Morgunblaðið - 20.09.2007, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 19
AUSTURLAND
Selfoss | Bæjarstjóri Sveitarfé-
lagsins Árborgar hefur boðað full-
trúa íbúa í nágrenni Fagraskógar á
Selfossi til fundar í kvöld til að fara
yfir það hvernig ákvarðanir um út-
hlutun lóða voru teknar og ræða
um hvað hægt sé að gera. Íbúar við
Lambhaga hafa skorað á bæj-
arstjórnina að hætta við byggð
norðan Berghóla en lóðir þar
skerða skógrækt sem liggur með
göngustíg á milli hverfa bæjarins.
Beltið liggur á milli Suð-
urbyggðar og Hagahverfis á Sel-
fossi og nær þvert í gegn um bæinn,
frá Nauthaga og austur fyrir
Tryggvagötu. Þar hafa bærinn og
íbúar ræktað skjólbelti frá því um
1990. Hefur Pokasjóður verslunar-
innar lagt til fjármagn og hluti af
trjáplöntum sem Yrkjusjóður lagði
sveitarfélaginu til var í eitt skiptið
notaður á þessu svæði.
Ragnheiður Hergeirsdóttir bæj-
arstjóri er að fara yfir feril málsins.
Hún segir að gert hafi verið ráð fyr-
ir lóðum þarna í aðalskipulagi sem
samþykkt var 2005 og deiliskipu-
lagi ári síðar. Síðan hafi lóðirnar
verið auglýstar og þeim úthlutað og
ætlunin hafi verið að afhenda þær
húsbyggjendum í dag. Þegar ná-
grannarnir létu í sér heyra var hætt
að flytja tré úr reitnum, á meðan
málið væri skoðað, og því eru lóð-
irnar ekki tilbúnar. Lóðirnar koma
inn í græna beltið og mjókka það.
„Það er alltaf álitamál. Ég hefði
gjarnan viljað sjá þennan græna
trefil óbreyttan, eins og málið horf-
ir við mér í dag,“ segir Ragnheiður
þegar hún er spurð að því hvort
rangt hafi verið að skipuleggja lóð-
ir þarna. Hún vill bíða með frekari
yfirlýsingar þar til hún hefur rætt
betur við íbúana.
Bæjarstjóri
skoðar málið
með íbúum
LANDIÐ
Eftir Helgu Mattínu Björnsdóttur
Grímsey | Æfð voru viðbrögð við
flugslysi og björgun flugfarþega á
Grímseyjarflugvelli. Er þetta í
fyrsta skipti sem slík flugslysaæf-
ing fer þar fram.
Það var árið 1996 sem fyrsta
formlega flugslysaæfingin var
haldin á Íslandi. Það eru alþjóða-
samtök og alþjóðakröfur sem segja
til um búnað á flugvöllum og við-
búnað á jörðu til að tryggja að fólk
sé í æfingu ef slys ber að höndum.
Munurinn á Keflavíkurflugvelli og
flugvellinum á Gjögri er mikill en
grunnkröfurnar og reglur þær
sömu, að sögn Bjarna Sighvats-
sonar hjá Flugstoðum.
Bjarni kom til Grímseyjar ásamt
fulltrúum Landlæknisembættisins,
lögreglustjórans í Reykjavík,
Slökkviliðsins á Akureyri og Lands-
bjargar. Fólkið hélt fræðsluerindi
og verklega kennslu fyrir flugvall-
arstarfsmenn, slökkviliðið, björg-
unarsveitarmenn og íbúa Gríms-
eyjar frá föstudegi til sunnudags.
Þórir Þórarinsson yfirlæknir hjá
Heilsugæslunni á Akureyri mætti
til Grímseyjar á sunnudagsmorgn-
inum til að aðstoða á „slysstað“ sem
og yfirmenn Akureyrarflugvallar
og fulltrúa frá Flugmálastjórn á
Akureyri. Sjálf flugslysaæfingin
var á sunnudagsmorgninum. Allir
aðilar voru boðaðir eins og um
raunverulegan atburð væri að
ræða. Kveikt var í sendiferðabíl
fyrir flugvél og „sjúklingar“ farð-
aðir óþægilega eðlilega.
