Morgunblaðið - 27.09.2007, Síða 50

Morgunblaðið - 27.09.2007, Síða 50
50 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Shoot’em Up kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára Shoot’em Up kl. 4 - 6 - 8 - 10 LÚXUS Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 4 - 6 Hairspray kl. 5:30 - 8 - 10:30 Vacancy kl. 10:30 B.i. 14 ára Veðramót kl. 5:40 B.i. 14 ára Knocked Up kl. 8 - 10:40 B.i. 14 ára Brettin Upp m/ísl. tali kl. 4 The Simpsons m/ísl. tali kl. 3:45 Chuck and Larry kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 6 Hairspray kl. 8 Knocked Up kl. 10:10 SÍÐASTA SÝNING B.i. 14 ára – Sími 564 0000 –Sími 462 3500 Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir Sími 551 9000 Veðramót kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára eeee - A.M.G., SÉÐ OG HEYRT eeee - H.J., MBL eeee - Ó.H.T., RÁS 2 SAGAN SEM MÁTTI EKKI SEGJA eeee - E.E., DV eeee - S.V., MBL eeee - S.G., Rás 2 eeee - R.H., FBL - Kauptu bíómiðann á netinu - Hversu langt myndiru ganga fyrir besta vin þinn? - T.V., KVIKMYNDIR.IS eeee - R.V.E., FRÉTTABLAÐIÐ eeee - S.V., MORGUNBLAÐIÐ Sýnd með íslensku tali Verð aðeins600 kr. Stórskemmtilegt ævintýri í undirdjúpunum fyrir alla fjölskylduna. ENGIN FORTÍÐ, ENGU AÐ TAPA Hasar og adrenalín flæði frá upphafi til enda Ef þeim tekst ekki að sleppa þá verða þau fórnarlömb í „snuff“ mynd. Óhuggnalegasti spennutryllir ársins eee - L.I.B., Topp5.is 55.000 G ESTIR eee „Stórskemmtileg og snarbrjáluð hasarmynd þar sem aldrei er langt í húmorinn.“ T.V. Kvikmyndir.is Dagskrá og miðasala á WWW.RIFF.IS MENNINGARHEIMAR nálgast hvor annan í faglega gerðri fléttu um undarleg örlög nokkurra Tyrkja og Þjóðverja. Það kemur í ljós að það er hvorki trúin né ólíkt þjóðerni sem ráða þeim, öllu frekar innrætið og mannlegt eðli. Dramatísk, falleg og bjartsýn þrátt fyrir grimma atburðarás, hefst Himinbrú á ferð roskins Tyrkja á fund vændiskonu í Bremen. Hvers- dagslegt atvik sem setur í gang at- burðarás sem snertir ekki aðeins konuna, sem reynist vera af tyrk- neskum ættum, og gamla Tyrkjans, nema að litlu leyti, heldur afkom- endur þeirra og breytist í raunalega sögu sem gerist í báðum löndunum. Smám saman greiðist úr flóknum vefnum, á jákvæðan hátt. Margslungin mynd sem tekur af skynsemi og þekkingu á viðkvæmu efni. Himinbrúin fæst ekki aðeins við árekstra tveggja trúarhópa og siðmenningarheima heldur bilið á milli menntamanna og annarra borgara. Kynslóðabil, fjölskyldu- bönd, ást, forsmán og fyrirgefningu. Akin veltir upp margvíslegum flötum í einni athyglisverðustu mynd hátíðarinnar, við sögu kemur sundurleitur hópur með misjafnan bakgrunn, kynhneigð og afstöðu til alþjóðamála. Handritið er athygl- isvert og ríkt af skynsemi og tilfinn- ingum, hvort sem það er á persónu- legum nótum, tekur á pólitískum ágreiningsmálum eða trúarlegum efnum. Niðurstaðan er mikilvæg því hún er gagnrýnin á trúarkreddur eins og kvenfyrirlitningu sem að óbreyttu verður eilíft ásteytingsefni og þrándur í götu eðlilegra sam- skipta þjóða. Leikurinn er yfir höfuð góður og einkar ánægjulegt að sjá Schygullu, drottnandi líkt og á tím- um Fassbinders. Nokkrir fletir teningsins Himinbrú „Dramatísk, falleg og bjartsýn þrátt fyrir grimma atburðarás.