Morgunblaðið - 27.09.2007, Síða 31

Morgunblaðið - 27.09.2007, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 31 Í STJÓRNARSÁTTMÁLA Samfylkingar og Sjálfstæð- isflokks er kveðið á um að skipuð verði samráðsnefnd stjórn- málaflokka á Alþingi í Evrópu- málum og er sú nefnd í burð- arliðnum. Mikil þörf er á opinskárri umræðu um Evr- ópumál hvort heldur innan eða utan Al- þingis. Seinustu miss- eri hefur lífleg um- ræða átt sér stað í málaflokknum og því ber að fagna. Staða krónunnar hefur mik- ið verið í umræðunni en sífellt fleiri eru fylgjandi upptöku evrunnar. Ýmsir sér- fræðingar og áhrifa- miklir aðilar í at- vinnulífinu og stjórnmálum ásamt meirihluta þjóð- arinnar eru fylgjandi nánari sam- starfi við nágrannaþjóðir okkar í Evrópu. Samkvæmt nýjustu könnunum eru 53% landsmanna hlynntir því að taka upp evru og 48% vilja ganga í Evrópusam- bandið. Hálf milljón á ári Óstöðugleiki og smæð krón- unnar sem gjaldmiðils veldur heimilunum, almenningi í landinu og fyrirtækjum miklum óþörfum kostnaði. Samtök iðnaðarins telja að miðað við núverandi skuldir megi gera ráð fyrir að hver ís- lensk fjölskylda greiði rúmlega hálfri milljón krónum meira í vexti á ári hverju heldur en það sem hún myndi gera ef notast væri við evru. Það eru miklir pen- ingar. Ýmsir hafa velt upp mögu- leikanum á upptöku evrunnar án aðildar að ESB. Ungir jafn- aðarmenn, ungliða- hreyfing Samfylking- arinnar, telja það ekki vera fýsilegan kost. Þátttöku í hinu sameiginlega mynt- bandalagi verður að fylgja full þátttaka í innri markaði Evr- ópusambandsins með öllum þeim kostum sem því fylgja. Með fullri þátttöku og upptöku evrunnar lækkar ekki einungis matvælaverð og vaxtakostnaður held- ur einnig mun langþráður stöð- ugleiki myndast sem bæði at- vinnulíf og heimili munu hagnast á. Viðskiptakostnaður myndi lækka og erlendar fjárfestingar ykjust en það er vert að muna að ESB er stærsta viðskiptablokk í heimi. Þetta hefði í för með sér tugmilljarða króna ávinning. Hafna einangrunarhyggju Frá stofnun fyrir sjö árum hafa Ungir jafnaðarmenn viljað að stjórnvöld beiti sér að fullum þunga fyrir inngöngu Íslands í ESB. Hreyfingin telur að Evrópu- sambandsaðild geti fært þjóðinni efnahagslegan stöðugleika sem einstaklingar og fyrirtæki hafa kallað eftir. Af þeim sökum hafnar ungliðahreyfingin þeirri einangr- unarhyggju sem birtist í stefnu annarra stjórnmálaflokka og vilja að Ísland hefji aðildarviðræður við ESB hið fyrsta og að aðildarsamn- ingurinn verði að lokum borinn undir þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem íslenska þjóðin mun eiga síð- asta orðið. Að lokum er vert að benda á að samkvæmt könnununum eru 50% kjósenda Sjálfstæðisflokksins fylgjandi viðræðum um inngöngu Íslands í Evrópusambandið en einungis þriðjungur andvígur. Óskandi væri að hinn þögli meiri- hluti Sjálfstæðismanna stigi fram og léti skoðun sína í ljós. Frelsið er ætíð af hinu góðu. Líka mál- frelsi. Evrópumál á dagskrá Magnús Már Guðmundsson skrifar um upptöku evru og Evrópumál » Óskandi væri að hinnþögli meirihluti Sjálfstæðismanna stigi fram og léti skoðun sína í ljós. Frelsið er ætíð af hinu góðu. Líka mál- frelsi. Magnús Már Guðmundsson Höfundur er fráfarandi formaður Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyf- ingar Samfylkingarinnar. Fáðu úrslitin send í símann þinn BMW 3 línan www.bmw.is Sheer Driving Pleasure B&L - Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - Sími 575 1200 - www.bl.is - www.bmw.is Með bílinn handa þér Velgengni í mismunandi myndum. Þitt er valið. BMW 318 Advantage kr. 3.810.000 BMW 320 Exclusive kr. 4.290.000 BMW 325xi xDrive Prestige Edition kr. 5.900.000 Advantage, Exclusive og Prestige edition eru aukahlutapakkar sem gerir glæsilega BMW 3 línu enn glæsilegri. Nánari upplýsingar hjá sölumönnum í síma 575 1210. Ertu að leita þér að sportlegum lúxusbíl fyrir þig og vinnuna? Viltu færast nær sólinni, veginum og frelsinu - með blæjuna niðri og vindinn einan að förunaut. Vantar þig meira rými svo að áhugamálin komist fyrir í bílnum. Eða langar þig til að upplifa ósvikna akstursánægju eins og hún gerist best. BMW 3 línan stendur undir væntingum í ótal myndum og rúmlega það. Komdu í reynsluakstur og upplifðu alla kosti BMW 3 línunnar af eigin raun. Fullbúið og glæsilegt 293 fm einbýli í hinu nýja Akrahverfi. Húsið er vel staðsett fyrir neðan götu innarlega í botnlanga. Um er að ræða staðsteypt „Funkis“ hús með mik- illi lofthæð teiknað af Úti-Inni arkitektum. Húsið skiptist þannig: Miðpallur, anddyri, sjónvarpsstofa, stofa, eldhús og borðstofa. Á efripalli eru fjögur svefnherbergi, fataher- bergi og baðherbergi. Á neðri palli eru hol, herbergi, baðherbergi, þvottahús og bíl- skúr. Skipulag hússins er gott og frágangur allur hinn vandaðasti, innréttingar eru frá JKE - design, gólfhiti og innfelld lýsing - hönnuð af Lúmex. Eldhústæki eru vönduð og öll blöndunartæki eru af gerðinni Vola. Verð 120 millj. 6977 Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali. HJÁLMAKUR - GARÐABÆ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.