Morgunblaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 45
Á öllum sviðum lífsins Miðasala og sala áskriftarkorta á www.leikhusid.is eða í síma 551 1200 Ævintýri fyrir alla! MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 45 Jonas er ósammála fyrirsögn-inni. Þessi fyrirsögn var yf-irskrift málþings á vegum Bókmenntahátíðar og Marina Le- wycka, Sasa Stanisic og áðurnefnd- ur Jonas Hassen Khemiri sátu fyrir svörum í Norræna húsinu. Jonas hefur fengið nóg af því að vera ýtt út í horn, vera settur í gettó inn- flytjendahöfunda. Hann vill vera metinn af eigin verðleikum, rétt eins og hver annar sænskur höf- undur, án þess að vera stimplaður sökum uppruna og framandlegs eftirnafnsins. Sem er réttmætt og mætti yfirfæra á flesta alvöru lista- menn sem hafa lítinn áhuga á að vera skipað á bás, hvort sem ástæð- an er þjóðerni eða annað.    En það er samt enn meiraáhyggjuefni að básinn sé ekki til, það sé hvergi pláss fyrir þig. Það er enn alvarlegra að þrátt fyrir síaukin fjölda útlendinga búsettra hérlendis sem og Íslendinga af er- lendu bergi brotinna þá séu íslensk- ar innflytjendabókmenntir ekki til ennþá. Það eru óteljandi sögur sem við eigum eftir að heyra, sögur as- ísku kvennana sem grímuklæddar svæðisskipta miðbænum um helgar og hirða upp flöskurnar sem við hendum, sögurnar af pólska fisk- vinnslufólkinu og sögurnar af portúgölskum verkamönnum á Kárahnjúkum. Og þessi dæmi sanna aðeins fáfræði hins inn- fædda, þetta eru stereótýpurnar – það fyrsta sem manni dettur í hug – en það þarf uppfræðslu til að eyða stereótýpum. Stöku innfæddir höf- undar hafa tekið á þessum efnum og er það vel en við þurfum að heyra þeirra hlið. Því þarna eru sögur sem þarf að segja og þar til þær verða sagðar þá mun ekkert okkar hafa nema yfirborðsþekk- ingu á því samfélagi sem við búum í.    Það að skrifa bók er líka einhvermikilvægasti þröskuldurinn fyrir nýja Íslendinga, þá hefur unn- ist fullnaðarsigur á stærstu hindr- uninni, tungumálinu. En það á eftir að koma í ljós hvort við höfum um- burðarlyndi gagnvart nýjum ís- lenskum, sérkennilegum og sér- viskulegum mállýskum sem hafa til dæmis auðgað enskuna miklu meira en allt arðrán breska heims- veldisins á þriðja heiminum sam- anlagt. Lewycka fullyrðir að við eigum eftir að eignast þessar bók- menntir, ég vona að það sé rétt hjá henni.    Tungumálið skiptir nefnilegameira máli en við áttum okkur á þegar það er sjálfsagt. Pabbi Sasa á enn eftir að lesa bókina hans af því hann skilur þýsku ekki nógu vel og bíður eftir þýðingunni. Jonas lýsir því hvernig faðir hans breytir um karakter eftir tungumálum, hvernig hann stækkaði allur þegar hann fór til Arabalanda því þar hafði hann tungumálið fullkomlega á valdi sínu. En við þurfum að leyfa öllum að vera jafn stórir og þeir hafa burði til að vera – óháð því hversu fullkomin íslenskan þeirra er.    Hugtakið „innflytjendabók- menntir“ er þó hálla en nokkur áll. Óttar Martin Norðfjörð á tékk- neska móður – samt er hann aldrei kallaður innflytjendahöfundur. Kannski yrði það öðruvísi ef nafnið væri tékkneskara eða ef móðirin hefði verið dekkri á hörund. Enda er það hárrétt hjá Jonasi og Sasa að þetta ætti ekki að skipta máli – það sem þyrfti að gerast er að við eign- uðumst öflugar innflytjendabók- menntir um leið og hugtakið hyrfi úr umræðunni. Innflytjenda- bókmenntir » Pabbi Sasa á enn eft-ir að lesa bókina hans af því hann skilur þýsku ekki nógu vel og bíður eftir þýðingunni. Morgunblaðið/Kristinn Rithöfundur Jonas Hassen Khemiri hefur fengið nóg af því að vera ýtt út í horn, vera settur í gettó innflytjendahöfunda. asgeirhi@mbl.is AF LISTUM Ásgeir H Ingólfsson Lau. 22. sept. kl. 17.00 Kristallinn – kammertónleikaröð SÍ í Þjóðmenningarhúsinu Brassbotninn – tónlist eftir Haydn, Wagner, Bruckner og Bítlana. ■ Fö. 28. september kl. 19.30 – uppselt Tónlist eftir Elgar, Jón Leifs og Rakmaninoff Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafsson Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is Í GÆR var Þórhalli Gunnarssyni, dagskrárstjóra Sjónvarpsins, af- hentur undirskriftalisti til stuðn- ings endurráðningu Randvers Þorlákssonar leikara í Spaugstof- unni. Rúmlega tvö þúsund manns höfðu skrifað nafn sitt á listann þegar Halldór Eldjárn, sem stóð fyrir undirskriftasöfnuninni, af- henti hann í gær. Þær fregnir bárust í síðustu viku að Randveri hefði verið sagt upp störfum hjá Spaugstofunni og hrinti Halldór undirskrifta- söfnuninni strax af stað á vefsíð- unni: www.petitiononline.com/ randver7 við góðar undirtektir. Morgunblaðið/Golli Styðja Randver AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.