Morgunblaðið - 27.09.2007, Page 44

Morgunblaðið - 27.09.2007, Page 44
44 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞÚ ERT VONDUR! OG ÞÚ ERT LÉLEGUR AÐ FLAUTA ÞEGAR ÞAÐ BYRJAR VEIÐIÞÁTTUR ÞÁ FER ÉG ÆTLI MAMMA EIGI EFTIR AÐ STÖKKVA ÚT ÚR SÍNU SKINNI Í DAG ÆTLAÐIR ÞÚ AÐ LAGA ÞAKIÐ, SLÁ BLETTINN, HÖGGVA ELDIVIÐ OG BYGGJA NÝJAN SKÚR! HVAÐ ERT ÞÚ AÐ GERA Í RÚMINU?!? BIÐJA FYRIR REGNI ÞÚ VEIST EKKI HVAÐ ÞAÐ ER MIKILVÆGT AÐ TEYGJA ÚR SÉR Á MORGNANNA! ÞAÐ ER RÉTT HJÁ ÞÉR, ADDA. KALLI EYÐIR ÓEÐLILEGA MIKLUM TÍMA Í TÖLVUNNI ÞAÐ VORU ENGIR TÖLVULEIKIR TIL ÞEGAR ÉG VAR KRAKKI. ÉG HAFÐI EKKI HUGMYND UM ÞAÐ HVAÐ ÞEIR GETA VERIÐ ÁVANABINDANDI HVAÐ EIGUM VIÐ AÐ GERA? VIÐ ÆTTUM AÐ BYRJA Á ÞVÍ AÐ KAUPA HLUTABRÉF Í SONY ÞETTA ER ÞAÐ SEM ÉG VAR FÆDDUR TIL AÐ GERA! EÐA... KANNSKI EKKI ALVEG „FÆDDUR“... ÉG HELD AÐ „BITINN“ SÉ BETRA ORÐ VÁ! SJÁÐU! HVAÐ ER KÓNGULÓAR- MAÐURINN AÐ GERA Í L.A.? dagbók|velvakandi Munurinn á stjörnuspám og stjörnuspeki Á STJÖRNUSPEKIVEF Morgun- blaðsins birtast meðal annars bréf frá lesendum. Fyrr á þessu ári barst fyrirspurn um hvernig geti staðið á því að stjörnumerkin Ljónið og Meyjan beri upp á sama dag, 23. ágúst. Umsjónarmaður síðunnar svarar því til að sólin verði í ljónsmerki fram til klukkan 12.09 á hádegi á þessu ári en fari þá inn í meyjar- merki. Hann bætir síðan við: „Hinar venjulegu „stjörnuspár“ dagblað- anna taka ekki mið af þessu. Þar er því haldið fram að Ljónið nái til 22. ágúst og Meyjan byrji 23. ágúst, eða álíka. Þar er bara um einhvern til- búning að ræða. Ég geri töluverðan greinarmun á stjörnuspám og stjörnuspeki.“ Ef tímasetningin 12.09 hinn 23. ágúst 2007 er slegin inn í stjörnu- fræðiforrit kemur í ljós að sólin er í miðju ljónsmerkinu. Í Almanaki Há- skólans fyrir árið 2007 stendur að sólin gangi ekki í meyjarmerkið fyrr en 16. september. Hverju á maður að trúa? Sverrir Guðmundsson, áhugamaður um stjörnufræði. Agi og áhugi í grunnskóla TIL allrar gæfu var ég slíkur happa- gaukur að hafa íþróttakennara í fremstu röð þeirra tíma, þá Þórð Magnússon og Hannes Ingibergsson í grunnskóla, Valdimar Sveinbjörns- son í Menntaskólanum í Reykjavík og nafna hans Örnólfsson. „Gakktu bein(n) í baki. Horfðu fram – og framtíðin brosir við þér.“ Mér fannst strax að ekki ætti sama dagskrá að gilda fyrir alla. All- ir ættu þó að læra að hlusta, hlýða, fara eftir reglum og gleðjast. Grunn- skólar og sveitarstjórnir finna nýjar leiðir, með frumkvæði og sköpunar- krafti ungra nemenda. Dæmi: 4-6 vikna námskeið fyrir 1. (og 2. bekk). Á hverjum degi fimm daga vikunnar í upphafi skólaárs. Íþróttakennarar, kennarar og aðrir hittast á sal af gleði og áhuga. Markmið: Skilyrðislaus hlýðni þegar kennari mælir orð eða gefur merki. Nálgun: 1. Íþróttakennsla er skemmtileg og byggist á forsendum nemenda. 2. Nemendur eru með á nótunum af áhuga og gleði. 3. Hemmi Gunn., Þorgrímur Þrá- insson og góðir gestir koma í heim- sókn með þrautir í „hlýðni og aga“ – sem þeir lærðu í æsku. 4. Þögn, friður, ró og gleði – skap- andi umræður og umhverfi – er und- irstaða einbeitingar, framsækni og frjórra hugmynda á öllum sviðum menningar og lista. (Gakktu bein(n) – horfðu fram …) Eftir sex vikna námskeið í aga og hlýðni heyrist í salnum: Oooo! Er þetta búið? Þetta var svo skemmti- legt. Margir kvarta yfir agaleysi og óhlýðni í grunnskóla. Hvað er til ráða? Hverju viljum við kosta til – fórna? Foreldrar, sveitarstjórnir, ráðuneyti? Þórir S. Guðbergsson, félagsráðgjafi og kennari. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Sýnum í dag vandað og vel staðsett alls 230 fm einbýlishús á þessum vinsæla stað í Vesturbænum. Húsið skiptist í aðalhæð og bjartan og rúmgóðan kjallara sem innangengt er í, en hefur einnig sérinngang. Aðalhæðin skiptist: Forstofa, gesta wc., rúmgott eldhús, borðstofa, stórar stofur með hurð út í suðurgarð með skjólgirðingum og palli. Svefnálma með þremur barnaherbergjum og baðherbergi. Kjallarinn skiptist: Stór stofa, stórt hjónaherbergi með baðhergi inn af. Þvottahús og geymslur. Auðvelt að breyta kjallara í séríbúð. Verð 73 millj. Steinar Orri sölumaður frá fasteign.is tekur á móti þér og þínum í dag á milli kl. 18.00 og 18.30. Gsm: 895-8221. OPIÐ HÚS Í DAG KL. 18.00 - 18.30 FROSTASKJÓL 5 EINBÝLISHÚS SÍMI 5 900 800 Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali. M b l 9 15 37 7 Skólabörn í 50 löndum tóku hressilega til drykkjar síns í tilefni alþjóða- skólamjólkurdagsins sem haldinn var hátíðlegur í gær. Var nemendum í fjölmörgum grunnskólum því boðið upp á ókeypis mjólk, þ.á m. þessum of- urhressu nemendum í Flataskóla. Morgunblaðið/Frikki Skál í mjólkurglasbotn!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.