Morgunblaðið - 23.07.2007, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 23.07.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 15 Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is NOKKRAR þyrlur breska flug- hersins fluttu fólk af flóðasvæðum í mið- og vesturhluta Englands í gær þar sem mikil flóð eftir aftak- arigningu hafa valdið miklum usla í þrjá daga. Talsmaður flughersins sagði þetta viðamestu aðgerðir björgunarþyrlna hersins á frið- artímum. Þúsundir manna hafa þurft að hafast við í neyðarskýlum vegna flóðanna. Samtök breskra trygg- ingafélaga sögðu að eignatjónið gæti numið hundruðum milljóna sterlingspunda, eða sem svarar tugum milljarða króna. Mjög vætusamt hefur verið í Bretlandi í sumar en á föstudag- inn var kastaði tólfunum. Rign- ingin jafnaðist þá á við með- alúrkomu rúms mánaðar á aðeins örfáum klukkustundum á svæðum í Englandi og Wales. Rigningin var minni um helgina, en ár flæddu yfir bakka sína og sumar voru enn í vexti. Ástandið var verst í Gloucester- skíri, Worcesterskíri og Oxford- skíri, sem eru norðan og vestan við London. Flóðin voru í rénun í Gloucesterskíri í gær en færðust í aukana annars staðar. Eru þetta mestu vatnavextir í Severná í Gloucesterskíri í sex áratugi. Hundruðum bjargað Talsmaður breska flughersins, Rhona Metcalfe, sagði að herþyrl- ur hefðu bjargað yfir hundrað manns á flóðasvæðunum um helgina. Þyrlurnar hefðu farið í 55 ferðir til að bjarga fólki eða flytja lækna og hjálpargögn til fólks sem þarfnaðist læknisaðstoðar. Um 40 mönnum var til að mynda bjargað úr hóteli í Eves- ham þar sem fólkið hafði verið innlyksa í tvo daga. Björgunarsveitir bjuggu sig einnig undir að flytja yfir 200 manns úr húsum í Gloucester. Björgunarsveitir hafa notað gúmmíbáta til að sækja aldrað fólk sem er einangrað á heimilum sín- um. Bæir og akrar eru víða um- flotnir og samgöngur röskuðust vegna þess að þjóðvegir og járn- brautir eru undir vatni. Skortur á drykkjarvatni Mikið tjón hefur orðið þar sem vatn og skolp hefur flætt inn í hús og vatnstanka. Yfirvöld hvöttu því um 80.000 heimili í Sutton til að sjóða allt drykkjarvatn. Óttast var að 350.000 manns yrðu án drykkjarvatns í norðanverðu Glou- cesterskíri. Fregnir hermdu einnig að hætta væri á að vatn flæddi inn í 80.000 hús í Surrey og að allt að 200.000 manns yrðu fyrir eignatjóni. Stjórnin gagnrýnd Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, bar lof á björg- unarsveitirnar og sagði að sveit- arstjórnum yrði bættur allur kostnaður vegna flóðanna. Þing- menn stjórnarandstöðunnar gagn- rýndu stjórnvöld fyrir að hafa ekki gripið til varúðarráðstafana og tryggt fullnægjandi flóðavarnir eftir þriggja daga úrhelli. „Það er hneyksli að stjórninni skuli ekki hafa tekist að afstýra flóðunum,“ hafði fréttavefur breska dagblaðsins The Daily Telegraph eftir John Redwood, þingmanni Íhaldsflokksins í Wok- ingham. „Engir sandpokar voru tiltækir, engar dælur og engir skurðir höfðu verið grafnir. Hvers vegna var slökkviliðið ekki kallað út, eða jafnvel herinn? Það er al- gerlega óviðunandi að fólk skuli hafa þurft að híma í bílum á um- flotnum þjóðvegum.“ Sir Menzies Campbell, leiðtogi Frjálslyndra demókrata, tók undir gagnrýnina. „Það hafði verið vitað í nokkra daga að þetta myndi líklega ger- ast,“ sagði hann. David Cameron, leiðtogi Íhalds- flokksins, krafðist opinberrar rannsóknar á framgöngu stjórn- valda í málinu og sagði að fólk vildi vita hvers vegna sandpokar, dælur og tæki til flóðavarna voru ekki send á flóðasvæðin í tæka tíð. Framlögin aukin Hilary Benn, umhverfisráðherra Bretlands, vísaði þessari gagnrýni á bug og sagði að bresk stjórnvöld hefðu brugðist rétt við hættu- ástandinu miðað við aðstæður. Þá benti hann á að núverandi að- stæður ættu sér engin fordæmi. Benn sagði í samtali við breska ríkisútvarpið, BBC, að rigning- arnar hefðu verið óvenju miklar og við slíkar aðstæður gætu jafnvel bestu varnirnar brostið. Gordon Brown neitaði því einnig að stjórnvöld hefðu ekki gert næg- ar varúðarráðstafanir og benti á að stjórnin hefðu aukið fjár- framlögin til flóðavarna úr 600 milljónum punda í 800 milljónir á ári. Yfirmaður bresku umhverf- isstofnunarinnar, Barbara Young barónessa, sagði hins vegar að verja þyrfti milljarði punda (120 milljörðum króna) í flóðavarnir á ári. Young sagði þetta nauðsynlegt vegna þess að loftslagsbreytingar ykju hættuna á slíkum flóðum. Mestu björgunaraðgerðir breska flughersins á friðartímum Reuters Hundruðum bjargað Slökkviliðsmenn bjarga gestum hótels í Evesham í miðhluta Englands. Hundruðum manna hefur verið bjargað á flóðasvæðunum. Aftakaflóð Loftmynd af bílum í bænum Tewkesbury sem var umflotinn vatni eftir steypirigningu. Aðstæður kannaðar Björgunarmenn synda í flóðvatni í bænum Evesham eftir að hafa athugað aðstæður fólks í umflotnu húsi. Vætusumar Hjólað í flóðvatni í Tewkesbury í Gloucesterskíri. »Mjög vætusamt hef- ur verið í Bretlandi í sumar en á föstudaginn var kastaði tólfunum. Rigningin jafnaðist þá á við meðalúrkomu rúms mánaðar á aðeins örfá- um klukkustundum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.