Morgunblaðið - 20.09.2007, Side 46
46 FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Hairspray kl. 5:30 - 8 - 10:30
Hairspray kl. 8 - 10:30 LÚXUS
Vacancy kl. 8 - 10 B.i. 14 ára
Veðramót kl. 5:40 - 8
Knocked Up kl. 8 - 10:40 B.i. 14 ára
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 4 - 6
Rush Hour 3 kl. 5:50 - 10:20 B.i. 12 ára
The Simpsons m/ensku tali kl. 3:45
The Simpsons m/ísl. tali kl. 3:45
Hairspray kl. 5:50 - 8 - 10:20
Knocked Up kl. 8 - 10:20 B.i. 14 ára
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 5:50
– Sími 564 0000 –Sími 462 3500
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
* Gildir á allar
sýningar í Regn-
boganum merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Sími 551 9000
Vacancy kl. 6 - 8 - 10
Veðramót kl. 5:40 - 8 - 10:20
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 6
The Simpsons m/ensku tali kl. 6 - 8 - 10
eeee
- A.M.G., SÉÐ OG HEYRT
eeee
- H.J., MBL
eeee
- Ó.H.T., RÁS 2
54.000
G
ESTIR
Sicko ísl. texti kl. 8 - 10:30 B.i. 7 ára
SAGAN SEM
MÁTTI EKKI SEGJA.
eeee
- E.E., DV
eeee
- S.V., MBL
eeee
- S.G., Rás 2
eeee
- R.H., FBL
- T.S.K., Blaðið
íslenskur te
xti
SICKO
CHRIS
TUCKER
JACKIE
CHAN
Ef þeim tekst ekki að sleppa
þá verða þau fórnarlömb
í „snuff“ mynd.
Óhuggnalegasti spennutryllir ársins
„EINHVER BESTI SÖNGLEIKUR
SEM KOMIÐ HEFUR ÚT Í ÁRA-
RAÐIR, EF EKKI ÁRATUGI. ÉG
SKEMMTI MÉR KONUNGLEGA!“
- T.V., KVIKMYNDIR.IS
eee
- L.I.B., Topp5.iseeee
- R.V.E., FRÉTTABLAÐIÐ
eeee
- S.V., MORGUNBLAÐIÐ
TÓNLISTARMAÐURINN Mika á
yfir höfði sér kæru frá reggítónlist-
arkonu sem segir að hann hafi stol-
ið af sér nafninu.
Belgíska tónlistarkonan Mika
segir að „Grace Kelly“-söngvarinn,
sem heitir fullu nafni Mica Pennim-
an, ætti að skipta um nafn þar sem
hún hafi skráð sér nafnið á níunda
áratugnum.
„Ég var kölluð Mika á undan hon-
um og er með nafnið skráð. Þrátt
fyrir að hans skírnarnafn sé Mica
finnst mér að hann eigi að breyta
því,“ sagði hún nýlega.
Reggísöngkonan, sem hefur gef-
ið út fimm plötur í Belgíu við litlar
vinsældir, vill líka að Mika borgi
sér skaðabætur.
„Hún er ekki ánægð, það er að-
eins pláss fyrir einn/eina Mika í
tónlistarheiminum og hún var á
undan,“ sagði góðvinur tónlist-
arkonunnar.
Reuters
Popp Hinn eini sanni Mika?
Mika eða
Mica?
MIÐASALA á Alþjóðlega kvikmyndahátíð í
Reykjavík hefst í dag auk þess sem dagskrárrit
hátíðarinnar kemur út.
Hátíðin, sem hefst 27. september og stendur
til 7. október, er nú haldin í fjórða sinn. Dag-
skráin í ár samanstendur af 87 myndum frá 30
löndum auk fjölda skemmtilegra hliðarviðburða.
Sýningar fara fram í Tjarnarbíói, Regnbog-
anum, Háskólabíói og Norræna húsinu.
Veitt verða verðlaun fyrir bestu myndina í
tveimur flokkum á hátíðinni. Verðlaunin „Upp-
götvun ársins“ eru nú veitt í þriðja skipti og fær
verðlaunahafinn gripinn Gyllta lundann sem er
hannaður af Jóni Sæmundi Auðarsyni.
