Morgunblaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 33
✝ Hildur Þórðar-dóttir fæddist á
Laugarnesvegi 102 í
Reykjavík 12. apríl
1962. Hún lést á
sjúkrahúsi í Nyköp-
ing í Svíþjóð 23.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
eru hjónin Þórður
Júlíusson verkfræð-
ingur, f. 29.9. 1928,
d. 9.2. 1997 og Kar-
en Lövdahl hús-
móðir, f. 28.9. 1930.
Hildur var fjórða í
röð fimm systkina. Systkini henn-
ar eru Jóhanna Halla, f. 30.10.
1952, maki Rúnar Björgvinsson,
Snorri, f. 2.4. 1955, maki Sigrún
Óladóttir, Hildur, f. 13.3. 1960,
dáin sama ár. og Þórður, f. 29.6.
1964, dáinn sama ár.
Hildur giftist 6. nóvember 1982,
Ingemar Bäck, f. í Trosa í Svíþjóð
16.1. 1961. Þar fæddust börn
hennar, Erik Örn, f. 19.1. 1985 og
Malin Eir, f. 25.6. 1987.
Hildur gekk fyrstu skólaárin í
Laugarnesskóla og síðan í Flata-
skóla frá 1971, þar
sem hún lauk
skyldunámi, eftir að
fjölskylda hennar
flutti að Bakkaflöt 5
í Garðabæ. Eftir
skyldunám hóf hún
nám í hárgreiðslu
við Iðnskólann í
Reykjavík. Starfaði
síðan um tíma á hár-
greiðslustofu í
Hafnarfirði. Að
loknu sveinsprófi
fluttist hún til Nor-
egs og síðar flutti
hún sig til Svíþjóðar þar sem hún
hefur búið nær óslitið til dán-
ardags, fyrir utan eitt ár þegar
hún stundaði nám í leikhúsförðun
í Los Angeles. Hildur rak í mörg
ár hárgreiðslustofu í Trosa og síð-
ustu árin í Nyköping, eða þar til
hún varð að hætta að vinna vegna
veikinda.
Hildur var jarðsungin í Väster-
ljung í Svíþjóð 14. september.
Minningarathöfn um hana
verður í Neskirkju í Reykjavík í
dag og hefst hún klukkan 17.
Elsku Hildur, systir mín og mág-
kona. Nú ertu farin frá okkur í ann-
an heim. Við vonum svo innilega að
þú sért laus við þennan hræðilega
sjúkdóm og að þér líði vel þar sem þú
ert núna.
Ég var tæplega 10 ára þegar þú
fæddist. Ég vissi ekki hvort ég átti
að vera glöð eða leið því við höfðum
misst litla systur tveimur árum áður.
En í ljós kom að þú varst dugnaðar-
forkur. Við áttum ekki mikla samleið
í byrjun. En þú varst litla systir mín
sem mér þótti svo vænt um. Seinna
kynntist þú Ingo og fluttist til Sví-
þjóðar og þið eignuðust Erik og Mal-
in.
Fyrir 8 árum fluttum við Rúnar til
Svíþjóðar. Þá gátum við fylgst hvor
með annarri og kynnst sem fullorðn-
ar konur.
Takk fyrir þessi ár, elsku Hildur.
Við erum svo þakklát fyrir þessi ár
með þér og þínum.
Þetta rúma ár sem þú ert búin að
vera veik hefur verið erfitt fyrir okk-
ur öll. En þú stóðst þig eins og hetja.
Aldrei uppgjöf eða sjálfsvorkunn. Þú
varst alltaf bjartsýn og þú ætlaðir að
yfirvinna þennan sjúkdóm. Þú vildir
vera áfram hjá Erik og Malin. Þú
gafst ekki upp heldur var það lík-
aminn sem gat ekki meir.
Takk fyrir, elsku Hildur, að fá að
kynnast þér, börnunum þínum og
Ingo betur. Takk fyrir allar góðar
samverustundir með þér og þínum
og sænsku vinum.
Elsku Erik og Malin. Það er mikið
á ykkur lagt. Við vonum að góður
guð hjálpi ykkur og styðji án
mömmu. En þið vitið það að mamma
ykkar yfirgefur ykkur aldrei. Hún
verður ávallt í hjarta ykkar og mun
aldrei gleymast.
