Morgunblaðið - 23.07.2007, Page 16
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
O
R
K
3
81
51
0
7
/0
7
16 MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
EINS og fram hefur komið er Ólaf-
ur Jóhann Ólafsson einn sex höf-
unda sem tilnefndir eru til írsku
Frank O’Connor smásagnaverð-
launanna sem veitt verða í borginni
Cork hinn 23. september næstkom-
andi. Ólafur er tilnefndur fyrir bók-
ina Aldingarðurinn.
Hinir fimm höfundarnir sem til-
nefndir eru eru eftirfarandi: Bretinn
Simon Robson fyrir bókina The Sep-
arate Heart, Ísraelinn Etgar Keret
fyrir Missing Kissinger, Charlotte
Grimshaw frá Nýja-Sjálandi fyrir
Opportunity og loks Bandaríkja-
mennirnir Miranda July fyrir No
One Belongs Here More Than You
og Manuel Muñoz fyrir The Faith
Healer of Olive Avenue.
Keppinautar
Ólafs Jóhanns
KLUKKAN 14.03 í dag hefst
lestur nýrrar útvarpssögu á
Rás 1. Í þetta skiptið er það
sagan Hótel Kalifornía eftir
Stefán Mána sem er tekin fyr-
ir, en það er Atli Rafn Sigurð-
arson sem les. Hótel Kalifornía
fjallar um seinheppna verka-
manninn Stefán sem á yfir 300
vínilplötur og drekkur brenni-
vín í Pepsí með vinum sínum
þegar hann vill skemmta sér.
Áform hans eru einföld: Að halda áfram að vinna
og eignast kærustu. En í trénuðu samfélagi þar
sem hversdagsleikinn er orðinn að furðusýningu
verða einfaldar óskir ótrúlega flóknar.
Útvarp
Hótel Kalifornía í
Ríkisútvarpinu
Stefán Máni
HLJÓÐMYNDAKLÚBB-
URINN Slefberi! opnar loka-
sýningu sína í hverfismiðstöð
Miðbæjar og Hlíða á Skúlagötu
21 á hádegi í dag.
Slefberi! er skapandi sum-
arhópur á vegum Hins hússins
sem hefur í sumar unnið að því
að taka ljósmyndir og semja
tónlist í miðbæ Reykjavíkur.
Hópurinn hefur unnið með eitt
þema á viku síðastliðnar átta
vikur og mun afrakstur allra þessara vikna líta
dagsins ljós á þessum lokaviðburði í dag með
glæsilegum tónleikum og ljósmyndasýningu eins
og segir í tilkynningu.
Opnun
Slefberi! opnar á
Skúlagötu
Slefberi!
ANNAÐ kvöld verða þriðju og
síðustu tónleikarnir í tónleika-
röðinni „Þriðjudagskvöld í
Þingvallakirkju“ haldnir. Það
eru þau Margrét Bóasdóttir
sópran og Douglas Brotchie,
orgelleikari sem flytja íslenska
og erlenda kirkjutónlist m.a.
eftir Dvorak, Bach og Buxte-
hude. Tónleikarnir eru haldnir
í samstarfi kirkjunnar og
Minningarsjóðs Guðbjargar
Einarsdóttur frá Kárastöðum. Aðgangur er
ókeypis en tekið er við framlögum í minning-
arsjóðinn. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og standa yf-
ir í u.þ.b. 45 mínútur.
Tónleikar
Dvorak og Bach á
Þingvöllum
Margrét Bóasdóttir
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
LISTAVERKIÐ Snertifletir eftir
listakonuna Olgu Bergmann var vígt
nýlega hjá Iðntæknistofnun. Um er
að ræða 40 fermetra veggmynd á
framhlið stofnunarinnar sem skír-
skotar til þeirrar starfsemi sem þar
er innandyra. „Okkur hefur alltaf
fundist húsnæðið ekki alveg sæmandi
fyrir þá starfsemi sem við erum með,
dálítið dökkt og þungt. Því kom upp
sú hugmynd að fá einhvern til sam-
starfs við okkur til þess að lyfta hús-
inu aðeins upp. Í tengslum við það og
listskreytingasjóð ríkisins kom upp
sú hugmynd að setja veggskreytingu
á húsið. Það var ákveðið forval á lista-
mönnum og Olga kom best út úr því
vali og þar með hófst samstarfið við
hana,“ segir Karl Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Iðntæknistofnunar,
um þá ákvörðun stofnuninnar að fara
í slíkt samstarf við listamann.
