Morgunblaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HESTAMANNAFÉLAGIÐ Gustur
boðar félagsmenn sína til fundar í
reiðhöllinni í Glaðheimum, í dag,
fimmtudaginn
27. september kl.
20.
Þar verður
fjallað um flutn-
inga félagsins á
Kjóavelli.
Kynning verð-
ur á skipulagi og
reiðleiðum og
sömuleiðis á
hesthúsagerðum og lóðagjöldum.
Farið verður yfir úthlutunarreglur
varðandi komandi lóðaúthlutun á
Kjóavöllum og hugsanlegt alútboð
vegna byggingar hesthúsa á nýju
svæði verður til umræðu.
Þar sem Gustsfélagar munu nýta
Glaðheimasvæðið út komandi vetur
verða einnig kynntar þær reiðleiðir
sem þar verða opnar í vetur.
Gustur flytur
FJÖLVEIÐISKIPIÐ Vilhelm Þor-
steinsson EA hefur haldið til veiða
á ný, eftir að það var fært til hafnar
í Sortland í Noregi vegna yfirsjónar
við tilkynningar til norskra stjórn-
valda vegna síldveiða. Greidd var
trygging, rúmar tvær milljónir ís-
lenzkra króna, vegna málsins. Út-
gerðin neitaði að viðurkenna ásetn-
ing og þar með sekt. Málið fer nú
sinn gang í norska réttarkerfinu.
Vilhelm laus
HJÁLPARTÆKJAMIÐSTÖÐ
Tryggingastofnunar hefur ákveðið
að gefa hjálpartæki til Sao Paolo í
Brasilíu með milligöngu Öryrkja-
bandalagsins og stuðningi frá Sam-
tökum atvinnulífsins. Hjá hjálpar-
tækjamiðstöðinni er verið að hlaða
gám með hjálpartækjum sem verða
send út í lok september.
Þeir sem gefa vilja tæki geta
fengið upplýsingar á slóðinni
http://www.tr.is/frettir/nr/679.
Gefa hjálpartæki
FLÓÐIN í Afríku hafa verið með
mesta móti nú í haust. Eitt þeirra
ríkja sem orðið hafa illa úti er
Gana. Flóðin eru í norðurhlutanum
og eru börn sem búa í SOS-
barnaþorpunum í suðurhluta lands-
ins og eiga íslenska styrktarfor-
eldra óhult. Það sama má segja um
börn í öðrum löndum Afríku sem
orðið hafa illa úti vegna flóða, segir
í frétt frá SOS. Nánari upplýsingar
má fá á vefnum sos.is.
Börnin eru óhult
NÆSTA laugardag, 29. september,
verður málþing um barna- og æsku-
lýðsstarf í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Meðal þeirra sem koma fram eru
Torfi Tómasson barnastjarna, Gylfi
Jón Gylfason sálfræðingur, Ice
Step-danshópurinn, ungt fólk sem
tekur þátt í æskulýðsstarfi segir frá
reynslu sinni, Stefán Eiríksson lög-
reglustjóri, Dróttskátasveitin Dím-
on, Bjarni töframaður, Kristín Rós
Hákonardóttir sundkona og margt
fleira. Leiktæki verða opin milli 13
og 17. Málþingið hefst klukkan 14
og stendur í um 2 klukkutíma.
Málþing um
barnastarf
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
MYNDSKEIÐ sem sýna Halldór
Laxness við réttarhöldin yfir Nikolaj
Búkharín, sem Jósef Stalín lét taka
af lífi árið 1938
sem föðurlands-
óvin, var sýnt í
Kiljunni, bók-
menntaþætti Eg-
ils Helgasonar, í
gærkvöldi. Þekkt
er að Laxness sat
réttarhöldin, en
ekki hafa áður
birst hér á landi
kvikmyndir sem
sýna veru hans við þau.
„Sagan er sú að ég var að horfa á
þýska heimildamynd um Stalín, sem
ég keypti í Berlín í sumar. Hún er
eftir mann sem heitir Hartmut Kam-
inski. Í myndinni eru nokkrir mynd-
bútar úr réttarhöldunum yfir
Búkharín árið 1938. Ég vissi að Hall-
dór hefði verið þar og fór ég aðeins
að skoða þetta. Og viti menn, ég sá
hann þarna í áhorfendahópnum,“
segir Egill.
