Morgunblaðið - 07.10.2007, Síða 6
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
6 SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fáðu 50% afslátt
af pylsu og 0,5 l Coke
með afmæliskorti Olís
Þú færð afmæliskortið
á næstu Olís-stöð.
Ávöxtinn af andlegum átökum Gyðinga er að finna í
helgum ritningum þeirra.
Þar átti sú þjóð þann Vitaðsgjafa, sem síst varð
ófrær í rysjum og harðindum aldanna.
En því aðeins gat það akurlendi skilað þeirri upp-
skeru, sem álfur og aldir hafa saðst og auðgast af, að
Jesús nam það undir sig, plægði það upp og sáði að
nýju.
Og það gerði hann í þeirri vissu, að hann hefði full-
komið umboð til þess að hreinsa, vinsa, velja og
hafna. Og köllun og mátt til þess að segja: „Ég gjöri
alla hluti nýja.“
Hann þekkti lífsfræin, sem var ætlað að bera þús-
undfaldan ávöxt.
Hann sagðist vera kominn til þess að fullkomna
það, sem fyrir var. En til þess þurfti hann að ganga í
berhögg við margar hefðbundnar hugmyndir og
hugsanaforsendur samtíma síns.
Í þessu var hann einbeittur og óvæginn. Þeir, sem
blekktu sig og aðra með mikillátu sjálfsáliti, brynj-
uðu sig með storknuðum orðum og tilhaldssömum
háttum, með hugsunarlausu eða fölsuðu tali og fram-
komu, fóru enn naktari og smærri af fundi hans en
þeir urðu, sem Sókrates gekk á hólm við.
En jafnframt sneri Jesús sér af dæmalausri tiltrú
til fólks af öllu tagi, þar á meðal til manna, kvenna og
karla, sem Sókrates hefði ekki lagt á sig að sinna og
Platón tæpast virt viðlits.
Jesús varði tiltölulega miklu af tíma sínum og
kröftum til þess að huga að og hjálpa þess háttar
einstaklingum, sem í hverju mannfélagi þeirra tíma
og víðast, bæði fyrr og síðar, hafa verið taldir
vonarpeningar eða vonlausir með öllu.
Og hann hafði mið af þeirri vissu, að sá væri eng-
inn til, enginn svo beygður af böli, blekktur af lygi né
lemstraður af vondum áhrifum og illum lifnaði, að
ekki gæti gerst kraftaverk með hann, það krafta-
verk, að hann eða hún yrði nýr maður, heill á sál,
heilskyggn hið innra, hólpinn lífs og liðinn.
Þetta traust sitt byggði hann ekki á tiltrú til eig-
inleika mannsins, duldum eða bældum innstu hæfi-
leikum hans út af fyrir sig, heldur á óbuganlegri vitn-
eskju sinni um mátt þess Guðs, sem hann nefndi
föður sinn í himnunum og föður allrar tilveru og
hann sagðist vera kominn til að sýna, birta, opinbera
með orðum sínum og verkum, viðhorfum og fram-
komu
Sá faðir leitar uppi týnda til þess að bjarga þeim,
vill ekki að neinn smælingi sinn glatist, tekur vega-
villta, sjúka, sára, saurgaða í faðm sinn, ef þeir leyfa
honum það, vill gera kærleik sinn að endurskapandi
afli í lífi hvers manns.
Jesús leitaði oft í einveru til þess að tala við þenn-
an föður sinn og fá ráð hjá honum. Hann bað líka í
áheyrn annarra.
Þær bænir sumar hafa varðveist og ávaxtast öld af
öld, ásamt öðrum þeim orðum hans, sem hafa verið
sífersk nýung í reynsluheimi manna í tvö þúsund ár.
Þessi Jesús var dæmdur til ennþá bráðari og
grimmilegri afdrifa en Sókrates eða aðrir þeir menn,
konur og karlar, sem hafa notið mestrar aðdáunar
eftir sinn dag – og verðskulda það.
Sigurbjörn Einarsson
Hvað viltu, veröld? (8)
Björn Jóhann Björnsson
skrifar frá Qingdao
BALDUR Guðnason, forstjóri Eim-
skips, segir að opnun frysti- og kæli-
geymslunnar í Qingdao í gær sé stór
áfangi í sögu félagsins og verði horn-
steinn í frekari uppbyggingu þess á
Kína- og Asíumarkaði. Gríðarlegur
viðbúnaður var við opnunina í Kína í
gærmorgun en viðstödd voru Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
Dorrit Mousaieff forsetafrú, borg-
arstjóri Qingdao og ritari komm-
únistaflokksins þar í borg, auk
stjórnenda og starfsmanna Eim-
skips og fjölda annarra Íslendinga
sem staddir eru í borginni af þessu
tilefni. Þá voru einnig viðstaddir
starfsmenn hafnarinnar og geymsl-
unnar, sem höfðu stillt sér upp á
hafnarbakkanum líkt og herlið væri.
Eftir að klippt hafði verið á borða
var pappírsskrauti skotið á loft úr
fallbyssum.
Borgaryfirvöld í Qingdao hafa
samið um að Eimskip taki á leigu
geymsluna og nærliggjandi athafna-
svæði til næstu 30 ára. Geymslan er
sú stærsta sinnar tegundar í Kína,
sem og gervallri Asíu, og stendur á
góðum stað við höfnina í Qingdao,
sem er þú þriðja stærsta í Kína og
meðal tíu stærstu nafna heims. Fyrri
áfangi frystigeymslunnar er fullklár-
aður, tekur við um 55 þúsund tonn-
um af vörum í einu, en til sam-
anburðar tekur stærsta
frystigeymslan á Íslandi við 3.500
tonnum. Í síðari áfanga mun geymsl-
an í Qingdao geta tekið við um 110
þúsund tonnum af frystum og kæld-
um afurðum. Að sögn Baldurs
Guðnasonar er reiknað með að á
næstu sex mánuðum verði geymslan
komin í fulla nýtingu og á næstu 18-
24 mánuðum verði hafist handa við
síðari áfanga geymslunnar. Eimskip
er á heimsvísu með um 200 frysti-
geymslur í notkun sem alls taka við 2
milljónum tonna af frystum og kæld-
um vörum.
