Morgunblaðið - 27.09.2007, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.09.2007, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 263. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is LAMBIÐ Í LONDON SKAGFIRSKA LAMBAKJÖTIÐ DÁSAMAÐ Á ÍS- LENSKA VEITINGASTAÐNUM TEXTURE >> 26 E N N E M M / S ÍA / N M 2 9 7 7 4 af sérmerk tum umbú ›um Förum í ferðalag saman >> 48 Leikhúsin í landinu FRÉTTASKÝRING Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is TIL að fjölga hjúkrunarfræðingum og leik- skólakennurum þarf að bæta kjör fag- lærðra. Umhugsunarefni þykir að í sam- anburði á því hverju síðustu kjara- samningar skiluðu BHM-stéttunum sem sömdu síðast saman kemur í ljós að þær stéttir sem vinna á stofnunum heilbrigð- isráðuneytisins hafa hækkað minna en aðrir háskólamenntaðir hjá hinu opinbera. „Þannig að það er ekki bara kynbundinn launamunur heldur líka munur á milli ráðu- neyta,“ segir Elsa B. Friðfinnsdóttir, for- maður Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga. Frá árinu 2000 til 2007 hefur umsækj- endum um leikskólakennaranám í Kenn- araháskóla Íslands fjölgað mikið eða um 143%. Árin 2005 og 2006 voru kröfur um menntun auknar og fækkaði þá þeim sem fengu skólavist. Árið 2007 fjölgaði hins veg- ar þeim sem boðin var skólavist þar sem fleiri umsækjendur uppfylltu hinar auknu kröfur. Þrátt fyrir það er sú fjölgun „aðeins dropi í hafið“, þar sem skorturinn á fagfólki er svo gríðarlegur að því er Hrönn Pálma- dóttir, lektor í leikskólafræðum í KHÍ, seg- ir. Í inntökuskýrslu KHÍ fyrir árið 2006 sést að í nám á leikskólabraut voru 109 um- sóknir samþykktar í fjarnám og staðnám, en 89 var hafnað. Í námi á leikskólabraut KHÍ eru gerðar sambærilegar kröfur og í öðru háskólanámi, þ.e. stúdentspróf eða sambærilegt próf. Í nýlegri mannekluskýrslu Félags ís- lenskra hjúkrunarfræðinga kemur fram að árleg þörf fyrir vöxt stéttarinnar er metin 47,6 stöðugildi og fyrirsjáanlegt sé að skortur á hjúkrunarfræðingum muni aukast til ársins 2015 um 12,8 stöðugildi ár- lega. Það ár muni að óbreyttu vanta 749 hjúkrunarfræðinga til starfa í alls 543 stöðugildi. Samkvæmt Hagstofu Íslands er hlutfall leikskólakennara (útskrifaðra 2000–2005) í starfi með því hæsta sem gerist meðal kennarastétta, eða um 80%. Á móti kemur að starfsaldur leikskólakennara er ekki langur, um 8,5% þeirra eru enn í starfi að 15 árum liðnum. „Mitt mat er að launakjörin skipti þar miklu máli,“ segir Björg Bjarna- dóttir, formaður Félags leikskólakennara. Launamálin hanga alltaf á spýtunni Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is TILBOÐ sem Framkvæmdasýsla ríkisins hefur fengið að undanförnu hafa flest verið yfir kostn- aðaráætlun, oft langt yfir áætlun. Fá tilboð ber- ast þegar útboð eru auglýst og dæmi er um að ekkert tilboð hafi borist. Þetta ástand endur- speglar mikla þenslu á byggingamarkaði. Óskar Valdimarsson, forstjóri Framkvæmdasýslunn- ar, segist ekki sjá nein merki um að þetta sé að breytast. Framkvæmdasýslan bauð í sumar út fram- kvæmdir við Háskólann á Akureyri og bárust tvö tilboð, það lægra var 40% yfir kostnaðar- áætlun. Báðum tilboðum var hafnað og efnt til nýs útboðs. Þá bárust fjögur tilboð og var það lægsta 17% yfir áætlun. Ef því verður tekið mun „Staðan er þannig að ef við erum svo heppnir að fá tilboð þá eru þau há, oft langt yfir kostn- aðaráætlun. Það virðist ekki skipta máli hvar á landinu verið er að bjóða út. Þetta útboð við Há- skólann á Akureyri sýnir það. Við sjáum engin merki um að þetta sé að breytast,“ segir Óskar. Miklar framkvæmdir eru framundan. Aust- urhöfn er að byggja tónlistarhús, ráðstefnumið- stöð og hótel í miðborg Reykjavíkur fyrir 