Morgunblaðið - 08.08.2007, Blaðsíða 36
… iðulega nefnt til
marks um hversu full-
komlega hann sóaði hæfi-
leikum sínum … 39
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
YRÐI gefin út í dag bók með íslenskum orðtök-
um væri ekki úr vegi að myndskreyta útskýr-
inguna á því að vera „ýmislegt til lista lagt“
með mynd af Peter Anderson. Peter dansar af
miklum móð með Íslenska dansflokknum en
málar í frístundum, auk þess sem hann hefur
gert video-listaverk og staðið í gamanleikja-
spuna á sviði. Hann á, að eigin sögn, sönginn
einan eftir en hyggst ekki snúa sér að honum
fyrr en tími vinnst til. Í Gallerý Turpentine gef-
ur að líta þessa dagana málverk hins fótafima
Peters.
Ónefndar myndir
„Ég blanda saman pensilstrokum og klessum
í verkum mínum,“ útskýrir Peter. „Ég undirbý
mig ekkert áður, byrja einfaldlega með auðan
striga og vinn mig áfram. Stundum klárast mál-
verkin fljótlega en stundum mála ég yfir verk
aftur og aftur þar til ég er ánægður með útkom-
una.“ Sýningin ber yfirskriftina Magical Ice-
land og það ekki að ástæðulausu.
„Ég hef teiknað og málað alla mína ævi og er
sjálflærður í faginu. Það var þó ekki fyrr en ég
kom hingað til Íslands sem ég byrjaði að mála
af fullri alvöru. Fyrir tveimur árum var svo eins
og stífla brysti og ég hef ekki hætt að mála síð-
an. Það er svo mikil kostur við Ísland, að það er
alltaf einhver sem er tilbúinn að opna fyrir þér
dyr sértu með góða hugmynd. Það eru ekki
margar hindranir í veginum og því geta lista-
menn frekar einbeitt sér að listsköpun sinni.“
Peter segist ekki skýra myndir sínar og það
sé viljandi gert. „Fólk upplifir málverk á mis-
munandi vegu og ég vil leyfa fólki að túlka verk
mín eins og það vill.“
Erfið íslenska
Peter hefur dansinn að lifibrauði enda einn
liðsmanna Íslenska dansflokksins, eins og fram
hefur komið. Hann hefur samið dansa fyrir leik-
hús, gert sex stuttmyndir um dans, tekið þátt í
dansleikhúsi og komið á fót gamanleikjaflokki,
auk þess að mála í frístundum. Það liggur því
beint við að spyrja Peter hvort það sé eitthvað
sem honum sé ómögulegt.
„Já, að tala íslensku. Ég hef búið hér í sex ár
og er búinn að fara á námskeið og hef fengið
leiðsögn frá vinum en mér finnst þetta enn
mjög erfitt. Ég held að tungumál séu ekki mín
sterkasta hlið en ég fel mig í staðinn í hinum
ýmsu listformum,“ segir Peter og hlær.
Aðspurður segist Peter enn eiga eitt listform
ókannað og það er söngurinn.
„Ég hef sungið á sviði og skilst að ég hafi
möguleika á að verða góður í því. Einn daginn
ætla ég að kanna sönginn nánar, en það verður
fyrst þegar ég hef tíma til þess.“
Sýning hins fjölhæfa Peters stendur fram á
laugardag í Gallerý Turpentine.
Stíflan brast á Íslandi
Peter Anderson dansar og málar en ætlar að geyma sönginn þar til síðar
www.turpentine.is
Morgunblaðið/Sverrir
Teygja Dansarinn Peter Anderson á sviði og í listhúsi Gallery Turpentine með verk sín allt um kring. Anderson er sannarlega margt til lista sagt.
lenskra, sænskra, finnskra, norskra
og danskra leikstjóra verða sýndar
á hátíðinni. Má þar nefna kvik-
myndir eftir Lars von Trier, Aki
Kaurismäki, Thomas Vinterberg,
Susanne Bier, Per Fly, Simon
Staho, Lukas Moodyson, Hans Pet-
er Molland, Baltasar Kormák, And-
ers Thomas Jensen, Erik Richter
Strand, Peter Schonau Fog og
Ragnar Bragason.
Samfara kvikmyndasýningum
verða haldnir fyrirlestrar um kvik-
myndagerð á Norðurlöndum.
KVIKMYNDIR rúmlega 30 leik-
stjóra frá Norðurlöndunum verða
sýndar í sérstökum þemaflokki al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í
San Sebastian á Spáni sem fram fer
dagana 20.-29. september nk. Heiti
þemaflokksins á hátíðinni er Cold
Fever en nafnið er sótt í kvikmynd
Friðriks Þór Friðrikssonar Cold
Fever, eða Á köldum klaka, frá
árinu 1995. Myndin kom einmitt út
sama ár og Dogma-kvikmynda-
stefnan ruddi sér til rúms.
Rúmlega þrjátíu kvikmyndir ís-
Cold Fever á
San Sebastian
Cold Fever Veggspjald þemaflokks-
ins á hátíðinni í San Sebastian.
Á köldum klaka Þemaflokkur hátíðarinnar er nefndur eftir kvikmynd
Friðriks Þórs Friðrikssonar, Á köldum klaka, frá árinu 1995.
Innipúkinn var haldinn hátíðleg-
ur um helgina eins og sjá mátti í
veglegri myndagrein í Morg-
unblaðinu í gær. Var góður rómur
gerður að tónleikastaðnum nýja í
Veltusundinu og sérstaklega var
hljómburði staðarins hrósað. Mun
hljóðkerfið vera eitt sinnar teg-
undar á landinu og hannað með það
í huga að gestir, hvar sem þeir eru
nú staddir í rýminu, fái að njóta.
Hljómur Organsins –
eins og best er á kosið
Jónas Sigurðsson, fyrrum Sól-
strandargæi, svífur nú um landið
með hljómsveit sinni og dönsku
djasshljómsveitinni Jazirkus. Tón-
leikaferðinni, sem hófst með tón-
leikum í Bræðslunni í lok júlí, lýkur
á laugardaginn á Flúðum og sam-
kvæmt upplýsingum á heimasíðu
Jónasar (jonassigurdsson.com) hef-
ur ferðin gengið stórslysalaust fyr-
ir sig og tónleikarnir að mestu vel
sóttir – ef frá eru taldir tónleikar á
Akranesi fyrir rúmri viku. Þá seld-
ust aðeins níu miðar á tónleikana
sem haldnir voru í Bíóhöllinni.
Flestir gestanna reyndust vera ætt-
ingjar hljómsveitarmeðlima.
Fámennt en góðmennt
Og enn af íslenskri tónlist. Litlu
minni tónlistarhátíð var haldin á
Gauki á Stöng um helgina þar sem
fjölmargar sveitir komu fram og
skemmtu öllum hinum innipúk-
unum. Ein þeirra, Dikta, lék á laug-
ardagskvöldið og fór algjörlega á
kostum. Sveitin mun vera komin
langt með að klára aðra plötu sína
og ef marka má frammistöðu sveit-
arinnar – og viðtökur tónleikagesta
– eru allar líkur á að sveitin toppi
frumburðinn sem hvarvetna hlaut
lofsamlega dóma.
Tónleikar Diktu lofa
góðu um næstu plötu