Morgunblaðið - 27.09.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 33
UMRÆÐAN
STAKSTEINAR Morgunblaðs-
ins gera mér og Samfylkingunni
þann heiður að rifja upp að ég
hef kallað eftir aukinni og sýni-
legri löggæslu á síð-
um blaðsins í fjögur
ár. Staksteinum
finnst hins vegar ekki
stórmannlegt af Sam-
fylkingunni að fagna
því að orðið hafi verið
við því kalli síðast-
liðnar þrjár helgar.
Fyrir hverju er
Morgunblaðið við-
kvæmt?
Kannski er Morg-
unblaðið viðkvæmt
fyrir pólitíkinni í mál-
inu. Á undanförnum
árum hefur almennum lög-
reglumönnum verið fækkað stór-
lega á götunum en fjölgað á skrif-
stofum ríkislögreglustjóra og í
sérsveit sama embættis. Finnst
Morgunblaðinu ekki að öryggi
borgaranna, sýnileg lögregla og
þjónusta við fólk eigi að vera for-
gangsmál?
Kannski er Morgunblaðið við-
kvæmt fyrir frumkvæði Samfylk-
ingarinnar í umræðunni, ekki að-
eins undanfarin ár heldur einnig
síðustu vikur. Á meðan Morg-
unblaðið skreytti sig í bak og fyr-
ir með fréttaflutningi af þeim
furðulega leiðangri borgarstjóra
að kippa bjórkæli í Austurstræti
úr sambandi stóð Samfylkingin
næturvaktir með lögreglunni í
miðborginni og lagði fram til-
lögur um endurmat á löggæslu-
þörf í miðborginni í borgarstjórn.
Morgunblaðið er líklega eini fjöl-
miðillinn sem ekki hefur fjallað
um stefnumörkun, starf og til-
lögugerð Samfylkingarinnar í lög-
gæslumálum í Reykjavík á und-
anförnum vikum. Og er nú bara
með hundshaus þegar lögreglan
er komin á kreik.
Kannski er Morgunblaðið við-
kvæmt fyrir því að „ástandið“ í
miðborginni hafi að stórum hluta
verið tilbúið vegna lakra kjara og
fækkunar lögreglumanna en ekki
„óviðráðanlegt“ „styrjaldar-
ástand“ einsog Morgunblaðið hef-
ur látið sér sæma að nota um
miðborg Reykjavíkur en lengi vel
ekki um Bagdad. Til að öllu sé til
haga haldið þá skrifaði leið-
arahöfundur Morgunblaðsins þó
af djúpu viti 18. janúar sl.: „Fall
rúmlega 30 þúsund óbreyttra
borgara ber því glöggt vitni að í
Írak ríkir borgarastyrjöld.“
Samfylkingin hefur kynnt sér
viðfangsefnin í miðborginni frá
öllum hliðum til að undirbyggja
skynsamlega stefnumörkun sem
tryggi öryggi og
blómlegt borgarlíf í
senn. Ég leyfi mér að
efast um að Morg-
unblaðið geti sýnt
fram á hið sama.
Blaðið virðist þvert á
móti leggja lykkju á
leið sína til að rugla
ekki þeirri dökku
mynd sem það vill
draga upp af mið-
borginni og gestum
hennar. Ný og um-
fangsmikil könnun
meðal ferðamanna
sem sækja Ísland heim komst að
þeirri niðurstöðu að 89% ferða-
manna telja sig örugga í Reykja-
vík og raunar 94% þeirra sem
tóku þátt í skemmtanalífi mið-
borgarinnar. Engar fréttir hafa
verið fluttar af þessum stað-
reyndum í Morgunblaðinu. Þess í
stað fullyrða Staksteinar Morg-
unblaðsins á laugardaginn sl. að
„ferðamenn í Reykjavík þori ekki
„af einskærum ótta“ út af hót-
elinu sínu á kvöldin. Og hver eru
rökin: eitt lesendabréf frá þeim
ágæta manni, Heinz Kubitz. Þetta
þætti ekki merkileg læknisfræði
og er ekki boðleg blaðamennska.
Má ekki gera þá kröfu að fag-
mennska víki ekki fyrir skoðunum
blaðsins?
Kannski er þarna komið að
kjarna málsins. Er málatilbún-
aður, fréttaval og fréttaþögn
Morgunblaðsins ef til vill sprottin
af þeirri rót að Morgunblaðið er
ekki sammála Samfylkingunni.
Samfylkingin hefur kynnt sér
málið frá öllum hliðum, unnið með
áhyggjufullum íbúum, rekstrarað-
ilum skemmtistaða að ógleymdri
lögreglunni.
