Morgunblaðið - 23.07.2007, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 23.07.2007, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 41 / AKUREYRI / KEFLAVÍK NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SAMbio.is FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS WWW.SAMBIO.IS tv - kvikmyndir.is eee LIB, Topp5.is eee L.I.B. - TOPP5.IS eee H.J. - MBL eeee KVIKMYNDIR.IS ÁSTIN ER BLIND HEFURÐU UPPLIFAÐ HIÐ FULLKOMNA STEFNUMÓT?STEFNUMÓTAMYND SUMARSINS "LÍFLEG SUMAR- SKEMMTUN" eee L.I.B. TOPP5.IS eee S.V. MBL. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SHREK, FÍÓNA, ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN ERU MÆTT AFTUR Í SKEMMTLEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA. STÆRSTA GRÍNMYND SUMARSINS FRÁ LEIKSTJÓRA BRUCE ALMIGHTY Guð hefur stór áform ... en Evan þarf að framkvæma þau Evan hjálpi okkur HARRY POTTER K. 6 - 9 B.i. 10 ára SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ BLIND DATING kl. 8 LEYFÐ DIE HARD 4 kl.10 B.i. 14 ára HARRY POTTER 5 kl. 6 - 9 B.i. 10 ára SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ SHREK 3 m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ Eftir Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is KÚBANAR eiga snjalla kvik- myndagerðarmenn og hefur verk- in þeirra rekið stöku sinnum á kvikmyndahátíðir landsmanna. Að öllu jöfnu eru þær fáséðar og vandfundnar, ekki síst vegna út- flutningshafta „Stóra bróður“ í norðri. Það eru því fagnaðarefni að nú er hægt að panta af banda- rískum netverslunum glænýtt safn fimm athyglisverðra mynda frá eyjunni í Karíbahafinu Verkin sem um ræðir voru unn- in á árunum 1962–1986, og eru markaðssett undir nafninu The Cuban Masterworks Collection.Við sögu koma þrír virtir leikstjórar, fyrstan skal frægan telja Tomás Gutiérrez Alea (1928-1996). Hann er þekktastur kúbanskra leik- stjóra fyrr og síðar og hafa a.m.k. þrjár mynda hans verið sýndar hérlendis: Memorias del subdes- arrollo (’68), Fresa y chocolate (’94) og Guantanamera (’95). Hann á í öskjunni frumraunina, Las Dose sillas eða Tólf stóla (’62). Hún er byggð á kunnri, rúss- neskri smásögu, sem hefur verið margoft kvikmynduð, m.a. af Mel Brooks, árið 1970. Eftir Julio García Espinosa (1926-), stofnanda og lengst af stjórnanda kúbanska kvik- myndaháskólans, er umdeild mynd, Las Aventuras de Juan Quin Quin (‘67). Hún gerist á fyrri hluta 19. aldar og segir sígilda sögu af framapotara sem notfærir sér m.a. pólitískar aðstæður með góðum árangri. Þrjár myndir eftir Humberto Solás (1941-), einn merkasta núlif- andi leikstjóra eyjarskeggja, fylla síðan pakkann. Solás er hvað kunnastur fyrir myndir um konur og þær eru umfjöllunarefni Cecilia (’81) og Amada (’83). Sú fyrr- nefnda gerist meðal þræla á plant- ekrum 19. aldar, hin segir af há- stéttarkonu sem verður ástfangin af byltingarsinnuðum frænda sín- um, rétt fyrir uppreisn Castros. Þriðja verk Solás, Un Hombre de éxito (’85), er á svipuðum nótum: Leiðir tveggja bræðra skiljast á tímum byltingarinnar. Safn kúbönsku meistaraverkanna MINNIR á Crash að því leyti að finna má skyldleika með vítahring orsaka og afleiðinga í báðum verk- unum. Edmond (Macy) er venjuleg- ur borgari á ytra borðinu en innra með honum eru vondir hlutir í gangi og einn góðan veðurdag verður sprenging. Það lítur út fyrir að spákona hleypi út innri manninum þegar hún segir við Edmond: „Þú ert ekki á réttum stað.“ Þannig nálgast Mamet augnablikð þegar við höfum fengið okkur fullsödd og verðum að gera breytingar, en myndin er byggð á einu minniháttar sviðsverka hans. Edmond er ýkt, forvitnileg og áhrifarík, full af vel ígrunduðum til- svörum og athyglisverðum nið- urstöðum hugleiðinga um tilveruna. Ef það nægir ekki, þá er stórleikur Macys einn þess virði að myndinni sé gefinn gaumur. Auk hans kemur við sögu fjöldi góðra skapgerðarleik- ara, m.a. Joe Mantegna o.fl. úr Ma- met-klíkunni. Edmond fer allan hringinn, að lokum er hann ekkert líkur né skyldur manninum sem við sáum í upphafi. Skoðunarferðin um líf hans og okkar allra er ljót, und- anbragðalaus og ekki fyrir við- kvæmar sálir. En persónan hefur fundið svarið sem hann leitaði. Strengurinn brestur Sæbjörn Valdimarsson Mynddiskur Edmond  Bandaríkin 2006. Myndform. 