Elsku Ingo. Takk fyrir að vera til
staðar fyrir börnin þín, við vitum að
þú og fjölskylda þín eigið eftir að
styðja þau og styrkja.
Elsku Guðrún, Urban og börn.
Takk fyrir að vera ávallt til staðar
fyrir Hildi og krakkana. Við viljum
einnig koma á framfæri kæru þakk-
læti til stórfjölskyldunnar á Íslandi
og allra þeirra sem styrktu hana
með gjöfum og fallegum kveðjum.
Hún var svo þakklát og hissa.
Elsku vinkonur Hildar á Íslandi.
Takk fyrir að fylgjast svona vel með
henni og gleðja hana með nærveru
ykkar á 45 ára afmælinu hennar í
apríl. Það skipti hana svo miklu máli
að eiga góðar vinkonur á Íslandi.
Allir góðir vinir hennar í Svíþjóð.
Takk fyrir ykkar vináttu í hennar
garð og hvað þið voruð öll góð við
hana í veikindum hennar.
Elsku mamma, Snorri og fjöl-
skyldan öll. Við skiljum ekki þessa
ákvörðun guðs að taka hana frá okk-
ur. Henni hefur verið ætlað mjög
mikilvægt hlutverk þar sem hún er
núna. Þetta er erfitt en trúum því að
henni líði vel núna.
Elsku Hildur. Far þú í friði og
megi góði guð vaka yfir börnunum
þínum og okkur öllum.
Þín systir og mágur,
Jóhanna og Rúnar.
Við minnumst elskulegrar systur
og mágkonu sem mikillar baráttu-
konu sem barðist fram á síðasta dag,
en þurfti að lokum að láta undan bar-
áttunni við sjúkdóminn sem heltók
hana. En það var líkaminn sem gafst
upp ekki hún. Hún ætlaði ekki að
gefast upp sem sést best á því að hún
var búin að panta ferð til Taílands
með börnum sínum núna í ágúst, en
hún dó nokkrum dögum áður.
Þú ert laus frá lífsins þrautum
og liðin jarðarganga.
En áfram lifir á andans brautum
ævidaga langa.
Drottinn verndar dag og nótt
á dularvegi nýjum.
En aftur færðu aukinn þrótt
í eilífð ofar skýjum.
Þú alltaf verður einstök rós
elsku vinan góða.
Í krafti trúar kveiki ljós
og kveðju sendi hljóða.
(Jóna Rúna Kvaran)
Hildur vildi alltaf vera að gera
eitthvað og var því mjög kraftmikið
barn. Um leið og hún taldi sig orðna
nægilega fullorðna ákvað hún að
fara og skoða sig um. Hún bjó um
tíma í Noregi og vann þar bæði á
hárgreiðslustofu og á hóteli, síðan
fór hún til Svíþjóðar og vann þar
einnig við ýmis störf.
Við systkinin héldum góðu sam-
bandi þó svo að við byggjum í sitt-
hvoru landinu en samt hefðum við
kosið að hafa hana nær okkur.
Okkur þótti það mjög óréttlátt og
sárt að hún skyldi ekki fá að lifa
lengur. Hún hefði nú kosið það að
taka á móti ömmubarni sínu á næsta
ári en við vitum að hún mun fylgjast
vel með því.
Við fórum og fylgdum henni síð-
asta spölinn. Áttum við yndislega
daga í þeim fallega bæ, Trosa, þar
sem hún valdi að búa og þar nálægt
vildi hún einnig fá að hvíla að eilífu.
Við vitum að henni líður vel núna
og er í góðum höndum hjá sínum
nánustu sem á undan eru gengnir.
Að lokum viljum við þakka henni
fyrir allar okkar stundir og þá sér-
staklega þessa yndislegu daga sem
hún fékk að dvelja með okkur í mars
síðastliðnum.
Þú varst svo kát og létt í lund
og sterk á dögum þínum.
Þú verður ávallt hverja stund
efst í huga mínum.
