Morgunblaðið - 23.07.2007, Page 37

Morgunblaðið - 23.07.2007, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 37 MR. SKALLAGRIMSSON - höf. og leikari Benedikt Erlingsson Sjá sýningadagatal á www.landnamssetur.is Miðapantanir í síma: 437-1600 FYRSTIR skulu síðastir verða eins og skrifað stendur. Gilti það sl. laug- ardag í Skálholti um Apokrypha [45’], 11-þætt verk Huga Guðmunds- sonar, er færðist frá kl. 15 til 17 af þegar tilgreindum ástæðum. Lék all- mikil eftirvænting yfir áheyrendum, enda farnar að berast jákvæðar fréttir að utan um nýleg verk Huga eins og Eq. IV: Windbells er ku mik- ið flutt erlendis um þessar mundir. Auk þess er langt á milli hérlendra frumflutninga á þetta löngum tón- smíðum eftir höfunda af yngstu kyn- slóð, hvað þá við latneska trúartexta. Kveikti það vitanlega forvitni eftir frekari upplýsingum um tilurð og efni, en þar komu hlustendur því miður bónleiðir til búðar. Tónleika- skráin þagði þunnu hljóði, og snjallt erindi Skálholtsrektors kl. 14, „Hvað er Apokrypha?“, fjallaði né heldur um tónverkið svo neinu næmi. Kjör- ið hefði auðvitað verið að fá tón- skáldið til að greina frá verki sínu, en sjálfsagt ber að virða það sjón- armið að verkið tali sínu máli eitt og óstutt. Samt get ég ekki neitað því að örstutt heimildagreining á lat- ínutextunum fjórum er birtust á frummáli og íslenzku, O bona crux (III), Anima Christi (VI), Angele Dei (IX) og Salva me (XI), hefðu komið hlustendum að talsverðu gagni; a.m.k. þeim sögumeðvitaðri. Fornir lítúrgískir textar eiga sér djúpan menningararf sem segir heilmikið umfram sjálft merkingarinntakið. En hvað sem því líður þá var lengst af fólgin sérkennileg upp- ljómun í tónboðskap verksins. Lag- ferlið brúaði sannfærandi ólíka tón- heima ævaforns kirkjusöngs (með ávæningi af austurlenzku kryddi úr sýnagóguhefð gyðinga) og vest- urlenzks nútímastíls (að meðtöldum örsnifsum úr Liljulagi í IV), og oftast kyrrlátt liggjandi hóflega klösótt hljómaferlið laðaði fram það seiðandi launhelga íhugun að vantaði aðeins reykelsisilminn. Undir seinni hlutann þótti mér hins vegar farið að verða nóg af svo búnu, því þó að stök dramatísk upp- brot ættu sér stað dugðu þau ekki til fullnægjandi mótvægis við allsherjar mókhyggjukyrrstæðuna – þó að vitaskuld mæli ég ekki fyrir munn allra áheyrenda. Hitt var þó öllum ljóst, að frábært framlag Guðrúnar Jóhönnu setti afgerandi punkt yfir i- ið með íðilfögrum sléttsöng (ásamt þónokkrum funheitum bel canto- andstæðum) í samræmi við forn- hljóðfæraslátt NoA. Raunar virtist sem sópranhlutverkið væri það sér- saumað fyrir söngkonuna að vand- séð var hver hefði getað túlkað það betur. Seiðandi sléttsöngur Ríkarður Ö. Pálsson TÓNLIST Skálholtskirkja Hugi Guðmundsson: Apokrypha (frumfl. á Ísl.). Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir sópran og barokksveitin Nordic Affect (Georgia Browne flauta, Sara DeCorso & Halla S. Stefánsdóttir fiðla, Guðrún H. Harð- ardóttir víóla, Hanna Loftsdóttir selló, Josh Cheatham bassagamba, Benoit van den Bemden víólóna, Karl Nyhlin þjorba/ barokkgítar og Cvetanka Szosovka semball), ásamt Frank Aarnink slagverk. Stjórnandi: Daníel Bjarnason. Laugardag- inn 7.7. kl. 17. Sumartónleikar  Morgunblaðið/Sverrir Tilhlökkun „Lék allmikil eftirvænting yfir áheyrendum, enda farnar að berast jákvæðar fréttir að utan um nýleg verk Huga...