80 mín. Bönnuð yngri en 16 ára. Leikstjóri: Stu- art Gordon. Aðalleikarar: William H. Macy, Julia Stiles. Drama MYNDDISKAR >> ORÐIN sem vitnað er í í fyrirsögn- inni eru höfð eftir bresku blaðakon- unni Rachel (Nicola Walker) hjá BBC. Hún segist hafa grátið og orðið hugsað til móður sinnar í hvert skipti sem hún sá myrta hvíta konu þar sem hún starfaði áður í Bosníu. Hér felli hún ekki tár. Shooting Dogs gerist í Rúanda um það leyti sem þjóðarmorð hútúa á tútsum er að hefjast og eng- inn skortur er á líkum, hroðalega út- leiknum líkum. Rachel skammast sín fyrir skoð- anir sínar en hún viðurkennir þær og hér er komið að kjarna málsins – sem má helst ekki nefna: Afríka og íbúar hennar eru of langt í burtu til að við Vesturlandabúar höfum nægilegar áhyggjur til að gera eitthvað af- drifaríkt í málum líkt og þjóðarmorð- inu í Rúanda 1994. Í dag er verið að stráfella saklaust fólki í Darfur, guð má vita hvar sveðjurnar verða á lofti á morgun. Við fréttum af því og sitj- um e.t.v. hneyksluð yfir bíómynd um atburðina, en blóðböðin halda áfram af sömu grimmd ef ekkert verður að gert. Ef það er þá mögulegt. Shooting Dogs er byggð utan um ungan kennara (Dancy) og roskinn prest (Hurt), sem horfa máttvana á atburðarásina án þess að geta hjálp- að, frekar en hermenn SÞ. Átakanleg mynd og segir engu síðri sögu en Hotel Rwanda, af glæpum gegn mannkyni og getuleysi þess til að grípa í taumana undir slíkum kring- umstæðum. „Bara dauðir Afríkubúar“ Sæbjörn Valdimarsson Mynddiskur Shooting Dogs  England/Þýskaland 2006. Myndform 2007. 108 mín. Bönnuð yngri en 14 ára. Leikstjóri: Michael Caton-Jones. Aðal- leikarar: John Hurt, Hugh Dancy. Drama HARVEY (Bartholomew) er of- dekraður og spilltur stráklingur og einkaerfingi auðæfa föður síns. Hann er rekinn úr skóla og fer í Evrópusiglingu með farþegaskipi, en fellur fyrir borð á Nýfundna- landsmiðum. Er bjargað af Portú- galanum Manuel (Tracy) um borð í fiskiskip og þar verður hann að dveljast næstu mánuði, uns skipið er fullhlaðið. Ævintýraheimur Kiplings birtist ljóslifandi í mynd sem er engu síð- ur sígild en bókin. Sjómannslíf (eins og hún var þýdd á íslensku) er fyrst og síðast stórkostleg dæmisaga um að „oft verður góður hestur úr göldum fola“, ef uppeld- ismálin eru í höndum manna sem skilja rétt frá röngu. Hún gefur jafnframt mikilvæga innsýn í löngu horfna atvinnuhætti og þá er at- hyglisvert að bera hana saman við tölvustýrt og ofbeldisfullt afþrey- ingarefni samtímans. Sjarmatröllið Tracy fékk Ósk- arsverðlaunin og myndin er í heild framúrskarandi og hefur jafn mik- ilvægt uppeldis- og skemmtigildi í dag og bókin hafði þegar hún kom út fyrir hartnær öld. Dæmalaust ólík öllu sem gert er í dag, svo lær- dómsrík og mannleg. „Hey, ho, little fish, don’t cry, don’t cry …“ Þrír mán- uðir í skóla lífsins Mynddiskur Captain Courageous – Sjómannslíf  Bandaríkin 1937. Sam-myndir. 115 mín. Leikstjóri: Victor Fleming. Aðalleikarar: Spencer Tracy, Richard Bartholomew. Ævintýri/Drama Sæbjörn Valdimarsson GRANT hefur skrifað handrit yfir meðallagi um konur, fyrir karla sem konur (Erin Brockovich, 28 Days, In Her Shoes). Hér reynir hún getu sína bak við myndavél- ina en hefur ekki erindi sem erf- iði. Gray (Garner) verður ekkja á brúðkaupsdaginn og nýtur í kjöl- farið styrks og stuðnings vina- og félagahóps þess látna, sem bera hana á örmum sér. Gray kemst smám saman að því að mannsefnið hefur leynt hana ýmsu, m.a. kemur lítill sonur óvænt til sögunnar, ásamt nudd- konunni, móður hans (Juliette Lewis). Myndin á örugglega að fara ofan í saumana á sambandi manns og konu sem eru að ganga í heilagt hjónaband, sýna hvað makinn, í þessu tilfelli konan, veit nauðalítið um hinn aðilann. Grant og Garner klúðra málunum, út- koman yfirborðskennd, vanskrifuð og illa leikin af aðalleikkonunni. Leisktjórinn Kevin Smith og Olyphant eru mættir úr Die Hard 4.0, en gera lítið fyrir innihaldið að þessu sinni. Lewis og Fiona Shaw (Potter-bálkurinn) lífga upp á alhliða meðalmennsku. Maður kemur í manns stað Sæbjörn Valdimarsson Mynddiskur Catch and release  Bandaríkin 2007. Sena. 107 mín. Leik- stjóri: Susannah Grant. Aðalleikarar: Jennifer Garner, Timothy Olyphant. Ganmandrama

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.