Morgunblaðið - 23.07.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 33
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin frá kl. 9-16.30.
Hjúkrunarfræðingur með viðtalstíma frá kl. 9-11.
Boccia kl. 10. Félagsvist kl. 14.
Dalbraut 18-20 | Brids alla mánudaga í sumar
frá kl. 13 í félagsmiðstöðinni að Dalbraut 18-20.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofa FEBK
Gullsmára 9 og Gjábakka verður lokuð vegna
sumarleyfa 1.-31. júlí. Hægt er að hafa samband ef
þörf krefur, við Kristjönu í 897-4566, Guðmund í
848-5426 og Kristmund í 895-0200. Félagsvist
er spiluð í Gullsmára á mánud. kl. 20.30, en í Gjá-
bakka á miðvikud. kl. 13 og á föstud. kl. 20.30.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferðanefnd |
Skráning fer nú fram í dagsferð í Veiðivötn og
virkjanir fimmtudaginn 26. júlí, ennfremur í
tveggja daga ferð í Landmannalaugar, Eldgjá og
Lakagíga. Nánari upplýsingar og skráningarlistar
eru á töflum félagsmiðstöðanna Gjábakka s. 554-
3400 og Gullsmára s. 564-5260.
Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan opin.
Hádegisverður kl. 11.40. Heitt á könnunni og
heimabakað meðlæti til kl. 16. Í Gjábakka er hægt
að kíkja í blöðin, taka í spil eða spjalla.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Kl. 10 postulíns-
málun og ganga. Kl. 11.40 hádegisverður. Kl. 13
handavinna. Kl. 20.30 félagsvist.
Félagstarfið Langahlíð 3 | Handverks- og bóka-
stofa opin. Kl. 10.30 sögustund. Kl. 14.30 kaffiveit-
ingar. Kl. 15 söng- og samverustund.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall og dagblöðin, kl.
10 bænastund, kl. 12 matur, kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56-58 | Hádegisverður kl. 11.30.
Frjáls spilamennska kl. 13-16. Fótaaðgerðir 588-
2320. Blöðin liggja frammi.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaað-
gerðir. Kl. 9.15-15.30 handavinna. Kl. 9-10 boccia,
Sigurrós (júní). Kl. 11-12 leikfimi, Janick (júní-
ágúst). Kl. 11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 14.30-
15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handavinnustofan opin
í dag, hárgreiðslu og fótaaðgerðarstofur opnar,
frjáls spilamennska frá kl. 13-16.
Hlutavelta | Þær Lena Rós
og Nína Björk héldu tombólu
og söfnuðu 1.230 krónum sem
þær afhentu Rauða krossi Ís-
lands.
Hlutavelta | Þessar duglegu
stelpur, Jasmín Kristjáns-
dóttir og Guðbjörg Eva Þor-
leifsdóttir, söfnuðu flöskum í
götunni heima hjá sér og ná-
grenni. Þær færðu Rauða
krossinum ágóðann af flösku-
sölunni, 3.700 krónur.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar þurfa að
berast með tveggja daga fyr-
irvara virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir sunnu-
dags- og mánudagsblað.
Sam-þykki afmælisbarns þarf
að fylgja af-mælistilkynn-
ingum og/eða nafn ábyrgð-
armanns og símanúmer.
Fólk getur hringt í síma 569-
1100 eða sent á netfangið rit-
stjorn@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
dagbók
Í dag er mánudagur 23. júlí, 204. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hver annan. Eins og ég hef elskað yður, skuluð þér einnig elska hver annan. (Jóh.3, 34.)
Við Reykjavíkurhöfn stendureitt af yngstu söfnum borg-arinar, Víkin – Sjóminjasafn-ið í Reykjavík. Eins og Sig-
rún Magnúsdóttir, forstöðumaður
safnsins, greinir frá gefur heimsókn í
Víkina innsýn í áhugaverðan og mik-
ilvægan hluta sögu borgarinnar og
þjóðarinnar: „Stærstan hluta síðustu
aldar skipuðu fiskveiðar lykilhlutverk í
efnahagslífi Reykjavíkur. Reykjavík
varð togarabær og hafði fimmti hver
Reykvíkingur viðurværi sitt af þessari
atvinnugrein,“ segir Sigrún. „Sjávar-
útvegurinn hleypti hingað fjármagni og
setti mark sitt á bæinn. T.d. var gerð
Reykjavíkurhafnar, sem stóð yfir frá
1913-1917, langstærsta framkvæmd Ís-
landssögunnar fram að þeim tíma, og
sýnir það framsýni manna á þessum
tíma að mannvirkin sem þá voru hlaðin
marka enn ytri ramma hafnarinnar.“
Í Víkinni er margt að sjá: „Nú stend-
ur yfir BÚR-sýning, um Bæjarútgerð
Reykjavíkur sem sett var á laggirnar
fyrir 60 árum og starfaði síðar í bygg-
ingunni sem nú hýsir Sjóminjasafnið.