“ segir m.a. í dómi. JENNIFER Tee, ung hollensk myndlistarkona af kínverskum ætt- um, sýnir um þessar mundir stóra myndbands- og skúlptúrinnsetningu sem nær yfir alla neðstu hæð Safns. Í texta sýningarinnar segir að Tee hafi beðið fjölskyldumeðlimi sína að segja frá þeim leyndarmálum sínum sem þau hafi ekki viljað segja henni áður, hún hafi unnið úr sögunum handrit sem fjölskyldan aftur tekur þátt í að leika í myndbandsverkinu. Myndböndin sýna margskonar óræð brot af börnum og fullorðnum í leikjum þar sem grímubúningar og skylmingar koma m.a. við sögu. Bún- ingarnir eiga gjarnan fyrirmyndir í dýraríkinu og leikirnir sem fara fram úti í náttúrunni eru gjarnan sam- keppnisleikir. Þá má sjá foreldrana dansa í heimahúsi, unga konu með dýragrímu og skott færa sig milli staða í herbergi eins og dýr í könn- unarleiðangri eða í leit að útkomuleið. Skúlptúrarnir eru margir ým- iskonar úttroðnir pokar með eitthvað í líkingu við svarta fuglshausa og einnig má sjá eitthvað af búningunum sem notaðir voru í myndbandsverk- inu. Þá nýtir listakonan sér listaverk frá öðrum listamönnum sem eiga verk í safninu og blandar saman við eigin verk. Sýningin er margræð og auðvelt að ímynda sér hve flókið verk sé að vinna verk byggt á fjölskylduleynd- armálum. Leyndarmálin eru þó ekki afhjúpuð sem slík nema í gegnum hliðstæður grímuleiksins og áhorf- andinn getur reynt að ráða í hvers- konar tilfinningar tengjast þeim. Kostur við sýninguna er að hægt er að fá sér sæti í innsetningunni og gefa sér tíma til íhugunar á þeim hlið- arveruleika sem verkið fjallar um. Hins vegar vinnur íslensk sumarbirta afar illa með myndbandsskjávörpum, sama hvaða ráða er gripið til, svo erf- itt getur verið að sýna verkinu þá at- hygli sem það krefst. Tengsl staðreynda og skáldskapar Þóra Þórisdóttir MYNDLIST Safn Laugavegi 37 Sýningin stendur til 26. ágúst Opið mið- vikudaga til föstudaga kl. 14-18, laug- ardaga og sunnudaga kl. 14-17 Jennifer Tee – Down the Chimney Morgunblaðið/Frikki Flókið „Sýningin er margræð og auðvelt að ímynda sér hve flókið það sé að vinna verk byggt á fjölskylduleyndarmálum,“ segir í dómi. HEIÐSKÍRT var og hlýtt á laug- ardag þegar Mario Duella kom fram í Hallgrímskirkju á Al- þjóðlegu orgelsumri, að vanda við fjölda erlendra gesta. Ítalski org- anistinn lék í fyrri hluta verk eftir þýzka klassíkera, í seinni að mestu eftir landa sína. Eftir líf- lega Prelúdíu Buxtehudes í C BuxWV 137 kom yndisljúfur Schü- bler-kórall Bachs um Wachet auf og Prelúdía og fúga hans í G BWV 541, allt flutt við efra spilborð. Leikur Ítalans var allur öruggur og smekklegur, nema hvað fetil- bassi kóralsins „lak“ svolítið á eft- ir hinum tveim röddunum. Á slíku bólaði hins vegar næsta lítið þegar Duella færði sig niður um set í fjórþættri Sónötu Mendelssohns í c Op. 65,2, og heimfærði það sem oftar hversu auðveldara er að stjórna útkomu pípusinfóníunnar úr hæfilegri fjarlægð. Eftir hlé komu rómönsku verk- in: 2. Méditation Op. 20,2 eftir Gu- ilmant (d. 1911) auk þriggja ítalskra verka eftir O. Ravanello (d. 1938) og feðgana Constante Adolfo (d. 1953) og Marco Enrico Bossi (d. 1925). Hafði Salut kvöld- lokka sonarins (Op. 38,3) mel- ódískan vinning kvöldsins, þótt hugleiðing Guilmants skartaði einnig bráðfallegu vöggulagsígildi. Stef og tilbrigði (Op. 115) Bossi eldri, að margra áliti færasta org- anista Ítala í tvær aldir, var and- stæðuríkt og fjölbreytt verk. Sem flest undangengið var það skemmtilega raddvalið, og í þaul- reyndri túlkun kantorsins í Por- tulu var hvergi daufan punkt að finna. Allra sízt í aukalaginu, són- ötu eftir Gaetano Valeri (d. 1822), er setti hásumarlegan brosmildan lokapunkt með viðeigandi suðræn- um útimarkaðsblæ. Hásumar orgelsins Ríkarður Ö. Pálsson TÓNLIST Hallgrímskirkja Verk eftir Buxtehude, J.S. Bach, Mend- elssohn, Guilmant, Ravanello, C.A. og M.E. Bossi. Mario Duella orgel. Laugardaginn 7. júlí kl. 15. Orgeltónleikar  Morgunblaðið/Ásdís SÝNING Tuma Magnússonar í Safni samanstendur af þremur tölvuunnum ljósmyndum. Mynd- irnar eiga það sameiginlegt að skarpar brúnir eða þverlínur í mó- tífinu eru ýktar upp með ljós- myndaskerpu um leið og óljós fók- us annarra hluta myndanna er gerður enn óljósari. Tumi hefur undanfarið unnið með