Morgunblaðið - 23.07.2007, Síða 38
38 MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Kauptu bíómiðann á netinu
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann
Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Sími - 462 3500 Sími - 551 9000Sími - 564 0000
Harry Potter 5 kl. 3 - 4 - 6 - 7 - 9 - 10 B.i 10 ára
Harry Potter 5 kl. 3 - 6 - 9 LÚXUS B.i 10 ára
Evan Almighty kl. 4 - 6 - 8 - 10
Die Hard 4.0 kl. 5 - 8 - 10.45 B.i. 14 ára
Fantastic Four 2 kl. 3
Death Proof kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i. 16 ára
Taxi 4 kl. 6 - 8 - 10
Die Hard 4.0 kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i. 14 ára
Fantastic Four 2 kl. 5:45 - 8 - 10:15
Death Proof kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
1408 kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Evan Almighty kl. 6
Die Hard 4.0 kl. 5:40 B.i. 14 ára
Þessar 8 konur eru um það bil að hitta 1 djöfullegan mann!
Nýjasta meistaraverk Quentin Tarantino
eee
„Geggjaður stíll... sterk og
bráðskemmtileg...bara stuð!“
- Þórarinn Þórarinnsson, Mannlíf
HÖRKUSPENNANDI GRÍNMYND
FRÁ LUC BESSON
NÚ VERÐUR ALLT GEFIÐ Í BOTN
Guð hefur stór áform
... en Evan þarf að framkvæma þau
Magnaður spennutryllir sem sló
óvænt í gegn í Bandaríkjunum
Yippee Ki Yay Mo....!!
eeee
S.V. - MBL
T.S.K. – Blaðið
eee
Ó.H.T. - Rás 2
eeee
V.J.V. – Topp5.is
eee
F.G.G. – FBL
eee
Ó.H.T. - Rás 2
eee
MBL - SV
eee
E.E. – DV
eeee
FGG - Fréttablaðið
eeee
ÓHT - Rás2
eeee
Morgunblaðið
eeee
RUV
eeee
DV
eeee
Tommi - Kvikmyndir.is
eeee
„Helvíti flottur hollustueiður“
- T.S.K – Blaðið
eee
- S.V. – MBL
Eftir Sverri Norland
sverrirn@mbl.is
ÞEIR eru allnokkrir rithöfundarnir
sem upprunalega hlutu hvatningu
og örvun á námskeið í skapandi
skrifum eða rithring, ja, eða alltjént
einhverskonar smásamfélagi
áhugamanna um bókmenntir.
Chuck Palahniuk kveðst til dæmis
hafa lagt drögin að fyrstu bók sinni,
Fight Club (þýð. blaðamanns:
Áflogahundar), í vinnubúðum fyrir
rithöfunda. Þá verður æ algengara
að ungir skáldhneigðir pennar hafi
þreytt svokallaðar ritsmiðjur; hin
amerísku John Irving (The World
According to Garp) og Jane Smiley
(A Thousand Acres) eru góð dæmi
um það. Sögur herma að Amy Tan
hafi einnig stigið sín fyrstu ritlist-
arskref á svipuðum slóðum.
Rithöfundur í felulitum
Sennilega er ekki öllum kunnugt
um að á veraldarvefnum er starf-
ræktur afar athyglisverður íslensk-
ur rithringur (www.rithringur.is)
en notendur eru fjölmargir, og
ýmsir býsna virkir. Birting á vefn-
um takmarkast við sögur og sögu-
brot (engin ljóð til að mynda) og
státar af stóru sögusafni; hefur
enda verið opinn síðan í upphafi árs
2003.
„Vefnum fylgir mikil örvun og já-
kvætt andrúmsloft,“ segir Hildur
Helgadóttir, einn stjórnenda rit-
hringsins. „Hann einkennist af sam-
vinnu fremur en samkeppni; fólk
samgleðst og hvetur aðra af lífi og
sál, er mjög áhugasamt.“
Og afraksturinn lætur ekki á sér
standa – Hildur gefur í haust út bók
hjá JPV. Í felulitum kallast sú og er
„sönn saga frá því að ég fór til
Bosníu fyrir tæpum 10 árum með
breska hernum í friðargæsluverk-
efni. Þar var ég í hálft ár; svo fór ég
að skrifa örfáum árum eftir að ég
kom heim. Það voru smásögur um
örsmáar sitjúasjónir í Bosníu;
reynslu af þessu friðarstarfi og því
hvernig herinn kemur fyrir sjónir
manns frá herlausri þjóð. Svo
rambaði ég inn á vefinn fyrir til-
viljun og leist vel á hugmyndina og
þetta umhverfi.“
Sögur Hildar lögðust vel í not-
endur vefsins, sem vildu meira.