Drottinn þig geymi um aldir og ár
í englanna allsherjarheimi.
Ég kveð þig nú systir með trega og tár
og Drottinn þér fylgi og geymi.
(SKB)
Guð gefi Malin, Erik, Jóhönnu,
Rúnari, Guðrúnu og fjölskyldu, sem
voru henni ómetanlegur stuðningur
og hlúðu að henni allt þar til yfir
lauk, móður og öllum ástvinum Hild-
ar styrk til að halda áfram á lífsins
braut.
Blessuð sé minning Hildar.
Snorri og Sigrún.
Það er sagt að lífið sé það sem
hendir, meðan maður er upptekinn
við að skipuleggja annað. Þannig var
það hjá þér. Þú varst á leið til út-
landa fyrir rúmu ári, þegar „ófreskj-
an“ uppgvötaðist. En þú varst bjart-
sýn, ferðin yrði farin seinna. Og nú í
ágúst var aftur búið að skipuleggja
ferð. Þú fórst hins vegar í aðra ferð,
þá ferð sem á fyrir okkur öllum að
liggja.
Þú varst um fermingu þegar við
kynntumst. Fljótlega urðum við
mágkonur og síðan vinkonur. Þú
varst alltaf full af lífi, ákveðin og vin-
mörg, bæði hér heima og eftir að þú
varst flutt til Svíþjóðar, þar sem þú
fannst ástina og hefur búið í yfir 20
ár. Það var alltaf gott að heimsækja
þig, eða hitta þig á kaffihúsi í Stokk-
hólmi, þegar ég var á ferðinni, og
spjalla um lífið og tilveruna, nýjar
ástir, sorgir og gleði. Takk fyrir öll
símtölin og allar góðu stundirnar.
Hvíl í friði. Börnunum, Malin og Er-
ik, sendi ég innilegustu samúðar-
kveðjur.
Margs er að minnast.
Margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem)
Inga Jónsdóttir.
Himnarnir grétu og gráta enn ...
Kær vinkona, Hildur okkar, er lát-
in frá börnum, fjölskyldu og vinum.
Þrjóskan í henni og lífsseiglan lengdi
eflaust þann tíma sem henni var gef-
inn í þessu lífi. Hún ætlaði að lifa
áfram og sigra þennan óvætt en
þessi hræðilegi sjúkdómur hafði bet-
ur að lokum.
Hildur okkar eins og við vinkon-
urnar töluðum alltaf um hana okkar
á milli var mikill karakter og með
sínum dillandi hlátri náði hún að laða
það besta fram í öðrum og var mjög
gefandi. Veraldlegir hlutir skiptu
hana ekki miklu máli, en andleg mál-
efni voru henni hugleikin sem ef-
laust hjálpaði henni í þessari hörðu
baráttu.
Hildur var mikið náttúrubarn og
elskaði að ferðast – landinu sínu
gleymdi hún aldrei og ræktaði sam-
bandið við gömlu vinina alla tíð. Hún
fór alltaf sínar eigin leiðir og valdi
sér vini óháð hvað sem öðrum
fannst.
Þegar Hildur kom heim notuðum
við vinkonurnar úr Garðabænum
venjulega tækifærið til að hittast og
eiga saman góðar stundir og sumar
sáu sér fært að heimsækja hana til
Svíþjóðar. Allar þessar samveru-
stundir eru okkur dýrmætar. Segja
má að veikindi Hildar hafi þjappað
okkur vinkonunum betur saman og
hefur sú vinátta öðlast dýpri merk-
ingu í hugum okkar.
Við kveðjum elsku Hildi með
söknuði og eftirsjá og sendum börn-
um og öðrum ástvinum samúðar-
kveðjur.
Vor hinsti dagur er hniginn
af himnum í saltan mar.
Sú stund kemur aldrei aftur,
sem einu sinni var.
Því okkur var skapað að skilja.
Við skiljum. Og ekkert meir.
Það líf kemur aldrei aftur,
sem einu sinni deyr.
(Halldór Kiljan Laxness.)
Ragnheiður, Didda,
Karó, Birna G, Ásdís,
Birna H. og Edda.
Vinkona okkar Hildur er látin.