Einnig höldum við málverkasýningar
og ljósmyndasýningar sem tengjast
sögu sjávarútvegs, og nú er unnið að
undirbúningi veglegrar sýningar sem
verður opnuð í haust, um sögu Reykja-
víkurhafnar,“ segir Sigrún, og bætir
við að þar verði starfi eyrarkarlsins
gerð sérstaklega góð skil og auglýsir
safnið eftir munum því tengdum, eink-
um fatnaði á eyrarkarla.
Sigrún segir marga hafa gaman af að
ganga um hafnarsvæðið, og enda ferð-
ina með heimsókn í Sjóminjasafnið.
„Staðsetning safnhússins er ákaflega
góð, og frábært fyrir Sjóminjasafnið að
standa á sjávarkambi. Hér er útsýni yf-
ir iðandi hafnarlífið, og þegar fram-
kvæmdum við skipulag Mýrargötu-
svæðisins lýkur verður þetta afar
eftirsóknarvert svæði.“
Sjóminjasafnið í Reykjavík er til
húsa á Grandagarði og er opið frá 11 til
17 alla daga, nema lokað er á mánudög-
um. Sjá nánar á heimasíðu Sjóminja-
safnsins á slóðinni www.sjom-
injasafn.is.
Saga | Hægt að kynnast sjávarútvegssögu Reykjavíkur í Víkinni
Nýja safnið við sjóinn
Sigrún Magn-
úsdóttir fæddist í
Reykjavík 1944.
Hún lauk stúdents-
prófi frá MH og
BA í þjóðfræði frá
Háskóla Íslands.
Sigrún starfaði við
kaupmennsku um
langt skeið. Hún
sat í hreppsnefnd á Bíldudal, var síðar
varaþingmaður og þingmaður Fram-
sóknarflokks á Alþingi og tók sæti í
borgarstjórn Reykjavíkur 1982 þar
sem hún sat allt til ársins 2002. Sigrún
hefur verið forstöðumaður Sjóminja-
safns Reykjavíkur frá stofnun, 2004.
Eiginmaður Sigrúnar er Páll Pét-
ursson, fyrrv. ráðherra, og eiga þau
samtals fimm börn og tuttugu barna-
börn.
Tónlist
Skútustaðakirkja | Sumartónleikar við Mývatn kl. 21. Ingi-
björg Guðlaugsdóttir, básúna og Magnús Ragnarsson, org-
el, flytja verk eftir Pergolesi, Duke Ellington og þjóðlagaút-
setningar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skútustaðakirkja.
HOMER, Marge og Maggie Simpson ganga eftir rauða
dreglinum fyrir frumsýningu á nýju kvikmyndinni um
Simpson-fjölskylduna í bænum Springfield í Vermont í
Bandaríkjunum á laugardaginn. Hinn litli og rólegi bær
bar sigur úr býtum í samkeppni um hvar nýja myndin
yrði frumsýnd, en 14 borgir og bæir í Bandaríkjunum
sem bera sama nafn og heimabær Simpson-fjölskyldunnar
tóku þátt í samkeppninni. Myndin verður svo sýnd í kvik-
myndahúsum um öll Bandaríkin frá og með næstkomandi
föstudegi.
Fjör í Springfield
Reuters
50ára afmæli. Í dag, 23.júlí er fimmtug Jófríð-
ur Hanna Sigfúsdóttir, launa-
fulltrúi á Fræðslusviði Kópa-
vogsbæjar og formaður
Starfsmannafélags Kópavogs
til heimilis á Furugrund 66,
Kópavogi. Hún er að heiman.
FRÉTTIR
„PÁLL Steingrímsson er enn í fullu
fjöri í kvikmyndagerðinni og vinnur
um þessar mundir að heimildarmynd
um æðar- og kríuvarpið við Norður-
kot.