Eins og áður segir hefur Eimskip
þessa aðstöðu á leigu næstu 30 árin
en í þeim samningi fylgir kaupréttur.
Ritað var undir viljayfirlýsingu í gær
um hvernig samstarfinu verður hátt-
að og með hvaða hætti stækkun
geymslunnar fer fram. Að þessu
samstarfi við hafnaryfirvöld í
Qingdao koma einnig Faxaflóahafn-
ir, og fulltrúar þeirri rituðu einnig
undir viljayfirlýsinguna.
Sögulegur viðburður,
segir forseti Íslands
Ólafur Ragnar Grímssom sagði í
ræðu sinni við athöfnina í morgun að
opnun geymslunnar væri sögulegur
viðburður í samskiptum Kína og Ís-
lands. Að athöfn lokinni sagði hann
við Morgunblaðið að opnunin mark-
aði skýr þáttaskil.
Hann benti á að fyrir tíu árum
hefðu margir efast um hans orð um
að Kína yrði framtíðarviðskiptaland
Íslendinga. Núna efaðist enginn um
að Kína yrði helsta aflvélin í hagkerfi
nýrrar aldar.
,,Okkur Íslendingum stendur nú
til boða að búa til samstarf á mörg-
um öðrum sviðum, hliðstætt þessu
sem Eimskip er komið í. Það sam-
starf mun taka mið af öllum heims-
markaðnum og er þannig ákveðin
fyrirmynd að því hvernig lönd geta
unnið saman, líkt og forseti Kína
lagði gríðarlega áherslu á í við-
ræðum mínum við hann í vikunni. Sú
yfirlýsing er svo mikilvæg að það er
erfitt að útskýra hana fyrir Íslend-
ingum. Kínverjar hugsa mikið í slíkri
framtíðarsýn og það að þeir skuli
hafa valið Ísland sem slíkan sam-
starfsaðila, skapar gífurlega mikil
tækifæri fyrir okkur. Eimskip hefur
nú sýnt okkur öllum að það er hægt
að framkvæma þetta. Þetta er ekki
bara kenning, eða frómar óskir,
heldur er á ótrúlega skömmum tíma
hægt að hrinda svona metn-
aðarfullum verkefnum í framkvæmd,
sagði Ólafur Ragnar ennfremur.
Samstarfið við Kínverja
ekki sjálfgefið
Aðspurður sagði hann það langt í
frá hafa verið sjálfgefið að borgaryf-
irvöld í Qingdao veldu Eimskip sem
samstarfsaðila á þessum góða stað
við höfnina. Hundruð skipafélaga
hefðu viljað komast í þá stöðu, og
þúsundir fyrirtækja um allan heim
væru að keppa að því komast í sam-
bærileg viðskipti við Kína. Þetta
hefði komið skýrt fram í viðræðum
hans við forystumenn í bandarísku
og evrópsku efnahagslífi.
,,Þeir eru undrandi á þeim tæki-
færum og leiðum sem Íslendingum
eru opnar í Kína, og hafa fullyrt við
mig í óformlegum samræðum að
bandarísk fyrirtæki myndu greiða
risaháar upphæðir til að fá þann að-
gang að Kína sem Íslendingar hafa.
Ólafur Ragnar sagði að í þessari
Kínaheimsókn sinni hefði hann í
fyrsta sinn fengið það á tilfinninguna
að vera raunverulega staddur í
heimsveldi. Sú eðlisbreyting hefði
orðið, vegna árangurs Kínverja í
efnahagslífinu, að forystusveit þeirra
hefði fengið nýtt sjálfstraust og ör-
yggi. Glæsileiki í byggingum og öll-
um aðbúnaði bæri því merki, líkt og
hann hefði orðið vitni að í Sjanghæ.
,,Hraðinn í þróuninni hér er miklu
meiri og kröftugri heldur en nokkur
hefur getað gert sér grein fyrir. Í
mínum huga er þetta ekkert spurn-
ing um að Kína verði efnahagslegt
heimsveldi eftir 20 eða 30 ár, þeir eru
orðnir það nú þegar.
Líkti hann innkomu íslenskra fyr-
irtækja á kínverskan markað nú við
sambærilega áfanga sem náðust hjá
íslenskum fisksölufyrirtækjum og
flugfélögum í Bandaríkjunum fyrir
40-50 árum. Samstarfið við Kínverja
gæti skilað Íslendingum; almenningi
og þjóðinni allri, ótrúlegum efna-
hagslegum ávinningi á komandi ár-
um.
„Stór áfangi í sögu Eimskips“
Ljósmynd/Þórhallur Jónsson
Fylking Starfsmenn frystigeymslu Eimskips í Kína raða sér upp við opnunarathöfnina.
Ánægðir Magnús Þorsteinsson stjórnarformaður og Baldur Guðnason for-
stjóri fyrir utan frystigeymsluna ásamt fulltrúa Qingdao-borgar.
Eimskip er með
stærstu frystigeymslu
Kínverja á leigu næstu
30 árin. Forseti Íslands
segir Íslendinga geta
haft gríðarlegan efna-
hagslegan ávinning af
frekara samstarfi við
Kínverja.
bjb@mbl.is