Margar minningar koma upp í hug-
ann því margt var brallað. Við
kynntumst Hildi þegar hún flutti til
Svíþjóðar fyrir hartnær 30 árum.
Það gustaði um Hildi, hún var kraft-
mikil og lá ekki á skoðunum sínum.
Kannski þess vegna var hún ekki
allra en vinum sínum var hún trygg
og ávallt reiðubúin að rétta hjálp-
arhönd. Hildur var lærð hár-
greiðslukona og starfaði ávallt sem
slík og rak lengst af sína eigin stofu.
Hún var vinsæl hjá kúnnum sínum
enda flink með skærin og viðræðu-
góð. Hildur hafði unun af því að
ferðast og ferðaðist hún mikið með
krökkunum sínum þeim Erik og
Malin, voru þau þrjú miklir félagar.
Þrátt fyrir að Hildur væri orðin
mjög veik þá voru þau búin að skipu-
leggja enn eina ferð saman sem því
miður varð ekki af. Það var gaman
að umgangast Hildi þar sem stutt
var í húmorinn hjá henni, sá hún oft
skoplegar hliðar á hinum ýmsu mál-
um og tók hún sjálfa sig ekki of há-
tíðlega. Hildar verður sárt saknað.
Elsku Hildur, takk fyrir allar
góðu og skemmtilegu stundirnar.
Kæru Erik og Malin og aðrir að-
standendur, við vottum ykkur okkar
dýpstu samúð. Guð veri með ykkur.
Þóra og Laufey Rós.
Elsku frænka
Nú hefur þú fengið hvíld frá
þrautum þínum. Eftir sitjum við
með minningar um lífsglaða frænku,
sem elskaði fátt meira en ferskt
kjötfars, Nóa-konfekt og Cheerios.
Við minnumst Íslandsheimsókna,
þar sem þú endasentist um bæinn til
að prófa nýjustu sundlaugarnar.
Stundum fannst okkur þú smáskrít-
in, að fara í sund oftar en einu sinni á
dag! Og líklega hefur þú prófað fleiri
laugar en við til samans.
Minningar sem þessar fölna aldrei
og hjálpa okkur í sorginni.
Hildur frænka, við kveðjum þig
með söknuði og sendum Erik og
Malin okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Þóra og Sara Snorradætur.
Hildur Þórðardóttir
Bäck
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
HÁVARÐUR HÁLFDÁNARSON
skipasmiður,
áður til heimilis að
Seljalandsvegi 79,
Ísafirði,
lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn
4. september.
Jarðarför hans fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugar-
daginn 22. september kl. 14.00.
Þorleifur Hávarðarson, Guðný Þorsteinsdóttir,
Markús H. Hávarðarson, Svala Stefánsdóttir,
Gróa Hávarðardóttir, Guðmundur Gunnarsson,
Kristjana G. Hávarðardóttir, Ásgeir Sigurðsson,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
✝
Útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ERLU SIGURGEIRSDÓTTUR,
Engihjalla 17,
Kópavogi,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans 1. sept-
ember, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
21. september kl 13.00.
Sigurður Jónsson,
Guðrún Auður Hafþórsdóttir, Gunnlaugur Valtýsson,
Rögnvaldur Ingi Eiríksson, Jónína Jónsdóttir,
Eiríkur Ásbjörn Carlsen,
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
✝
PÁLL SIGURÐSSON,
fyrrverandi skrifstofumaður,
Hæðargarði 35,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 16. september, verður
jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn
21. september kl. 13.00.
Þorsteinn Pálsson, Ingibjörg Rafnar,
Valgeir Pálsson, Margrét Magnúsdóttir.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRUNN ANDRÉSDÓTTIR,
Stóra – Ási,
Hálsasveit,
sem andaðist 10. september, verður jarðsungin frá
Reykholtskirkju laugardaginn 22. september og
hefst athöfnin kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á
Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi.
Andrés Magnússon, Martha Eiríksdóttir,
Kolbeinn Magnússon, Lára Kristín Gísladóttir,
Jón Magnússon,
Halla Magnúsdóttir, Hreiðar Gunnarsson,
barnabörn og langömmubarn.