Morgunblaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 27
sem sígarettupakkinn var vanur að vera.
Nú ákváðum við að fara saman í við-
skipti og stofnuðum Byr sf. Sæmundur
átti nafnið, leitaði út á haf eins og venju-
lega. Ég sagði alltaf að ess effið stæði fyr-
ir Simmi frændi.
Háskólaneminn rak kompaníið og flutti
aðallega inn fatnað fyrir konur og karla.
Simmi reddaði víxlakvóta í Búnaðarbank-
anum þar sem hann naut óskoraðs
trausts. Viðskiptin gengu ágætlega og
nógu vel til þess að neminn þurfti ekki að
taka námslán og gat fjárfest lítillega í
íbúð. Simmi taldi þetta lögfræðinám
óþarft en við pabbi vorum á því að það
væri nú vissara að hafa góða menntun
hvað sem yrði.
Sæmundur var fanatískur KA-maður
og spilaði með þeim í eina tíð. Hann stofn-
aði KA-klúbbinn í Reykjavík sem hafði
það hlutverk að safna fé fyrir KA og snú-
ast með leikmenn þegar þeir áttu leik fyr-
ir sunnan. Þetta var honum og þeim sem
með honum voru mjög hugleikið og gert
af einlægum áhuga og fórnfýsi. Það var
frænda stolt ánægjustund þegar hann gat
farið norður á Akureyri á afmæli KA og
fært félaginu umtalsverða peninga-
upphæð sem KA-klúbburinn hafði safnað.
Ég held að þá fyrst hafi honum fundist
togaraslarkinu og siglingunum lokið. Í
frakka með hatt og í burstuðum skóm
kom Simmi í Esju heim. Að vísu ófá ör á
andlitinu; hnífaslagur í Hong Kong, spark
í hausinn í Rotterdam og annað smálegt,
en KA-maðurinn heill og óbreyttur.
Sæmundur gerði alla tíð ráð fyrir því að
hann félli frá fyrstur manna og talaði um
það hreint út eins og annað. Taldi sig hafa
lifað þannig lífi að við því mætti búast að
aðrir yrðu eldri en hann þó annað kæmi á
daginn. Simmi frændi eltist og smátt og
smátt breyttust hlutverkin og minn dyggi
og ráðagóði frændi leitaði nú til mín. Svo
viturlega hefur þessu verið fyrirkomið af
almættinu.
Nú hefur endanum loks verið vippað af
pollanum og landfestar leystar í síðasta
sinn. Í lífinu gekk á ýmsu og víxlsporin ef-
laust mörg en aldrei missti Sæmundur
sjónar á því sem máli skipti. Kær frændi
og vinur, heilsteyptur og heiðarlegur
drengskaparmaður, heldur til hafs á ný.
Óskar Magnússon.
Svo tók Sundaborgin við. Kominn í
matvöruna líka. Velmektarár í fínu plássi.
Það var þá sem við félagarnir vorum
ræstir út til að taka rispu með frænda eitt
kvöldið. Stórt partí af tinvörum komið.
Tuttugu stórir trékassar. Fjörutíu tonn af
kertastjökum, skálum og skrautmunum
sem hann hafði keypt á sýningu í Düssel-
dorf. Hreint ógleymanlegt kvöld þegar
heildsalinn rak upp hlátursrokur þegar
við rifum upp kassana og tókum hálminn
af vörunum sem hann hafði keypt og
mundi ekkert eftir. Rann allt út eins og
silfur á gjafverði. Í Sundaborg var alvöru
forstjórakontór með vínrauðu sófasetti.
Kannski leður? Útsýni til Esjunnar og Óli
Kr. í næsta plássi og heiðurshjónin Stein-
grímur og Eyja hinum megin en allir í
kaffi hjá Simma. Það voru lærdómsríkar
stundir fyrir ungan mann í byrjun há-
skólanáms. Óli Kr. og Simmi voru báðir
tveggja til þriggja pakka menn, fílters-
lausar Camel og kjafturinn eftir því.
