Morgunblaðið - 23.07.2007, Page 44
MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 204. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Flóð í Englandi
Rigningarveðrið í Englandi að
undanförnu náði hámarki um
helgina og braust út í miklum flóðum
í mið- og vesturhluta landsins. Þyrl-
ur breska hersins fluttu fólk af verst
leiknu svæðunum og þúsundir
manna hafa þurft að gista í neyð-
arskýlum. Tjónið sem flóðin hafa
valdið er talið hlaupa á tugum millj-
arða króna. Í Sutton er hætta á að
drykkjarvatn hafi spillst og þar er
fólk hvatt til þess að sjóða allt
neysluvatn. Ríkisstjórn Englands
hefur legið undir ámæli fyrir að hafa
ekki sýnt næga fyrirhyggju í að-
draganda flóðanna.
Fötluð ungmenni hafa
fengið útborgað að fullu
Styr hefur staðið í sumar um
launagreiðslur til fatlaðra ungmenna
sem starfa á vegum Svæðisskrif-
stöðu fatlaðra í Reykjavík hjá ýms-
um fyrirtækjum í borginni. Þau hafa
nú fengið greidd full laun og eru
sammála um að vinnan í sumar hafi
verið góð reynsla þegar á heildina er
litið. Sum þeirra geyma sumarhýr-
una tryggilega á bankareikningum,
en önnur eru þegar búin að eyða
henni í huganum.
Sex Íslendingar keppa
í Grænlandsævintýri
Sex Íslendingar keppa nú í hinni
erfiðu ævintýra- og jaðar-
íþróttakeppni Siku Extreme Arctic
Challenge á Grænlandi þar sem
þátttakendur róa yfir firði, klífa fjöll
og ganga á jökli. Lið alskipað Íslend-
ingum náði fjórða sæti eftir fyrsta
daginn og fimmta sæti eftir rúmlega
níu og hálfan tíma í keppni í gær.
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Andsetið útvarp
Staksteinar: Þýzkan heldur velli
Forystugreinar: Slysa- og bráða-
deildin | Kína eflist
UMRÆÐAN »
Þorskstofninn betri en af er látið
Óraunsæi utanríkisráðherra
Um lyfjaverð á Íslandi
Trúarbragðafræðsla og kristniboð
Frítt öryggiskerfi
Verð á sérbýli hækkar
Hvaða litir henta þér?
Grámann í Garðshorni
FASTEIGNIR »
Heitast 20 °C | Kaldast 10 °C
Hæg austlæg eða
breytileg átt og
skýjað að mestu.
Skúrir á stöku stað
sunnan og vestan. »10
Í haust koma út fjór-
ar bækur sem eiga
rætur sínar að rekja
til íslensks rithrings
sem starfræktur er
á Netinu. » 38
BÓKMENNTIR»
Íslenskur
rithringur
FÓLK»
Flugan fór á flakk um
bæinn. » 36
Helena Hansdóttir
sýnir fullt af titrandi
eggjum, sem hægt
er að setjast á, um
leið og hún hlýtur
listaverðlaun. » 39
MYNDLIST»
Titrandi egg
til sýnis
KVIKMYNDIR»
Sæbjörn Valdimarsson
dæmir mynddiska. » 41
FÓLK»
Hilary Swank ætlar í sér-
staka klippingu. » 38
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Eldingu laust niður í þotu
2. Ekki meiri Vinir
3. Stærsta þrotabú Íslandssögunnar
4. Kunni ekki textann og söguna
HELGA Mar-
grét Þorsteins-
dóttir, 15 ára
gömul frjáls-
íþróttastúlka úr
USVH, náði tí-
unda sæti í sjö-
þraut á
Evrópumeist-
aramóti ung-
linga 19 ára og
yngri um
helgina. Helga
var aðeins 94
stigum frá því
að bæta Ís-
landsmetið í sjöþraut í fullorðins-
flokki en hún bætti hinsvegar Ís-
landsmetin í meyja-, stúlkna- og
unglingaflokki á mótinu sem fram
fór í Hollandi.
Lokagreinin í sjöþrautinni var 800
metra hlaup og þar gerði Helga sér
lítið fyrir og kom fyrst í mark og
bætti hún eigin árangur um rúma
sekúndu. Helga fékk 5.308 stig en
sigurvegarinn Aigu Grabuste frá
Lettlandi náði að landa 5.920 stigum.
Helga verður 16 ára gömul í nóv-
ember á þessu ári og flestir af kepp-
endunum í sjöþrautinni á EM voru
2–3 árum eldri en hún. |Íþróttir
Helga var
sterk á EM
Helga Margrét
Þorvaldsdóttir
SJÖUNDA og síðasta bókin um
galdrastrákinn Harry Potter,
Harry Potter and the Deathly Hal-
lows, kom út sl. laugardag. Árni
Matthíasson, blaðamaður Morg-
unblaðsins, skrifar umsögn um bók-
ina í blaðinu í dag og segir hana þá
skemmtilegustu af bókunum sjö,
enda takist höfundinum, Joanne
Rowling, vel upp við að blanda
saman óttalegum viðburðum og
skondnum uppákomum.
