Morgunblaðið - 23.07.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.07.2007, Blaðsíða 2
FARÞEGI í flugvél Icelandair sem kom frá Minneapolis í gærmorgun var handtekinn við heimkomuna. Að sögn lögreglu lét maðurinn, sem var mjög ölvaður, ófriðlega í flugvélinni; áreitti flugfreyjur og var öðrum far- þegum vélarinnar til ama. Maðurinn veitti mótþróa við hand- töku, en þegar lögreglu hafði tekist að koma járnum á hann var hann fluttur á lögreglustöð, þar sem hann var látinn sofa úr sér í fangaklefa. Skýrslutaka fór fram að því loknu og var maðurinn látinn laus um miðjan dag í gær. Að sögn lögreglu hefur maðurinn þegar verið kærður fyrir ofbeldi gegn lögreglumönn- unum. Flugdólgur áreitti flug- freyjur 2 MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is UNGMENNIN fjörutíu sem starfa á vegum Hins hússins og fá laun sín greidd frá Svæð- isskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík hafa nú fengið full laun greidd út. Segjast ungmenn- in ánægð með þetta en foreldrar segja önnur at- riði þó mikilvægari í málinu og umræða um launamál ungmennanna er umdeild. Ætlar að kaupa sér DVD diska Kolbeinn Jón Magnússon er þroskahamlaður og starfar í Bónusi í Skútuvogi. Þar er hann að raða í hillur þegar blaðamann ber að garði. Mestan hluta ársins býr hann í London ásamt foreldrum sínum. Eftir stutt samtal á íslensku skiptir hann því yfir í vandaða Lundúnaensku. „Mér líkar þetta rosalega vel, þetta er miklu betra en garðvinnan sem ég var í síðasta sum- ar,“ segir Kolbeinn. Spurður um launin segist hann fylgjast með því hvað hann fái. Það skipti sig miklu máli að hann fái borgað að fullu því þá finnist honum að hann sé hærra metinn af öðru fólki. Aðspurður segist hann búast við að eyða laununum eins og þau leggja sig í DVD-diska, en launin dugi nú fyrir heldur fleiri diskum en ella. „Miklu skemmtilegra“ Jón Þorri Jónsson er sautján ára gamall. Hann stríðir við þroskahömlun og athyglisbrest og vinnur í Hinu húsinu. Einnig hefur hann ver- ið í Bónusi, Sigurplasti í Mosfellsbæ og Vals- heimilinu í sumar. Kveðst Jón Þorri afar ánægður með þessa nýju reynslu. Í fyrra hafi hann verið í garðvinnu á Miklatúni allt sumarið, og það hafi verið heldur tilbreytingarsnautt. „Þetta er miklu skemmtilegra,“ segir Jón Þorri. „Það er gaman að fá að vera með í þessu. Skemmtilegast fannst mér í Sigurplasti að halda á kössum og svoleiðis. Svo á ég víst fullt af peningum inni á reikningi einhvers staðar líka.“ Hrafnhildur Kjartansdóttir, móðir Jóns Þorra, segir verkefnið frábært. Launin segir hún ekki hafa verið aðalatriði til að byrja með en hins vegar standi ríkið sig illa þegar útborg- un launa dragist á langinn, umræðan hafi að öll- um líkindum flýtt útborgun. Foreldrar hafi hins vegar ekki haft hátt yfir málinu framan af enda taki þeir öllu starfi fyrir fötluð börn fegins hendi þegar það býðst. Nú segir Hrafnhildur son sinn upplifa vinn- una á annan hátt, hann þurfi að mæta og hann gegni mikilvægara hlutverki. Stundum spyrji hann ákafur þegar hann kemur heim á kvöldin „Ætlarðu ekki að spyrja mig hvernig var í vinnunni í dag?“ „Á þessum aldri er mjög stutt þar til þessir krakkar eru komnir út í lífið og það ríður á að finna út úr því hvar þeirra hæfni liggur og hvers konar störfum þau geta sinnt í framtíðinni. Þetta verkefni hjálpar mjög mikið í því, enda hafa þau fylgdarmenn sem sjá í hverju þau standa sig best,“ segir Hrafnhildur og hrós- ar starfsfólki Hins hússins í hástert fyrir frammistöðu sína. Neikvæð umræða út úr kortinu Sæmundur Runólfsson er faðir Runólfs Sæ- mundssonar sem er einhverfur, starfar hjá Hinu hússinu og þiggur laun hjá Svæð- isskrifstofunni rétt eins og Kolbeinn og Jón Þorri. Segir Sæmundur launin algjört auka- atriði í sínum huga. Framtakið sé frábært og uppbyggilegt, mun betra en garðvinnan sem annars býðst. Neikvæð umræða um verkefnið sé því heldur fáránleg, enda snúist það um að útvíkka reynsluheim ungmennanna og gefa þeim færi á því að sjá hvar þeim vegni vel í starfi og hverju þau geti sinnt. Mestu skiptir að ungmennin fái tæki- færi til að finna starf við sitt hæfi Morgunblaðið/RAX Hörkuduglegir Birkir Freyr og Kolbeinn Jón hafa sannarlega unnið fyrir kaupinu sínu. Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is ELDINGU laust niður í farþegaþotu Iceland Express við lendingu á Keflavíkurflugvelli á laugardag. Að sögn Matthíasar Imsland, fram- kvæmdastjóra Iceland Express, var vélin nýlent þegar eldingunni sló nið- ur í vænginn svo högg kom á vélina, en fæstir farþegar hefðu þó tekið eft- ir því. Engin órói eða hræðsla hefði gripið um sig, enda stafaði flugvélum ekki ógn af eldingum við þessar að- stæður. „Fyrir fólk almennt sem vinnur ekki við flugvélar allan daginn hljóm- ar þetta kannski ekki vel, en stað- reyndin er sú að þetta er alveg viðbú- ið í flugbransanum og gerist reglulega,“ segir Matthías. Þar sem þrumuveður eru sjaldgæf á Íslandi verða ekki mörg svona atvik á Kefla- víkurflugvelli, en eru þeim mun al- gengari erlendis. „Þessar vélar hafa fullkomna eldingavara og eru hann- aðar til þess að þola svona lagað,“ segir Matthías. Engu að síður fara allar vélar sem verða fyrir slíkum óhöppum í skoðun, að sögn Matthías- ar, og var vél Iceland Express því færð í flugskýli þar sem hún var yf- irfarin samkvæmt ýtrustu öryggis- kröfum. Einhverjar tafir urðu á flug- áætlun um helgina, en ný leiguvél var samstundis pöntuð frá Bandaríkjun- um og sagði Matthías að áætlun ætti nú að vera komin í samt lag. Varð fyrir eld- ingu í Keflavík ÓSTAÐFESTAR fregnir herma að lögregluyfirvöld á Möltu hafi gefið út handtökuskipun á hendur Ólafi Ragnarssyni, skipstjóra togarans Eyborgar, fyrir að taka 21 flótta- mann um borð í skipið í síðasta mán- uði. Flóttamennirnir, sem allir voru frá Afríku, höfðu velt opnum flótta- bát sínum í ólgusjó í líbýskri lögsögu, en þeim tókst af eigin rammleik að klifra upp í túnfiskflotkvíar sem Ey- borgin var að sækja og ryðjast um borð í skipið. Í kvöldfréttum Sjónvarpsins var sagt frá því að samkvæmt fjölmiðlum á Möltu hefði handtökuskipun verið gefin út á hendur Ólafi og hans væri nú leitað. Að sögn Fannýjar Láru Hjartardóttur, eiginkonu Ólafs, hafði samborgari hans, sem jafnframt er staddur á Möltu, samband við hann og tjáði honum að samkvæmt þar- lendum fjölmiðlum væri hans nú leit- að. Ekki liggur hins vegar fyrir um hvaða fjölmiðla er að ræða. Ólafur hefur nú slökkt á farsíma sínum og ætlar að athuga í rólegheitum hvort fótur sé fyrir handtökuskipuninni, að sögn Fannýjar. Hún segist munu hafa samband við íslensk stjórnvöld í fyrramálið til þess að fá botn í málið. „Ég vona að þetta sé púðurkerling og það sé einfaldlega gúrkutíð í fréttamennsku á Möltu rétt eins og hér á Íslandi,“ segir Birgir Sigur- jónsson, útgerðarmaður Eyborgar- innar. Hann segir að ef fregnirnar reynist sannar treysti hann íslenska utanríkisráðuneytinu til þess að leysa málið á jafnfagmannlegan hátt og þau leystu það í byrjun. „Við héld- um að þessu máli hefði lokið með far- sælum hætti og útgerðin hefur ekki burði til þess að standa í illdeilum við stjórnvöld á Möltu, heldur þurfum við að leita á náðir Péturs Ásgeirs- sonar og hans fólks í utanríkisráðu- neytinu.“ Að sögn Birgis var Ólafi hótað fangavist af hafnaryfirvöldum í Líb- íu, ef hann sneri ekki með flótta- mennina til hafnar í Líbíu, þar sem þeir höfðu upphaflega lagt af stað þaðan. „Ég veit ekki hvort þetta er allt saman á misskilningi byggt hjá fréttamanninum á Möltu, en ég vona það innilega.“ Handtökuskipun á hendur Ólafi hugsanlega verið gefin út KARLMAÐUR á fertugsaldri má búast við því að máli vegna hrað- akstursbrots hans verði lokið fyrir dómstólum, en lögreglan mældi hann á 192 km hraða á Reykjanes- brautinni í gær. Ökutækið, tveggja sæta kraftmikill sportbíll, var mælt á ógnarhraða rétt vestan við Voga á Vatnsleysuströnd. Maðurinn var færður á lög- reglustöð þar sem hann var sviptur ökuréttindum, en við skýrslutöku gat hann engar skýringar gefið á athæfi sínu. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum er hraðinn slíkur að máli mannsins verður ekki lokið með sektargreiðslu til sýslumanns, heldur verður atbeina dómstóla leitað til þess að ákvarða mann- inum refsingu. Ofsaakstur á Reykjanes- braut

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.