Morgunblaðið - 27.09.2007, Síða 28
28 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
GAGNSÆI Á LANDSPÍTALA
Anna Lilja Gunnarsdóttir, fram-kvæmdastjóri fjárreiðna ogupplýsinga á Landspítala,
skrifaði grein hér í Morgunblaðið sl.
sunnudag, þar sem hún skýrði frá því,
að innleiðingu svonefnds DRG-kerfis
væri að mestu lokið á spítalanum en
þar er um að ræða kerfi kostnaðar-
greiningar, sem gerir spítalanum
kleift að leggja fram upplýsingar um
kostnað við hverja aðgerð sem fram-
kvæmd er á spítalanum eða hverja
meðferð sem sjúklingur fær þar.
Það liggur í augum uppi að slík
kostnaðargreining eykur til stórra
muna gagnsæi í starfsemi spítalans.
Hún þýðir, að nú er hægt að leggja
fram mjög nákvæmar upplýsingar
um það í hvað nánast hver króna fer
af þeim fjármunum, sem renna til
spítalans úr ríkissjóði.
Nú liggja fyrir upplýsingar um að
hver kransæðahjáveita kostar um 2,2
milljónir króna, að liðskiptaaðgerð
kostar rétt innan við milljón krónur,
að keisaraskurður kostar um hálfa
milljón króna o.s.frv.
Þetta er auðvitað bylting í starf-
semi spítalans og engan þarf að
undra að það hefur tekið nokkurn
tíma að koma þessu kerfi á en und-
irbúningur að því hófst á árinu 2001.
DRG-kerfið styrkir augljóslega
stöðu spítalans í samskiptum hans við
fjárveitingavaldið um leið og fjárveit-
ingavaldið hefur betri yfirsýn yfir
það í hvað peningarnir fara.
Næsta skref hlýtur að vera endur-
skoðun á því, hvernig ákvarðanir eru
teknar um fjárveitingar til reksturs
spítalans. Sú endurskoðun þarf að
vera vandlega undirbúin en væntan-
lega á þetta kerfi að geta leitt til þess,
að vandræðagangurinn í rekstri
Landspítalans heyri sögunni til. Þá
er annars vegar átt við það fyrir-
komulag að reka spítalann seinni
hluta ársins á kostnað birgja spítal-
ans, þ.e. með því að greiða ekki reikn-
inga frá þeim fyrr en seint og um síð-
ir, en ekki síður að væntanlega mun
DRG-kerfið greiða fyrir því, að hægt
verði að þurrka biðlistana út. Fjár-
veitingavaldið veit þá í hvað pening-
arnir fara í stað þess að þingmenn-
irnir hafa augljóslega haft það á
tilfinningunni að þeir séu að ausa
peningum í botnlausa hít.
Það er ástæða til að óska forráða-
mönnum Landspítalans til hamingju
með þennan áfanga. Tilvera þeirra
ætti að verða bærilegra héðan í frá en
hingað til.
Allt fer þetta þó eftir því, hvernig
að framkvæmd málsins verður staðið,
en miðað við þá miklu hreyfingu, sem
er að komast á breytingar í heilbrigð-
iskerfinu, er ekki ástæða til að ætla
annað en vel verði að þeirri fram-
kvæmd staðið.
Það hafa mörg spjót staðið á Magn-
úsi Péturssyni, forstjóra Landspít-
ala, og samstarfsmönnum hans, m.a.
héðan frá Morgunblaðinu. En þetta
framtak er óumdeilanlega rós í
hnappagat þeirra. Að baki þessum
áfanga liggur augljóslega gífurleg
vinna.
TJÁNINGARFRELSIÐ
Það þurfa að vera sterk rök fyrirþví að hefta tjáningarfrelsi
fólks. Þau geta m.a. snúizt um það
að takmörk eru fyrir öllu. Það er
ekki sjálfsagt að viðhafa ærumeið-
andi ummæli um annað fólk á op-
inberum vettvangi enda sérstök lög
bæði hér og annars staðar til þess að
koma í veg fyrir það.
Í Bandaríkjunum fóru hins vegar
fram fyrir nokkrum dögum undar-
legar umræður, sem snerust um
tjáningarfrelsið. Til New York er
kominn forseti Írans, Ahmadinejad
að nafni. Honum hafði verið boðið að
halda fyrirlestur á vegum Kól-
umbía-háskóla. Þá brá svo við, að
háskólinn fékk á sig þunga gagnrýni
fyrir að leyfa forseta Írans að tala.
Hvers vegna? Hvers vegna skyldi
Íransforseti ekki mega tjá sig innan
veggja þessa merka háskóla? Eru
Bandaríkin ekki að eigin mati út-
vörður tjáningarfrelsis og skoðana-
frelsis? Um hvað snerist kalda stríð-
ið? Snerist það ekki m.a. um rétt
þjóða og einstaklinga til þess að
hafa skoðanir og tjá þær?
