Morgunblaðið - 07.10.2007, Page 2

Morgunblaðið - 07.10.2007, Page 2
Morgunblaðið/Júlíus LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu hafði afskipti af nítján manns sem brutu gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar í fyrrinótt. Þá voru fimm minniháttar líkams- árásir kærðar til lögreglu auk þess sem sex voru teknir ölvaðir við akstur. Að sögn lögreglu var talsverð ölvun í miðborginni en færra var af fólki en vanalega enda nokkuð kalt í veðri. Kalt í veðri en töluverð ölvun 2 SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is „ÉG HELD að enginn á þessu landi gæti staðið frammi fyrir foreldrum svona langveiks barns og sagst vera stoltur af því hversu vel hafi verið stutt við bakið á fjölskyldunni. Svarið er alveg skýrt að svo er ekki, við getum ekki verið stolt af því,“ segir Ragna K. Marinósdóttir, framkvæmdastjóri Um- hyggju, félags til stuðnings langveikum börnum. Hún segir gagnrýnina á félagslega stoðkerfið réttmæta, þar vanti margt upp á og ekki síst fjár- hagslegan stuðning til foreldra vegna hins mikla vinnutaps sem óhjákvæmilega fylgir því að eiga langveikt barn. „Veruleikinn er bara sá að það er mjög algengt að annað foreldrið verði að leggja nið- ur vinnu, fólk hefur ekkert val. Og þá er hægt að leggja saman tvo og tvo um hvernig ástandið er hjá einstæðum foreldrum.“ Ragna bendir þó á að eitt og annað standi þess- um fjölskyldum til boða, s.s. hvíldar- og hjúkrunar- heimilið Rjóður auk þess sem sveitarfélög reyna gjarnan að bjóða upp á liðveislu en erfitt hefur reynst að manna þær stöður. „Við hjá Umhyggju höfum verið að leggja áherslu á að fólk fái aðstoð inn á heimilið, ýmist til að sjá um veika barnið eða þá heilbrigðu systkinin, því þau eru náttúrlega þarna líka og eru gjarnan vanrækt. Ef maður er svona mikið á spítala verður þetta eins og tvö heimili svo þetta veldur miklu rofi sem er ofboðslega erfitt fyrir þessi systkini.“ Umhyggja hefur jafnframt bent á mikilvægi þess að innan Barnaspítalans sé föst staða sálfræðings til að sinna fjölskyldum langveikra barna, en sveit- arfélögin hafa auk þess komið til móts við þær með niðurgreiðslum á sálfræðiþjónustu. Ragna segist þó eiga von á betri tíð. „Það er núna fulltrúi á vegum félagsmálaráðherra sem vinnur með ráðuneytinu og stefnt er að því að foreldrar sem þurfi að hætta vinnu fái mánaðargreiðslur frá ríkinu. Ráðherra hefur lofað breytingum svo ég er bjartsýn á að kerfið fari að taka við sér þannig að maður þurfi ekki lengur að lesa svona sorgarsögur í blöðunum.“ Getum ekki verið stolt af hjálpinni við langveik börn Fjölskyldur langveikra barna hafa allar svipaða sögu að segja um gallað stoðkerfi Í AÐSENDRI grein til Morg- unblaðsins í gær lýstu for- eldrar langveiks barns reynslu sinni af gríðarlegu álagi vegna þess að félagslegt stoðkerfi og aðstoð utan sjúkrahúss vantar fyrir fjöl- skyldur þessara barna. „Það sem grætir okkur mest hjá Umhyggju er að fjöl- skyldur eins og þessi sem lýsir sínu lífi, eru ekki svo ofboðslega margar. Þess vegna er þetta al- veg réttmæt spurning hjá henni, hvað vill ríkið og þetta ríka samfélag gera fyrir þessar fjöl- skyldur,“ segir Ragna Marinósdóttir, fram- kvæmdastjóri Umhyggju. Félagið Umhyggja heyr réttindabaráttu fyrir þessar fjölskyldur og geta foreldrar alltaf leitað þangað eftir upplýs- ingum. Hvað vill ríkið gera? FJÓRIR menn voru fluttir á sjúkra- húsið á Ísafirði eftir tvær bílveltur í umdæmi lögreglunnar á Ísafirði að- faranótt laugardags. Ekki er talið að um alvarleg meiðsli sé að ræða. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu varð fyrri bílveltan um klukk- an 2.30 á Hnífsdalsvegi. Þrennt var í bílnum og slasaðist lítillega. Síðari veltan var í Holtahverfi á Ísafirði um klukkustund síðar. Mikil mildi er að ekki skyldi þar illa fara en bif- reiðin hafnaði úti í á. Einn var í bílnum. Að sögn lögreglu er ekki talið að ökumenn hafi haft áfengi eða vímu- efni um hönd en fremur er hálku um að kenna. Töluvert hefur snjóað á Vestfjörðum og var umtalsverð hálka á vegum þegar slysin áttu sér stað. Umferðarslys í hálkunni mörgum tölvubréfum, smáskilaboð- um og símtölum sem henni hefðu borist undanfarna daga vegna ákvörðunar meirihluta borgar- stjórnar. „Ég hef fengið hvatningu frá fólki sem ég hef hvorki hitt né séð og það er greinilegt