Morgunblaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
„ÞAU tilboð sem við erum að fá
eru fá og almennt mjög há, oftast
langt yfir kostnaðaráætlunum,“
sagði Óskar Valdimarsson, for-
stjóri Framkvæmdasýslu ríkisins,
en mikil þensla er í byggingageir-
anum og í jarðvinnu. Óskar segist
ekki sjá nein merki um að þetta
ástand muni breytast næstu tvö
árin a.m.k.
Í ágúst bauð Framkvæmdasýsl-
an út byggingu kennslu- og fyr-
irlestrarýmis við Háskólann á Ak-
ureyri, en kostnaðaráætlun
hljóðaði upp á um 555 milljónir
króna. Tvö tilboð bárust og var
lægra tilboðið 40% yfir kostnaðar-
áætlun. Framkvæmdasýslan ákvað
að hafna tilboðunum og bjóða
verkið út að nýju. Í útboði sem
opnað var í fyrradag bárust fjögur
tilboð og var það lægsta 17% yfir
kostnaðaráætlun. „17% yfir kostn-
aðaráætlun í þessu verki eru um
100 milljónir. Það er nokkuð sem
við eigum erfitt með að taka,“ seg-
ir Óskar.
Fá tilboð berast
Í sumar bauð Framkvæmdasýsl-
an út viðbyggingu við Fjöliðjuna á
Akranesi, en ekkert tilboð barst.
Eitt tilboð barst þegar Fram-
kvæmdasýslan bauð út viðbygg-
ingu við Heilbrigðisstofnunina á
Siglufirði. Tvö tilboð bárust þegar
útboð voru haldin vegna viðgerða
á Eirbergi og íþróttahúsi Háskóla
Íslands og sama gerðist þegar
stækkun fangelsis á Kvíabryggju
og framkvæmdir við Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja voru boðnar
út.
Algengt er að þau tilboð sem
berast séu allt að helmingi hærri
en kostnaðaráætlun. Tvö tilboð
bárust t.d. í þakviðgerð á Alþing-
ishúsinu, annað á kostnaðaráætlun
en hitt 115% yfir kostnaðaráætlun.
Tilboð sem bárust í gerð snjóflóða-
garða á Ólafsvík voru 20–150% yfir
áætlun. Tilboð sem bárust í utan-
hússviðgerð á Þjóðleikhúsinu voru
42–168% yfir kostnaðaráætlun.
Jón Rögnvaldsson vegamála-
stjóri kvartar ekki eins mikið und-
an háum tilboðum. Hann segir að
reynsla Vegagerðarinnar sé sú að
tímasetning útboða skipti miklu
máli. Tilboð sem koma á sumrin
séu yfirleitt hærri en tilboð sem
komi á haustin og á veturna. Vega-
gerðin hafi þess vegna lagt áherslu
á að bjóða út verk með góðum fyr-
irvara svo að verktakar geti skipu-
lagt sína vinnu fram í tímann.
Margir hafa átt von á að það
myndi draga úr umsvifum í mann-
virkjagerð þegar virkjunar- og
stóriðjuframkvæmdum lyki á
Austurlandi og á Grundartanga.
Þenslan á byggingamarkaðinum er
hins vegar enn mikil og mörg stór
verkefni framundan. Stærsta ein-
staka framkvæmdin er bygging
tónlistar- og ráðstefnuhúss í mið-
borg Reykjavíkur, en áætlað er að
húsið og framkvæmdir sem tengj-
ast því eins og hótel og skrif-
stofubyggingar kosti 40–45 millj-
arða.
Kostnaðurinn slagar hátt í hálfa
Kárahnjúkavirkjun sem kostar um
100 milljarða. Framkvæmdum við
tónlistarhús á að ljúka í lok árs
2009 og við hótelið 2010. Fram-
kvæmdir verða í hámarki á síðari
hluta næsta árs, en þá er áætlað
að um 600 manns vinni að smíði
húsanna.
Mörg stór verkefni
framundan
Fleiri stór verkefni eru í und-
irbúningi. Landsbankinn áformar
að reisa nýjar höfuðstöðvar í
miðbæ Reykjavíkur og er gert ráð
fyrir að framkvæmdir hefjist á
næsta ári. Glitnir áformar einnig
að reisa miklar byggingar á
strætólóðinni við Kirkjusand. Há-
skólinn í Reykjavík er að fara af
stað með stórar byggingar við
Öskjuhlíð. Verið er að byggja stór
og mikil skrifstofu- og verslunar-
hús víða á höfuðborgarsvæðinu.
