Morgunblaðið - 23.07.2007, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.07.2007, Blaðsíða 19
gæludýr MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 19 HANDVERKFÆRI N1 býður upp á mikið úrval af hágæða rafmagns- og handverkfærum. WWW.N1.ISN1 VERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9 · SÍMI 440 1200 F í t o n / S Í A mið hans er að gera Seyðisfjörð og ná- grenni spennandi kost fyrir göngufólk og vinna að uppbyggingu og viðhaldi gönguleiða, auk þess að miðla upp- lýsingum og skipu- leggja ferðir. Þessi elja hefur borið árangur því Seyð- isfjörður er paradís fyrir göngufólk, með fjölbreyttu úrvali af miserfiðum gönguleið- um. Hægt er m.a. að fara stikaðar leiðir til Loð- mundarfjarðar um Hjálmárdalsheiði eða frá Austdal til Mjóafjarðar um Brekkugjá. Víkverji er hrifnastur af leiðinni frá Austdal að náttúruperlunni Skálanesbjargi í mynni fjarðarins. Það er létt og sér- lega skemmtileg ganga á láglendi; tekur um eina og hálfa klukkustund aðra leið ef fólk freistast ekki til að nema staðar til að dást að fjöl- breyttu fuglalífinu á þessum slóðum. Gaman er líka að ganga meðfram Fjarðará til að skoða fossana þar eða frá minnisvarðanum í Neðri-Staf, yf- ir göngubrú, út eftir brún fjallsins og niður í Botna fyrir ofan bæinn. Víkverji hvetur einnig göngufólk til að koma við á upplýsingamiðstöð ferðamanna á Seyðisfirði og kynna sér hvernig hægt er að hljóta nafn- bótina „fjallagarpur Seyðisfjarðar“ með því að klífa sjö tinda við fjörð- inn. Víkverji er nýkom-inn heim eftir nokkurra vikna dvöl í sveitasælunni úti á landi. Hann ferðaðist meðal annars til Seyð- isfjarðar og einna eft- irminnilegust var Jónsmessugleði sem Gönguklúbbur Seyð- isfjarðar stóð fyrir af miklum myndarskap. Um 150 manns, eða um fimmtungur bæjarbúa, tóku þátt í gleðinni. Ekið var með rútu upp að snjóflóðavarnagörð- unum í Bjólfi (1.085 m) og var stórfenglegt að horfa niður snarbrattar hlíðar fjalls- ins úr um þúsund metra hæð á kaup- staðinn beint fyrir neðan. Víkverji hvetur ferðalanga til að ganga upp á fjallið á veginum frá Stafdal fyrir botni fjarðarins. Það er þægileg leið og útsýnið stórfenglegt fyrir þá sem ekki eru lofthræddir. Um 56 manns gengu frá snjóflóða- varnagarðinum í Bjólfi niður í Vest- dal þar sem vígð var göngubrú yfir Vestdalsá, heilgrillað lamb, spjallað, sungið og dansað fram á nótt í mildu og fallegu veðri. Líklegt er að álfar og huldufólk hafi tekið þátt í gleðinni því skammt frá brúnni er Álfaborg- in, dansstaður seyðfirskra álfa. x x x Víkverji dáist að krafti og eljuþeirra sem fara fyrir Göngu- klúbbi Seyðisfjarðar. Meginmark-      víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Eftir Ingvar Örn Ingvarsson ingvarorn@mbl.is Svokallaðir vígahundar hafanotið mikilla vinsælda hjáungu fólki í Danmörku hinsíðustu ár. Sumum eig- endum þessara hunda hefur fylgt ákveðin tíska, þar sem hundarnir eru eyrnastýfðir en það athæfi var bannað í Danmörku árið 1987 og árið 2001 á Íslandi. Þetta hefur hinsvegar ekki hindrað þarlenda þar sem farið er með hundana yfir til Þýskalands og þeir eyrnastýfðir þar af óprúttnum aðilum enda eru eyrna- stýfingar líka ólöglegar í Þýska- landi. Það eru einkum hundar eins og Dobermann, Boxer og Stór-Dani sem þykja vera hörkulegri á að líta eftir eyrnastýfingu og er því um að ræða „fegrunaraðgerð“ fyrst og fremst og henni eingöngu ætlað að breyta útliti hundsins. Einnig er hægt að flytja eyrna- stýfða hunda inn frá löndum þar sem eyrnastýfingar eru enn leyfð- ar og því er enn opið fyrir að þess- ar aðgerðir séu framkvæmdar á dýrunum, þrátt fyrir að slíkt sé ekki gert á Íslandi. Sársaukafull aðgerð Eyrnastýfing byggist á gamalli hefð en talið er að markmiðið hafi verið að draga úr sárum hjá bar- daga- og