Seinna fór Simmi með mömmu til Mar-
grétar frá Öxnafelli og hætti að reykja á
augabragði. Samt hélt hann lengi áfram
að fara með höndina í vestisvasann þar
ótrúlegt. Bleikir kertastjakar með plast-
blómum til að setja í bílrúður. Slökkvibíl-
ar úr blikki fyrir börn sem komu allir
beyglaðir. Við bræðurnir réttum þá á
stofuborðinu heima og sömdum um fasta
þóknun á bíl. Og svo dollara pípurnar, það
var nú vit í þeim, mokuðust út.
Simmi frændi var kominn í Garða-
strætið með heildsöluna þegar ég byrjaði
hjá honum, ellefu ára sendill. Hagurinn
var að vænkast en barátta samt. Sendill-
inn hjólaði út um allan bæ með minni
sendingar og stundum stórar. Leikföng,
tannstönglar, lyklakippur. Við áttum á
lager lyklakippur sem entust fimm sinn-
um á allan íslenska bílaflotann. Smá mis-
tök, tók tíu ár að klára birgðirnar. Það
komu oft kyndugir kallar í Garðastrætið.
Leó Árnason byggingameistari og
raunverulegur athafnamaður, síðar Ljón
norðursins og ýmsir aðrir öflugir.
Það var lagt á ráðin, stórhuga plön,
kannski brennivínsdreitill með. Sendillinn
svaraði í símann, nei enginn við, taka
skilaboð? Tæmdi öskubakkana, náði í gos
og svo tómatsafa daginn eftir. Jafna sig.
Láta hjólin snúast.
ur af því en lét jafnan fylgja
erið næstlægstur í bók-
ildist að hann teldi það fag
la í viðskiptum.
an veðurdag hvarf Sæ-
di brott og sást ekki á Ís-
mtán ár. Á þeim tíma tók
nspróf í Svíþjóð og gerðist
tórum sænskum skipum,
líuskipum. Allur heim-
r. Lauk ferlinum sem fyrsti
saolíuskipi. Hvít húfa,
ðar. Togaramaðurinn frá
i ég á þegar þessi frændi
afði aldrei séð mætti á ný
konu sína Ingrid sem var
án árum yngri en Simmi.
tru við Klapparstíg sem ég
allega verið eldhús og opn-
rslun sem átti eftir að
inn af ævistarfi hans.
el þekkti skilvísina, keypti
og ákvað að veðja á Sæ-
harðdrægt á þessum árum
selja og dótið og djönkið
tt í hug að flytja inn var
leita álits sérfræðinga á borð við Jan Gehl arki-
tekt, aðaleiganda Gehl Partners og prófessor í
skipulagsfræðum, sem og samtaka á borð við
Torfusamtökin, varðandi hugmyndir um útfærslu
á götumynd Vitastígs og þess hluta Laugavegar
sem við á, með það að markmiði að skapa aukið
götulíf. Spurður um kostnaðartölur vegna upp-
byggingar Barónsreitsins segir Sveinn ljóst að
þetta verði dýrt verkefni. „Það væri hins vegar
óábyrgt að nefna einhverjar tölur á þessu stigi
meðan hlutirnir eru enn í mótun.“
Á fundinum flutti Jan Gehl erindi þar sem hann
ræddi m.a. um reynslu Dana af því að gera Strikið
að göngugötu. Sagði hann almenningsrými í borg-
um sem iðuðu af lífi mikilvæg fyrir lýðræðisþróun
landa. Í opnum rýmum hittist fólk úr öllum þjóð-
félagshópum sem yki gagnkvæman skilning og
víðsýni. Pétur H. Ármannsson, arkitekt og stjórn-
armaður í Torfusamtökunum, ræddi á fundinum
um uppbyggingu og verndun og hvort hægt væri
að skapa sátt þar um. Lagði hann áherslu á að
uppbygging og verndun væru ekki andstæður, því
verndun væri ein tegund uppbyggingar. Sagði
hann það mikinn misskilning að verndun tak-
markaði sköpunarfrelsi í byggingarlist. Falleg
borg byggðist á hugarfari kynslóðanna, örlæti
þeirra og metnaði til að fegra og bæta hið sameig-
inlega umhverfi.
ustu þar sem m.a. verður stór matvöruverslun, al-
þjóðlegar verslanir með þekktum vörumerkjum,
kvikmyndahús og veitingastaðir. Þá væri gert ráð
fyrir bílakjallara á fjórum hæðum.
