Morgunblaðið - 27.09.2007, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Tældi táningsstúlkur
Kynnti sig sem 17 ára pilt og vingaðist við stúlkurnar Bauð þeim fjármuni
fyrir kynlíf Vissi að þær áttu við andlega og félagslega erfiðleika að stríða
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær 61
árs karlmann, Róbert Árna Hreiðarsson, í þriggja
ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum tán-
ingsstúlkum og að hafa undir höndum töluvert
magn af barnaklámi. Hann var jafnframt dæmdur
til að greiða þeim samtals 2,2 milljónir króna í
skaðabætur og 2,7 milljónir tæpar í sakarkostnað.
Þá var Róbert Árni sviptur réttindum til að starfa
sem héraðsdómslögmaður og koma áhrif svipting-
arinnar þegar til framkvæmda.
Brot Róberts eru sérlega alvarleg, sérstaklega í
ljósi þess að stúlkurnar sem voru á aldrinum fjór-
tán til sextán ára áttu allar við andlega og fé-
lagslega erfiðleika að stríða. Þetta var honum full-
kunnugt um. Hann hafði vingast við þær í gegnum
spjallforritið MSN Messenger. Þar kynnti Róbert
sig sem sautján ára pilt og tókst með honum og
stúlkunum vinátta. Þar sem hann vissi að stúlk-
urnar þurftu allar á fjármunum að halda, ýmist til
að halda uppi einka- eða fíkniefnaneyslu, bauð
hann þeim að komast í samband við eldri mann
sem væri tilbúinn að borga fyrir kynferðislega
greiða. Róbert hafði samræði við tvær stúlknanna,
munnmök við þrjár, auk þess sem hann greiddi
þeirri fjórðu fjármuni fyrir að bera sig fyrir fram-
an vefmyndavél og sýna kynferðislega tilburði.
Með 335 kvenmannsnöfn í minnisbók
Þau brot sem dæmt var fyrir stóðu yfir frá júlí
2005 til vors 2006. Í tvö skipti í lok júlí 2005 hafði
Róbert samræði við fjórtán ára stúlku í bifreið
sinni og lét hana einnig hafa við sig munnmök.
Fyrir það greiddi hann stúlkunni að minnsta kosti
32 þúsund krónur. Stúlkan var lögð inn á Barna- og
unglingageðdeild Landspítalans í kjölfarið vegna
þunglyndis, vanlíðunar og sjálfskaðandi hegðunar.
Við húsleit á heimili og vinnustað Róberts fannst
m.a. minnisbók og minnisblað með mörgum skráð-
um netföngum, nöfnum og símanúmerum. Alls
voru 335 kvenmannsnöfn í minnisbókinni og fyrir
aftan skráðar tölur sem ætla má að sé aldur þeirra.
Nöfn og númer þeirra stúlkna sem brotið var á í
máli þessu voru meðal þeirra sem fundust í bók-
inni. Jafnframt fannst á þriðja hundrað mynda,
sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn
hátt, í tölvum Róberts og fimm myndbandsspólur
með sama efni.
Alvarlegast þótti hins vegar samband Róberts
við fimmtán ára stúlku sem stóð frá hausti 2005 og
til vors 2006. Þá hafði hann fjölmörgum sinnum við
hana samræði og greiddi jafnan tíu til tuttugu þús-
und krónur. Athyglisverður er einnig þáttur vin-
konu stúlkunnar. Hún var einnig í samskiptum við
Róbert, en samdi aðeins um greiðslur fyrir kynlífs-
greiða vinkonunnar. Báðar notuðu þær svo fjár-
munina í fíkniefnakaup.
Í niðurstöðu dómsins kemur fram að Róbert hafi
haldið áfram brotum sínum eftir að honum var
ljóst að hann væri grunaður um kynferðisbrot
gagnvart einni stúlkunni. Einnig gat dómurinn
ekki litið framhjá því að hann hefði m.a. annast
hagsmunagæslu fyrir brotaþola í sakamálum og
sinnt verjandastörfum í kynferðisbrotamálum.
Héraðsdómararnir Símon Sigvaldason, Ingveld-
ur Einarsdóttir og Sandra Baldvinsdóttir kváðu
upp dóminn.
FUNDURINN var afar jákvæður,“ sagði
Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur hjá
utanríkisráðuneytinu, að loknum fyrri degi
fundarhalda um Hatton Rockall-svæðið í
Reykjavík í gær. Ákveðið hefur verið að
næsti fundur um málið verði haldinn í Kaup-
mannahöfn 1. og 2. nóvember næstkomandi.
„Aðilar lögðu áherslu á það á þessum fundi
að ræða um hugsanlegar leiðir til skipt-
ingar landgrunns á Hatton Rockall-
svæðinu,“ sagði Tómas. Hann sagði að í dag
yrði farið yfir ýmis tæknileg atriði í
tengslum við málið.
Ríkin gera öll tilkall til landgrunns á
Hatton Rockall-svæðinu suður af Íslandi og
vestan Bretlandseyja. Yfirráðum yfir land-
grunni fylgir m.a. réttur til nýtingar auðlinda
á eða undir hafsbotninum.
Viðræður þessar hófust árið 2001 að frum-
kvæði Íslendinga. Íslensk stjórnvöld vilja að
ríkin fjögur komist að samkomulagi um skipt-
ingu svæðisins. Síðan verði sameiginleg
greinargerð um ytri mörk svæðisins lögð fyr-
ir landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna.
Fundað um Hatton Rockall
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jákvæður fundur Fundinn um Hatton Rockall-svæðið í utanríkisráðuneytinu sátu, auk fulltrúa Íslendinga, fulltrúar Breta, Íra og Dana fyrir hönd Fær-
eyinga. Fundinum verður framhaldið í dag og ákveðið er að áfram verði fundað um málið í Kaupmannahöfn í byrjun nóvember næstkomandi.
