Morgunblaðið - 20.09.2007, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 49
WWW.SAMBIO.IS
/ KEFLAVÍK / SELFOSSI SÍMI: 482 3007
BRATZ kl. 8 LEYFÐ
KNOCKED UP kl. 8 - 10:30 B.i. 14 ára
DISTUBIA kl. 10:10 B.i. 14 ára
MR. BROOKS kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
BOURNE ULTIMATUM kl. 10:10 B.i. 14 ára
LICENSE TO WED kl. 8 B.i. 7 ára
/ AKUREYRI
VACANCY kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
BRATZ kl. 6 LEYFÐ
VEÐRAMÓT kl. 8 - 10 SÍÐUSTU SÝNINGAR B.i. 14 ára
ASTRÓPÍA kl. 6 LEYFÐ
eeee
JIS, FILM.IS
BÝR RAÐMORÐINGI Í ÞÍNU HVERFI?
eeeee
- LIB, TOPP5.IS
eeeee
- SV, MBL
SÝND Í SAMBÍÓUNUM
KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
SKEMMTILEGUSTU
VINKONUR Í HEIMI
ERU MÆTTAR.
SÝND Í SAMBÍÓUNUM
KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
HITT húsið hefur Fimmtudagsforleik vetr-
arins í kvöld með útgáfutónleikum hljómsveit-
arinnar Gordon Riots.
Gordon Riots hefur verið iðin við kolann
undanfarna mánuði og gaf út á dögunum sína
fyrstu stuttskífu sem ber nafnið Witness The
Weak Ones. Hljómsveitin lenti meðal annars í
þriðja sæti á Músíktilraunum í ár og einnig
mun hún koma fram á Iceland Airwaves hátíð-
inni í október næstkomandi.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 í kvöld og ásamt
Gordon Riots munu hljómsveitirnar Shogun
og We Made God stíga á stokk. Frítt verður
inn og 16 ára aldurstakmark.
Ása Hauksdóttir, deildarstjóri menningar-
mála hjá Hinu húsinu, segir Fimmtudags-
forleikinn verða með sama sniði í vetur og und-
anfarin ár.
„Það eru nú þegar allir fimmtudagar bókað-
ir til loka október. Hljómsveitir sem vilja vera
með í vetur þurfa því að fara að melda sig til
leiks,“ segir Ása en hljómsveitirnar þurfa að
sækja um á þartilgerðum umsóknareyðublöð-
um hjá Hinu húsinu. „Öll bönd með hljómsveit-
armeðlimi undir 25 ára aldri mega sækja um.
Það er síðan hljómsveitanna að halda utan um
tónleikana, við útvegum þeim staðinn, hljóð-
mann og hljóðkerfi en þeirra er að auglýsa
tónleikana og fara í gegnum tónleikaferlið svo
þær læri af þessu.“
Ása segir tónleika með þessu sniði hafa ver-
ið haldna síðan Hitt húsið tók til starfa árið
1991.
„Það hefur alltaf verið öflug tónlistarsena í
Hinu húsinu. Áður fyrr voru það Síðdegistón-
leikar Hins hússins, síðan fór þetta yfir í
Föstudagsbræðing og í þessu formi, Fimmtu-
dagsforleikur, hefur það verið síðan 2003.“
Fimmtudaginn eftir viku kemur hljóm-
sveitin >3 Svanhvít fram ásamt fleiri böndum
og í byrjun október verður hipphopp-sena, að
sögn Ásu.
Gordon Riots Með útgáfutónleika í Hinu húsinu í kvöld á Fimmtudagsforleik. Hljómsveitin
spilar blöndu af metal-core og thrashi.
Fimmtudagsforleikur hefst