Morgunblaðið - 23.07.2007, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
ÆVINTÝRA- og jaðaríþrótta-
keppnin Suku Extreme Arctic Chal-
lenge hófst á laugardag, en þetta er í
sjöunda skipti sem keppnin er hald-
in. Það er ekki á færi nema allra
mestu hreystimenna að taka þátt,
því keppnin reynir gríðarmikið á
styrk og þol keppenda, en meðal
keppnisgreina eru hlaup og hjólreið-
ar í fjalllendi, róður um langar vega-
lengdir á kanó, jöklaganga og fjalla-
klifur.
17 fjögurra manna lið hófu keppni
að þessu sinni. Bretar eru fjölmenn-
astir með 19 keppendur og næstir
koma Danir með 17 keppendur.
Noregur, Holland, Frakkland,
Grænland, Bandaríkin, Nýja-
Sjáland og Ísland eiga svo öll sína
fulltrúa í keppninni.
Sex Íslendingar taka þátt í keppn-
inni í ár. Eitt lið er algerlega skipað
Íslendingum og kallar sig The Int-
ersport Iceland. Þar fer fremstur í
flokki Trausti Valdimarsson, en
hann keppir nú í Grænlandsævintýr-
inu í þriðja sinn. Hann hefur mikla
reynslu að baki sem nýtist honum í
keppninni og þar má nefna að hann
hefur hlaupið 50 maraþon. Félagar
hans eru þeir Stefán Viðar, Ásgeir
Elíasson og Gunnlaugur Júlíusson,
en sá síðastnefndi hefur sérhæft sig í
langhlaupum og æfir nú fyrir keppni
í 240 kílómetra hlaupi.
Liðið Northern Lights er samsett
af tveimur íslenskum körlum, þeim
Pétri Helgasyni og Erlendi Birg-
issyni, og tveimur dönskum konum,
Karin Moe Bojsen og Piu Anning
Nielsen.
Afrekaskrá þeirra Péturs og Er-
lends er löng og hafa þeir meðal
annars hlaupið samtals 40 maraþon.
Þeir hafa báðir margoft tekið þátt í
Laugavegarhlaupinu og meðal
þeirra íþrótta sem þeir félagarnir
leggja stund á eru klettaklifur,
skíðaíþróttir og hlaup.
Í fjórða sæti eftir fyrsta daginn
Rásmerki var gefið klukkan tíu á
laugardagsmorgun og byrjuðu
keppendur á því að róa kanó yfir
fimm kílómetra breiðan fjörð, þar
sem fjallganga upp á tind Polhelm
fjalls í 1000 metra hæð tók við. Þeg-
ar liðin komu niður af fjallinu var ró-
ið aftur yfir fjörðinn og í mark. Int-
ersport-liðið endaði fyrsta daginn í
fjórða sæti og fór leiðina á tímanum
fjórum klukkustundum, fimm mín-
útum og 25 sek. Northern lights
lentu í tólfta sæti og komu í mark
eftir fimm klukkustundir, 16 mín-
útur og 33 mínútur.
Gærdagurinn strembinn
Verkefni gærdagsins var að hjóla
sjö kílómetra langa og mjög ójafna
braut fimm sinnum og klífa því næst
þrjá fjallstinda í nágrenni Tasilaq.
Að sögn aðstandenda er hjólreiða-
brautin sá liður keppninnar sem tek-
ur hvað mest á. Það boðaði ekki gott
fyrir lið Intersport, enda mátu þeir
það sjálfir svo að fjallahjólreiðarnar
væru þeirra veikasta hlið.
Svo fór þó að lokum að þeir voru
fimmta liðið í mark um hálf sjö í
gærkvöld eftir níu og hálfan tíma.
Northern lights voru ekki komin á
leiðarenda klukkan rúmlega níu, en
þá voru níu af liðunum 17 komin aft-
ur til Kulusuk.
Í dag keppa liðin í boðhjólreiðum
og göngu á jökli og er lagt af stað
klukkan níu að morgni. Eftir daginn
í dag verða ákveðin kaflaskil í
keppninni, því venjan er að fyrstu
þrjá dagana fái liðin verkefni sem
hægt er að ljúka á einum degi eða
minna, en fjórða og síðasta áskor-
unin getur tekið hátt í tvo sólar-
hringa og er þá lítið sofið.
Um tíma var útlit fyrir að fresta
þyrfti keppninni vegna þess að
fjallahjól og annar búnaður sumra
keppenda tafðist á Reykjavík-
urflugvelli. Það tókst þó á endanum
að bjarga málum með því að útvega
björgunarvesti, blautbúninga og
annan nauðsynlegan útbúnað frá
heimamönnum í Tasilaq, svo keppn-
in gat hafist á laugardagsmorgun
eins og gert var ráð fyrir.
Sex Íslendingar í erfiðri
jaðaríþróttakeppni
Fjallgöngur, hjól-
reiðar og róður í
fimm daga
Ljósmynd Erwin Reinthaler
Af stað Í gær hjóluðu keppendur 35 kílómetra og klifu síðan strax á eftir þrjá tinda í nágrenni Tasilaq
Intersport Stefán, Ásgeir, Trausti og Gunnlaugur Northern Lights Pétur, Karin, Pia og Erlendur
Í HNOTSKURN
»Keppendur klifra, hjóla,ganga og róa samtals um
250 kílómetra á fimm dögum.
Stór hluti leiðarinnar liggur
yfir brattar fjallshlíðar, stór-
grýti og jökla.