Páll var kominn á fimmtugsaldur
þegar hann útskrifaðist frá kvik-
myndadeild New York University ár-
ið 1972. Hann stofnaði síðan kvik-
myndafélagið Kvik sem hann rak um
árabil ásamt félögum sínum Ernst
Kettler og Ásgeiri Long. Fyrsta
verkefni þeirra var heimildamyndin
Eldeyjan, sem fjallaði um Vest-
mannaeyjagosið 1973, en fyrirtækið
varð síðan umfangsmikið á sviði aug-
lýsingamynda fyrir sjónvarp á átt-
unda áratug síðustu aldar og fram á
þann níunda,“ segir í frétt á „Lífið í
Sandgerði“.
„Páll hefur frá upphafi síns kvik-
myndaferils unnið jafnt og þétt að
heimildamyndum með áherslu á nátt-
úru, dýralíf og umhverfi auk fræðslu-
mynda fyrir ýmsa opinbera aðila. Alls
fylla myndir hans rúmt hálft hundrað
og hafa margar þeirra verið sýndar
og verðlaunaðar um víða veröld.
Páll hlaut heiðursverðlaun Ís-
lensku kvikmynda- og sjónvarpsaka-
demíunnar árið 2004 fyrir hinn langa
og farsæla feril sinn á sviði heimilda-
mynda og hlaut heiðursmerki hinnar
íslensku fálkaorðu á árinu 2005.
Norðurkot og Fuglavík eru eitt
stærsta æðarvarp hér á Íslandi. Árið
1936 hóf Sigurður K. Eiríksson eða
Siggi í Norðurkoti eins og flestir
þekkja hann að laga land sitt að æð-
arvarpi sem hefur dafnað jafnt og
þétt í gegnum árin. Árið 1975 voru
komin 800 hreiður, en í dag eru 4.500–
5.000 æðarkollupör,“ segir þar enn-
fremur.
Æðar- og
kríuvarp við
Norðurkot
Páll Steingrímsson vinnur
að gerð heimildamyndar
LANDBÚNAÐARSÝNING og
bændahátíð verður haldin þriðja
árið í röð í Reiðhöllinni við Sauð-
árkrók dagana 17.– 19. ágúst nk.
„Á sýningunni í fyrra kynntu 25
fyrirtæki vélar, vörur og þjónustu
fyrir landbúnaðinn fyrir tæplega
tvö þúsund gestum. Í ár er útlit
fyrir enn stærri og skemmtilegri
sýningu, sem hefst seinnipart
föstudags og stendur fram á
sunnudag. Atriði og uppákomur
verða í gangi allan tímann, bæði
innan og utan sýningarsvæðis. Í
reiðhöllinni er 1.700 m² innisýning-
arsvæði og auk þess stórt útisvæði
fyrir kynningar á stærri vélum og
tækjum.
Dagskrá verður bæði fyrir börn
og fullorðna, starfræktur verður
húsdýragarður, margverðlaunaðar
landnámshænur verða til sýnis,
vinsælar kálfa- og hrútasýningar
verða á sínum stað, umhverf-
isverðlaun verða afhent, kynning á
handverki fyrr og nú, o.fl., o.fl.
Böll eru á Sauðárkróki, bæði
föstudags- og laugardagskvöld, af-
urðastöðvar opna dyr sínar fyrir
gestum og hátæknifjósið í Birki-
hlíð verður til sýnis. Á landbún-
aðarsýningunni verður einnig Mat-
arkistan Skagafjörður galopin, full
af girnilegum kræsingum, og svo
verða veitingahús víðsvegar um
Skagafjörð með sérstakan skag-
firskan matseðil þessa helgi. Véla-
fyrirtæki á útisvæði verða fleiri í
ár en í fyrra, og úrval véla til sýnis
eykst mikið milli ára. Um sýning-
arhelgina verða tónleikar að Hól-
um, kvöldverður í Glaumbæ og
margt fleira í boði, en nánari upp-
lýsingar um landbúnaðarsýn-
inguna og afþreyingu í Skagafirði
helgina 17. – 19. ágúst má finna á
slóðinni: www.horse.is/landbunad-
arsyning,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá undirbúningsnefnd.
Landbúnaðar-
sýning á Krókn-
um í þriðja sinn
♦♦♦