Þessar umræður eru auðvitað frá-
leitar. Það er þvert á móti gagnlegt
fyrir bæði Bandaríkjamenn og aðra
að eiga slík skoðanaskipti við for-
seta Írans og marga aðra pólitíska
forystumenn, sem sjá veröldina frá
öðru sjónarhorni en Vesturlandabú-
ar gera.
Frá Íran berast þær fréttir að
landsmenn forsetans séu ánægðir
með frammistöðu hans í umræðum í
New York. Frá sjónarhóli okkar
Vesturlandabúa verður málflutning-
ur hans að teljast veikur svo ekki sé
meira sagt. En aðalatriðið er þó að
skoðanaskiptin fari fram og að þeir
sem telja sig helztu málsvara tján-
ingarfrelsis og skoðanafrelsis í
heiminum nú um stundir geri sig
ekki seka um að hefta málfrelsi er-
lends þjóðhöfðingja, þótt þeir kunni
ekki að meta skoðanir hans.
Í raun og veru má segja, að það sé
mikill skortur á slíkum skoðana-
skiptum. Viðleitni ýmissa blaða-
manna og teiknara á Vesturlöndum
til þess að ganga fram af fólki í öðr-
um heimshlutum og sem er annarrar
trúar en við felur ekki í sér neina til-
raun til skoðanaskipta.
Sennilega er tímabært að efna
skipulega til gagnkvæmra heim-
sókna fólks frá ólíkum menningar-
heimum til þess að auka þekkingu
og skilning, efna til samræðna og
skoðanaskipta á reglulegum grund-
velli.
Heimsókn Íransforseta til New
York og deilur um það, hvort hann
skyldi njóta málfrelsis þar, ættu að
verða upphafið að slíkum gagn-
kvæmum samskiptum, sem gætu
orðið til þess að auka líkur á friði í
þeim heimshluta.
Íransforseti segir að það sé ekk-
ert stríð í uppsiglingu. Stríð hefjast
m.a. vegna tortryggni um áform
mótaðilans.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Arvo-Jürgen Alas fyrrverandi sendiherra fæddist 20.
mars 1943 í Tallinn. Hann lést í Kaupmannahöfn 18. sept-
ember síðastliðinn.
Á námsárum mínum í Leningrad (nú Sankti-
Pétursborg) fyrir nær aldarþriðjungi kenndi ég nor-
rænunemum nútímaíslensku sem valfag. Meðal þeirra
var fólk sem átti eftir að geta sér góðan orðstír á sviði
málvísinda.
En einn nemendanna skar sig úr frá fyrstu stund með
nær lýtalausum framburði og málhreimi. Það var ungur
Eistlendingur frá Tallinn, borginni þar sem goðsagan
segir Dannebrog hafa svifið af himnum. Hann lagði þá
stund á nám í norsku við Leningrad-háskóla hjá þeim
kunnu Íslandsvinum og fræðaþulum próf. Mikhail Iv-
anovitsj Steblin-Kamenskij og Valerij Pavlovitsj Berkov.
Þegar á námsárum sínum tók hann að þýða norræn
bókmenntaverk á móðurmál sitt og skrifa greinar um Ís-
land og Færeyjar í æskulýðstímaritið Noorus, og að
loknu námi gerðist hann menningaritstjóri þess (1971-
1981). Síðar vann hann sem ráðgjafi Eistne
sambandsins og norskukennari í Tallinn.
Árið 1990 varð hann sendifulltrúi Eistlan
ingaskrifstofu Eystrasaltsríkja í Kaupman
eftir sendiherra hins nýfrjálsa Eistlands á
og Danmörku með aðsetri í Höfn. Því emb
til ársins 1996 en var áfram „varaliðsmaðu
anríkisþjónustunnar.
Þótt sendiherrastarfið væri erilsamt, sló
við þýðingar og aðra menningarstarfsemi.
eini erlendi sendiherrann sem hefur haldið
lensku um bókmenntir þjóðar sinnar. Frá
dauðadags helgaði hann sig menningarmið
bók Steblin-Kamenskijs um íslenska menn
nesku. Hann þýddi verk danskra, norskra
höfunda, svo sem Holbergs, Heinesens, Sc
J.-Fr. Jacobsens, Ibsens, Björnsons, Hoels
Noorus-forlagið, sem áður er á minnst, g
út ritröð nútímasmásagnasafna frá ýmsum
Arvo Alas
Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur
í Washington
bab@mbl.is
Ímáli sínu fyrir nefndinni ígær greindi Ólafur RagnarGrímsson, forseti Íslands,frá reynslu Íslendinga af
nýtingu jarðvarma og færði rök
fyrir fjölþættum ávinningi þess að
Bandaríkjamenn nýttu jarðvarma
sem orkugjafa í auknum mæli.
Hann lagði auk þess til að Íslend-
ingar og Bandaríkjamenn efldu
samvinnu sín á milli á þessu sviði
en þar lægju mikil tækifæri bæði
fyrir vísinda- og rannsóknarstofn-
anir í löndunum tveimur sem og
orkufyrirtæki og fjárfesta. Ólafur
Ragnar lagði fram skriflega grein-
argerð, sem unnin var í samstarfi
við íslenska sérfræðinga, þeirra á
meðal Þorkel Helgason orku-
málastjóra sem mætti fyrir nefnd-
ina ásamt forsetanum.