ljósmyndina á þann hátt að láta með hjálp tölvutækninnar hin mismunandi form fyrirmyndanna passa í ferkantaðan ramma. Nú hafa mótífin á ljósmyndunum ekki lífræn form á borð við kött heldur eru kassalaga hlutir, þar af einn pappakassi. Vegna fjarvíddar passar þó mynd af kassa aldrei fullkomlega inn í ferkantaðan ramma fremur en aðrir hlutir og þarfnast því „leið- réttingar“ eins og önnur mótíf. Ferkantaða myndin af pappakass- anum er að auki stækkuð upp og látin passa á vegg í safninu. Vegna ýktra andstæðna milli fók- uss og ekki fókuss er ekki laust við að mann sundli við að horfa á myndina. Ofurstækkun og ljós- myndaskerpa á brún kassans veld- ur einnig blekkingaráhrifum svo að pappinn sjálfur verður ókennilegur. Lesa má öll verkin sem ákveðna þvingunartilraun til að láta mynd- efni passa í hefðbundið og fyr- irframgefið rammaform myndlistar. Myndin af pappakassanum verður þá fyrir tvöfaldri þvingun þar sem hún þarf einnig að smellpassa inn í rými safnsins. Þessi þáttur, ásamt ofuráherslu á skarpar línur og vís- anir til viðtakenda í myndunum, lýsir á írónískan hátt ákveðnum áherslum í myndlist síðustu ára- tuga. Minni myndirnar eru ekki eins grípandi og sú stóra, sem er sjón- rænt áhrifarík með launfyndnum undirtóni. Tumi Þóra Þórisdóttir MYNDLIST Safn Laugavegi 37 Sýningin stendur til 26. ágúst Opið mið- vikudaga til föstudaga kl. 14-18, laug- ardaga og sunnudaga kl. 14-17 Tumi Magnússon – tölvuunnar ljósmyndir Leiðrétting Mynd af kassa passar aldrei fullkomlega inn í rammann. Á málverkasýningu Ásdísar Spanó, Volgru, í Gallerí 100°, sýningarsal Orkuveitu Reykjavíkur, árið 2004 kom listakonan nokkuð kröftuglega inn í myndlistarsenu Íslands með flennistóra fleka sem vísuðu í senn til landslagsmálverka 19. aldar og abstrakt-espressjónisma 20. aldar. Ásdís sýnir nú að nýju í Galleríi 100°. Sýningin heitir Rof og heldur listakonan viðteknum hætti nema hvað landslagsímyndin fer hverf- andi. Sjóndeildarhringur er nú brot- inn niður í renninga og lekandi málningin, sem áður lá yfir strig- anum líkt og bullandi hver, frussast yfir flötinn eins og sprenging. Myndirnar eru grátónaðar og þá í ágætum takti við sýningu hennar í Galleríi Turpentine í hittifyrra en einhver stöðnun er í sjálfu maleríinu og tilraunasemi með efni og áþreif- anleika þess virðist í biðstöðu líkt og listakonan gefi sér ekki tíma til að liggja yfir fletinum og kanna mögu- leikana til hlítar. Þess í stað þreifar hún fyrir sér í rýminu. Skapar hrynjandi með þverskornum línum sem tengjast á milli mynda og sækir þannig séð aftur til málverka sem hún sýndi á útskriftarsýningu LHÍ árið 2003 sem byggðust á hrað- brautum og flugbrautum, ef ég man rétt. Hinn sjálfráði partur eða lek- andi málningin tekur undir þessa hreyfingu og skapar öldugang á milli mynda, auk þess málar hún tvo dökka fleti á veggi rýmisins sem spila með í hrynjandi málverkanna. Það er sjaldnast fyrirséð hvernig listamenn feta sig áfram þróun- arbrautina og kom mér það nokkuð á óvart að listakonan tæki upp slíkar rýmispælingar með málverkin í stað efnistilrauna. En það er ekkert sem segir að listamenn þróist í beinni rökréttri línu. Þeir flakka mun frek- ar fram og til baka, þvers og kruss, og eftir að skoða þessa sýningu Ás- dísar sýnist mér það skynsamlegt skref að taka rýmið betur inn í myndina. Það gefur verkum hennar nýjan vinkil og minnir jafnframt á að við skynjun listina ekki í brotum heldur sem heild. Fram og til baka Myndlist Gallerí 100° Opið virka daga kl. 8.30-16.00. Sýningu lýkur 3. ágúst. Aðgangur ókeypis. Ásdís Spanó Jón B.K. Ransu Frumlegt „Sjóndeildarhringur er nú brotinn niður í renninga og lekandi málningin sem áður lá yfir strig- anum líkt og bullandi hver frussast yfir flötinn eins og sprenging.“ Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.