Morgunblaðið - 27.09.2007, Síða 27

Morgunblaðið - 27.09.2007, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 27 Vörður er í eigu Byrs-sparisjóðs, Landsbankans og SP-Fjármögnunar. Það rifjaðist upp vísa fyrir HálfdaniÁrmanni Björnssyni um Ludwig David-kaffibæti: Kaffisopinn indæll er, eykur fjör og skapið bætir. Langbest jafnan líkar mér Ludwig David-kaffibætir. Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson segist hafa rekist á auglýsingu með vísunni í gömlu blaði. Og að meðan hann hafi verið búðarloka á sjötta áratugnum hafi mikið verið selt af svonefndum „kaffibæti“, sem auðvitað hafi alls ekki bætt kaffið, heldur drýgt það. Hreiðar Karlsson rifjar upp aðra kaffibætisauglýsingu: Bollann minn höndum tek ég tveim, tunguna gómsætt kaffið vætir. Einn sopinn býður öðrum heim ef í því er Freyju kaffibætir. Hálfdan Ármann heldur svo áfram upprifjuninni: „Þessi kaffibætir eða export, sem sumir kölluðu, var í kringlóttum plötum, sem pakkað var saman í sívala ströngla í rauðum pappír. Aðalgeir á Mánárbakka mun eiga einn eða part á safni sínu. Á þessum árum voru hlutirnir svona: Undruðust dömur oft á böllum, að einstaka herra í klasanum ávallt mætti á öllum skröllum með exportpakka í vasanum! VÍSNAHORNIÐ Af kaffibæti og böllum pebl@mbl.is þátt í þessari sýningu og leggja fram eina eða tvær myndir af mér, sumir kunna að hafa tekið myndir eða teiknað á ýmsum tímum en aðrir gætu hugsanlega viljað taka ljósmyndir, teikna, mála eða gera af mér höggmynd að þessu til- efni. Gott væri að fá sem fyrst upplýsingar um þátttöku svo ég geti gert ráðstafanir og pantað viðeigandi salarkynni fyrir sýninguna.“ Nú er bara að gramsa í filmusafninu og finna eina frá þeim tíma þegar köflótta íslenskukenn- araskyrtan og víkingaskeggið voru og hétu...    Ökumaður brenndist lítillega í andliti þegar kviknaði í bíl hans við Kristnes um síðustu helgi, eins og fram hefur komið í blaðinu. Þegar reyk- ur gaus upp úr vélarrúminu stöðvaði maðurinn bifreiðina og flúði úr honum. Fljótlega tókst að slökkva eldinn en bíllinn er talinn vera gjörónýt- ur. Um var að ræða Corvettu sportbíl en mikið er af plastefnum í yfirbyggingu slíkra bíla til að gera þá léttari, segir á vef Slökkviliðsins á Ak- ureyri.    Norðlenskur matur verður í öndvegi á sýning- unni MATUR-INN 2007, sem verður í Verk- menntaskólanum á Akureyri 13. til 14. október nk. Sýningin er nú haldin í þriðja skipti og verð- ur stærri en nokkru sinni. Hún er haldin undir merkjum félagsins Matur úr héraði – Local fo- od, en félagið er afrakstur af samstarfi innan matvælaklasa Vaxtarsamnings Eyjafjarðar. Innan þess starfa bæði framleiðendur, veitinga- hús, smásöluaðilar og þeir sem leggja vilja áherslu á svæðisbundna matarmenningu. Vonandi verður hægt að fá að smakka! Hver skyldi vera „besti“ matreiðslumaður landsins? Þeirri spurningu verður svarað á áð- urnefndri sýningu þegar keppt verður um titil- inn matreiðslumaður ársins en fimm hafa unnið sér þátttökurétt í úrslitunum. Athygli vekur að þrír þeirra eru frá Grillinu á Hótel Sögu, einn frá Iðjusölum og einn frá Múlakaffi.    Súpufundir sem Íþróttafélagið Þór hélt í Hamri í fyrravetur í samstarfi við veitingahúsið Greif- ann og Vífilfell tókust afskaplega vel og ánægju- legt er að heyra að fundaröðin verður á sínum stað í vetur. Aðsókn að fundunum var góð, þangað komu ýmsir góðir frummælendur og rætt var um allt milli himins og jarðar varðandi íþróttir almennt.    Átt þú, lesandi minn, góða ljósmynd sem tekin er á Akureyri? Ef svo er, geturðu unnið til verð- launa, en bara ef þú átt lögheimili hér í bænum ef ég skil rétt. Ljósmyndahátíð verður haldin í Murmansk í Rússlandi frá 1. október til 19. desember og af því tilefni er efnt til ljósmyndasamkeppni sem Akureyringum er boðin þátttaka í, enda Ak- ureyri vinabær Murmansk. Þema keppninnar er „Bærinn minn“ en und- irflokkar þess eru þrír; Fjölbreytileiki í bænum mínum; Það óvenjulega í hinu venjulega; Nátt- úran. Veitt eru peningaverðlaun í öllum flokkum fyrir fyrstu þrjú sætin. Besta mynd keppninnar verður valin og einnig mun almenningur velja sína uppáhaldsmynd. Upplýsingar um keppnina eru á http://kootzworld.com á Netinu. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Fyrirmyndardeild Valdimar Pálsson formaður unglingaráðs , Sigfús Ólafur Helgason formað- ur Þórs, Unnsteinn Jónsson formaður knattspyrmudeildar og Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ. matseðlar. Íslenskt lambakjöt er á boðstólum eins og áður kom fram en líka grísakjöt „sukling pig,“ dúfur og kjúklingar „black leg chicken“ svo og íslenskur þorskur svo dæmi séu tekin. Verið er að skoða þessa dag- ana hvort grundvöllur er fyrir ís- lenskan humar og jafnvel skyr.“ Til marks um hversu vel allt var undirbúið á Texture voru allir rétt irnir á matseðlinum prufukeyrðir daglega í þrjár vikur áður en opnað var formlega. Yfir 90 tegundir af kampavíni Þess má geta að staðurinn státar af mesta kampavínsúrvali í London en á boðstólum eru yfir 90 tegundir. Sömuleiðis er meira úrval af rauð- víni og hvítvíni en almennt tíðkast og á vínlistanum eru allt í allt yfir 300 tegundir af víni. Kampavín er að sögn Óskars mjög vinsæll drykkur í Englandi núna og reyndar í heim- inum og með yfir 90 tegundir á seðl- inum ætti staðurinn að geta sinnt þörfum sinna viðskiptavina. Óskar bendir að lokum á að Xav- ier sem er sérfræðingur í þjónustu og víni vilji ekki að fólk þurfi að klæða sig á sérstakan hátt. „Fólk í dag vill klæðast þægileg- um fötum og ekki endilega alltaf jakkafötum. Við ætlum að hafa það í huga.“ Staðurinn er engu að síður í mjög virðulegu húsnæði, það er hátt til lofts og öll umgjörð klassísk en af slappað umhverfi. Þórhildur Rafns- dóttir, hönnuður, unnusta Agnars, hannaði staðinn og ber öllum saman um það að henni hafi tekist mjög vel til. – Hvernig tókst annars að koma upp veitingahúsi í London? „Þetta gekk en er afskaplega ólíkt því sem við þekkjum á Íslandi þar sem allir þekkja alla í litlu landi. Allt er miklu þyngra í vöfum og svifa- seinna. Það er ekki hægt að hringja og láta redda hlutunum þegar röng borðplata kemur eða pöntun á gler- plötum klikkar. Þá fer fólk aftast í röðina og bíður í nokkrar vikur eftir leiðréttingu. Þetta hefur oft reynt á þolrif okk- ar Íslendinganna en allt hafist.“ Óskar segir að móttökurnar séu vonum framar. Frá því staðurinn var opnaður formlega 6. september hefur verið fullbókað öll kvöld og svo til fullt í hádeginu. Agnar stendur vaktina frá morgni til kvölds og gengur úr skugga um að fram í veit- ingasal fari enginn matardiskur nema hann sé fullkominn. – Hvað kostar svo þriggja rétta máltíð á Texture? Um 45 pund eða sem samsvarar um 5.800 krónum og sjö rétta sæl- keraseðill er á 59 pund sem eru um 7.600 kr.“ Í hádeginu bjóðum við svo upp á seðil með smáréttum þar sem hver réttur kostar 8,5 pund eða um þúsund krónur. Draumur okkar í mörg ár – En hvað kemur til að Óskar sem áður rak Argentínu steikhús er fluttur búferlum til Englands? „Árið 1989 vorum við á leið til Lúxemborgar, okkur langaði að prófa að búa í öðru landi. Svo byrj- uðum við með Argentínu ásamt nú- verandi eigendum staðarins, Krist- jáni Þór Sigfússyni og Ágústu Magnúsdóttur og þá lá þessi draumur niðri um skeið. Hann varð hinsvegar sífellt háværari og eitt kvöldið þegar við María, konan mín, vorum að horfa á sjónvarpið tókum við ákvörðun um að selja Argentínu steikhús, selja húsið og flytja til Guildford, sem er klukku- tíma suður af London. Það var mátulega langt frá Íslandi og enska tungumálið sem við vildum læra vel. Okkur hefur liðið frábærlega í þessi ár sem við höfum búið hérna, börnin blómstra og ég er að vasast í ýmsu bæði hér úti og heima á Ís- landi sem þýðir að við skreppum oft til Íslands.“ – Eitthvað spennandi á Íslandi sem þú ert með í kortunum? „Já, það má segja það. Ég kem að Turninum ásamt Sigurði Gísla- syni, landsliðskokki og fleiri matar- áhugamönnum í Kópavogi þar sem við stefnum í desember á að opna flottasta veislusal á Íslandi sem rúmar allt að 280 manns í sæti og verður með ótrúlega mögnuðu út- sýni af 20. hæð.“ Áfangi Þeir Ragnar, Magnús Ármann, Óskar, Elvar og Sveinn Helgason héldu upp á það þegar Texture-staðurinn var opnaður í byrjun september. Búið er að vera upppantað öll kvöld frá því að staðurinn var opnaður. Öðruvísi Matur er ekki bara matur á Texture. Gestir upplifa matinn þess í stað eins og leikhús. Veitingahúsið Texture 34 Portman Square, W1 H 7BYLondon Sími 0044 020 7224 0028 Veffang: www.texture-restaur- ant.co.uk

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.