Í bókinni eru líka grimmileg átök
sem ná hámarki í lokaorrustu þar
sem þeir takast á Harry Potter og
Voldemort hinn illi, en að sögn
Árna falla tugir í valinn í síðustu
bókinni, þar á meðal persónur sem
fylgt hafa okkur í gegnum bæk-
urnar allar. | 40
Uppgjör
góðs og ills
Vinsæll Harry Potter er rifinn út.
„ÉG var bara að fara inn í tjaldvagn-
inn okkar með vinkonu minni þegar
við sáum hundinn og svo sáum við
blóð og þá brá okkur og við æptum
upp yfir okkur,“ segir Auður Ebba
Jensdóttir, 7 ára Hvolsvallarmær
sem lenti í skemmtilegri lífsreynslu í
útilegu um helgina. „Svo sáum við
hvolpinn og þá vissum við að allt var
í lagi. Ég er líka ekkert hrædd við
hunda.“ Auður Ebba var stödd á
tjaldsvæðinu hjá Kaffi Langbrók í
Fljótshlíð ásamt foreldrum sínum
þegar tíkin Perla ákvað að nýta sér
tjaldvagninn þeirra sem fæðing-
arstofu.
Auður Friðgerður Halldórsdóttir,
móðir Auðar Ebbu, segir að uppi
hafi orðið fótur og fit þegar stelp-
urnar uppgötvuðu hvers kyns var og
þær hafi mikið æpt í fyrstu, en
morguninn eftir hafi svo verið kom-
inn annar hvolpur. „Það er alveg
ljóst að við notum ekki tjaldvagninn
eins og er og þurfum að setja allt í
þvott,“ segir Auður eldri. „En henni
finnst augljóslega notalegt að vera í
tjaldvagninum og vildi ekki fara
langt frá eigendum sínum til að
gjóta.“
Það eru hjónin Jón Ólafsson og
Ingibjörg Sigurðardóttir sem eru
eigendur Perlu, en þau eiga líka og
reka Kaffi Langbrók og tjaldstæðið í
kring. Perla er nú orðin virðuleg tík,
enda 14 ára gömul en hana virtist
ekki muna um að fjölga hundakyninu
enn þrátt fyrir aldur. Jón á Brókinni,
eins og hann kýs að kalla sig, segir
Perlu vera ósköp hlédrægan og feim-
inn heimilishund, en hún sé hins-
vegar mjög góður minkaveiðihund-
ur. „Hún hefur gotið að minnsta kosti
tíu sinnum og alltaf fimm hvolpum
þar til núna, enda má nú segja að
hún sé orðin of gömul til að standa í
þessu.“ Ingibjörg kona hans bætir
við að Perla sé hörð af sér enda hafi
hún lent í ýmsu um dagana. „Einu
sinni var hún hvolpafull og þá réðst
á hana önnur tík og reif hana nánast
á hol. Svo vel vildi til að dýralæknir
var staddur á næsta bæ. Hann var
sóttur í snatri og skellti Perlu upp á
eldhúsborð og saumaði hana saman.
Hún náði sér fullkomlega og átti
hvolpana á tilsettum tíma.“
Þrátt fyrir háan aldur reyndi
Perla eftir fremsta megni að vernda
hvolpana sína, en henni var ekkert
allt of vel við gestaganginn í tjald-
vagninum um helgina. Ingibjörg
segir þó tímabært að hún fari nú að
snúa baki við hvolpaeign, „enda held
ég að hún sé jafngömul tengda-
mömmu, sem er á tíræðisaldri, ef
talið væri í mannárum.“
Gaut hvolpum á gamals aldri
Tíkin Perla leitaði skjóls í tjaldvagni
Morgunblaðið/Steinunn Kolbeinsdóttir
Eftir Steinunni Kolbeinsdóttur
LUNGA var nú haldin í áttunda sinn
og tóku um 130 manns þátt í sjö lista-
smiðjum á hátíðinni, en þar af var um
helmingur erlendur. Smiðjurnar
voru í tónlist, leik- og sirkuslist,
danslist, fatahönnun, hreyfimynda-
gerð, stompi og myndlist.
Sigríður Eir Zophaníasdóttir sem
situr í framkvæmdanefnd hátíðar-
innar segir hana hafa gengið framar
vonum. „Mér fannst hátíðin í ár
ganga ótrúlega vel og ég tók sérstak-
lega eftir hvað allt var afslappað. Það
var ekkert stress í gangi og á tímabili
var ég orðin stressuð yfir hvað það
var lítið stress,“ segir Sigríður í létt-
um dúr. Boðað var til stórtónleika í
lok hátíðarinnar þar sem hljómsveit-
irnar Bloodgroup, Skátar, Jeff
Who?, Mínus og Trabant komu fram.
Frábær hátíð fyrir austan
Fjölmargir innlendir og erlendir gestir sóttu LungA,
Listahátíð ungs fólks á Austurlandi, sem lauk nú um helgina
List Frá Listahátíðinni LungA Stress yfir … | 43