Morgunblaðið - 08.08.2007, Page 18
Við ákváðum að búa til bekkiúr trjánum sem fyrir voruí rjóðrinu og láta þá komaí eins konar boga á milli
nokkurra trjáa í rjóðrinu. Við þurft-
um að fella nokkur tré en notuðum
stubbana sem undirstöðu fyrir borð
sem hægt er að standa eða sitja við
og söguðum trén niður í drumba
sem hægt er að nota sem stóla. Í
rjóðrinu verður einnig ræðupúlt úr
stórum trédrumbi, segja Sighvatur
Ingi Gíslason, Elísabet Rós og Em-
ilía Rós Ómarsdætur sem öll eru að
ljúka grunnskóla og eru í hönnun-
arhópnum við grenndarskóg Ár-
túnsskóla í ár.
– Hafið þið mikið spáð í hönnun?
,,Já, aðeins,“ segja stelpurnar en
Sighvatur neitar því og ekkert
þeirra hyggst leggja hönnun fyrir
sig þrátt fyrir að augljóst er að þau
gætu slegið í gegn. Þau eru hins
vegar sammála því að náttúrulegt sé
töff, enda kemur í ljós að þau eru öll
mikið fyrir útiveru.
Skapandi vinna
En það fær ekki hver sem er að
hanna skólastofur í grenndar-
skógum grunnskóla Reykjavíkur.
Unnar Þór Bjarnason verkstjóri í
unglingavinnunni segir að nokkrir
hafi verið verið valdir í svokallaða
fyrirmyndarahópa sem fengið hafi
skapandi verkefni af þessu tagi.
– Og hvernig komast unglingar í
slíkan fyrirmyndarhóp?
„Með því að standa sig vel í
vinnunni og sinna henni, mæta vel
og á réttum tíma og vera til fyrir-
myndar,“ segir Unnar.
„Þetta er mjög skapandi vinna, en
Vinnuskólinn er í samstarfi við
verkefnið „Lesið í skóginn“ sem nú
hefur verið tekið upp víða í grunn-
skólum. Í þessum skógi hafa krakk-
arnir til dæmis búið til stíga, skýli
undir trjádrumbana sem hægt er að
nota sem sæti auk þess að hanna og
smíða heila útiskólastofu með hús-
gögnum og öllu.
Þau hafa fengið að hafa mikil
áhrif á hönnunina og hafa svo sann-
arlega sjálf sagað, mælt, neglt, bor-
að og málað í vinnunni.“
Ólafur Oddsson er verkefnisstjóri
skólaþróunarverkefnisins „Lesið í
skóginn“ og einn frumkvöðla þess.
„Tilgangurinn með útikennslu-
stofu sem þessari er að styrkja
skógarfræðslu í skólastarfi. Um-
hverfismennt er orðin daglegur
þáttur í starfi margra skóla og eðli-
legt að sækja viðfangsefni í nánasta
umhverfi skólans,“ segir hann og
leggur frá sér sögina í skógarrjóðr-
inu.
,,Nú hafa 14 skólar í Reykjavík
fengið grenndarskóg til afnota hjá
umhverfissviði borgarinnar og notk-
un skólaskóganna spannar allt frá
skógarhirðu til listviðburða.
Grenndarskógar opna möguleika á
útikennslu sem tengist flestum
námsgreinum grunnskólans í sam-
þættu námi utan veggja hans eins
og náttúrufræði, smíði, heimilis-
fræði, stærðfræði og sögu. Skóg-
urinn er mikilvægur fyrir náttúr-
una, mannlífið og menningu
þjóðarinnar og markmiðið með
verkefninu er að efla vitund bæði
starfsfólks skólanna og nemenda
um það. Það er líka svo mikils virði
að þekkja sitt nánasta umhverfi og
kunna að njóta þess. Ég tel því að
það sé mjög mikilvægt að vinna með
börnum og unglingum að skapandi
verkefnum í náttúrunni til þess að
þau læri að umgangast hana og
virða,“ segir frumkvöðullinn og
grípur í sögina. Það þarf að fella
nokkur tré fyrir útikennslustofu Ár-
túnsskóla.
uhj@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Verksvit Elísabet Rós og Emilía Rós Ómarsdætur velta hér fyrir sér í hvernig best sé að búa til borð úr trjádrumbunum.
Morgunblaðið/Ómar
Aðstoðarmenn Unnar og Ólafur voru ánægðir með frammistöðu fyrirmyndarhópsins og verkstýrðu eftir þörfum.
Morgunblaðið/Ómar
Skólabekkir Sighvatur Ingi leit ekki upp frá verki sínu, enda eru þetta án
efa skemmtilegustu skólabekkirnir í borginni.
Skapandi
skógarhönn-
uðir slá í gegn
Í fögru skógarrjóðri í Elliðaárdalnum hefur fyrir-
myndarhópur á vegum Vinnuskóla Reykjavíkur hann-
að óvenjulega skólastofu fyrir nemendur Ártúnsskóla.
Unnur H. Jóhannsdóttir ræddi við efnilega hönnuði.
Unglingar eiga þess kost
að verða skapandi skóg-
arhönnuðir með því að
standa sig vel í unglinga-
vinnunni og sinna henni,
mæta vel og á réttum tíma
og vera til fyrirmyndar.
Unglingabólur virðast nú í aukn-
um mæli fylgja fólki fram á full-
orðinsár. Streita kann að vera
ein af ástæðum þessa. » 21
heilsa
Á gagnagrunninum Ísgem er að
finna upplýsingar um næringar-
innihald um 900 matvæla-
tegunda.» 20
hollusta
|miðvikudagur|8. 8. 2007| mbl.is
daglegtlíf