Morgunblaðið - 30.07.2007, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.07.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2007 35 Stærsta kvikmyndahús landsins Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Sýnd kl. 7:30 og 10 The Simpsons m/ensku tali kl. 6 - 8 - 10 The Simpsons m/ísl. tali kl. 6 Death Proof kl. 10:15 B.i. 16 ára 1408 kl. 8 B.i. 16 ára www.laugarasbio.is Miðasala á Nýjasta meistaraverk Quentin Tarantino Sýnd kl. 4 og 5:45 Ísl. tali SÝND M EÐ ÍSLENS KU TAL I Magnaður spennu- tryllir sem sló óvænt í gegn í Banda- ríkjunum eee E.E. – DV Sýnd kl. 8 og 10 Magnaður spennutryllir sem sló óvænt í gegn í Bandaríkjunum eee E.E. – DV Nýjasta meistaraverk Quentin Tarantino eeee - LA Weekly eeee - T.S.K – Blaðið eee - S.V. – MBL eeee - Slate eeee - T.S.K – Blaðið eee - S.V. – MBL „ÞÚ HLÆRÐ ÞIG MÁTTLAUSAN!“ - GENE SHALIT, TODAY -bara lúxus Sími 553 2075 Sýnd kl. 4 og 6 m/íslensku tali Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 m/ensku tali Sýnd með íslensku og ensku tali eeee - STEFÁN BIRGIR STEFÁNSSON eee - ROGER EBERT eeee “FRÁBÆR MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA, UNGA SEM ALDNA” - A.M. G. - SÉÐ OG HEYRT eeee - STEFÁN BIRGIR STEFÁNSSON eee - ROGER EBERT eeee “FRÁBÆR MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA, UNGA SEM ALDNA” - A.M. G. - SÉÐ OG HEYRT KVIKMYNDAÁHUGAMENN eru flestir sammála að kvikmyndirnar um Hin fjögur fræknu (Fantastic 4) séu frekar slakar. Sérstaklega þegar þær eru bornar saman við frumgerðina sem birtist okkur fyrst í myndasögu- formi. Að því sögðu ætti það ekki að koma neinum á óvart að tölvuleikur byggður á myndunum er jafnvel slak- ari en fyrirmyndin. Leikurinn býður upp á að maður spili annaðhvort einn og þá getur maður valið að vera eitt þeirra fjögurra fræknu eða maður plati þrjá vini sína til að spila með sér – en þá á maður að vísu á hættu að missa vini sína fyrir fullt og allt því leikurinn er í raun skelfilega leið- inlegur og óspennandi. Maður hjak- kast á sömu tökkunum aftur og aftur, og mest megnis slær maður frá sér á einfaldan og óspennandi hátt eða opnar dyr, finnur lyftur, opnar aðrar dyr og svo framvegis. Endrum og eins þarf maður að notast við krafta Hlutarins (Thing) til þess að brjóta niður veggi en þá er allt það spenn- andi í leiknum upptalið. Grafíkin en eins einföld og hún getur orðið, allt lítur nánast eins út og persónurnar eru óspennandi og líkjast ekkert leik- urunum sem túlka þær í myndunum. Leikararnir eru heldur ekki til staðar til þess að ljá þeim raddir sínar held- ur eru fengnir leikarar sem hafa svip- aðan málróm. Það er leiðinlegt að segja það en svona leikir gefa öðrum leikjum sem byggðir eru á kvikmyndum slæmt orðspor en af einhverri ástæðu virðist þetta drasl seljast. Manni finnst helst eins og leik- urinn sé hannaður fyrir smábörn. Allt hefur verið einfaldað til hins ýtrasta og svo breytir leikurinn söguþræð- inum (af praktískum ástæðum að vísu) þannig að lykilhluti sögunnar fer algjörlega til spillis. Ekki svo frækið Fantastic 4: Rise of the Silver Surfer  7 Studios Playstation 3 Ómar Örn Hauksson Misheppnað Kyndillinn mennski og félagar hans virðast aðeins virka almennilega í myndasögum. NICOLE Richie var nýlega dæmd fyrir ölvunarakstur og hljóðaði dómurinn upp á fjögurra daga fangelsisvist og þriggja ára skil- orð auk þess sem hún þarf að sækja