Stjórnvöld hafa einnig uppi
áform um miklar framkvæmdir.
Samkvæmt samgönguáætlun verð-
ur 18 milljörðum varið til sam-
göngumála á þessu ári, 32 millj-
örðum á næsta ári, 28 milljörðum
árið 2009 og 26 milljörðum árið
2010. Samtals eru þetta um 105
milljarðar á fjórum árum. Árni Jó-
hannsson, hjá Samtökum iðnaðar-
ins, segir að samgönguáætlun hafi
„aldrei verið eins bólgin“.
Árni telur reyndar ekki ástæða
til að gera of mikið úr því þó tilboð
í opinber verk séu há. Það hljóti að
vera tímabundið ástand.
Engin merki um að þenslu í
byggingariðnaði sé að ljúka
Í HNOTSKURN
»Byggingarvísitala hefurhækkað mikið á und-
anförnum misserum eða um
19% frá ársbyrjun 2006. Verð-
lag hefur á þessu tímabili
hækkað um 10,8%.
»Byggingu virkjunar og ál-vers á Austurlandi er að
ljúka. Stærsta framkvæmdin
sem nú er í gangi er bygging
tónlistarhúss. Næststærsta
framkvæmdin er Héðinsfjarð-
argöng sem kosta um 5 millj-
arða.
»Unnið er að undirbúningibyggingar álvers í Helgu-
vík og við Húsavík. Verði þau
að veruleika verður farið í
miklar virkjanaframkvæmdir.
Morgunblaðið/Golli
Tónlistarhús Framkvæmdir við tónlistar- og ráðstefnuhús verða í hámarki á seinni hluta næsta árs, en þá er
reiknað með að um 600 iðnaðarmenn verði þar að störfum.
!
""
#$%!
& '
()*+
, -
. 0"
-
"
1
0" &.
,
0"
-
" 0
/
2
2
2
2
2
2
2
!2
2
2
2
2
2
2
2
Mjög há tilboð
berast í opinberar
framkvæmdir
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráð-
herra hefur ákveðið að greiða öllum
starfandi lögreglumönnum sérstakt
tímabundið álag á laun á grundvelli
gildandi kjarasamningi Landssam-
bands lögreglumanna (LL) og fjár-
málaráðherra. Fá allir starfandi
lögreglumenn greidda mánaðarlega
kr. 30.000 í álagsþóknun frá 1. októ-
ber næstkomandi og út samnings-
tímann sem er til 31. október 2008.
Þeir lögreglumenn sem eru í hluta-
starfi fá álagsgreiðslu í samræmi
við starfshlutfall.
Samkvæmt upplýsingum Lands-
sambands lögreglumanna byggjast
þessar greiðslur á auknu starfs-
álagi lögreglumanna vegna brott-
hvarfs lögreglumanna úr starfi og
aukningu verkefna vegna samein-
ingar lögregluliða um síðastliðin
áramót.
„Það er mat stjórnar LL, að
teknu tilliti til allra fyrirliggjandi
þátta, að þetta sé ásættanleg nið-
urstaða og verði vonandi til þess að
stöðva þá óheillaþróun sem hefur
blasað við undanfarið og verði jafn-
framt hvatning til lögreglumanna
til áframhaldandi góðra verka,“
segir í tilkynningu LL þar sem
greint er frá þessari niðurstöðu.
Viðræður lögreglumanna og fjár-
málaráðuneytis hófust í júlí s.l. en
dómsmálaráðherra bauð síðan
fulltrúum LL til fundar í sumar þar
sem lögreglumenn kynntu hug-
myndir sínar. „Við lýstum áhyggj-
um okkar af þeirri þróun að margir
hafa hætt störfum,“ segir Steinar
Adolfsson, framkvæmdastjóri LL.
Hann segir að lögreglumenn hafi
svo áréttað þessar áhyggjur sína
enn frekar á fundi í ágúst og nú
liggi niðurstaðan fyrir með ákvörð-
un dómsmálaráðherra. „Hún er
ásættanleg að okkar mati miðað við
þá stöðu sem við erum í,“ segir
hann. Um er að ræða hámarks-
greiðslu miðað við ákvæði í kjara-
samningum og verður það greitt út
samningstímann, að sögn Steinars.