»Mikið er lagt upp úr ör-yggi þátttakenda í keppn-
inni. Þannig er klukkan stopp-
uð á meðan klifrað er síðustu
metrana upp á varasama
fjallstinda. Keppendur fá þá
einnig svolitla stund til þess að
njóta útsýnisins
HJÓLREIÐAMAÐUR liggur alvar-
lega slasaður á gjörgæsludeild
LSH í Fossvogi, en hann varð fyrir
bifreið á Vesturlandsvegi við
Keldnaholt á ellefta tímanum í
gærmorgun. Að sögn lögreglu var
maðurinn að hjóla í áttina að bæn-
um þegar bifreið, sem ekið var í
sömu átt ók aftan á hann með
fyrrgreindum afleiðingum.
Lögregla segir að það hafi skipt
sköpum að maðurinn var með
hjálm þegar óhappið átti sér stað.
Tók hjálmurinn mestan hluta
höggsins og var hrokkinn í sundur
þegar lögreglu og sjúkralið bar að
garði. „Hjálmurinn bjargaði miklu
og aðrir ættu að láta sér þetta að
kenningu verða. Hjálmurinn
bjargar því sem bjargað verður,
svo einfalt er það,“ segir varð-
stjóri hjá lögreglunni á höfuðborg-
arsvæðinu.
Alvarlega slas-
aður eftir reið-
hjólaslys
ENGAN sakaði þegar mannlaus bif-
reið rann stjórnlaust niður 20
metra langa brekku, yfir steyptan
kant og inn í húsgarð í Lunda-
brekku í Kópavogi á laugardag.
Bifreiðin var í handbremsu, en ekki
í gír og svo virðist sem hand-
bremsan hafi látið undan þunga bif-
reiðarinnar í hallanum með fyrr-
greindum afleiðingum.
Að sögn lögreglu er mikil mildi
að enginn skuli hafa orðið fyrir bif-
reiðinni, sem er talin ónýt eftir
ferðalagið niður brekkuna.
Mannlaus bif-
reið rann niður
brekku
EIN líkamsárás var kærð til lög-
reglu á Suðurnesjum aðfaranótt
sunnudags, en nokkur erill var hjá
lögreglu vegna skemmtanalífsins í
Reykjanesbæ þá nótt. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu fór þó
allt stóráfallalaust fram. Einn öku-
maður var kærður fyrir meinta ölv-
un við akstur.
Á laugardagskvöld barst tilkynn-
ing til lögreglunnar á Suðurnesjum
um að maður hefði fallið af hest-
baki við Mánagrund. Hann var
fluttur með sjúkrabifreið á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja til skoð-
unar. Talið er að meiðsl mannsins
séu minniháttar.
Ein líkamsárás
kærð
VÉLHJÓLAMAÐUR slasaðist
seinnipart laugardags, þegar hann
féll af bifhjóli þar sem hann var á
ferð í Finnafirði sem gengur inn af
Bakkaflóa. Að sögn lögreglunnar á
Húsavík er hann með samfallið
lunga og meiðsl á baki, sem ekki
eru þó talin varanleg. Þar fyrir ut-
an er hann talsvert marinn og
lemstraður. Hann var fluttur með
sjúkraflugi frá Þórshöfn til Reykja-
víkur.
Ökumaðurinn missti stjórn á öku-
tækinu í lausamöl og endaði ut-
anvegar er hann var í beygju, segir
lögregla.
Nokkrir vegfarendur urðu vitni
að slysinu og höfðu strax samband
við neyðarlínuna.
Féll af vélhjóli
og slasaðist
UPPBYGGING stafræna talstöðva- og farsíma-
kerfisins Tetra er nú langt á veg komin. 105
sendar hafa verið settir upp hátt og lágt um land-
ið og 45 eru tilbúnir til uppsetningar. Uppbygg-
ing Tetra-kerfisins var kynnt í fyrrahaust, en
hingað til hefur kerfið aðeins þjónað viðbragðs-
aðilum á Suðvesturlandi, Akureyri og Ísafirði.
Kerfið er eitt fullkomnasta fjarskiptakerfi fyrir
öryggis- og neyðarþjónustu sem völ er á og þjón-
ar það viðbragðsaðilum á borð við lögreglu,
björgunarsveitir og slökkvilið um allt land.
Vaxandi þrýstingur frá ferðafólki
Stór veitufyrirtæki á borð við Orkuveitu
Reykjavíkur, Landsvirkjun og Landsnet eru
einnig í hópi notenda, sem og Vegagerðin og fleiri
opinberir aðilar. Einkaaðilum hefur ekki verið
veittur aðgangur að kerfinu enn sem komið er, en
þeir sem standa að uppbyggingu þess segjast
finna fyrir stöðugt vaxandi þrýstingi frá ferða-
fólki sem leggur leið sína um óbyggðir landsins
og vill eiga þess kost að nýta sér Tetra-kerfið
sem öryggistæki.
Notendur kerfisins rúmlega 3 þúsund
Notendur kerfisins eru nú rúmlega þrjú þús-
und talsins og fjölgar þeim dag frá degi.
Á næstu misserum verður þeim 45 sendum
sem eru tilbúnir á lager komið fyrir á svæðum
þar sem sambandi er ábótavant. Margir af þeim
fara upp á hálendið, þar sem til stendur að reyna
að þekja jöklana eins vel og kostur er, sem og af-
skekkta firði og önnur svæði fjarri mannabyggð-
um.
Uppsetning starfræna Tetra-
kerfisins er vel á veg komin
Morgunblaðið/Júlíus
Fullkomið Tetra er öryggiskerfi fyrir öryggis-
og neyðarþjónustu.
EINN var með allar tölur réttar í
lottói laugardagskvöldsins og hlýt-
ur hann rúmar fimm milljónir
króna í vinning. Lottótölur kvölds-
ins voru: 2, 9, 20, 21 og 24. Bón-
ustalan var 37.
Einn með
allar réttar