Morgunblaðið - 27.09.2007, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Eitthvað hefur Kristján Möller,samgönguráðherra, staðið
klaufalega að afsökunarbeiðni sinni
til Einars Hermannssonar vegna
ummæla, sem ráðherrann lét falla í
hans garð í upp-
hafi Grímseyjar-
ferjumálsins.
Það getur kom-ið fyrir bæði
ráðherra og aðra
að fara rangt
með.
Það getur komið fyrir stjórn-málamenn að láta þung orð falla
í garð einstaklinga.
En yfirleitt fyrirgefst mönnumslíkt ef þeir koma hreint fram,
leiðrétta ummæli sín og biðjast af-
sökunar.
Ef marka má grein eftir Ragnar H.Hall, hæstaréttarlögmann, hér í
Morgunblaðinu í gær virðist sam-
gönguráðherra ekki hafa tekið
frumkvæði um það af sinni hálfu að
hreinsa borðið á milli sín og Einars
Hermannssonar.
Í þess stað sýnist hann hafa efnt tilfundar með Einari eftir að hæsta-
réttarlögmaðurinn hafði skrifað
honum bréf fyrir hönd Einars.
Þetta er klaufalegt.
Svona hluti eiga menn að gerameð hreinum, skýrum og af-
dráttarlausum hætti. Þá verða engin
eftirmál.
Í þessu tilviki hefur borðið ekki ver-ið hreinsað.
Vonandi lærir samgönguráðherraaf þessum mistökum og stendur
betur að slíkum málum í framtíðinni
ef tilefni gefst til.
STAKSTEINAR
Kristján Möller
Klaufaleg afsökunarbeiðni
FRÉTTIR
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
" "##
" "
" "
" "
"%
:
*$;< ##
!
"#$ % & '( )*
*!
$$; *!
&' (#)
#' #)
%
)*
=2
=! =2
=! =2
&%)( "#+"$,#-"
<>$ -
*
+ , " "
-.
$ / /
/
"
$ 0 =7
%
,
!
* "
-)
$ / 1 '( )* ./
##00
")##1
#+"$
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B
2 3
43
3
25
2 2
2
525
2 2 2 25
2 2 25
2 3
3
3
3
3
3
3
3
3
35
35
3 3
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Hjörtur Júlíus Hjartarson | 26. sept.
Eitt stig...
Eitthvað virðist þetta
eina stig sem okkur
Þróttara vantar til að
tryggja sætið í Úrvals-
deildinni á næsta ári
ætla standa í okkur.
Tveir tapleikir í röð
gegn Fjölni og ÍBV þýðir að við
verðum að fara í lokaleikinn án þess
að vera búnir að tryggja okkur.
Engin óskastaða en úr því sem kom-
ið er fögnum við úrvalsdeildarsætinu
bara enn meira en við hefðum ella
gert.
Meira: hjossi9.blog.is
Magga Ö | 26. september 2007
Álfar eru til
Einhver rannsókn var
birt á dögunum um að
Íslendingar tryðu enn
á álfa og líf fyrir hand-
an. Ég er nú svo rugluð
stundum að ég hef fulla
trú á þessu, allavega þá
er barnslega ævintýraþráin enn til
staðar hjá mér... Lífið verður maður
að krydda dálítið til að það sé
skemmtilegt, það er allavega dáldið
spúkí þegar sum lítil börn leika sér
við verur sem maður sér ekki. Ekki
ljúga börnin, ha?
Meira: maggao.blog.is
Bjarni Kjartansson | 26. september
...allt er flókið
þegar kemur að
Reykjavík
Allar afsakanir eru
fram dregnar til þess
eins, að tefja og nánast
að koma í veg fyrir
framkvæmdir, sem eru
mjög svo arðbærar.
Ekki þarf að kunna
mikið í reikningi, til að finna út, hve
mikið daglegar tafir í umferðinni
kosta þjóðabúið mikið, hvað þá
ótímabær dauðsföll og örkuml...
Meira: dullur.blog.is
Sveinn Ingi Lýðsson | 25. september
Lifandi herðatré...