„Olga hannaði verkið með starf-
semi okkar í huga, kynnti sér m.a það
sem við erum að gera á sviði mynd-
sjár- og myndgreiningatækni og út
úr því kom þessi myndskreyting utan
á húsinu.“
Að sögn Karls hefur Iðn-
tæknistofnun verið dugleg í gegnum
tíðina við að styðja við skapandi at-
vinnugreinar. „Við höfum í gegnum
árin haft þá stefnu að vera með lista-
verk í húsakynnum Iðntæknistofn-
unar og þar hafa listamenn sýnt verk
sín í sex til tólf mánuði í senn. Með
því viljum við skapa skemmtilegt og
örvandi andrúmsloft fyrir starfs-
menn og styðja við skapandi atvinnu-
greinar.“
Gerir húsin meira fyrir augað
Iðntæknistofnun leitaði til list-
skreytingasjóðs þar sem ákveðin fyr-
irgreiðsla fékkst í veggverkið en að
sögn Karls þurfti stofnunin sem von
var að setja þónokkurt fé í þetta sjálf.
„Við höfðum ekki áður sótt í list-
skreytingasjóð og mér skilst að fyr-
irtæki og stofnanir nýti hann sér allt
of lítið. Í tengslum við verkið gerðum
við lítinn bækling um forsögu þess og
út á hvað það gengur, og hugmyndin
er að senda hann til annarra stofnana
og fyrirtækja með smááskorun um að
gera eitthvað svipað. Leggja sitt lóð á
vogarskálarnar í að styrkja listina.
Það eru alls konar hús að rísa og allt
of lítið um það að listamenn séu
fengnir til að gera húsin meira fyrir
augun,“ segir Karl sem telur að lista-
menn hafi meira verið fengnir áður
fyrr til að skreyta hús. „Það er þó-
nokkuð um listaverk á eldri bygg-
ingum, ef maður labbar um miðbæinn
og lítur aðeins upp sér maður alls
konar veggmyndir en það er voðalega
lítið um þetta á nýjum byggingum. Í
dag tengist þetta líklega því að allir
hlutir verða að vera gerðir eins hag-
kvæmir og mögulegt er, sem er gott
og gilt, en fegurð er líka auðlegð.“
Karl segist að vonum vera mjög
ánægður með verk Olgu, það passi
vel inn í umverfið og hafi góða skír-
skotun til starfsemi Iðntæknistofn-
unar. Spurður hvort veggmyndin sé
föst endanlega á húsinu segir Karl nú
ekki svo vera. „Verkið er að vísu fær-
anlegt og fyrir því er ástæða. Nú eru
kaflaskipti hjá þessum stofnunum á
Keldnaholti, Iðntæknistofnun leggst
af 1. ágúst og sameinast Rannsókn-
arstofnun byggingariðnaðarins og
verða þær að Nýsköpunarmiðstöð Ís-
lands. Síðan er stefnt að því að starf-
semin flytjist í Vatnsmýrina með tím-
anum og verði hluti af því
háskólaumhverfi sem er að byggjast
upp þar og verkið fer vonandi með
okkur þegar þar að kemur.“
„Fegurð er
líka auðlegð“
Snertifletir Við vígsluna þann 12. júlí síðastliðinn. Við verkið standa f.v. Hallgrímur Jónasson, forstjóri Iðn-
tæknistofnunar, Vilhjámur Þ. Vilhjámsson, borgarstjóri sem afhjúpaði verkið, Olga Bergmann og
Sveinbjörn Hjálmarsson, formaður Listskreytingarsjóðs.
Listakonan Olga Bergmann hannaði veggverkið Snertifleti fyrir Iðntæknistofnun
Í texta sem Sigrún Sandra Ólafs-
dóttir skrifaði um verk Olgu í til-
efni vígslunnar hjá Iðntæknistofn-
un segir hún m.a:
„Í veggmyndinni hjá Iðn-
tæknistofnun beinir Olga sjónum
sínum að vinnu vísindamanna,
þeirra verkfærum og viðfangs-
efnum. Olga vann verkið í sam-
vinnu við starfsfólk Iðntæknistofn-
unar og kynnti sér vel þá starfsemi
sem þar á sér stað. [...]
Hún fékk myndir úr raf-
eindasmásjám til þess að vinna úr
og má t.d. sjá í verkinu laxafrumur
og fluguauga en vegna stækkunar
og myndvinnslu verður útkoman
abstrakt og viðfangsefnið nánast
óþekkjanlegt. Í verkinu fær áhorf-
andinn að sjá ljósmyndir, form-
úlur, teikningar, jöfnur og líkön.
[...]
Listir og vísindi eiga margt sam-
eiginlegt, svo sem sköpunargleð-
ina, hugmyndaauðgina og enda-
lausar tilraunir og tilgátur. Olga
Bergmann tekur þessi sameig-
inlegu einkenni skrefi lengra í
sinni vinnu og beinlínis vinnur með
sömu verkfæri og vísindamenn, en
þó á annan máta. Hún bregður upp
myndum sem vísa í framtíðina og
áhrif mannsins á umhverfi sitt. [...]
Verk Olgu Bergmann velta
sannarlega upp mjög viðeigandi
spurningum varðandi hvert nýj-
asta tækni og vísindi eru að leiða
manninn.“
Margt sam-
eiginlegt