Litið til Íslands sem fyrir-
myndar í jarðvarmanýtingu
Af athugasemdum og spurningum
nefndarmanna að dæma við vitna-
leiðslurnar í gær er ljóst að litið er
til Íslands sem fyrirmyndar í nýt-
ingu jarðvarma og annarra end-
urnýjanlegra orkugjafa og að
væntingar eru gerðar til samstarfs
við Íslendinga í þessum efnum.
Formaður nefndarinnar, Jeff
Bingaman, öldungadeildarþing-
maður demókrata fyrir New
Mexíkó, sagði við upphaf fundarins
að Ísland væri í fararbroddi í heim-
inum í nýtingu jarðvarma og að
Bandaríkin gætu orðið það líka ef
viljinn væri fyrir hendi. Lisa Murk-
owski, öldungadeildarþingmaður
repúblikana fyrir Alaska, sagðist
vonast til þess að metnaðarfullt
markmið frumvarpsins sem liggur
fyrir öldungadeildinni um að
hækka hlutfall jarðvarma í orku-
nýtingu landsins upp í 20% yrði að
veruleika og að þær rannsóknir,
tækninýjungar og aðferðir sem
notaðar hafa verið til að breyta
orkunotkun á Íslandi gæfu tilefni
til bjartsýni um að það yrði hægt.
Þungamiðja röksemdafærslu
Ólafs Ragnars fyrir nefndinni var
efnahagsleg og greindi hann frá
þeim viðskiptatækifærum sem fæl-
ust í nýtingu endurnýjanlegra
orkugjafa og sívaxandi áhuga
stórra fjárfesta á þessu sviði.
Nefndarmenn lögðu líka áherslu á
þennan þátt og Ólafur Ragnar
svaraði spurningum þeirra meðal
annars á þann veg að þó að op-
inberra fjárfestinga og styrkja
hefði verið þörf í upphafi á Íslandi
væru orkufyrirtækin orðin arðbær
fyrirtæki.
Grænt ljós á þátttöku
Íslendinga í jarðhitanýtingu
Að vitnaleiðslunum loknum sagði
Ólafur Ragnar, í samtali við Morg-
unblaðið, að sér þætti mikil við-
horfsbreyting hafa átt sér stað í
Bandaríkjunum hvað varðar nýt-
ingu endurnýjanlegra orkugjafa og
að umræðurnar fyrir nefndinni
fælu í sér mikla viðurkenningu fyr-
ir Ísland.
„Þetta er staðfesting á því sem
gert hefur verið á Íslandi á und-
anfarinni hálfri öld eða svo. Fjöldi
vísindamanna, sveitarfélaga, orku-
fyrirtækja og annarra, hefur smátt
og smátt skapað landinu algjöra
forystustöðu á þessu sviði
viðvera og málflutningur h
er í raun þakkargjörð til þe
mikla fjölda sem hefur lagt
plóginn við að skapa þessa
Spurningar þingmannanna
flutningur og viðbrögð þeir
fannst mér síðan sýna að in
öldungadeildarinnar er kom
sterkur hópur af þingmönn
báðum flokkum og frá ólíku
um sem ætlar sér greinileg
koma því í kring að Bandar
taki til hendinni varðandi n
jarðhita. Og þeir eru reiðu
leita eftir samstarfi við Ísle
– vísindamenn, rannsóknar
anir, orkufyrirtæki, fjárfes
þeim efnum. Þannig tel ég
höfum hér í dag fengið eins
ljós á þátttöku Íslendinga þ
kemur að jarðhitanýtingu
ríkjunum og hægt er að hu
,“segir Ólafur Ragnar.
Stórkostleg tækifæri
fyrir vísindasamfélagið
– Í lok framsögu þinnar fyr
nefndinni lagðirðu fram íta
tillögu um aukið samstarf m
lands og Bandaríkjanna á s
orkumála. Áttu von á því a
þessu samstarfi verði nú í f
haldinu?
„Já, ég er sannfærður um
Áður en vitnaleiðslurnar fó
átti ég fund með formanni
arinnar og það er mikill áh
Viðræður Ólafur Ragnar Grímsson ræðir við þingmenn sem sæti
ríkjaþings, þau Lisu Murkowski, þingmann rebúblikana í Alaska
Hawaii, í þinghúsinu áður en Ólafur Ragnar gaf vitnisburð fyrir
Mikil eftirspurn e
Íslendinga á sviði
Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands,
flutti í gær vitnisburð
fyrir orkumálanefnd
öldungadeildar
Bandaríkjaþings í
vitnaleiðslum nefnd-
arinnar vegna frum-
varps sem lagt hefur
verið fyrir þingið um
stóreflda nýtingu jarð-
varma sem orkugjafa í
Bandaríkjunum.