Þessi fyrsta flugslysaæfing á
flugvellinum í Grímsey þótti takast
vel, það tók 19 mínútur frá því turn-
maðurinn tilkynni „flugslysið“, þar
til fyrsti sjúklingurinn, merktur
rauðu, var kominn á söfnunarsvæði
slasaðra í flugstöðinni.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Skipulagning Bjarni Sighvatsson hjá Flugstoðum leggur lokalínurnar fyr-
ir ímyndað flugslys. Æfingin á Grímseyjarflugvelli tókst vel.
Æfð viðbrögð við
flugslysi í Grímsey
Eftir Hafþór Hreiðarsson
Húsavík | Nýr leikskóli var formlega
opnaður á Húsavík á dögunum og
nefnist hann Grænuvellir. Leikskól-
inn, sem er sex deilda, varð til þegar
leikskólastarfi var hætt í Bjarnahúsi,
byggt við leikskólann Bestabæ og
þeir sameinaðir. Gagngerar endur-
bætur voru einnig gerðar á eldra hús-
næðinu og er vinnuaðstaða fyrir
starfsólk og nemendur góð.
Það var hátíðleg stund í sal skólans
þegar athöfnin fór fram. Guðrún Hall-
dóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri
hins nýja sameinaða leikskóla, flutti
ávarp og sveitarstjóri Norðurþings,
Bergur Elías Ágústsson, opnaði leik-
skólann formlega og klippti á borða
með þeim börnum sem eru á sínu síð-
asta leikskólaári.
Séra Sighvatur Karlsson, sóknar-
prestur á Húsavík, blessaði leikskól-
ann og starf hans og að því loknu var
viðstöddum boðið upp á veitingar.
Grænuvellir voru síðan opnir almenn-
ingi til sýnis. Þess má geta að deildir
leikskólans eru nefndar eftir gömlum
húsum í nágrenninu. Húsin eru Vilpa,
Tunga, Bali, Árholt, Foss og Berg.
Vilpa, Tunga og
Bali á Grænuvöllum
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Opnun Bergur Elís Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, fékk aðstoð
barnanna við að klippa á borðann við opnun leikskólans Grænuvalla.
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
SLÁTURHÚS Vopnfirðinga er ann-
að af tveimur sláturhúsum í landinu
sem selja sviðahausa verkaða á
gamla mátann. Mikil eftirspurn er
eftir slíku þar sem mönnum þykir
mörgum þunnur þrettándi í bragði
hinna nýmóðins verkuðu sviða-
hausa. Á þetta líklega einkum og sér
í lagi við eldra fólkið í landinu.
„Við svíðum hausana á gamaldags
máta, þ.e. ekki með gasi og súr held-
ur bara með kósangasi“ segir Þórð-
ur Pálsson sláturhússtjóri í Slátur-
húsi Vopnfirðinga og bætir við að
enginn sódi sé settur í vatnið hjá
þeim heldur liggi hausarnir í bleyti í
klukkutíma í volgu vatni og séu svo
þrifnir með háþrýstidælu og köldu
vatni. „Þeir gera þetta á Kópaskeri
líka, en afkastameiri sláturhús nota
gas og súr og þá eru hausarnir
sviðnir við miklu meiri hita. Við og
þeir á Kópaskeri höfum viljað verka
þetta svona og höfum getað fengið
hærra verð fyrir sviðin þess vegna.“
Þórður segir eftirspurn mikla. „Það
hefur alltaf verið mjög gott að selja
svið héðan og okkar svið fara nánast
öll í gegnum Kjarnafæði, nema það
sem við seljum hér á heimamarkaði.
Þetta selst alltaf upp.“
Haustslátrun í fullum gangi
Slátrun gengur vel í Sláturhúsi
Vopnfirðinga, en þar verður slátrað
alls 26 þúsund fjár. Þar af á milli
16000 og 17000 fjár af svæðinu aust-
an Hellisheiðar og um 9000 úr
Vopnafirði og Bakkafirði.
Um miðja vikuna sagðist Þórður
sláturhússtjóri vera búinn að lóga
rúmlega 8000 fjár. Hann segist
slátra um 1000 fleira nú en í fyrra.
