu óx lítillega árið 2006 frá fyrra ári og í botnvörpu og á línu hafi ekki orðið teljandi breyt- ingar. Loks verður ekki hjá því komist að benda á upplýsingar sem fram koma í skýrslu Hafrannsókna- stofnunar um rækjustofninn. Allir rækjustofnar við landið standa illa og innfjarðarstofnarnir sérstaklega og hefur svo verið um nokkurra ára skeið. Ástæðan er mikil ýsu- og þorskgengd í öllum fjörðum. Það eru hinir „slöku árgangar“ und- anfarinna ára sem hafa étið upp rækjustofnana og mat stofnunar- innar er að léleg nýliðun rækjunnar og „mikil þorskgengd á rækjuslóð nú benda til þess að rækjustofninn muni minnka enn frekar á næstu árum“. Það er merkilegt að lélegir þorskárgangar síðustu ára hafi gengið svo frá rækjustofnunum um allt land að þeir eru hvergi í veið- anlegu ástandi, þegar rækjan stóð af sér áratugum saman mun sterk- ari árganga af þorski. Niðurstaða bæði ICES og Haf- rannsóknarstofnunar er að næstu 4 ár verði nokkuð stöðugt ástand þorsksins að óbreyttri aflareglu varðandi hrygningar- og viðmið- unarstofn og að veiðiálag og veiði- hlutfall muni halda áfram að lækka. Þetta mat stendur engan veginn undir því að hrun sé á næsta leiti eins og látið er í veðri vaka, og er þá ekki allt upptalið sem vísar til mun betra mats á þorskstofninum en Hafró telur vera. En það er líka rétt að halda því til haga að niðurskurðarleiðin hefur verið farin áður. Um miðjan síðasta áratug voru þorskveiðar skornar mikið niður og voru 155 þús. tonn tvö fiskveiðiár í röð. Í kjölfarið var kvótinn aukinn á 3 árum upp í 250 þús. tonn. En Adam var ekki lengi í Paradís, aukningin stóð ekki nema tvö ár og hrundi svo niður 180 þús. tonn á tveimur árum. Hafrannsóknastofnun taldi sig hafa ofmetið stofninn og ráðgjöf hennar hefði því verið röng. Það gekk ekki að byggja stofninn upp í það sinnið, frekar en áður og það þarf frekar fífldirfsku en kjark til þess að ana að óathuguðu máli enn og aftur út í sama fenið. Þorskstofninn betri en af er látið Staða þorskstofns er að mörgu leyti góð í samanburði við það sem verið hefur síðan 1970, segir Kristinn H. Gunnarsson »Niðurstaðabæði ICES og Hafrann- sóknastofnunar er að næstu 4 ár verði nokkuð stöðugt ástand þorsksins að óbreyttri afla- reglu. Kristinn H. Gunnarsson Höfundur er formaður þingflokks Frjálslynda flokksins. YFIRLÝSINGAR Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanrík- isráðherra, í Ísraels- og Palest- ínuheimsókn hennar hafa vakið athygli. Átökin á þessu svæði hafa verið í brenni- depli heimsfrétta all- an síðari hluta síð- ustu aldar og allt fram á þennan dag. Af fréttaviðtölum að dæma er hins vegar engu líkara en utan- ríkisráðherra sé að kynnast splunkunýju máli. Þannig var hún bara búin að kynnast annarri hliðinni í fyrri hluta heimsóknar sinnar, vildi lítið segja um hina hliðina fyrr en hún væri búin að kynna sér þá hlið! Auðvitað væri það stórkostlegt ef Ís- lendingar gætu látið gott af sér leiða í frið- arviðleitni fyrir botni Miðjarðarhafs en þá þyrfti líka að nálgast málið af skilningi og raunsæi. Það þykir mér Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanrík- isráðherra ekki gera. Á sveif með Bush Hún segist telja að glufa kunni nú að vera að opnast fyrir mögu- legt friðarferli. Hún lætur þess hins vegar ógetið að sú glufa er á forsendum Ísraels og bakhjarlsins Bandaríkjastjórnar. Því miður var ríkisstjórn Íslands ekki tilbúin að samþykkja tillögu okkar á sínum tíma – nú síðast ítrekuð í vor – um að viðurkenna palestínsku þjóð- stjórnina líkt og Norðmenn gerðu. Nú er hins vegar búið að sundra þeirri stjórn, hrekja hana frá völd- um og skapa upplausn, nánast borgarastyrjöld í Palestínu. Það er aðeins þá, eftir að Ísraelsstjórn hefur tekist það ætlunarverk sitt að deila og drottna, að hún er reiðubúin að aflétta þvingunar- aðgerðum gegn Vest- urbakkanum og koma jafnvel færandi hendi. En við fráfarandi lýð- ræðislega kjörna stjórn mátti ekki – og má ekki – ræða og undir það sjónarmið hefur Ingibjörg Sól- rún tekið og styður þar með með línu þeirra Olmerts og Bush. Mér kemur ekkert á óvart að Ísr- aelar vilji milligöngu slíks aðila! Dregið í dilka eftir gamalkunnum formúlum ISG hefur lýst því yfir að ekki komi til greina að tala við Ha- mas. Það voru þau stjórnmálasamtök sem unnu sigur í síð- ustu þingkosningum í Palestínu og komust þannig til valda en í óþökk ísraelska her- námsliðsins. Þess vegna voru þingmenn fangelsaðir, fjár- streymi stöðvað inn í skatthirslur Palestínu þannig að ekki reyndist unnt að fjármagna einu sinni grunnþætti velferðarþjónust- unnar. Nei „mér finnst allir þeir sem ég hef talað við í dag“, er haft eftir ISG í Blaðinu 20. júlí, „sam- mála um að það hafi verið alger- lega ófyrirgefanlegt af Hamas að standa svona að málum í Gaza“. Hvar hafði ráðherrann leitað ráða, hverjir voru viðmælendur hennar? Þetta segir Ingibjörg Sólrún á sama tíma og hún þiggur boð her- Óraunsæi utanríkisráðherra Ögmundur Jónasson skrifar um heimsókn utanríkisráð- herra til Ísraels og Palestínu Ögmundur Jónasson »Ef einhvervon á að vera til þess að ná árangri þarf auðvitað að ræða við alla hlutaðeigandi, hvort sem það er Fatah, Ha- mas eða Ísr- aelsstjórn... flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.