Morgunblaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR UM 3.000 færri blesgæsir skiluðu sér í fyrravetur til Bretlandseyja en búast hefði mátt við, ef tekið er mið af friðun gæsarinnar hér á landi á árinu 2006. Þetta segir Einar Ó. Þor- leifsson, náttúrufræðingur hjá Fuglavernd, en upplýsingarnar hef- ur hann frá bresku samtökunum Wetland and Wildfowl Trust, sem talið hafa blesgæsir sem koma til dvalar á Bretlandseyjum frá Íslandi ár hvert. Einar segir talningarnar mjög ná- kvæmar, enda leiti blesgæsin helst á ákveðna staði á Suður-Írlandi og til vesturstrandar Skotlands. Einar segir að frá því að blesgæs- in var friðuð í fyrra hafi Fuglavernd fengið margar ábendingar um dráp á fuglunum, en blesgæsin heldur sig helst á Suðurlandi og í Borgarfirði. Fuglavernd hafi lagt mikla áherslu á að auk þess að friða gæsina yrði gripið yrði til ýmissa stoðaðgerða. Bent hafi verið á að æskilegt væri að gerð yrðu sérstök friðlönd fyrir bles- gæsina á mikilvægum stöðum og hugmyndir verið settar fram um að sumstaðar mætti stytta veiðitíma gæsa að hausti. Þessar hugmyndir hafi ekki náð fram að ganga. Einar telur eina helstu ástæðu fyrir því að veiðibannið sé ekki virt nægilega vera að lítið eftirlit sé með veiðunum. „Það þyrfti að auka eft- irlitið töluvert meira þannig að menn sæju að þeir geta ekki verið að skjóta hvaða fugl sem er,“ segir Ein- ar. Þá séu ákveðnir menn sem skjóti mjög mikið af gæs og selji í veitinga- hús. Sveinn.K. Rúnarsson, yfirlög- regluþjónn á Hvolsvelli, segir að lög- reglan hafi reynt að stöðva bíla og skoða veiði gæsaveiðimanna. Stefnt sé að því að auka eftirlitið á næst- unni. Í fyrravetur var lögreglan með eftirlit og segir að þá hafi enginn verið gripinn með blesgæs. Lög- reglan glími við manneklu en reyni að sinna eftirlitinu eins og kostur er. Þarf aukið eftirlit með veiðum Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson Friðuð Blesgæsin var friðuð í fyrra en þrátt fyrir það þekkist það að gæsin hafi verið veidd. EFNT verður til mikillar kín- verskrar menningarhátíðar í Kópavogi frá 29. september til 7. október á vegum Kópa- vogsbæjar, kínverskra stjórn- valda og Kínversk-íslenska menningarfélagsins. Ekki eru þó allir íbúar ánægðir með hátíðina. Dagmar Hjörleifs- dóttir, íbúi í Kópavogi, hafði samband við Morgunblaðið og lýsti eindregnum mótmæl- um við að Kópavogsbær skyldi standa að þessari hátíð í samvinnu við stjórnvöld í Kína, sem allir viti að brjóti alvarlega mannréttindi á íbú- um Tíbets. Kynningarbæklingi um há- tíðina í Kópavogi hefur verið dreift inn á öll heimili. Dag- mar segist hafa hringt á bæj- arskrifstofu Kópavogs til að mótmæla þessu og kveðst vita að fleiri íbúar hafi gert slíkt hið sama. „Ég hef ekkert á móti kínversku þjóðinni en kínversku ríkisstjórninni er ég á móti,“ segir hún. „Það er greinilegt að kínverski sendi- herrann stendur á bak við þetta, sem þýðir jú kínverska ríkisstjórnin,“ segir Dagmar og vitnar í viðtal við sendi- herra Kína á Íslandi, sem birt er í kynningarbæklingum, þar sem hann segir; „Kín- verska þjóðin og sú íslenska eiga margt sameiginlegt; við erum vinnusöm, hugrökk, vingjarnleg og friðelskandi og báðar eiga þjóðirnar ríkan menningararf.