Best klæddi maðurinn í salnum
Hann segist hafa borið myndirnar
undir menn sem hafi staðfest að
þarna sé Halldór kominn. Það sjáist
enda nokkuð greinilega þegar rýnt
sé í myndirnar. „Það er ljóst að þetta
er Halldór. Hann er að vanda best
klæddi maðurinn í salnum,“ bætir
Egill við.
Hann segir að þegar Halldór Guð-
mundsson ritaði ævisögu Halldórs
Laxness fyrir nokkrum árum hafi
hann fundið ljósmynd frá réttarhöld-
unum þar sem Halldór sést í salnum.
„En þarna eru semsagt komnar
kvikmyndir,“ segir Egill. Hann hafði
samband við Kaminski og fékk hjá
honum leyfi til þess að nota mynd-
irnar. „Þessi réttarhöld eru einn
stærsti sögulegi viðburðurinn á 20.
öld. Halldór Laxness sat öll réttar-
höldin yfir Búkharín, en þau stóðu
yfir í 12 daga,“ segir Egill.
Búkharín og allir sakborningarnir
sem voru með honum í réttarhöld-
unum voru líflátnir, en réttað var yf-
ir Búkharín í síðasta hluta þeirra.
Kvikmynd sem sýnir Laxness
við réttarhöldin yfir Búkharín
Egill Helgason
Greinilegur Svipmót Halldórs Laxness er vel þekkjanlegt á þessari mynd.
STEFNT er að því að boðið verði
upp á sérstakt nám í öryggisgæslu
frá og með næstu áramótum. For-
stöðumaður starfsmannasviðs Sec-
uritas segir breytt eðli starfsins og
breyttar aðstæður í þjóðfélaginu
kalla á aukna menntun öryggis-
varða.
„Þjóðfélagið er að mörgu leyti orð-
ið allt öðruvísi en það var. Áður
hlupu menn í burtu þegar komið var
að þeim í innbrotum. Í dag er orðið
mjög algengt að menn séu enn inni
þegar öryggisverðir koma á vett-
vang og oft eru þeir með hnífa,“ seg-
ir Gunnhildur Arnardóttir, forstöðu-
maður starfsmannasviðs Securitas.
Gunnhildur hélt erindi um menntun
öryggisvarða á morgunfundi í Viku
símenntunar sem nú stendur yfir á
vegum símenntunarskólans Mímis.
Gunnhildur segir að öryggisverðir
verði að hafa þjálfun til að bregðast
við í tilfellum sem þessum og til þess
þurfi að stórauka menntun þeirra.
Hún bendir líka á að starfssvið ör-
yggisvarða sé orðið mun víðara en
áður var. Verkefnin séu orðin mun
fjölbreyttari og oft erfiðari. Örygg-
isverðir gæti t.d. hafna, sjái um
vopnaleit og geti þurft að sjá um
mannfjöldastjórnun í tengslum við
mótmæli.
Koma oft fyrstir á staðinn
Upp á síðkastið hafa ýmsir aðilar
staðið að undirbúningi náms í örygg-
isgæslu og er nú verið að meta frum-
drög að náminu í menntamálaráðu-
neytinu. Er verkefnið m.a. unnið í
samvinnu við Ríkislögreglustjóra-
embættið og Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins. Gunnhildir segir að stefn-
an sé að boðið verði upp á námið í
Mími eftir áramót en verði það við-
urkennt þá sé hugsanlegt að ein-
hverjir skólar á framhaldsskólastigi
muni í framtíðinni bjóða upp á það.
Hún bendir jafnframt á að í Dan-
mörku geti enginn starfað sem ör-
yggisvörður nema hann hafi hlotið til
þess menntun og útgefið leyfi frá
lögreglu. Þar sé samstarf lögreglu
og öryggisvarða einnig mun meira
en hér á landi. Öryggisverðir komi
oft fyrstir á staðinn í margvísleg út-
köll og á þeim hvíli mikil ábyrgð. Til
þess að þeir geti staðið undir henni
sem skyldi sé menntun og þekking
hins vegar forsenda.
Menntun öryggisvarða aukist