Morgunblaðið - 27.09.2007, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 55
INNKÖLLUN VEGNA RAFRÆNNAR SKRÁNINGAR HLUTABRÉFA
Í PROMENS HF.
Þann 12. nóvember 2007 kl. 9:00, verða hluta-
bréf í Promens hf. tekin til rafrænnar skráningar
hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. í samræmi við
ákvörðun stjórnar Promens hf. þar að lútandi. Þar
af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf
félagsins þann dag. Frá þeim tíma ógildast hin
áþreifanlegu hlutabréf í fyrirtækinu í samræmi við
ákvæði laga og reglugerðar um rafræna eignar-
skráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Promens hf.
tekin til rafrænnar skráningar en þau eru öll í
einum flokki og gefin út á nafn hluthafa.
Útgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofan-
greindra hlutabréfa sem telja nokkurn vafa
leika á að eignarhald þeirra sé réttilega fært í
hlutaskrá Promens hf. að staðreyna skráning-
una með fyrirspurn til hlutaskrár Promens hf.,
Hlíðasmára 1, 200 Kópavogi eða í netfangið
johannae@promens.is. Komi í ljós við slíka
könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð,
ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart
félaginu fyrir nefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga
takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa,
s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við
fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka, verð-
bréfafyrirtæki eða sparisjóð sem gert hefur
aðildarsamning við Verðbréfaskráningu Íslands
hf, fyrir skráningardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu
hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og því er
ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafnframt er
vakin athygli á að ferli rafrænnar skráningar hefur
engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga
viðskipti með hluti sína í félaginu að
undanskildum sjálfum skráningardeginum.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að
fela reikningsstofnun umsjón með eignarhlut
sínum í félaginu til að geta framselt hluti sína svo
sem vegna sölu eða skipta. Reikningsstofnun mun
í þessu skyni stofna VS-reikning í nafni viðkomandi
hluthafa. Hluthöfum félagsins verður kynnt þetta
bréfleiðis.
Stjórn Promens hf.
HLJÓMSVEITIRNAR Benny
Crespo’s Gang og Royal Fortune
halda tónleika á Organ í kvöld.
Benny Crespo’s Gang er að leggja
lokahönd á sína fyrstu breiðskífu,
sem er væntanleg í verslanir 19.
október, sem er einmitt sami dagur
og sveitin kemur fram á Iceland
Airwaves-hátíðinni. Sveitin hefur
ekki komið fram á tónleikum síðan í
maí og meðlimir hennar eru því
orðnir óþreyjufullir að komast aftur
á svið, segir í fréttatilkynningu frá
hljómsveitinni.
Aðdáendur tónlistarkonunnar
Lay Low bíða með mikilli eftirvænt-
ingu eftir breiðskífu Benny Crespo’s
Gang, en hún leikur á gítar og hljóm-
borð með sveitinni ásamt því að
syngja. Það er óhætt að segja að hún
fer allt aðrar leiðir með sveitinni
heldur en á breiðskífu sinni, Please
Don’t Hate Me.
Royal Fortune er ólík blanda
fimm einstaklinga en bandið hefur
verið iðið við að semja melódískar
melankólíuballöður undanfarna
mánuði. Royal Fortune leikur einnig
á Iceland Airwaves-hátíðinni í októ-
ber.
Húsið opnar kl. 21 og má búast við
því að hljómsveitirnar stigi á svið kl.
22. Aðgangur er ókeypis. Organ er
að Hafnarstræti 1-3.
Morgunblaðið/Golli
Benny Crespo’s Gang Vinnur að fyrstu plötu sinni.
Royal Fortune Ólík blanda fimm einstaklinga.
Benny Crespo’s Gang
og Royal Fortune
SJÓNVARPSSTJARNAN og sam-
kvæmisljósið Paris Hilton hefur
lýst því yfir að hún ætli til Afríku-
ríkisins Rúanda innan skamms til
að vekja athygli á neyð fólks á
svæðinu.
„Ég mun fara í nóvember eftir að
upptökum á myndinni minni lýk-
ur,“ segir hún í viðtali við E! On-
line: „Það er svo mikil neyð á svæð-
inu og mér finnst að með því að fara
þangað geti ég vakið athygli á því
hvað hægt er að gera til aðstoðar.
Mig langar til að fara til fleiri landa
þar sem fátækt og aðstæður barna
eru vandamál. Ég veit að ég get
komið góðu til leiðar með því einu
að taka þátt og vekja athygli á þess-
um málum.“
Reuters
Hilton Vill vekja athygli á fátækt.
Paris til
Rúanda
KVIKMYNDALEIKKONAN Jes-
sica Biel mun líklega fara með hlut-
verk Wonder Woman í kvikmynd
sem á að fara að gera um ofurhetjuna
kynþokkafullu bráðlega. Hún stend-
ur nú í viðræðum
við framleiðendur
myndarinnar um
að leika Wonder
Woman sem hefur
verið í teikni-
myndaformi hing-
að til. „Það er of
snemmt að segja
til um hvort úr
samningum verð-
ur,“ sagði talsmaður leikkonunnar
nýlega. Hann vildi heldur ekkert
segja um það hvort Biel færi með
hlutverk í mynd sem er byggð á
teiknimyndasögu þar sem Batman,
Superman og Wonder Women koma
öll saman. Biel er ein af mörgum
stjörnum sem koma til greina í hlut-
verk Wonder Women. The O.C
stjarnan Rachel Bilson hefur verið
orðuð við hlutverkið sem og Cather-
ine Zeta-Jones og Cameron Diaz.
Kate Beckinsale hefur þegar hafnað
því.
Biel er nú við upptökur á myndinni
Powder Blue með óskarsverðlauna-
hafanum Forest Whitaker og Ray
Liotta. Hægt er að sjá Biel nú á hvíta
tjaldinu í myndinni I Now Pronounce
You Chuck and Larry.
Margar vilja
vera Wonder
Woman
Jessica Biel
Fáðu úrslitin
send í símann þinn