RANNSÓKN rannsóknardeildar
lögreglustjórans á Suðurnesjum á
meintu smygli flugstjóra fragtflug-
vélar á konu frá Venesúela til Íslands
síðla árs 2006 hefur verið hætt. Að
sögn Eyjólfs Kristjánssonar, yfir-
manns lögfræðisviðs lögreglustjór-
ans á Suðurnesjum, leiddi frumrann-
sókn málsins í ljós að flugstjórinn
hefði ekki gerst brotlegur við lög
heldur farið að vinnureglum.
„Hann [flugstjórinn] tilkynnti
starfsmanni í tollinum um konuna.
Viðkomandi hafði samband við
landamæraeftirlitið sem leiðbeindi
honum til almennrar deildar lögregl-
unnar, sem á þessum tíma annaðist
eftirlit með fraktvélum. Þá kemur í
ljós að konan er frá Venesúela og er
ekki áritunarskyld. Því mat þessi
starfsmaður það svo að það þyrfti
ekki að stimpla hana.“
Í Morgunblaðinu þriðjudaginn 21.
ágúst sl. var haft eftir Jóhanni R.
Benediktssyni, lögreglustjóra á Suð-
urnesjum, að það væri ófrávíkjanleg
regla hérlendis að allir erlendir rík-
isborgarar frá ríkjum utan EES,
sem væru að koma inn á Schengen-
svæðið, skyldu fara í landamæraeft-
irlit og fá innkomustimpil í vegabréf
sitt. Konan hefur ávallt haldið því
fram að enginn hafi skoðað vegabréf
hennar við komuna til landsins og því
hafi hún ekki fengið innkomustimpil.
„Formmistök“ hjá starfsmanni
Í samtali við Morgunblaðið í gær
ítrekaði konan að hún hefði farið með
rútu frá flugvélinni að flugstöðvar-
byggingunni þar sem hún hefði í
fylgd flugstjórans labbað beint í
gegnum fríhöfnina án þess að tala við
fulltrúa landamæraeftirlitsins eða
tollverði. Spurður hvers vegna kon-
an hafi ekki fengið innkomustimpil
hjá landamæraeftirlitinu við komuna
til landsins segir Eyjólfur „formmis-
tök hafa verið gerð hjá viðkomandi
starfsmanni. Hins vegar er efnislega
niðurstaðan sú sama. Þannig að nið-
urstaðan var í lagi þó vissulega hefði
verið rétt að stimpla. En við getum
ekki tengt það við viðkomandi flug-
stjóra.“
Spurður hvort vinnureglur emb-
ættisins verði áréttaðar í framhald-
inu svarar Eyjólfur: „Við brýnum
fyrir okkar fólki hvernig starfsregl-
urnar eru. Þetta er ekki litið alvar-
legum augum hjá okkur.“ Spurður
hvort rannsóknardeildin hafi rætt
við alla hlutaðeigandi aðila segir Eyj-
ólfur að rætt hafi verið við þá sem að
atvikinu komu. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins var rætt við
starfsmenn hjá embættinu og flug-
stjórann, en aldrei var haft samband
við konuna vegna málsins.
Rannsókninni hætt
Ekki litið alvarlegum augum að innkomustimpil vantaði
Formmistök starfsmanns en efnisleg niðurstaða sú sama
MIÐLÆGT stýri-
kerfi fyrir fjöl-
förnustu gatna-
mótin í
Reykjavík hefur
nú verið tekið í
notkun. Nýja
kerfið aðlagar
umferðarljósin
umferðinni á
hverjum tíma, lengir tíma ljósa
þegar álagið er mest og lágmarkar
biðtíma vegfarenda í gatnakerfinu.
Í Reykjavík er 116 gatnamótum
stjórnað með umferðarljósum, og í
þessum fyrsta áfanga verkefnisins
eru 36 gatnamót á stofnbrautum
miðsvæðis í Reykjavík, auk þrennra
gatnamóta á Hafnarfjarðarvegi.
Þessa dagana er unnið að fínstill-
ingu kerfisins, en ekki þarf að bú-
ast við truflunum á umferð.
Umferðarljósin
loga lengur á
álagstímum
FULLTRÚAR allra olíufyrirtækj-
anna á Íslandi, Faxaflóahafna, auk
fleiri aðila mættu á kynningu á olíu-
birgðastöðinni í Hvalfirði en ríkið
hyggst selja hana á næstunni. Út-
boð mun fara fram 10. október
næstkomandi.
Óvíst er hver not stöðvarinnar
geta orðið en olíugeymarnir fjórir
rúma um 60 milljónir lítra. Til sam-
anburðar er ársnotkun Íslendinga á
bensíni um 200 milljónir lítra. Ís-
lenska ríkið eignaðist stöðina þegar
það yfirtók starfsemi varnarliðsins
í fyrra.
Skoðuðu olíu-
birgðastöðina
ANNAR mannanna sem handteknir
voru í Laugarneshverfinu í Reykja-
vík á föstudaginn vegna gruns um
innflutning á kókaíni í fljótandi
formi hefur verið úrskurðaður í
áframhaldandi gæsluvarðhald. Var
gæsluvarðhaldið í gær framlengt til
mánudagsins 1. október. Maður
sem samtímis var handtekinn í
tengslum við rannsókn málsins hef-
ur nú verið leystur úr haldi.
Búið er að efnagreina kókaín-
vökvann sem kom með pósti frá
Bandaríkjunum. Í þeim 1800 ml af
vökva sem voru í flöskunum voru
um 600 g af kókaíni.
Gæsluvarðhald
framlengt