Lengi hef ég horft í
forundran og með
óhug á tízkusýningar í
sjónvarpi þar sem
grindhoraðar, van-
nærðar stúlkur ganga
fram bryggjuna með
einkar ankannalegu göngulagi þar
sem öðrum fæti er sveiflað fram fyr-
ir hinn. Svona gengur eðlilegt heil-
brigt fólk alls ekki og því verður
þetta, hjákátlegt svo ekki sé meira
sagt. Fleira er hjákátlegt eða rétt-
ara sagt sorglegt við þessar sýn-
ingar.
Vöxtur þessar stúlkna er líkastur
því sem maður sér fyrir jólin ár
hvert af hungruðum börnum Afríku
þegar hjálparstofnanir biðla til ríkra
feitra Vesturlandabúa um nokkar
krónur til hjálpar hungruðum heimi.
Þessi vöxtur virðist hafa hentað
tízkuhúsunum einkar vel þar sem
þær (stúlkurnar) virðast allar af
staðlaðri stærð og bera fötin álíka
vel eins og herðavír (herðatré). Þar
með eru þessi grey orðin að fyr-
irmyndum stúlkubarna um allan
heim sem reyna eftir mætti að til-
einka sér útlit og lífstíl fyrirsæt-
anna. Ekki gramm af fitu ofan í
kroppinn sem síðan er píndur í
tækjasölum vorldklass og annara
slíkra stöðva sem gera beinlínis út á
ímyndina.
Afleiðingin blasir við á þessari
áhrifaríku ljósmynd Oliviero Tosc-
ani sem hann tók fyrir tízkuhúsið
Flash & Partneŕs í Mílanó. Myndin
sýnir á átakanlegan hátt mannlega
eymd stúlku sem óprúttnir tízku-
dólgar hafa skapað henni og fjölda
annara ungra stúlkna. Átrösk-
unarsjúkdómar leggja þær að velli
auk geðrænna vandamála sem fylgja
þessum lífsmáta. Hiklaust má bera
afleiðingar þessa lífsstíls við afleið-
ingar fíkniefnaneyslu.
Sem betur fer virðast sum tízku-
húsanna vera að snúa við blaðinu og
velja fyrirsætur sem hafa eðlilegan
líkamsvöxt. Þó verður við ramman
reip að draga vegna mótstöðu lífs-
stílsiðnaðarins sem sem vill reka alla
inn í tækjasali, borða alls kyns
„fæðubótar“glundur og þar með
móta alla í sama horf. Þessi iðnaður
veltir gífurlegum fjármunum í hin-
um vestræna heimi í dag og þessir
menn munu ógjarnan vilja sjá af
spæni úr þeim aski til annara hluta.
Meira: sveinni.blog.is
BLOG.IS
STARFSMENN í brúarvinnuflokki Vegagerðarinnar
létu ekki vonskuveður á sig fá í gær þegar þeir hófust
handa við viðhald á Borgarfjarðarbrúnni.
„Þetta eru vanir menn og harðir karlar,“ segir
Magnús Valur Jóhannsson, svæðisstjóri Vegagerð-
arinnar í Borgarnesi.
Um er að ræða viðhaldsverkefni þar sem steypa á
kápu utan á undirstöður brúarinnar. Sérstakri kví er
sökkt niður og sjónum dælt upp þannig að starfsmenn-
irnir vinna verkið í þurru umhverfi þótt þeir séu við
störf undir sjávarmáli.
„Við höfum tekið fyrir einn til tvo stöpla undir
brúnni undanfarin ár þar sem steypt er ný kápa utan
um undirstöðurnar. Það er nauðsynlegt að viðhalda
brúnni,“ segir Magnús.
Ekki þarf að takmarka umferð um brúna vegna
framkvæmdanna en gert er ráð fyrir að þeim verði lok-
ið innan eins til tveggja mánaða.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Harðir karlar
H
im
in
n
o
g
h
af
/S
ÍA
Opið mánud.–föstud. 8–18, laugard. 10–16
Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is
Rýmum fyrir
2008 línunni
AFSL
ÁTTU
R AL
LT AÐ
600.
000
KR.
Nú er tækifæri til að kaupa draumahjólhýsið á gjafverði.
Við bjóðum 2007 árgerðina með 200–600 þúsund kr. afslætti
og geymum hýsið til vors, þér að kostnaðarlausu.