Húsið sé ekki fullnýtt og stafi það af
því að meira hefði mátt koma inn í
fyrsta hluta sláturtíðar. 40 manns
eru í fullu starfi við slátrun og fjórir
í hálfsdagsvinnu við að færa kjötið
inn á morgnana. Af þessum mann-
skap eru um 20 útlendingar. Norð-
lenska hóf slátrun á Höfn í Horna-
firði í vikunni og er reiknað með að
slátrað verði allt að 35 þúsund fjár
frá svæði sem spannar frá Breiðdal í
Vestur Skaftafellssýslu. Haustslátr-
un Norðlenska á Húsavík hófst í
ágústlok og ráðgert að slátra um 80
þúsund fjár þar. Það fé kemur víða
að, m.a. af Mývatnssveit og Austur-
landi.
Vopnfirðingar svíða sína
hausa á gamla mátann
Stuggað Líklega hefur hluti þessa fjár sem smalað var til réttar á Brú á
Jökuldal farið í slátrun á Vopnafirði þar sem slátra á 26 þúsund fjár.
Í HNOTSKURN
»Sláturhús Vopnfirðinga erannað tveggja sláturhúsa
sem svíða hausa með gamla
laginu, þ.e. með kósangasi, og
hreinsa svo sviðin með hreinu
vatni.
»Slík meðferð sviða gefurað sögn sláturhússtjóra
hærra verð og þau seljast jafn-
an upp.
»Haustslátrun á fé af Aust-urlandi er í fullum gangi
og er slátrað á Vopnafirði,
Húsavík og Höfn í Hornafirði.
ÝMISLEGT er á döfinni á Austur-
landi nú í vikunni. Á morgun og
laugardag eru t.a.m. í fjórðungnum
aðalfundur Sambands sveitarfélaga
á Austurlandi (SSA), haldinn á
Vopnafirði, kjaramálaráðstefna
verkamannadeildar AFLS, haldin á
Djúpavogi, og fræðsludagar Hlut-
verkaseturs og félagsmálaráðu-
neytisins, haldnir í Fellabæ.
Áhrif Evrópusambandsins
Auk venjubundinna aðalfund-
arstarfa ætlar SSA að fjalla um
áhrif Evrópusambandsins á sveit-
arfélög, háskólanám á Austurlandi
og framvindu vaxtarsamnings fyrir
svæðið. Meðal gestafyrirlesara
verða Jóhanna Sigurðardóttir, ráð-
herra sveitarstjórnarmála, Halldór
Halldórsson, formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga, og Kristján
Þ. Júlíusson, þingmaður í Norð-
austurkjördæmi. Á laugardag eru
nefndastörf og kynning á meðferð
og úrvinnslu úrgangs og starfsemi
Tengslanets austfirskra kvenna.
AFL ætlar á sinni ráðstefnu m.a.
að fjalla um komandi kjarasamn-
inga og ímynd og samstöðu verka-
lýðshreyfingarinnar. Kjara-
málaráðstefnan er haldin á Hótel
Framtíðinni, Djúpavogi og hefst kl.
16 á föstudag.
Á fræðsludögum Hlutverka-
seturs og félagsmálaráðuneytis, er
ganga undir nafninu Valdefling í
verki, verður fjallað um geðheil-
brigði frá ýmsum vinklum og sjón-
arhorn fagfólks og notenda geð-
heilbrigðisþjónustu skoðuð jöfnum
höndum. Meðal fyrirlesara eru
Auður Axelsdóttir, iðjuþjálfi og for-
stöðumaður Geðheilsu – eftirfylgd
heilsugæslu höfuðborgarsvæðis, og
Elín Ebba Ásmundsdóttir, for-
stöðumaður iðjuþjálfunar geðdeild-
ar LHS og lektor við HA.
Fræðsludagarnir, sem standa í
dag og á morgun, eru haldnir í sam-
starfi við fagfólk, notendur og að-
standendur á Austurlandi. Þeir
hefjast í Kirkjuselinu í Fellabæ kl.
10 í dag.
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
Aðalfundur Austfirsk sveitarfélög halda aðalfund sinn á Vopnafirði.
Á döfinni á Austurlandi