Morgunblaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sigmar Þór Eð-varðsson, versl- unarstjóri Bónus, Hraunbæ, fæddist í Reykjavík 26. mars 1972. Hann lést í veiðiferð 9. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hans eru Svanhildur María Ólafsdóttir, skóla- stjóri, f. 13. desem- ber 1953 og Eðvarð Ingólfsson hús- vörður, f. 26. júní 1950. Bróðir Sig- mars Þórs er Ólafur Páll bílstjóri, f. 24. júlí 1978. Sambýliskona Sigmars Þórs frá 1990 er Margrét Friðriksdóttir förðunarfræðingur, f. 16. ágúst 1972. Foreldrar hennar eru Að- alheiður Gréta Guðmundsdóttir verslunarstjóri, f. 1954 og Friðrik Jónsson verkstjóri, f. 26. janúar 1953. Systir Margrétar er Ásta lyfjafræðingur, f. 5. maí 1978, sambýlismaður Bjarki Trausta- son vörustjóri, f. 5. mars 1978. Dætur Sigmars Þórs og Mar- grétar eru Aðal- heiður María fram- haldsskólanemi, f. 3. september 1991 og Emelía Rán Sig- marsdóttir, grunn- skólanemi, f. 24. október 1994. Sigmar Þór ólst upp í Reykjavík, lauk grunnskóla- prófi frá Seljaskóla, hóf nám á mat- vælabraut í FB en fór síðan að vinna við ýmis verslunar- störf. Hann starfaði hjá Bónus og Bónusbirgðum frá 1996 og frá 2003 starfaði hann sem verslunar- stjóri hjá Bónus, Hraunbæ. Hann lauk námi í verslunarstjórnun frá Bifröst 2006 og var að hefja fram- haldsnám í fjarnámi við Háskól- ann á Bifröst nú í haust. Sigmar Þór bjó með fjölskyldu sinni á ýmsum stöðum í Árbænum frá 1990, nú síðast að Sílakvísl 13. Sigmar Þór verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku Simmi minn, af hverju þú? Ég veit að þú vildir ekki yfirgefa okkur stelpurnar þínar strax. Við vorum rétt að hefja nýjan kafla og þú vissir nákvæmlega hvert þú varst að fara og það var ekkert sem stöðvaði þig. Þú varst einfaldlega á toppnum í þínu lífi og það var bara rétt að byrja. Þetta er skrýtið ég sem hélt að það kæmi ekkert fyrir okkur næstu árin, ég var eiginlega alveg viss af því að við vorum búin að ganga í gegnum okkar. Ég var nýbú- in að keyra þig austur til strákanna svo að þið gætuð farið í ykkar árlegu veiðiferð sem þú varst svo spenntur að fara í og þú varst svo hress og glaður. Þú vildir svo að hann Bjarki myndi veiða lax. Það var mikið lagt á Ingó, Ragga og Bjarka minn og ég veit það fyrir víst að þú hefðir ekki getað verið í betri höndum þegar þú fórst. Eins og hún Heiða okkar sagði: „Ég er svo fegin mamma að hann var með strákunum en ekki heima“. Ég þakka sjálf fyrir það þar sem ég veit að þú hefðir aldrei viljað leggja þetta á okkur. Þó að þú hafir verið stór og mikill varstu samt mjög viðkvæmur, ljúfur og einstaklega góður maður. Þú lifð- ir fyrir okkur stelpurnar þínar eða eins og þú sagðir við mig um daginn „Magga, allt sem ég geri geri ég fyr- ir ykkur,“ þetta lýsir þér mjög vel því við vorum þinn forgangur í einu og öllu.Þú varst duglegur, góður pabbi og góður unnusti. Alltaf leyfðir þú mér að vera ég sjálf með mínum kostum og göllum. Ég dáðist alltaf að þér fyrir hvað þú varst samkvæm- ur sjálfum þér og öruggur. Mér fannst ég einhvern veginn svo áhyggjulaus og örugg með þér. Ég var svo viss um að þú yrðir alltaf með mér og að ég gæti alltaf leitað til þín. Þú varst svo góður vinur og þú bent- ir mér alltaf á það jákvæða í lífinu. Þú varst svo ánægður með Halla hennar Heiðu þér fannst hann svo góður strákur og að hann passaði svo vel upp á hana Heiðu þína og hún Emelía okkar er búin að lofa að minnka að stríða mér í smá tíma. Við fórum til Krítar í sumar, fyrsta sinn, bara við tvö. Þetta var yndisleg og frábær