Morgunblaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 23
3. Flugvöllurinn Ef þú ert að fara í fyrsta skipti á flugvöll þá er skynsamlegt að fara inn á heimasíðu viðkomandi vallar, kanna hvort til sé kort af honum og prenta þá út. Þannig hefurðu grunnhugmynd um hvern- ig völlurinn lítur út. Þetta getur sparað tíma sem er mikilvægur ef þú þarft að ná tengiflugi. Munið að stilla klukkuna á staðartíma um leið og lent er því flugtími er alltaf gefinn upp á staðartíma. Kannið einnig öryggisreglur flugvallarins og reglur um handfarangur. Á breskum flugvöllum er t.d. aðeins leyfilegt að vera með eitt stykki í handfarangri, og skiptir þá ekki máli hvort það er handtaska, far- tölva eða handfarangurstaska, allt skal vera í einni tösku þegar farið er í gegnum öryggishliðið. Fæstir aðrir evrópskir flugvellir eru eins strangir á þessum reglum. Á stærstu flugvöllum Bandaríkjanna er hins vegar fast gengið eftir því að ekki sé meira en 20 kg í hvorri ferðatösku þegar farið er frá land- inu, sem er hámarksþyngdin. Í báðum álfum getur vökvi í hand- farangri leitt til frekari leitar af öryggisástæðum og jafnvel upp- töku viðkomandi hluta. 4. Tengiflug og brottfararspjöld Jafnvel þótt við Íslendingar teljum okkur vera nafla alheimsins þá er- um við það ekki alltaf þegar kem- ur að flugsamgöngum. Við þurfum því oft að taka tvö og jafnvel þrjú flug til þess að komast á áfanga- stað. Í tengifluginu á áfangastað er oftast flogið með öðru flugfélagi en því sem flogið var með frá Ís- landi og á flugvellinum sjálfum er svo oft enn annað fyrirtæki sem sér um að gefa út brottfarar- spjöldin sem eru nauðsynleg til þess að fá að fara inn í flugvél- arnar. Það er mjög mikilvægt að kanna við brottför frá Íslandi/eða áfanga- stað erlendis að hvort hægt sé að gefa út brottfararspjald fyrir bæði flugin, að öðrum kosti verður að innrita sig í framhaldsflugið á tengiflugvellinum. Séu þessi flug bókuð ein og sér, sem oftast er, þá þarf að fara í gegnum innritun- arferlið á nýjum flugvelli eins og um fyrsta flug væri að ræða. Það er því mikilvægt að gefa sér næg- an tíma á milli fluga til þess. At- hugið að þjónustan á mörgum flug- völlum er minni á kvöldin en á daginn og þá getur tekið innritun tekið lengri tíma. 5. Brosið Það er mikið álag á starfsfólki flugvalla og áreiti sömuleiðis. Flestir eru tilbúnir til þess að að- stoða farþega sem best þeir geta. Yfirleitt er vænlegasta leiðin til þess að fá góða þjónustu að setja upp brosið, vera vinsamlegur og biðja kurteislega. Morgunblaðið/Ásdís Ferðaskrifstofan Skrifaðu hjá þér nafn, heimilisfang og síma ferða- skrifstofunnar eða vefsíðunnar sem þú pantaðir farseðilinn á. Reuters Brostu Yfirleitt er besta leiðin til að fá góða þjónustu að setja upp brosið. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 23 , Kringlunni, sími 533 4533 Smáralind, sími 554 3960 Tax-free-bomba Fríhafnarverð fimmtudag til sunnudags Fríhafnarverð á öllum vörum í verslunum okkar þessa helgi Verið velkomin Sjóðurinn
Blind
börn
á
Íslandi
veitir
styrki
til
blindra
og
sjónskertra
barna
á
Íslandi
allt
að
18
ára
aldri.

 Úthlutað
verður
styrkjum
úr
sjóðnum
á
fyrsta
vetrardag
sem
er
27.október
næstkomandi.

Umsóknir
um
styrki
 þurfa
að
hafa
borist
eigi
síðar
en
15.október

2007 Umsóknir
skal
senda
til
Blindrafélagsins,

Hamrahlíð
17.
Þær
skulu
vera
skriflegar
og
þeim
fylgja
kostnaðaráætlun
 vegna
þess
sem
sótt
er
um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.