“ Auf der anderen Seite – Himinbrúin RIFF: 2007: Tjarnarbíó Há- skólabíó, Regnboginn. Leikstjóri: Fatih Akin. Aðalleikarar: Baki Davrak, Tunçel Kurtiz, Nursel Köse, Hanna Schygulla. 88 mín. Þýskaland/ Tyrkland. 2007.  Sýnd í Regnboganum 27.9, 3.10 og 7.10. Sæbjörn Valdimarsson Kvikmyndahátíð í Reykjavík KVIKMYNDIN Útlegð hefst á fal- legri mynd af tré og dramatískum bíltúr í rigningunni. Það sem á eft- ir kemur nær ekki að uppfylla væntingarnar sem upphafið vekur. Alex (Lavronenko)og Vera (Bonnevie) ákveða að dvelja í viku- tíma með börn sín í húsi sem Alex ólst upp í. Þrátt fyrir kyrrð og fegurð sveitarinnar er ekki allt með felldu og fljótt verður harm- urinn þungur. Zvyagintsev er greinilega umhugað um að skapa táknræna stemningu og stráir í kringum sig trúartáknum. Við fáum meira að segja vísun í Evu og eplið! Honum tekst samt ekki að byggja upp kraftmikil áhrif af því að sambandið milli hjónanna virkar ekki. Frásögnin er líflaus og fangar ekki athyglina þrátt fyr- ir sæmilega frammistöðu leik- aranna. Þegar baksaga Veru er síðan hengd aftan í fellur sagan endanlega saman. Það sem heldur manni við Út- legð er útlit myndarinnar. Zvyag- intsev rammar sveitasenurnar inn með næmu auga. Því miður nær hann einfaldlega ekki að gefa hug- hrifunum sem hann skapar nægi- legt vægi né dýpt. Útlegð – Izgnanie  Leikstjóri: Andrey Zvyagintsev. Aðalleik- arar: Konstantin Lavronenko, Maria Bonnevie, Alexander Baluev, Maxim Shibaev, Katya Kulkina. 150 mín. Rúss- land. 2007. Sýnd í Háskólabíói 27.9, 29.9 og 30.9. Anna Sveinbjarnardóttir FAGMANNLEGA gert bandarískt suðurríkjadrama um fjölskylduátök hálfbræðra sem brjótast út þegar faðir þeirra deyr. Myndin er kvik- mynduð og framsett af miklu ör- yggi. Útliti og leikmynd er jafn- framt sýnd nákvæm natni og vandvirkni. Tekst t.d. að sýna skort fátækari bræðranna á tilgerð- arlausan hátt. Leikarahópurinn er einnig ljómandi góður og er þá einkum Michael Shannon sem Son í aðalhlutverkinu kraftmikill á hljóð- látan hátt, án þess að drukkna í staðaltýpu. Leikstjórinn, Jeff Nichols, gefur sér tíma til að sýna tempó bæj- arlífsins og hvar bræðurnir eiga heima, eða réttara satt ekki heima. Karl, faðirinn, var fyllibytta sem átti fyrst þrjá syni með einni konu. Sá svo ljósið og gerði sér lítið fyrir og hafnaði fyrstu fjölskyldunni, kvæntist aftur, gerðist stöndugur bóndi og eignaðist fjóra syni. Þann- ig að það er nóg af bældum, reiðum og sárum, tilfinningum og bitrum minningum fyrir elstu synina sem fengu ekki neitt. Þeir eru hálf- utanveltu. Einna helst Son sem hef- ur náð að koma undir sig fótunum og stofna sína eigin fjölskyldu. Ef eitthvað vantar upp á hand- ritið þá er það að persónur bónda- bræðranna hefðu mátt vera aðeins fyllri til að skapa betra mótvægi. Á móti kemur að Nichols klippir á of- beldið á milli hálfbræðranna og fer yfir í svart. Hann vill ekki velta sér upp úr blóðinu, þó að hann geti sýnt aðdragandann, heldur finna aðrar lausnir. Bræður munu berjast – Shotgun Stories  Leikstjóri: Jeff Nichols. Aðalleikarar: Michael Shannon, Douglas Ligon, Barlow Jacobs, Michael Abbott Jr. 90 mín. Bandaríkin. 2007. Sýnd í Tjarnarbíói 27.9, 28.9 og 2.10. Anna Sveinbjarnardóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.