„Þetta varð til þess að ég fór með
smásögusafn til JPV árið 2004. Og
fólk þar á bæ hafði strax áhuga á
þessu konsepti.“ Hildur vann svo að
lokum heildstæða frásögn úr smá-
sögum sínum, en verkið kemur sem
fyrr segir út í haust.
Höfundar Rithringsins eru and-
miklir þessa dagana: tveir höfundar
af síðunni voru í verðlaunasæti í
smásagnakeppni Nýs lífs; annar
meðlimur hirti annað sætið í
Gaddakylfunni; þá hreppti enn einn
höfundurinn annað sætið í smá-
sagnakeppni Tímarits Máls og
menningar og MENOR.
Loks er vert að benda einnig á
systurvef Rithringsins. Kallast
hann www.critiquecircle.com, sótt-
ur af notendum frá fleiri en 70 lönd-
um og hefur hlotið ýmis verðlaun
og viðurkenningar; var meðal ann-
ars í hópi 101 bestu ritlistarvefsíðn-
anna að mati Writer’s Digest.
En hvernig virkar þetta eig-
inlega? „Þú safnar þér stigum til
þess að geta sent inn sögu; það ger-
ir þú með því að rýna hjá öðrum og
skrifa umsagnir. Þegar þú nærð svo
vissum punktafjölda geturðu sent
inn sögur, og þá veltur á ásókn
hversu lengi þarf að bíða, en sagan
fer í biðröð.“
Því er ekki seinna vænna að fara
að safna sér stigum, lesendur góð-
ir...
Sannar sögur frá Bosníu
John Irving
Rúnar Helgi Vignisson Chuck Palahniuk.
Í HNOTSKURN
» Rithringurinn, www.rit-hringur.is, er gagnvirkt net-
samfélag þar sem fólk birtir sög-
ur og brot og miðlar áliti sínu á
verkum annarra.
» Rithringurinn hefur staðiðfyrir upplestrum og höf-
undar komið fram hér og hvar.
» Fjórar bækur, sem fyrst litudagsins ljós í rithringnum,
koma út í haust.
» Höfundar þeirra eru HildurHelgadóttir, Ágúst Borgþór
Sveinsson, Eyvindur Karlsson og
Sirrý Sig.
Getur íslenskur
rithringur á net-
inu af sér nýja
ritsnillinga?
www.rithringur.is
www.critiqucircle.com
Amy Tan.
BANDARÍSKA leikkonan Hilary
Swank ætlar að raka allt hár af sér í
góðgerðarskyni. Leikkonan, sem er
talsmaður Pantene Beautiful
Lengths góðgerðarsamtakanna, ætl-
ar að láta gera hárkollu úr hári sínu
sem krabbameinssjúk kona fær svo
að gjöf. „Það er frábært að vita til
þess að hárið mitt komi að góðum
notum, og að það hjálpi einhverjum
til að líða betur meðan á krabba-
meinsmeðferð stendur. Hárið er
ennþá að vaxa og vonandi get ég gefið
enn meira,“ sagði Swank. „Fjöldi ást-
vina minna hefur látist úr krabba-
meini og ég hef orðið vitni að því hvað
baráttan við sjúkdóminn er erfið. Ég
er mjög stolt af því að geta hjálpað
til.“
Pantene Beautiful Lengths sam-
tökin hvetja fólk til þess að safna hári
og gefa það svo til hárkollugerðar fyr-
ir konur sem missa hár sitt meðan á
krabbameinsmeðferð stendur.
Swank, sem er 32 ára gömul, fékk
Óskarsverðlaun fyrir hlutverk sitt í
kvikmyndinni Boys Don’t Cry, en í
myndinni hafði hún einmitt stutt hár.
„Mér finnst mjög gaman að hafa stutt
hár og mér sýnist jafnvel að það sé að
komast í tísku aftur.“
Reuters
Hárprúð Hilary Swank.
Swank læt-
ur allt fjúka