vika og við ákváðum að fara annað hvert ár ein þangað til stelp- urnar væru orðnar „stórar“ en svona er lífið furðulegt. Kannski hefur eitt- hvað eða einhver þurft meira á þér að halda en við hérna niðri. Þú fædd- ist með stórt hjarta og fórst með enn stærra hjarta. Ég vil þakka öllu því yndislega fólki sem er búið að koma og styðja okkur á þessum erfiðum tímum, ég veit að þetta er ekkert auðvelt fyrir ykkur og nú veit ég að ekkert er sjálfsagt í þessu lífi, ekki einu sinni vinir. Elsku Bónus-krakkarnir hans Simma, þakka ykkur fyrir allan ykk- ar hlýhug. Mig langar sérstaklega að þakka yfirmönnum Bónus, takk fyrir allt, ég er eiginlega orðlaus. Mikið verður allt einmanalegt án þín Simmi minn. Ég þakka þér innilega fyrir að bjarga lífi hennar Emelíu okkar. Ég þakka þér fyrir að fá að hafa kynnst þér, fengið að vera með þér öll þessi ár, fyrir að hafa verið minn styrkur, gleði og minn besti vinur. Ég mun passa stelpurnar okkar og Flóru vel. Við munum halda áfram að sigra heiminn fyrir þig, elsku Simmi minn. Þín Magga. Ég hefði ekki viljað vera með þér þegar þetta gerðist því þá hefði ég bara orðið reið og ekki getað tala um þetta en það var gott að þú varst með strákunum og sem betur fer í góðum höndum og þeir gerðu sitt besta og ég vil þakka þeim kærlega fyrir. Ég man að einu sinni í vinnunni vorum ég og frænka mín Elísabet að vinna á gamlársdag og það var ekkert að gera í Bónus og þú lést okkur þrífa lagerinn hátt og lágt, við neituðum því ekki og gerðum þetta til að sleppa við eitthvað annað he, he. Þú ætlaðir að láta mig klippa þig þar sem ég er að læra hárgreiðslu. Þú sagðir að þú fengir bara frítt í klipp- ingu upp í kostnaðinn og ég varð auðvitað að sætta mig við það, því hver ætti annars að borga námið. Tveim dögum áður en þú fórst varstu að tala um hvað það væri frá- bært að fá Jóa aftur í vinnu til þín í Bónus því þá gætir þú tekið þér meira frí. Áður fyrr voruð þið alltaf í stríði því þú hélst með Man.Utd og Jói heldur með Liverpool. Ef það var Liverpool-plakat á veggnum inná kaffistofu þá reifstu það niður og ef það var Man.Utd. plakat á veggnum sagðir þú við Jóa að ef hann tæki það niður þá fengi hann ekki að vinna áfram. Sumir sem þekkja okkur vel vita það að við borðum oftast hvort í sínu lagi á kvöldin, en kvöldið áður en þú fórst borðuðum við fjölskyldan góð- an mat saman og áttum rólega og notalega stund sem var bara fínt. Þú varst sá eini sem nenntir að fara út með Flóru og varst alltaf að tala um að við yrðum að vera duglegri að fara út með hana en núna erum mamma búin að ráða Halla til að fara út að labba með hana. He, he, nei, segi svona, við munum gera þetta fyrir þig, pabbi minn og allt sem þú vildir, þetta verður erfiðara núna en við munum standa okkur og hjálpa hver annarri enda erum við stelpur sterk- ari en allt ! Elska þig pabbi minn … Þín Heiða María. Elsku strákurinn okkar, þessir síðustu dagar hafa verið afar erfiðir og óskiljanlegir, við skiljum ekki hvers vegna þú varst tekinn svona fljótt frá okkur, þú sem áttir allt lífið framundan með Möggu, Heiðu Mar- íu, Emelíu og okkur. Þú sem varst byrjaður aftur í námi og að rækta tré fullur af áhuga, metnaði og virkni sem þér var einum lagið. Við sefum sorg okkar með því að minnast allra þeirra ljúfu stunda sem við áttum saman. Við söfnum saman myndum og rifjum upp sögur, hlæjum og grátum. Þú fæddist langur og mjór eins og fuglsungi en varðst fljótt stór og virkur strákur með stóru S. Þú varst ótrúlegur hrakfallabálkur og það voru ófáar ferðirnar á