40–45 milljarða. Landsbankinn ætlar á næsta ári að hefja framkvæmdir við höfuðstöðvar. Glitnir er að undirbúa stórbyggingar á Kirkjusandi. Há- skólinn í Reykjavík er að hefja byggingar við Öskjuhlíð. Þá er verið að byggja mikið af versl- unar- og skrifstofuhúsnæði víða á höfuðborg- arsvæðinu. kostnaður við framkvæmdir hækka um 100 milljónir. Ekkert tilboð barst þegar Framkvæmdasýsl- an bauð út viðbyggingu við Fjöliðjuna á Akra- nesi. Dæmi er um að aðeins eitt tilboð hafi borist og algengt að tvö tilboð berist. Tvö tilboð bárust t.d. í viðgerð á Eirbergi. Annað var 60% yfir kostnaðaráætlun en hitt var 102% yfir áætlun. Tilboð langt yfir áætlun  Mikil þensla er í byggingariðnaði og tilboð sem Framkvæmdasýslan fær eru bæði fá og yfirleitt yfir kostnaðaráætlun  Engin merki um breytingar Í HNOTSKURN »Samgönguáætlun gerir ráð fyrir að32 milljörðum verði varið til sam- göngumála á næsta ári. »Framkvæmdir við tónlistarhús ográðstefnumiðstöð eiga að ná hámarki seinni hluta næsta árs.  Engin merki | 6 ANDARNEFJU rak á fjöru í Kóp- unni í Innri-Njarðvík á mánudag- inn var. Þeim Unu Maríu, Benedikt Jens, Jóni Páli og Ísaki John, sem eru á myndinni, þótti forvitnilegt að skoða hvalrekann. Gísli Víkingsson, hvalasérfræð- ingur hjá Hafrannsóknastofnun, sagði að um sjö metra langan tarf hefði verið að ræða. Hann var ekki fullvaxinn, andarnefjutarfar geta orðið allt að níu metra langir. „Þetta er kannski sú hvalateg- und sem oftast finnst rekin hér við land,“ sagði Gísli. „Heimkynni andarnefja eru í djúpsævinu og það er eins og þær lendi oft í vand- ræðum þegar þær koma upp á grynningar og endi á þurru.“ Andarnefja er tannhvalur og kafar dýpst allra hvala ásamt búr- hval og getur haldið í sér andanum í meira en klukkustund. And- arnefjur finnast allt í kringum Ís- land, en síst fyrir norðan land. Andarnefjutarfur fannst rekinn í Kópunni í Innri-Njarðvík Djúpkafari á þurru Ljósmynd/Jóna Guðrún Jónsdóttir Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is „VIÐ reyndum að halda í skynsem- ina og vera róleg. Veðrið skelfdi okkur svolítið, en við vorum vel klædd og þrátt fyrir að hafa ekki mikinn mat vissum við að Kreppa var nærri og gátum náð okkur í vatn þar, þótt ekki væri það nota- legt eða bragðgott í ísköldum bíln- um. Vatn og svefn myndi fleyta okkur áfram uns veðrið batnaði og við gætum gengið í Herðubreið- arlindir og fundið þar fjarskipta- tæki til að láta vita af okkur.“ Þetta segir tékkneska parið sem bjargað var af hálendinu austan Dyngjufjalla og Öskju í gærdag. Þau sátu að snæðingi hjá húsráð- endum í Möðrudal um kvöldmat- arleytið í gær og virtust vel á sig komin þrátt fyrir þreytu og spennu- fall eftir fimm sólarhringa í bíl sín- um í heldur slæmu veðri. Í gærmorgun batnaði veðrið og gekk fólkið þá af stað í Herðubreið- arlindir. Þau reiknuðu með um átta klukkustunda göngu þangað og eft- ir fjóra tíma mættu þau Þorvaldi Víði Þórssyni fjallagarpi ásamt fé- lögum í bíl og kölluðu þeir eftir hjálp. „Enga hræðslu eða fát var á parinu að sjá og þegar við komum voru þau að búa til slóða fyrir bíl- inn,“ segir Jón Björgvin Vern- harðsson í Björgunarsveit skáta á Fjöllum. „Við vorum lagðir af stað í leit áður en tilkynnt var um þau, enda var vitað að þau hefðu ætlað í Drekagil. Við vorum ekki bjartsýn- ir á það þegar við lögðum af stað í hvaða ástandi við fyndum þau.“ Hann segir parið hafa verið vel útbúið og gert nákvæmlega það sem þau áttu að gera miðað við kringumstæður eftir að þau festu sig, þótt segja megi að þau hefðu átt að snúa við þegar fyrirsjáanlegt var að færðin var að versna. | 4 Nærðust á vatni úr Kreppu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.