AA-fundi og greiða 2.048 dollara sekt. Dómarinn hélt fyrirlestur yfir Richie þar sem hann sagði að með þessu athæfi hefði hún getað orð- ið einhverjum að bana. „Þú þarft að skilja að það að keyra undir áhrifum er mjög hættulegt,“ sagði hann. Hún fékk þann möguleika að afplána dóminn í fínna fangelsi en almenningur og þarf hún að vera búin að sitja sinn dóm fyrir 28. september næstkomandi. Richie mætti svartklædd í rétt- arsalinn á hárréttum tíma ásamt Joel Madden, unnusta sínum, sem var einnig klæddur í svart. Í seinasta mánuði sagði Richie í þætti hjá David Letterman að hún væri hrædd við að fara í fangelsi. En hún bætti við að hún væri samt tilbúin að takast á við afleið- ingar gjörða sinna. Richie var handtekin 11. desem- ber á síðasta ári eftir að það sást til hennar keyra öfugum megin á hraðbraut í Los Angeles. Hún við- urkenndi fyrir lögreglunni að hafa bæði drukkið áfengi og reykt maríjúana fyrr um kvöldið. Reuters Dæmd Nicole Richie yfirgefur rétt- arsalinn ásamt kærastanum. Nú fer Richie í fangelsi KVIKMYNDIN Transformers er eins og allir vita byggð á eldri teiknimyndum frá níunda áratugn- um og fjallar um hóp vélmenna, Autobots, sem koma til jarðarinnar til að berjast á móti öðrum vél- mönnum, Decepticons sem ætla að gera út af við mannkynið. Allt er þetta byggt á leikfangalínu sem er upphaflega japönsk og voru teikni- myndirnar í raun 20 mínútna langar auglýsingar sem síðar þróuðust út í teiknimyndir og nú í kvikmynd. Eins og með margar sum- arkvikmyndir fylgir oftar en ekki leikur með og sömu sögu er að segja um Transformers. Í fyrstu virðist sem leikurinn gæti verið nokkuð góður. Hægt er að velja um að spila sem annaðhvort góðu gæj- arnir eða vondu kallarnir og að sjálfsögðu er skemmtilegra að spila sem vondi kallinn. Þannig rakar maður saman fleiri stigum og þarf ekki að passa sig eins mikið á þeim hættum sem verða á vegi manns. Í raun þarf maður að gera þrennt í leiknum; komast á ákveðinn stað innan ákveðins tíma, elta uppi óvin áður en hann sjálfur kemst á ákveð- inn stað og svo að berjast við hóp óvina. Allt er þetta sett inn í stórt svæði sem manni er frjálst að ráfa um og rústa ef sá gállinn er á manni. Hins vegar verður að segjast að fljótlega fær maður á tilfinninguna að maður hafi spilað þennan leik áð- ur, líkt og leikjaframleiðandinn sé með hálfgert skapalón sem hann getur breytt lítillega með grafík og skellt svo nýju nafni á – til dæmis Driver eða The Getaway. Spilunin er helsta vandamál leiks- ins, maður á erfitt með að stjórna persónunni í farartækjaformi og bíllinn á mjög erfitt með að halda sér á götunni þannig að maður end- ar á að keyra í gegnum garða og upp á gangstéttir. Í vélmannaformi gengur manni betur en maður end- ar á að gera alltaf sömu hlutina í bardögum þannig að þetta verður allt frekar þreytandi eftir smástund. Grafíkin er stór plús við leikinn. Vélmennin líta mjög vel út á meðan umhverfið er aðeins einfaldara, en það er ekki eins og maður sé að stoppa og skoða mikið af því. Hljóð- ið er ágætt, ekkert merkilegt en fyrir þá sem þekkja er gaman að heyra upprunalegu leikarana, sem léðu persónunum rödd sína í teikni- myndunum, snúa aftur í leiknum. Vélmenni í vígahug Transformers  Activision Playstation 3 Ómar Örn Hauksson Úrillur Það er hættulegt starf að aka lögreglubíl nálægt vélmennum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.