slysavarðstof- una með margskonar brot, skeinur og brunasár. Sveitin heillaði og þar varstu alsæll. Þú fórst strax að vinna eftir grunnskóla þar sem þú efldist og styrktist með hverju árinu. Fljótt fór að bera á stjórnunarhæfileikum og óþreytandi metnaði til að ná ár- angri í starfi. Árið 2003 varðstu verslunarstjóri í Bónus, Hraunbæ, þar sem þú reyndist góður stjórn- andi og yfirmaður. Þú og Magga kynntust ung og stofnuðu heimili í Árbænum, fyrst fæddist Heiða María og síðan Emelía. Þær voru þér afar mikils virði og það var gaman að fylgjast með hvernig þið Magga styrktuð hvort annað í því að ala upp stelp- urnar ykkar og byggja upp ykkar samband. En þú kynntist ekki bara Möggu og fórst að búa með henni heldur fylgdi henni stórfjölskylda sem er ekki nein venjuleg fjölskylda heldur líka nánir og kærir vinir. Með ykkur komu því saman tvær sam- hentar stórfjölskyldur og var þá oft glatt á hjalla. Allt sem þú fékkst áhuga á varð að mikilli ástríðu hjá þér, þú varst afar góður kokkur og gast búið til stór- veislu úr hverju sem var og þar deildum við sameiginlegu áhugamáli og ástríðu. Þú hafðir mikinn áhuga á samfélags- og stjórnmálaumræðu en þar vorum við alls ekki sammála og áttum margar heitar snarpar og skemmtilegar samræður. Ég minn- ist síðustu kosninganætur þar sem við tvö vorum í símasambandi heila nótt að fylgjast með úrslitunum, þú á Íslandi og ég á Spáni. Þegar þið Magga keyptuð ykkur sumarbústaðaland í faðmi stórfjöl- skyldunnar helltir þú þér út í trjá- rækt og eins og þín var von og vísa voru það ekki bara nokkrar plöntur. Nú bíða í gróðurreitunum um 3-4000 aspir, birki, ýmsar furur og víðiteg- undir þess að stórfjölskyldurnar haldi áfram verki þínu. Veiðin átti hug þinn allan og þar skipulagðir þú ófáar ferðirnar. Eystri-Rangá var í uppáhaldi og þú hlakkaðir mikið til veiðiferðarinnar nú í byrjun septem- ber enda með nýja flugustöng. Þrír dagar með góðum vinum og félögum í góðri veiðiá voru framundan. Það var fallegt veður, sólin skein og allt lék í lyndi þegar við hittum ykkur Möggu, vini og fjölskyldu síðdegis sunnudaginn 9. september til að láta þig hafa lyklana að bústaðnum. Koss á vanga er ljóslifandi í huga mínum og yljar og syrgir í senn. Elsku vinur, við söknum þín sárt en vonum og trúum að afar þínir taki vel á móti þér. Góður guð varðveiti þig og styrki okkur öll í sorg okkar. Mamma, pabbi og Ólafur Páll. Elsku Simmi. Þegar Magga laumaði þér inn í herbergið sitt fyrir 17 árum síðan vissum við að þar var kominn piltur sem hún var fallin fyrir. Eftir nokkur kvöld fengum við að sjá þennan myndarlega dreng þegar þú þorðir loks að koma út úr herberginu. Þá tók við þrautaganga hjá þér að sann- færa okkur um ágæti þitt, þú komst þó klakklaust í gegn. Frikki tók þig í vinnu og hann sannfærðist. Frikki var fullviss um að þarna væri mikill dugnaðarforkur og góður drengur á ferð. Þú vannst hug okkar og hjörtu enda ekki annað hægt. Þú varst allt- af hreinn og beinn og samkvæmur sjálfum þér. Með tímanum komuð þið Magga með tvo sólargeisla inn í líf okkar sem eru dætur ykkar tvær, Aðal- heiður María og Emelía Rán. Simmi, þú varst ákaflega tryggur og góður faðir sem passaðir stelpurnar okkar afar vel. Við kynntumst ekki bara þér held- ur allri fjölskyldu þinni, sem er stór og samheldin eins og okkar. Hún hefur alltaf reynst ykkur Möggu mjög vel og þið átt góðar stundir saman. Oft var fjör í Ystabænum, þar bjuggum við öll átta saman í sátt og samlyndi í um þrjú ár. Þetta voru góðir tímar sem þéttu enn frekar fjölskyldutengslin. Við