Morgunblaðið - 08.08.2007, Side 21
hjartaáfalls, heilahimnubólgu,
heilaæxlis, slagæðagúlps eða blæð-
ingar inn á heila:
Skyndilegur og mjög sár höf-
uðverkur.
Höfuðverkur sem fylgir hiti,
stífur háls, útbrot, andlegt
ójafnvægi, sjónrænar breyt-
ingar, þróttleysi, dofi, málerf-
iðleikar, viðkvæmni í hársverði
eða verkir við það að tyggja.
Höfuðverkur sem byrjar eða
versnar við höfuðáverka.
7. Tímabundið tap á sjón, tali
eða hreyfigetu.
Eftirfarandi getur komið fram
vegna hjartaáfalls eða blóð-
tappa:
Skyndilegt þróttleysi eða doði í
andliti, handlegg eða fótlegg
annarrar hliðar líkamans.
Skyndilegt myrkur eða aðrar
sjónrænar truflanir.
Málstol, málörðugleikar eða
erfiðleikar við að skilja talað
mál.
Ofsafenginn og snöggur höfuð-
verkur.
Skyndilegur svimi, jafnvæg-
istap eða fall.
8. Skært ljós.
Skyndileg tilfinning fyrir skæru
ljósi getur verið merki um að
sjónhimna sé að losna.
9. Heit, rauð eða
bólgin liðamót:
Geta verið merki um sýkingu í lið-
um, þvagsýrugigt eða liðagigt.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2007 21
UNGLINGABÓLUR eða Acne vulgaris eru
yfirleitt tengdar yngri aldurshópum enda eru
flestir lausir við ófögnuðinn um 25 ára aldurinn
þó að í einstaka tilfellum glími fólk við ung-
lingabólur fram til fertugs eða jafnvel lengur.
Könnun frá samtökum breskra húð-
sjúkdómalækna bendir hinsvegar til þess að
blikur séu á lofti þar sem 14% breskra kvenna
á aldrinum 26-44 ára þjást af unglingabólum
og er talið að hin raunverulega tala tilfella sé
mun hærri, allt að 50%, þar sem einungis hluti
kvenna leitar sér aðstoðar, en þetta kemur
fram á vefmiðli Times.
Ekki á sömu svæðum
Þannig kemur fram að brugðist hafi verið
við aukinni tíðni húðkvillans af snyrtivöru-
framleiðendum því vöruframboð sem á að taka
á þessum vanda hefur aukist verulega hin síð-
ustu ár.
Þó einkennin séu svipuð þá er sá munur á að
unglingabólurnar koma ekki fram á sömu
svæðum og á unglingsárunum. Á fullorðnu
fólki koma unglingabólurnar þannig helst fram
á kjálkum og við háls, en á enni og kinnum hjá
unglingum.
Dr. Tony Chu, ráðgjafi á Hammersmith-
sjúkrahúsinu í vestur-London, segir að það sé
ekki aðeins munur á því hvar unglingabólurnar
komi fram heldur sé líka munur á því hvaða
áhrif þær hafa. „Unglingabólur geta haft veru-
leg sálræn áhrif á táningsárunum en geta haft
enn meiri áhrif á fertugs- og fimmtugsaldr-
inum.“ segir Chu.
Chu segir jafnframt að ein meginástæða
þess að unglingabólur þjaka fleira og eldra fólk
sé sú að stress er almennt að aukast í þjóð-
félaginu. „Viðvarandi stress getur valdið því að
unglingabólur myndast á ný hjá þeim sem
þjáðust af húðkvillanum á unglingsárunum en
jafnframt gætu bólurnar komið fram í fyrsta
skiptið á fullorðinsárum.“ Ástæða þessa er sú
að við stress eykst framleiðsla karlhormóna
sem aftur leiðir til feitari húðar og þar með
aukast líkurnar á bólum. Þannig getur komist
á vítahringur sjálfsóánægju og streitu sem við-
heldur bólunum.
Það er til fjöldi meðferðarúrræða en mis-
jafnt er hvað hentar hverjum og einum og al-
gengt er að fólk þurfi að prófa sig áfram áður
en eitthvað sem virkar finnst. Þá er ráðlegt að
leita til læknis ef hreinsivörur hafa ekki til-
ætluð áhrif, bólurnar valda andlegri vanlíðan
og eins ef bólurnar eru stórar, aumar og skilja
eftir sig ör eða dökka bletti.
Unglingabólur alla ævi?
Morgunblaðið/Ásdís
Vanlíðan Unglingabólur geta verið streitu-
tengdar hjá þeim sem eldri eru.
Þorsteinn Pétursson á Akureyrisendir Vísnahorninu
eftirfarandi fyrirspurn: „Nú er
mikið rætt um hvort að fari að gjósa
við Upptyppinga. Þessa vísu lærði
ég fyrir nokkrum árum í ferð hjá
Ferðafélagi Akureyrar. Mér er ekki
kunnugt um höfundinn en vísan er
um konur sem ætluðu á Herðubreið
en hættu við það og gengu á
Upptyppinga. Gaman væri að fá
höfund að vísunni.“
Og vísan er svona.
Mæltu gamlar meykerlingar
mændu yfir hraun ógreið:
Okkur þykja Upptyppingar
engu síðri en Herðubreið.
Einar Karl Sigvaldason
Fljótsbakka orti á sínum tíma:
Hér við eyðihraunið grátt
hugann seiða myndir.
Spegla heiðið hreint og blátt
Herðubreiðarlindir.
Einn viðmælenda umsjónarmanns
sagði að sér fyndist sumarið vera
búið eftir verslunarmannahelgina.
Ef til vill er því við hæfi að birta vísu
eftir Sæmund Jóhannesson á
Sjónarhæð á Akureyri og vitaskuld
koma fjöll fyrir í henni:
Brúnastallar blárra fjalla
bera mjallar ennishlað.
Blómin vallar bliknuð falla,
bráðum kallar vetur að.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af fjöllum og
eyðihjarni
Velkomin í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Umfangsmiklar breytingar hafa staðið yfir á Flugstöð Leifs Eiríkssonar síðustu misserin. Verslunar- og
þjónusturýmið hefur ríflega tvöfaldast og fjölmargir nýir rekstraraðilar bæst í hópinn. Veitingastöðum
fjölgar jafnt og þétt og úrval verslana og vöruframboð hefur aldrei verið glæsilegra.
Aukið rými og bætt þjónusta í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Við hvetjum alla farþega til þess að mæta tímanlega og njóta alls þess sem Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur
upp á að bjóða. Hægt er að nálgast upplýsingar um þjónustu flugstöðvarinnar á airport.is.
Munið! Innritun hefst 2 tímum fyrir brottför!
Fáðu meira – mættu fyrr!
Fáðu meira fyrir ferðina
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
F
L
E
3
77
03
0
6/
07