Morgunblaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 26
veitingastaðir
26 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
fframsækni
Vörður tryggingar hf. I Borgartúni 25 I sími 514 1000 I www.vordur.is
var sýnt beint og þætt-
irnir voru á mjög slæm-
um tíma, um miðjan
dag eða seint að kvöldi,
ef Víkverja minnir rétt.
Þó er mjög stór hluti
landsmanna sem
stundar hestamennsku
eða hefur áhuga á
henni. Heimsmeist-
aramót íslenska hests-
ins er miklu stærri við-
burður en
undanúrslitaleikur í
einhverri fótboltadeild
hér heima.
Íslandsmeist-
aramótið í frjálsum
íþróttum er líka stærra
en undanúrslitaleikur og ekki fær
það að rjúfa sjónvarpsútsendingu á
kjörtíma.
Íslenska glíman er þjóðaríþrótt
okkar og ætti líka skilið gott pláss í
íþróttafréttatímum, þó ekki væri
nema til að fræða fólk um þessa
þjóðargersemi sem við höfum stund-
að frá landnámi.
x x x
Ef Sjónvarpið ætlar að stundaþað lon og don að senda beint
frá boltaleikjum á besta tíma þá á
það að sjá sóma sinn í því að sýna
líka frá öðrum vinsælum íþrótta-
greinum á góðum tíma.
Nokkur umræðahefur verið und-
anfarið um beinar
íþróttaútsendingar
Ríkissjónvarpsins.
Sjónvarpið hefur
stundað það nokkuð að
undanförnu að rjúfa
venjulega dagskrá á
besta tíma til að sýna
beint frá fótbolta-
leikjum. Víkverji er
ekkert mjög hrifinn af
þeirri ákvörðun Sjón-
varpsins en sættir sig
þó við hana því hann
veit að það eru margir
sem fylgjast spenntir
með þessum leikjum
og er þetta því góð þjónusta við þá.
x x x
Það sem Víkverja sárnar þó mestvið þessar beinu útsendingar
Sjónvarpsins er það að þeir rjúfa
aldrei dagskrá nema til að sýna frá
boltaleikjum. Þeir sinna ekki öðrum
hópum íþróttaáhugamanna, nema
kannski golfurum.
Allar aðrar íþróttagreinar en
boltaleikir fá varla umfjöllun hjá
þeim og hvað þá beint.
Heimsmeistaramót íslenska
hestsins fór t.d. fram í sumar og
gerði Sjónvarpið nokkra stutta og
frekar auma þætti um það og ekkert
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Spennandi námskeið sem Jón Ólafs-
son tónlistarmaður setti saman fyrir
Endurmenntun Háskóla Íslands á
sínum tíma stendur Akureyringum til
boð í október í samstarf við LA.
Greinilega spennandi námskeið; með
tóndæmum, hljóðfæraleik og söng
sýnir Jón fram á að ekki er allt sem
sýnist í dægurtónlistinni. Frá þessu
er greint í leikskrá Óvita, og í fram-
haldinu spurt: „Hvað er gott og hvað
er slæmt? Af hverju verður eitt vin-
sælt en ekki annað? Hverjir eru best-
ir? Og hvað er þetta með hommana
og Eurovision?“
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, for-
stjóri Saga Capital heimsótti MA í
gærmorgun og fræddi nemendur um
gildi þess í nútímaheiminum og öllum
samskiptaverkefnum þjóðanna að
leggja rækt við að læra tungumál og
ná valdi á þeim. Þetta var í tilefni
Evrópska tungumáladagsins, sem
var í gær.
Knattspyrnudeild Þórs varð um
helgina fyrirmyndardeild innan
Íþróttasambands Íslands, en til þess
þarf að uppfylla ýmis skilyrði. Ólafur
Rafnsson, forseti ÍSÍ mætti í lokahóf
yngri flokka deildarinnar, tilkynnti
þetta formlega og afhenti forráða-
mönnum félagsins skjal því til stað-
festingar.
Síðasti knattspyrnuleikur haustsins í
meistaraflokki verður á Akureyr-
arvelli á morgun, og það er enginn
smáleikur. Þór og KA mætast í síð-
ustu umferð 1. deildar karla og má
búast við mikilli baráttu. Þó að KA-
menn séu nánast sloppnir er baráttan
í neðri hluta deildarinnar svo jöfn að
með sigri geta þeir komist upp fyrir
Þórsara í stigatöflunni! Það verður
því varla nokkuð gefið eftir, frekar en
fyrri daginn þegar Akureyrarfélögin
eigast við!
