Morgunblaðið - 20.09.2007, Side 15

Morgunblaðið - 20.09.2007, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 15 ERLENT Enn stækkar fjármálageirinn með skráningu Investea German High Street II omxgroup.com/nordicexchange Fjármálaþjónusta Fjarskipti UpplýsingatækniVeiturHráefni Nauðsynjavörur Neysluvörur IðnaðurOrkuvinnsla Heilbrigðisgeiri Við bjóðum Investea German High Street II velkomið í Nordic Exchange. Investea German High Street II býður fjárfestum þann mögu- leika að fjárfesta í fasteignum sem staðsettar eru við aðalverslunargötur stærstu borga Þýskalands. Investea German High Street II verður skráð í Nordic Exchange í Kaupmanna- höfn þann 20. september. Investea German High Street II flokkast sem smærra félag og tilheyrir fjármálageira. Haag. AFP. | Aðildarríki Atlantshafs- bandalagsins (NATO) geta ekki og munu ekki kalla herlið sín frá Afg- anistan. Þetta sagði Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, í viðtali sem birtist í NCR Handelsblad í Hollandi í gær. „Fjörutíu ríki taka þátt í verkefni NATO í Afganistan, ISAF. Og það getur enginn horfið af vettvangi, enginn mun hverfa af vettvangi,“ segir de Hoop Scheffer í viðtalinu. „Ég trúi því einfaldlega ekki að Holland kalli herlið sitt heim ein- hliða,“ bætti hann við en hollenska stjórnin mun á næstu misserum ákveða hvort hún framlengir þátt- töku hollenska hersins í ISAF- sveitum NATO í Afganistan fram yfir ágúst 2008. Aðstæður eru erfiðar Hollenskar hersveitir eru fyrst og fremst í Uruzgan-héraði í suður- hluta Afganistans en nú eru 1.655 hollenskir hermenn í Afganistan. Þegar hollensk stjórnvöld ákváðu að senda herlið til starfa í Uruzgan í fyrra var það undir þeim for- merkjum að NATO myndi finna annað ríki til að taka við hlutverki þeirra að tveimur árum liðnum. De Hoop Scheffer lagði áherslu á að margt hefði breyst, aðstæður í suðurhluta Afganistans væru erf- iðari en menn töldu. Reuters Gera árásir Talibönum hefur vaxið ásmegin í Afganistan undanfarin misseri, ekki síst í suðurhluta landsins, og árásum þeirra hefur fjölgað. Aðildarríki NATO geta ekki kallað heri sína frá Afganistan ÞÚSUNDIR búddhatrúarmunka efndu í gær til mótmæla í nokkrum borgum Myanmar, sem hét áður Búrma, og kröfðust þess að herfor- ingjastjórn landsins sleppti fjórum munkum sem voru handteknir fyrir mótmæli daginn áður. Nær 2.000 munkar tóku þátt í mótmælum í hafnarborginni Sittwe, um 1.000 í Mandalay og nokkur hundruð í Rangoon. Munkar gegndu mikilvægu hlut- verki í mótmælum sem blossuðu upp fyrir mánuði vegna mikillar hækkunar á eldsneytisverði. Yfir 150 manns hafa verið hand- teknir frá því að mótmælin hófust en herforingjastjórnin hefur verið treg til að láta til skarar skríða gegn munkunum sem njóta mikillar virðingar í Myanmar. Fréttaskýr- endur segja að herforingjastjórnin sé í valþröng. Stöðvi hún ekki mót- mælin sé líklegt að þau verði sífellt fjölmennari en grípi hún til að- gerða gegn munkunum gæti hún uppskorið mikla reiði almennings. Reuters Andóf Hundruð búddhatrúar- munka mótmæltu í Rangoon í gær. Munkar gegn herforingjum SÆNSKA stjórnin samþykkti í gær að heimila sölu á hvers konar nikótínlyfjum í almennum verslunum en hingað til hafa lyfjaverslanir setið einar að sölunni. Göran Hägglund, félagsmálaráðherra í stjórn sænsku borgaraflokkanna, sagði í gær, að það væri auðvelt að byrja að reykja en með ákvörðun sinni vildi stjórnin létta undir með þeim, sem vildu segja skilið við reyking- arnar. Nýja fyrirkomulagið tekur gildi 1. mars næstkomandi og verða allar verslanir, sem vilja bjóða upp á nikótínlyf, að skrá sig hjá yfirvöldum, sem munu fylgjast með fram- kvæmdinni. Bannað verður að selja fólki yngra en 18 ára nikótínlyf og geta brot við því varðað fangelsi í hálft ár. Ekki er talin mikil hætta á, að nikótínlyf verði misnotuð enda er tóbakið sjálft miklu nærtæk- ara í þeim efnum. Sala á því er hins vegar alfrjáls og lýtur aðeins takmörk- unum á aldri kaupendanna. Sala á nikótínlyfjum frjáls Áróður Flestir vilja hætta reykingum. SJÖ týndu lífi þegar sprengja sprakk í Beirút í Líbanon í gær en m.a. þeirra sem dóu var fulltrúi á líbanska þinginu, Antoine Ghanem, mikill andstæðingur afskipta Sýr- landsstjórnar í Líbanon. Tilræði í Beirút HENRY Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að bandarísk stjórnvöld styddu Dom- inique Strauss-Kahn, fyrrverandi fjármálaráðherra Frakklands, sem næsta framkvæmdastjóra Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins (IMF). Strauss-Kahn til IMF LÖGREGLAN í Danmörku hefur fundið eftirlíkingar af sögufrægum gullhornum sem stolið var úr sýn- ingarsal á mánudag. Tveir karl- menn og tvær konur voru hand- tekin fyrir þjófnaðinn. Hornin fundin EMBÆTTISMENN Sameinuðu þjóðanna segja að 250 manns hafi látið lífið og yfir 600.000 misst heimili sín í flóðum í 17 Afr- íkulöndum. Talið er að ástandið versni þar sem spáð er úrhelli í mörgum landanna. Sameinuðu þjóðirnar óskuðu eftir framlögum að andvirði 60 milljóna dollara til matvælaaðstoðar í Úganda þar sem 1,7 milljónir manna hafa orðið uppiskroppa með matvæli. Flóð magnast Ár flæddu yfir bakka sína í Úganda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.