að fólki er al- gjörlega misboðið. Maður finnur svo sterkt fyrir því að þessi gjörn- ingur sem þarna fer fram er tákn- Eftir Andra Karl andri@mbl.is HEITAR umræður fóru fram á opn- um fundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um sameiningu Geysir Green Energy og Reykjavík Energy Invest. Svandís Svavars- dóttir, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn Orkuveitunnar, hélt fram- söguerindi og gerði m.a. grein fyrir aðdraganda sameiningarinnar og fyrirhugaðri málshöfðun. „Þegar Reykjavíkurborg sest við samningaborð með Hannesi Smára- syni og Bjarna Ármannssyni og mönnum af þeirri vigt, sérfræði- þekkingu og fagmennsku í hagn- aðarhugsun; hver sér þá um hags- muni Reykjavíkurborgar?“ spyr Svandís og bætir sjálf við að nóg sé til af mönnum sem eigi fjármagn. „En það eru ekki margir sem hafa þekkingu í orkumálum, og sú þekking sem þarna er komin inn í þetta nýja félag er í raun og veru gefin auðmönnum.“ Svandís sagði einnig frá fjöl- rænn fyrir svo margt. Hann er táknrænn fyrir spillingu í stjórn- málum og menn sem fara með völd almennings sem sín eigin.“ Fyrirhuguð málshöfðun rædd á fundinum Einnig var rætt um fyrirhugaða málshöfðun en Svandís heldur því fram að eigendafundur Orkuveit- unnar hafi verið ólögmætur, enda hafi ekki verið boðað til hans með réttum fyrirvara. Hún segir að um leið og ljóst sé hvaða aðila eigi að stefna verði far- ið með stefnuna í Héraðsdóm Reykjavíkur. „Síðan geri ég ráð fyrir að óska eftir flýtimeðferð í ljósi þess hvaða hagsmunir eru í húfi og eðlis máls- ins. Svo verður þetta að fara sína leið.“ „Fólki er algjörlega misboðið“ Mikil stemning á opnum fundi Vinstri grænna um málefni Orkuveitunnar og REI Morgunblaðið/Sverrir Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is JÓN G. Snædal læknir tók í gær við embætti forseta Alþjóðafélags lækna, World Medical Association (WMA), og gegnir því starfsárið 2007-2008. Hann var kjörinn forseti samtakanna á aðalfundi WMA í Pilanesberg í Suður-Afríku í fyrra og er fyrsti Íslendingurinn sem gegnir starfinu. Siðfræðin rædd WMA var stofnað eftir síðari heimsstyrjöld til að styrkja siðfræðilegan grundvöll lækna um víða veröld og hindra þátttöku þeirra í mann- réttindabrotum og ann- arri mannlegri niðurlæg- ingu og ofbeldi. 58. aðalfundur samtakanna fór fram í Kaupmanna- höfn í gær. Helsinki-sátt- málinn varðandi læknis- fræðilegar rannsóknir var meðal annars til um- ræðu og kom fram hjá formanni siðanefndar WMA að almenn ánægja væri með sáttmálann en endurskoða þyrfti nokkur ákvæði. Ýmsar tillögur til úrbóta lægju fyrir og næsta skref væri að fara yfir þær og meta hverju ætti að breyta. Sáttmálinn var sam- þykktur 1964 og endurskoðaður 1975, 1983, 1989, 1996 og 2000 auk þess sem skýringum var bætt við 2002 og 2004. Aðalfundur WMA verður haldinn í Seoul í október Vinnuhópur skipaður fulltrúum læknasam- takanna í Brasilíu, Þýskalandi, Japan, Suður- Afríku og Svíþjóð kemur til með að undirbúa breytingartillögur í vetur og verða þær teknar til umræðu á fundi siðanefndarinnar í maí á næsta ári. Hugsanlega verða endanlegar breyt- ingatillögur lagðar fyrir aðalfund WMA í Seoul í október á næsta ári. Kemur fram á ýmsum vettvangi Jón er klínískur dósent og starfar sem sér- fræðingur í öldrunarlækningum á Landspítal- anum. Hann segir að hann komi til með að koma fram fyrir hönd Alþjóðafélags lækna á ýmsum vettvangi á komandi starfsári, eins og til dæmis á ráðstefnum og ársfundum læknafélaga og vinna að ýmsum verkefnum. Í því sambandi nefnir hann fyrst og fremst mannréttindaverk- efni sem felur í sér að draga sem mest úr illri meðferð og pyntingum á fólki sem hafi aukist víða um lönd. Ennfremur segir hann að annað verkefni tengist samvinnu við lyfjafræðinga um lyfjameðferð og svo megi lengi telja. Jón Snædal forseti Alþjóðafélags lækna  Félagið stofnað til að styrkja siðfræðilegan grundvöll lækna um víða veröld og hindra þátttöku þeirra í mannréttindabrotum og annarri mannlegri niðurlægingu og ofbeldi  Jón fyrsti íslenski forseti WMA Jón G. Snædal AÐ gefnu tilefni vil ég undirrit- aður, Ragnar Axelsson, ljósmynd- ari á Morgunblaðinu, taka fram að blogg merkt Raxi á mbl.is er mér algerlega óviðkomandi. Virðingarfyllst, Ragnar Axelsson. Yfirlýsing

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.