Opin rými mikilvæg lýðræðisþróuninni
Að sögn Björns þykir staðsetning miðborg-
arkjarnans á Barónsreit kjörin þar sem góðar
tengingar eru við gangandi umferð til og frá
Laugavegi, öflugar vegtengingar fyrir bílaumferð
eru frá Sæbraut og gott rými fyrir bílastæði neð-
anjarðar. „Allir munu njóta góðs af uppbyggingu
nýs miðborgarkjarna, ekki síst núverandi versl-
unareigendur og þjónustuaðilar við Laugaveg og
nærliggjandi götur. Það sýnir reynslan frá öðrum
löndum. Miðborgarkjarni á Barónsreit mun einn-
ig skapa jafnvægi milli Laugavegar og nærliggj-
andi verslunarsvæða og þeirrar uppbyggingar
sem á sér stað í tengslum við tónlistar- og ráð-
stefnuhús í austurhöfn Reykjavíkur.“
Í samtali við Morgunblaðið segir Sveinn næsta
skref að þróa hugmyndina áfram og huga að hinu
formlega skipulagsferli, semja frekar við aðra
hagsmunaaðila á reitnum og í framhaldinu fara í
hina eiginlegu deiliskipulagsvinnu. „Við gerum
ráð fyrir að þetta taki sinn tíma, vegna þess að
þetta er það stórt viðfangsefni. Við reiknum með
að eftir sex mánuði verði deiliskipulagsferlið kom-
ið vel á veg. Við vonumst til að geta farið í þá
vinnu í góðu samstarfi við Reykjavíkurborg og
hagsmunaaðila á svæðinu,“ segir Sveinn.
Að sögn Sveins vill Samson Properties einnig
pumpan í miðborgarhjartanu
Vitastíg, Skúlagötu og Barónsstíg. Bláa húsið hægra megin á myndinni stendur á horni Hverfisgötu og Vitastígs. Stóra burstahúsið beint á móti með græna þakinu er Bjarnaborg.
ráðgert að húsin tvö við Laugaveg 67 og 69
anum. Hugmynd er að húsin verði færð annað.
!
" #
kynnt almenningi Áhersla lögð á að uppbygging verði í sátt við verndunarsjónarmið Stefnt að því að
ð ræða 25 þúsund fermetra rými undir verslanir og þjónustu Að auki ráðgert að byggja 180-200 íbúðir
Í HNOTSKURN
»Stefnt er að því að opna nýkynntanmiðborgarkjarna í lok árs 2010.
»Svæði nýs miðborgarkjarna afmark-ast af Laugavegi, Vitastíg, Skúla-
götu og Barónsstíg.
»Staðsetningin þykir kjörin þar semgóðar tengingar eru við gangandi
umferð til og frá Laugavegi, vegteng-
ingar fyrir bílaumferð eru frá Sæbraut
og gott rými fyrir bílastæði neð-
anjarðar.
» Í miðborgarkjarnanum er gert ráðfyrir um 25 þúsund fermetra rými
undir verslanir og þjónustu.
»Jafnframt er ráðgert að byggja 180-200 íbúðir, allt að 20 þúsund fer-
metra, í þeim enda reitsins sem liggur
að Skúlagötu.
» Í tilögunni er ráðgert að Laugaveg-ur 67 og 69 víki fyrir nýjum inngangi
að kjarnanum. Ekki liggur ljóst fyrir
hvort húsin yrðu rifin eða færð annað.
»Ráðgert er að byggja tvær gegnsæj-ar brýr yfir Hverfisgötuna sem rúmi
bæði verslanir og göngurými. Hugmyndir að nýjum miðborgarkjarna í Reykjavík
VEFVARP mbl.is