Morgunblaðið - 27.09.2007, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 49
Hamskiptin
Frumsýning í kvöld
á Stóra sviðinu
eftir Franz Kafka
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Leikgerð og leikstjórn: Gísli Örn Garðarsson og David Farr
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA er fínt, það voru 42 myndir
að berjast um sigurinn og það er
gott að vera meðal þriggja efstu. En
það munaði víst rosalega litlu, sem
er auðvitað svekkjandi líka,“ segir
Grímur Hákonarson kvikmynda-
gerðarmaður, en mynd hans
Bræðrabylta var valin ein af þremur
bestu stuttmyndunum á norrænu
kvikmyndahátíðinni Nordisk Pano-
rama í fyrrakvöld. Það var sænska
stuttmyndin Love and War sem bar
sigur úr býtum en Bræðrabylta og
sænska myndin Situation Frank
fengu það sem kallað er „honorary
mention“ sem þýðir í raun að þær
höfnuðu í öðru til þriðja sæti.
Bræðrabylta fjallar um tvo sam-
kynhneigða glímumenn sem fá útrás
fyrir ástina í gegnum glímuna. Í um-
sögn dómnefndar um myndina, sem
heitir Wrestling á ensku, segir með-
al annars: „Íslensk útgáfa af Broke-
back Mountain sem endar vel, hríf-
andi en stuttorð ástarsaga.“ Að sögn
Gríms er þetta ekki í fyrsta skipti
sem myndinni er líkt við Brokeback
Mountain, og líklega ekki það síð-
asta.
Frumsýnd á RIFF
Aðspurður segir Grímur að mynd-
in verði sýnd víða á næstunni.
„Dreifing gengur mjög vel og ég er
búinn að missa töluna á því hversu
margar hátíðir hafa tekið hana inn.
Þannig að þetta er bara enn ein rós-
in í hnappagatið,“ segir hann um við-
urkenninguna. „Á þeim fjórum há-
tíðum sem hún hefur nú þegar verið
sýnd á hefur hún alltaf fengið ein-
hvers konar viðurkenningu. Svo
verður hún í dreifingu næstu tvö ár-
in, þannig að það er bara bjart fram-
undan,“ segir Grímur, en Bræðra-
bylta verður meðal annars sýnd á
Sodoma in Hollywood-hátíðinni í
Tórínó á Ítalíu.
Myndin verður hins vegar frum-
sýnd hér á landi klukkan 18 á laug-
ardaginn kemur, en hún verður sýnd
á RIFF-hátíðinni. Þar verður hún
sýnd ásamt sex öðrum nýjum ís-
lenskum stuttmyndum, en mynd-
irnar verða sýndar í Regnboganum
bæði á laugardag og sunnudag. „Við
verðum þarna á laugardaginn og það
verður boðið upp á spjall við leik-
stjórann á eftir,“ segir Grímur sem
er nýkominn heim frá Sarajevo þar
sem hann var að skrifa kvikmynda-
handrit, en hann stefnir að því að
gera mynd í fullri lengd á næsta ári.
Rós í
hnappa-
gatið
Stígið! Halldór Gylfason og Björn Ingi Hilmarsson í hlutverkum sínum sem samkynhneigðir glímumenn.
Bræðrabylta ein
besta stuttmyndin
á Nordisk Pano-
rama hátíðinni
Stórhuga Grímur stefnir að því að gera mynd í fullri lengd á næsta ári.
www.riff.is