Rétt er að vekja athygli á leiktím-
anum; flautað verður til leiks kl.
17.15.
Sverrir Páll Erlendsson mennta-
skólakennari hefur ákveðið að fagna
sextugsafmæli sínu með sérstökum
hætti. Hann segir á vefsíðu sinni:
„Í tilefni af sextugsafmæli mínu
eftir allmarga mánuði hef ég ákveðið
að halda hér á Akureyri sýningu, sem
ég mun kalla Myndir af mér. Nú vil
ég bjóða öllum sem lyst hafa á að taka
AKUREYRI
Eftir Skapta Hallgrímsson
Ljósmynd/svp
Tungumál Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson forstjóri Saga Capital ræðir við
nemendur í Mennaskólanum á Akureyri á Hólum í gærmorgun.
Það var mjög ánægjulegbyrjun fyrir okkur semstöndum að Texture að fáumsögn Fay Maschler með
þessum hætti því hún er aðal veit-
ingahúsarýnirinn í London og legg-
ur línurnar ef svo má að orði kom-
ast,“ segir Óskar Finnsson sem er
einn þeirra eldhuga sem að nýja
veitingastaðnum standa. Fay fór lof-
samlegum orðum um veitingahúsið
almennt í dómi sínum í Evening
Standard og bar sérstaklega lof á ís-
lenska bragðmikla lambakjötið úr
Skagafirðinum.
„Hún endaði greinina sína á því að
segjast vera búin að panta aftur
borð hjá okkur svo við getum ekki
annað en verið ánægðir. Við verðum
líka að tryggja okkur skagfirska
lambakjötið áfram, það er engin
spurning.“
Agnar Sverrisson, matreiðslu-
maður og Xavier Rousset vínþjónn,
stærstu eigendur staðarins, höfðu
unnið saman í nokkur ár á Le Mano-
ir í Oxford. Fyrir tveimur árum
vaknaði sú hugmynd hjá þeim að
opna veitingastað. Þeir hófu þegar
undirbúning og breskir og íslenskir
fjárfestar komu inn í verkefnið með
þeim félögum þegar á leið, m.a.
Óskar Finnsson sem rætt er hér
við.
Agnar er snillingur í eldhúsinu
„Ég stóðst ekki mátið þegar Agn-
ar bauð mér að vera með en þeir
voru þá einungis komnir með breska
fjárfesta og vantaði fleiri.“ Óskar
hafði samband við nokkra íslenska
félaga sína sem eru miklir matar-
áhugamenn sem bættust í hópinn.
„Við sáum strax að þetta var mjög
spennandi, Agnar er snillingur í eld-
húsi og Xavier kann allt um vín og
þjónustu. Ég kem svo inn sem veit-
ingamaður og er meira í að skoða
heildarmyndina og lesa í tölur. Text-
ure á aðeins að vera fyrsta verkefnið
okkar og við lítum á þetta sem fyrsta
skrefið að einhverju meiru.“
Þorskur og kannski humar
– Hvernig staður er Texture?
„Þetta er frekar lítill veitinga-
staður en fyrsta flokks. Hann rúmar
56 gesti og 30 bargesti.
Við erum með hágæða matreiðslu
á evrópska vísu, notum lítið af
smjöri og rjóma og maturinn verður
léttur í maga. Við notum sjávarfang
að heiman þegar hægt er og á mat-
seðlinum verða fimm forréttir, fimm
aðalréttir og fimm eftirréttir svo og
tveir einstakir sjö rétta bragðlauka-
Íslendingar
opna veitinga-
hús í London
Draumurinn orðinn að veruleika Meirihlutaeigendurnir Agnar Sverrisson
matreiðslumaður og Xavier Rousset þjónn sem standa vaktina alla daga.
Fay Maschler veitingahúsarýnir hjá Evening Standard
var yfir sig hrifin af skagfirska lambakjötinu þegar hún
heimsótti nýja veitingahúsið Texture í London en að
því standa m.a. nokkrir Íslendingar. Guðbjörg R.
Guðmundsdóttir sló á þráðinn til Óskars Finnssonar.
Við verðum líka að
tryggja okkur skag-
firska lambakjötið
áfram, það er engin
spurning.