brölluðum margt saman í veiði, reiðtúrum, sveitinni, gróðurreitnum, spilum og leik. Við skemmtum okkur alltaf vel saman. Þegar að þú, Raggi og Bjarki komuð til okkar Frikka í síðustu viku með vasaljósin og ormakassann ákvað ég að fara með ykkur strákun- um í ormatínslu og þú hlóst að mér því ég þorði ekki að koma við þá. Það var svo gaman þetta kvöld. Þegar þið Magga komuð síðan austur til okkar þetta afdrifaríka kvöld varstu svo ánægður. Þar náðum við öll að borða saman kvöldmat ásamt Svönu og Edda sem komu óvænt í heimsókn. Við erum ákaflega þakklát fyrir að hafa átt þessa stund með ykkur öll- um saman. Svana, Eddi, Óli Páll og fjölskyld- an ykkar öll, okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Elsku Magga mín, Heiða María og Emelía Rán, guð gefi ykkur styrk í þessari miklu sorg. Takk fyrir allt, Simmi, þú veist að við pössum upp á stelpurnar þínar, guð geymi þig og góða ferð. Gréta og Friðrik. 21:50 – Búinn að hringja í Ástu og láta vita að við værum komnir í bú- staðinn og allt gengi vel. 22:03 – Búinn að hringja í 112 og biðja um aðstoð vegna vinar míns, Raggi og Ingó byrjaðir að hnoða og blása. 23:?? – Tilkynnt að ekkert væri hægt að gera frekar, ég gat ekki trú- að að svona nokkuð gæti hent mig. Svili minn og trúnaðarvinur, hafði látist í fanginu á okkur í árlegri veiði- ferð okkar í Eystri-Rangá. Ferð sem átti að verða sú besta. Mánudaginn voru teknir tæplega 130 laxar á land og það vantaði 4 bestu veiðimennina, eða 3 bestu þar sem ég veiði aldrei neitt sem var ástæðan fyrir því að Simmi stökk útí ána í fyrra þegar ég tók loks maríulaxinn. Hann sá mig LOKS landa maríulaxinum og tróð svo uppí mig vindli og koníaki sem hann var búinn að geyma í jakkanum sínum í fjölda ára ef ske kynni að ég slysaðist til að veiða eitthvað annað en botninn. Mikið lán henti mig árið 1995 þeg- ar ég kynnist Ástu minni og hennar stórfjölskyldu. Sjaldan hefur maður kynnst slíku öndvegis fólki og var Simmi einn af þeim. Hann, stóri, mikli, skeggjaði töffarinn tók strax þessum 17 ára patta sem parti af fjölskyldunni og við áttum strax frá upphafi gott skap saman. Ég lærði fljótt að passa mig á því að fara ekki í drykkjuleiki með þér sem mun seint renna fólki úr minnum. Þegar árin liðu vorum við orðnir miklir og góðir trúnaðarvinir sem stóðum þétt, bökum saman, gegn of- ríki systranna, nema kannski í kana, þá stóðstu ávallt með henni Ástu, fannst við Magga vera óttalegir vit- leysingar sem ætti helst að banna að segja meira en 9. Áhugi okkar beggja á matseld var óbilandi en þar hafðir þú yfirhönd- ina, vesenið sem við nenntum að standa í var alveg ótrúlegt en minni- stætt er þegar við elduðum fyrir matarklúbbinn nokkra rétti, 8 að mig minnir, og enduðum á súkku- laðitertu sem innihélt yfir 100.000 kal. en við áttum hana svo sannar- lega skilið eftir erfiðið. Það eru ekki nema um tvö ár síðan að Magga kýldi það í gegn að við keyptum sumarhúsalóðir fyrir aust- an. Ég get ekki þakkað henni nóg- samlega fyrir að hafa platað okkur út í það því við höfum átt ófáar sam- verustundirnar þar, bæði við tveir og með fleirum við húsbyggingar, spila- mennsku, matseld, afslöppun og að rækta gróðurreitinn. Næsta vor stóð til að stinga upp það sem við settum niður í byrjun og planta út um 2000 plöntum til viðbótar. Ég veit ekki al- veg hvernig maður á að fara að því þar sem þú vannst á við 3 fullvaxta menn. Það var eiginlega sama hvað mað- ur var að gera, alltaf vorum við sam- an í öllu og eyddum miklum tíma saman. Við þurftum orðið