varðhundum. Yfirleitt er þetta gert með því að djúpsvæfa hundinn þegar hann er á milli 8 og 10 vikna gamall, en stundum allt 6–7 mánaða, og þá er ytri hluti eyrans skorinn eða klipptur í burtu. Sárið er svo saumað og búið um eyrun þannig að þau haldist upprétt. Það þarf svo að skipta um umbúðirnar minnst vikulega og þetta þarf að gera í 6 mánuði ef eyrun eiga að haldast uppi. Aðferð þessi er sársaukafull fyr- ir hundinn og þá sér í lagi vikuleg skipting sárabindanna í allt að hálft ár, framkvæmd af misjöfnum ræktendum erlendis því ekki má flytja hundana inn með sárabind- unum á. Þetta getur haft áhrif á skapgerð hundsins eða viðhorf hans til mannfólksins. Í samtali við dýralækni kom fram að aðgerðir sem þessar tíðkist ekki á Íslandi enda ólöglegar og að mati dýra- lækna með öllu ónauðsynlegar. Ennfremur tengjast aðgerðir sem þessar í auknum mæli víga- hundum sem eru notaðir í undir- heimum en nokkrar tegundir þess- ara hunda hafa verið bannaðir og finnast ekki á Íslandi, t.d. Pit Bull Terrier, Staffordshire Bull Ter- rier, Fila Brasileiro, Toso Inu og Dogo Argentino. Þó finnast hér hundar sem eru flokkaðir sem vígahundar erlendis en eru leyfðir eins og Bullmastiff og Rottweiler. Í samtali við Brynju Tomer þjónustufulltrúa VísAgria dýra- verndar og áhugakonu um hunda- rækt kom fram að þeir eyrna- stýfðu hundar sem til væru á Íslandi væru innfluttir frá löndum þar sem eyrnastýfingar eru enn leyfðar en það eru fyrrverandi Austur-Evrópulöndin og Bandarík- in. „ Ólöglegt og tíðkast ekki á Íslandi Hjá hundaræktarfélagi Íslands eru alveg skýrar reglur um það að þú getur ekki komið með hund í sýningar á Íslandi í ræktunardóm ef hann er eyrna- eða skottstýfður og kemur frá landi þar sem það er bannað,“ segir Brynja en segir jafnframt að í lagi sé að sýna eyrna- og skottstýfða hunda ef þeir koma frá löndum þar sem þetta er enn leyft. „Þetta er fyrst og fremst spurning um útlit og hverju maður hefur vanist. Sjálf vandist ég þessum tegundum sem eyrnastýfðum því ég kynntist þeim fyrst fyrir 30 árum síðan á Spáni. Við erum smám saman núna að venjast því að sjá þessa hunda með lafandi eyru og langt skott og svona eru þeir bara frá náttúrunn- ar hendi og ef við sættum okkur ekki við það verðum við bara að finna okkur eitthvert annað dýr, t.d. hund sem er með upprétt eyru frá náttúrunnar hendi eins og ís- lenskan fjárhund,“ segir Brynja og leggur áherslu á að þessar útlits- breytingar séu nokkuð sem verði að víkja enda tilgangurinn með þeim eingöngu útlitslegur. Það virðist einnig vera sem svo að eyrnastýfingar loði einna helst við hunda sem notaðir eru af fólki í undirheimum landsins og er þá eini kosturinn að flytja inn þessa hunda eyrnastýfða frá Austur- Evrópu eða Bandaríkjunum. Í höndunum á röngum eigendum verða þessir hundar sem upp- runalega eru vinnu- eða varð- hundar að vígahundum og í raun- inni virka þeir sem vopn í höndunum á röngu fólki. Það er einmitt þessi tenging á milli eyrnastýfinga sem veldur því að fólk óttast þessa hunda. Eyrna- stýfingum er í dag ætlað að gera hundana meira ógnandi og ekki er hægt annað en að velta því fyrir sér hver ástæðan fyrir því er. Niðurstaðan er líklega sú að þeir eigendur umræddra hunda- tegunda sem láta sér annt um dýr- in sín geta orðið fyrir aðkasti þar sem svörtu sauðirnir á meðal eig- enda setja svartan blett á allt hundakynið og jafnvel eigendur líka. Eyrnastýfingar hunda Eyrnastífður Í sumum löndum er enn heimilt að eyrnastífa hunda þrátt fyrir að aðgerðin sé sársaukafull og hafi aðeins útlitslegan tilgang. Stella Kristjánsdóttir Náttúrulegur Seifur er íslenskur Doberman, vinalegur og með lafandi eyru eins og hann var skapaður frá náttúrunnar hendi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.