Samfylkingin telur að Reykja-
vík geti verið öruggasta höf-
uðborg Evrópu en um leið státað
af kraftmiklu skemmtana- og mið-
borgarlífi. Samfylkingin telur lyk-
ilatriði til að þetta megi takast að
sýnileg löggæsla verið aukin en
hefur lýst efasemdum um að
dreifa skemmtanahaldi í illa upp-
lýst iðnaðarhverfi og stytta þann
tíma sem skemmtistaðir eru opnir
til klukkan eitt eða tvö á nótt-
unni. Og það með gildum rökum.
Morgunblaðið virðist hins vegar
ganga út frá því að allt hafi verið
betra í gamla daga (því það er svo
auðvelt að gleyma því að þá var
meira slegist). Það er hins vegar
ánægjulegt fyrir Morgunblaðið að
það sást í kælismálinu að blaðið
hefur enn sterka stöðu og djúp-
stæð áhrif. Kælirinn var tekinn úr
sambandi. Hvar drepur stórblaðið
næst niður fæti? Hvernig væri að
banna dans?
Stórmennska
Morgunblaðsins
Dagur B. Eggertsson gerir at-
hugasemdir við leiðara Morg-
unblaðsins
» Samfylkingin hefurkynnt sér viðfangs-
efnin í miðborginni frá
öllum hliðum til að und-
irbyggja skynsamlega
stefnumörkun sem
tryggi öryggi og blóm-
legt borgarlíf í senn.
Dagur B. Eggertsson
Höfundur er oddviti Samfylking-
arinnar í Reykjavík.
ÞETTA er sorglegt, því að stutt
er síðan að okkur tókst að fækka
tannskemmdum um
75% á 15 ára tímabili,
aðallega með fræðslu
og forvarnaaðgerðum.
Margar ástæður eru
án efa fyrir því að
okkur hefur ekki tek-
ist að fækka tann-
skemmdum eins mikið
og nágrönnum okkar.
Tannlæknisþjónusta
er ókeypis fyrir börn
og unglinga til 17 ára
aldurs í Finnlandi og
Noregi, til 18 ára ald-
urs í Danmörku og til
20 ára aldurs í Svíþjóð. Eru þessir
árgangar barna og unglinga kall-
aðir inn reglulega til eftirlits og
nauðsynlegra meðferða.
Hérlendis þurfa aðstandendur
aftur á móti að greiða stóran hluta
af kostnaði vegna tannlæknisþjón-
ustu barna og unglinga og er talið
að 17% þeirra komi ekki reglulega
til eftirlits. Er því hætta á að
skemmdirnar verði stærri og alvar-
legri fyrir vikið.
Þetta er lítt skilj-
anlegt því að tekjur
manna eru háar hér-
lendis og færri íbúar
um hvern tannlækni,
en hjá flestum öðrum
þjóðum.
Ríkið greiðir nú
kostnað við skoðun og
forvarnir 3ja og 12 ára
barna og að hluta til
fyrir önnur börn. En
gera þarf alla tann-
læknisþjónustu barna
og unglinga fría ef vel
á að fara og sjá til þess að þau
komi reglulega til eftirlits.
Einnig þarf að auka enn meir
fræðslu um áhrif mataræðis á
munnsjúkdóma og minnka sælgæt-
is- og gosdrykkjaneyslu, sem eru
sífellt vaxandi vandamál hérlendis.
Mikilvægt er að hafa ekki sæl-
gæti á þeim stöðum þar sem það er
mest freistandi fyrir börn og ung-
linga t.d. við afgreiðslukassa í stór-
mörkuðum og hjá gjaldkerum í
bönkum eins og algengt er nú orð-
ið.
Einnig ber að varast að hafa
stöðugt gosflöskur á borðum þar
sem skólabörn læra.
Tannskemmdir
Magnús R. Gíslason bendir á
leiðir til að minnka tann-
skemmdir
» Tannskemmdir hafaaukist mikið að und-
anförnu hérlendis og
voru árið 2005 helmingi
fleiri en annars staðar á
Norðurlöndunum, mið-
að við 12 ára börn.
Magnús R. Gíslason
Höfundur er fyrrverandi
yfirtannlæknir.
Baldursnes 6, Akureyri | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
CPes 4613
Stærð: h 184 sm/ br 75 sm/d 63 sm
Kælir: 337 ltr / Frystir: 95 ltr
Orkuflokkur A+
Stálklæddur
Verð áður kr. 285.100 stgr.
Frábært tilboð
75 sm breiðir Liebherr kæliskápar
kr. 199.570*stgr.
*Tilboðið gildir meðan birgðir endast.
AFSLÁTTUR
30%