Tvöfalt fleiri láta af störfum
en á öllu síðasta ári
Steinar segir að nýjustu tölur
sem hann hafi tiltækar um brott-
hvarf félaga úr starfi frá í ágúst sl.
leiði í ljós að á þeim tíma hafi alls 39
lögreglumenn sagt upp störfum eða
tilkynnt að þeir mundu gera það frá
áramótum. Inn í þessari tölu eru
einnig nokkrir lögreglumenn sem
eru að láta af störfum á árinu vegna
aldurs. Þetta er tvöfalt meiri fjöldi
lögreglumanna sem láta af störfum
en öllu á síðasta ári. Steinar bendir
einnig á að fjöldi þeirra sem hafa
fengið launalaust leyfi sé mun meiri
en í fyrra eða 13.
Fá 30 þús.
kr. álags-
greiðslu
FRÉTTASKÝRING
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
KÓRINN, nýja íþrótta- og tónleikahöllin við
Vallakór í Vatnsendahverfi Kópavogs, breytir
miklu á sviði íþrótta og annarra tómstunda og
ekki síst bætir höllin aðstöðu fótboltamanna í
bænum. Knattspyrnudeildir Breiðabliks og
KH vilja báðar þjóna vaxandi Kórahverfi og
nágrenni og horfa því til nýja æfinga- og
keppnissvæðisins við Vallarkór, en hugmyndir
deildanna um afnot af íþróttamannvirkjum
bæjarins fara ekki saman og þar stendur hníf-
urinn í kúnni. Menn greinir á um alvarleika
vandans. Sumir segja að ekki sé um stórmál að
ræða. Þar sem tvö félög veiti sömu þjónustu sé
ekki óeðlilegt að tekist sé á um hlutina en það
þýði ekki að um vandamál sé að ræða og félög-
in hljóti því að komast að samkomulagi. Aðrir
eru ekki eins bjartsýnir. Bærinn á mannvirkin
og margt bendir til þess að íþrótta- og tóm-
stundaráð þurfi að skera á hnútinn.
Sundur og saman
Höfuðstöðvar Breiðabliks eru í Smáranum
við Kópavogsvöll og Fífuna, íþrótta- og sýning-
arhús bæjarins, þar sem áður var sandgras-
völlur Breiðabliks. Fagrilundur er félagssvæði
knattspyrnudeildar HK í Fossvogsdal og þar
er gervigrasvöllur bæjarins sem Breiðablik
hefur jafnframt til afnota. Fyrir um tveimur
árum var skipulag íþróttamála í Kópavogi til
umfjöllunar og þá voru félögin ekki tilbúin að
skipta bænum á milli sín. Sú afstaða virðist
ekki hafa breyst í stórum dráttum, en reyndar
segir einn talsmaður félaganna að miklu skipti
að íþróttamannvirki bæjarins séu nýtt á sem
skynsamlegastan hátt og ekki sé hagkvæmt að
bæði félögin starfi á sömu stöðum.
Knattspyrnudeildirnar hafa haft æfingatíma
í Fífunni daglega frá um klukkan 15 til um
klukkan 21 og hefur skiptingin verið um 60–
40, þ.e. Breiðablik hefur haft þessa tíma fjóra
daga í viku og HK þrjá daga. Áður en Fífan var
reist hafði HK afnot af sandgrasvellinum og
með tilkomu Fífunnar var fyrrgreind skipting
ákveðin að undangenginni athugun á fjölda
iðkenda í æfingatímum félaganna, en Breiða-
blik er með um 64% knattspyrnufólks í Kópa-
vogi.
80 tímar til skiptanna
Kópavogsbær hefur 31 tíma til ráðstöfunar
til félaganna í Kórnum og 49 tíma í Fífunni.
Verið er að skoða hvernig hverfinu verði best
þjónað og hafa félögin vakið athygli á að þau
eigi félagsmenn í nýja hverfinu. Því vilja bæði
hafa aðstöðu í Kórnum, en fyrir liggur að
þriðja knattspyrnufélagið verður ekki stofnað.
Tekist á um æfingatíma í Kórnum
Knattspyrnudeildir Breiðabliks og HK vilja bæði þjóna nýju svæði í Kópavogi HK tilbúið að fara
úr Fífunni gegn því að sitja eitt að Kórnum en Breiðablik vill vera með æfingar á báðum stöðum
Morgunblaðið/Sverrir
Kórinn Knattspyrnuvöllurinn er 105 x 68 m
að stærð og lofthæð 20 m undir bita í mæni en
meira en 10 m yfir hliðarlínum.