“ „Ég hef ekk- ert á móti því að fá listamenn og listmuni til Íslands, hvaðan sem er úr heiminum, en það verður þá að vera á þeirra eigin forsendum en ekki í gegnum kínversku ríkis- stjórnina,“ segir Dagmar. „Þetta ofbýður minni siðferð- iskennd, að þjóð sem með þrælskipulögðum hætti út- rýmir menningu heillar þjóð- ar og lífi fólks og hefur gert það í 30 ár, skuli voga sér að veifa svona framan í mann í mínum heimabæ,“ segir hún. „Ég er með undir höndum myndir sem hafa verið teknar í Tíbet án vitneskju Kínverja og það er nóg að horfa á þess- ar myndir til að fyllast skelf- ingu. Það svíður virkilega að fá svona inn um lúguna þegar um kínversk stjórnvöld er að ræða. Þau eiga ekki skilið að fá að flagga sinni menningu á sama tíma og þau eru að eyði- leggja menningu annarrar þjóðar með skelfilegum hætti,“ segir hún. Hafa ekki heyrt gagnrýni Hvorki Gunnar Birgisson bæjarstjóri né Björn Þor- steinsson, framkvæmdastjóri menningar- og tóm- stundasviðs Kópavogsbæjar, kannast við gagnrýni eða óánægju meðal íbúa vegna hátíðarinnar. Björn segir há- tíðina fara fram í samvinnu við kínverska sendiráðið, Kín- versk-íslenska menningar- félagið og fleiri. Að hluta til fer hátíðin einnig fram í sam- vinnu við Wuhan-borg í Kína en þaðan koma m.a. kínversk- ir listamenn á hátíðina. Fulltrúar Kópavogsbæjar fóru til Wuhan-borgar sl. vet- ur vegna undirbúnings menn- ingarhátíðarinnar í boði borg- arstjórnar Wuhan. Gunnar bendir á að Kópavogsbær hafi staðið fyrir kynningu á listum og menningu ýmissa þjóða á undanförnum árum, m.a. Spánverja og Rússa og nú sé komið að menningu og listum kínversku þjóðarinnar. Ekki sé sérstaklega staðið að þess- ari hátíð með stjórnvöldum Kína heldur komi margir að henni, m.a. fulltrúar Wuhan. Íbúi í Kópavogi gagnrýnir samvinnu bæjarins við kínversk stjórnvöld um viðamikla menningarhátíð „Þetta ofbýður minni siðferðiskennd“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Á móti „Ég hef ekkert á móti kínversku þjóðinni en kínversku ríkisstjórninni er ég á móti,“ segir Dagmar Hjörleifsdóttir. TALSMAÐUR neytenda og um- boðsmaður barna hafa rætt við Sam- tök verslunar og þjónustu og fleiri hagsmunaaðila um að setja takmörk á markaðssókn sem beinist að börn- um. Að sögn Gísla Tryggvasonar, tals- manns neytenda, eru góðar líkur á að samkomulag náist en einnig kem- ur til greina að hans embætti og um- boðsmaður barna setji leiðbeinandi reglur í samráði við hagsmunaaðila. Lagasetning sé þrautalending. Verkefnið hefur staðið í um tvö ár og á vef talsmanns neytenda, www.talsmadur.is, verið sett upp sérstök vinnusíða þar sem hægt er að kynna sér efnið og koma athuga- semdum á framfæri. Gísli sagði að undanfarið hefði at- hyglin beinst að auglýsingum á mat- vælum, m.a. vegna frumkvæðis Sam- taka verslunar og þjónustu um að hvetja til neyslu á hollum vörum. Að- spurður hvernig auglýsingar á óholl- um mat yrðu hugsanlega takmark- aðar sagði Gísli að von væri á merkingum frá Umhverfisstofnun sem settar yrðu á holl matvæli. Hugsanlega yrði einungis leyft að auglýsa matvæli með slíkum merk- ingum þegar börn sætu við sjónvarp. Að fleiru þyrfti að huga í þessu samhengi, s.s. markaðssetningu á gsm-símum og -notkun til ungmenna en Norðmenn hefðu t.a.m. sett regl- ur um slíkt. Takmörk á auglýs- ingar Góðar líkur eru að á samkomulag náist EKKI var ekið á manninn sem fannst í byrjun ágúst við Hraunberg í Breiðholti liggjandi á götunni, illa á sig kominn, samkvæmt rannsókn lögreglu. Grunur lék á að ekið hefði verið á manninn en hann er á sjö- tugsaldri. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu beindist grunur strax að ákveðnum bíl og var ökumaðurinn yfirheyrður. Við rannsókn málsins kom ekkert það fram sem bendir til að hann hafi átt hlut að máli. Sama á við um farþega sem voru í bílnum en ökutækið var rannsakað ítarlega. Það er jafnframt álitið að áverkar á hinum slasaða séu ekki til- komnir vegna umferðarslyss. Ekki ekið á manninn ♦♦♦ Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is MERKINGU um færð á fjallvegum á rafrænu upplýsingakorti Vega- gerðarinnar var breytt í hádeginu sl. föstudag eftir að tilkynnt hafði verið um ófærð á svæðinu við Herðubreið. Tékkneska parið, sem sat fast við Upptyppinga í hartnær fimm sólar- hringa í bíl sínum, hafði hins vegar skoðað kortið rúmlega klukku- stund áður en mörkin voru færð og taldi því veginn opinn venjulegum fjórhjóladrifsbílum. Parið, sem er um þrítugt, ræddi við Morgunblaðið í Möðrudal í gær- kvöld, en vildi ekki ljá blaðamanni nöfn sín né leyfa myndatöku og virtist nokkuð miður sín yfir til- standinu og athyglinni. Lokað og læst í Dreka Byrjað var að grennslast fyrir um fólkið í fyrradag, þegar mað- urinn, sem er byggingaverkfræð- ingur í Héðinsfjarðargöngum, mætti ekki til vinnu á mánudag. Fólkið er búsett á Ólafsfirði og var unnusta mannsins nýkomin til landsins í heimsókn. „Vegurinn var samkvæmt há- lendiskortinu opinn svo við töldum okkur ekkert að vanbúnaði, enda á fjórhjóladrifsbíl,“ sagði fólkið. „Við fórum því upp eftir frá Egilsstöðum og vegurinn var sæmilega snjólítill. Þegar við fórum fram hjá Herðu- breiðarlindum versnaði hins vegar færðin til muna og fljótlega sátum við föst.“ Þetta var á föstudagseftir- miðdegi. Þau segjast fyrst hafa reynt að koma jeppanum upp úr snjónum. Þau voru skóflulaus en notuðu hendurnar. Það gekk hins vegar ekki. Þau sváfu því í bílnum um nóttina og gengu næsta dag að skálanum í Drekagili. Hann var harðlæstur og engin fjarskiptatæki að hafa. Veðrið var þá farið að versna svo þau sneru til baka að bílnum, eftir að hafa labbað upp á nokkrar hæðir til að freista þess að ná gsm-símasambandi. „Við töldum víst að einhvern tím- ann hlyti að koma bíll eftir veginum eða í Herðubreiðarlindir og því héldum við ró okkar. Við erum afar þakklát fyrir björgunina og góðar móttökur í Möðrudal,“ sagði parið í gærkvöld. Æðrulaus þrátt fyrir kulda, hungur og óveður Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Léttir Félagarnir Sveinbjörn Árni Björgvinsson og Jón Björgvin Vernharðsson í eldhúsinu í Möðrudal eftir vel heppnaða björgunaraðgerð við Herðubreið. Þeir segja tékkneska parið hafa staðið sig afar vel miðað við kring- umstæður. Lengst til hægri sést Vernharður Vilhjálmsson, bóndi í Möðrudal. Fóru á svæðið í þeirri trú að vegir væru allir færir                                                                                         Föst Fólkið var á leið frá Egilsstöðum er það festi bílinn við Upptyppinga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.