Myndirnar í flokknum í ár koma frá 13 lönd-
um. Allir leikstjórarnir hafa sannað hæfileika
sína með kvikmyndum sem eru fjarri því að
bera svip byrjendaverka þrátt fyrir að í öllum
tilvikum sé um að ræða fyrstu eða aðra mynd.
Í hinum flokknum, „Fyrir opnu hafi“, eru
margreynd meistarastykki sem valda engum
vonbrigðum, m.a. handhafi Gullpálmans í Can-
nes í ár, 4 mánuðir, 3 vikur, 2 dagar eftir Cristi-
an Mungiu.
Fjöldi sératburða
Eins og áður hefur verið tilkynnt verður ævi-
starf R.W. Fassbinders og Hönnu Schygullu í
forgrunni á hátíðinni, en leikkonan fræga hlýtur
sérstök heiðursverðlaun fyrir ævistarf í þágu
kvikmyndalistarinnar. Auk þess tekur finnski
leikstjórinn Aki Kaurismäki við verðlaunum fyr-
ir framúskarandi listræna kvikmyndasýn.
Nýjar spænskar myndir fá verðskuldaða at-
hygli í flokknum Sjónarrönd og ekki vantar
gróskuna í íslenska flokkinn, Ísland í brenni-
depli. Tvær nýjar hryllingsmyndir verða Mið-
næturmyndir hátíðarinnar í ár og tékkneski
leikstjórinn David Ondricek er settur Í kast-
ljósið. Þar að auki verður fjöldi sératburða, en
af þeim má nefna bílabíó á hinu gamla varn-
arsvæði Bandaríkjahers og hljómsveitina Dani-
elson sem spilar í Fríkirkjunni í tengslum við
heimildamynd um forsprakkann, að ógleymdum
tónleikum Hönnu Schygullu á NASA. Enn-
fremur verður lífleg dagskrá fræðilegra atburða,
námskeiða og sérsýninga allan tímann meðan á
hátíð stendur.
Miðasala á hátíðina mun fara fram á riff.is,
miði.is, og í bíóhúsunum. Aðstoð verður enn-
fremur veitt á upplýsingamiðstöð hátíðarinnar
sem verður á Hressó í Austurstræti frá og með
næsta mánudegi.
Miðasala á Riff hefst í dag
Morgunblaðið/Frikki
Riff Hrönn Marinósdóttir, hátíðarstjórnandi,
kynnir Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina á blaða-
mannafundi í gær.
www.riff.is.
FÓTBOLTAKAPPINN David
Beckham á að hanna fötin sem
stelpurnar í Spice Girls klæðast í
væntanlegri tónleikaferð sinni.
Það var eiginkona Beckhams,
Victoria, og stallsystur hennar í
Spice Girls, Mel B, Emma Bun-
ton, Mel C og Geri Halliwell, sem
áttu hugmyndina að því að hann
hannaði á þær fötin, sem þær
telja að verði mjög gaman að
klæðast.
„David hefur hjálpað heilmikið
til í kringum tónleikaferðina sem
hefst í Los Angeles í desember.
Hann hefur verið að skoða föt
eftir fatahönnuðinn Julien Macdo-
nald og fá ráð hjá henni auk þess
sem hann hefur teiknað upp heil-
mikið af búningum, en auðvitað
verður það Victoria sem hefur
lokaorðið,“ sagði heimildarmaður
um þessa nýju iðju Beckhams.
Beckham er þekktur fyrir að
líta vel út og hafa gott nef fyrir
tísku. Hann ætlar að klæða stelp-
urnar í svart frá toppi til táar en
hver og ein verður í fötum sem
henta hennar persónuleika. Auk
þessa hefur Beckham verið að
hjálpa Victoriu að æfa danssporin
fyrir tónleikana en danshöfundur
Spice Girls, Jamie King, hefur
sagt stelpunum að láta eig-
inmennina hjálpa sér að læra
sporin.
Reuters
Fín Beckham-hjónin eru alltaf flott í tauinu.
Hannar á Spice Girls