ekki að tala saman til að eiga samræður. Það var margt sem við áttum eftir að ræða og gera saman. Ég mun halda mínu striki og gera það sem við höfðum rætt um, standa við bakið á konunni þinni og dætrum ykkar tveimur sem þú sást ekki sólina fyr- ir. Þar sem þú ert nú kominn á annan stað þá geri ég ráð fyrir að þú sláir ekki slöku við og reynir að díla eitt- hvað við æðri máttarvöld um áfram- haldandi grósku hjá okkur í reitnum. Þú verður ávallt með mér í anda, elsku vinur minn. Bjarki Traustason. Þeir gerðu allt sem þeir gátu til að bjarga þér en það var ekki nóg. Við fengum fréttirnar í smá skömmtum, fyrst var smá von en fljótlega var ljóst að ekkert var hægt að gera, þú varst farinn frá okkur. Þú sem hafðir verið svo hress og kátur fyrr um kvöldið þegar þið Magga komuð austur, þér leið svo vel. Þú varst byrjaður í námi, stefnan var skýr og lífið lék við þig. Þið félagarnir voruð í hinni árlegu veiðiferð í Eystri-Rangá og veiðihorfurnar voru góðar, ég skil ekki af hverju þú fékkst ekki að veiða í einn dag? Lá virkilega svona mikið á þér á öðrum stað? Það vakna svo margar spurningar þegar ungur og góður drengur er hrifinn frá fjöl- skyldu og vinum. Ég kynntist þér þegar þú og Magga byrjuðuð saman. Þú fluttir strax í Ystabæinn og varst mér meira eins og bróðir en mágur. Við vorum alltaf góðir vinir og á ég margar góðar og skemmtilegar minningar með þér. Öll ferðalögin, sumarbústaðarferðirnar, spilakvöld- in, útreiðartúrarnir og veiðiferðirn- ar. Mér er alltaf minnistætt þegar þú fótbrotnaðir. Þú varst í loftköstum heima af því mamma mátti ekki taka gólfmotturnar sem voru eins og gildrur um allt. Við áttum það sam- eiginlegt að vera smá brussur. Það var oft þröngt á þingi í Ystabænum en einhvern veginn skipti það ekki máli þar sem við höfum alltaf öll ver- ið sem eitt. Við stofnuðum kanaklúbb fyrir átta árum og vorum enn að skrá nið- ur stigin í bleiku bókina. Hver á að standa með mér í kana núna þegar þú ert farinn? Við stóðum alltaf sam- an á móti ruglinu í Möggu og Bjarka. Þú hafðir ástríðu fyrir matargerð og eldaðir besta mat í heimi. Matar- klúbbskvöld voru alltaf fjörug, mikið talað, hlegið, spilað og sungið. Þið Bjarki eydduð einu sinni þrem dög- um í að elda og við vorum í sex tíma að borða hvern réttinn af fætur öðr- um, það þótti þér gaman. Þú náðir að eiga eina góða kvöld- stund í bústaðnum sem ég og Bjarki erum að byggja, þið félagarnir í pók- er, ég er svo þakklát fyrir það, því þær stundir sem við áttum eftir að eiga þar koma aldrei. Það eru ekki nema tvö ár síðan við keyptum okkur saman land á Skeiðunum. Við áttum eftir að gera svo margt, sem þú færð ekki að taka þátt í. Við Bjarki eigum margar skemmtilegar minningar með ykkur Möggu og stelpunum í gróðurreitnum, þar sem við erum búin að planta yfir þúsund trjám. Það var óbilandi áhugi sem þú sýndir trjáræktinni, í fyrra vissir þú ekki hvað sneri upp né niður á trjám en núna vissir þú allt um trjárækt. Þetta lýsir þér vel því ef eitthvað greip huga þinn þá krufðir þú það til mergjar. Simmi minn, við munum sjá til þess að búa til grilllautina, hlaða vegginn, búa til útsýnispallinn og allt hitt. Ég hef alltaf litið upp til þín, enda varstu einstaklega sterkur og heill maður. Magga, Heiða, Emelía og Flóra voru þér allt, þú lifðir fyrir þær. Þú veist að það standa þéttar fjölskyld- ur á bak við þær og við munum hjálpa þeim og hvert öðru í gegnum þessa erfiðu tíma. Elsku Simmi, þú verður alltaf með Sigmar Þór Eðvarðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.