Morgunblaðið - 07.10.2007, Page 10
10 SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
TUNGUMÁL OG SAMFÉLAG
lenzku, líkt og samskipti Finna eru á
finnsku og Tékka á tékknesku.“
Ársskýrsla Straums er gefin út á
íslenzku og líka ensku. Um það segir
Jóhanna Vigdís:
„Við erum með gríðarlega stóran
hluthafahóp, 21 þúsund hluthafa,
sem inniheldur bæði stóra erlenda
og íslenzka fjárfesta, sem og smærri
hluthafa. Okkur hefur því fundizt
það vera sjálfsögð þjónusta við
þennan stóra hluthafahóp að gefa
ársskýrslu okkar líka út á ensku. Í
þessum hópi er nokkuð um eldra
fólk og maður getur einfaldlega ekki
gefið sér að allir tali og lesi ensku.
Við leggjum áherzlu á að það sem
frá okkur fer sé skrifað á mjög góðri
íslenzku. Enskan er hagkvæmt
vinnumál, en Einar Benediktsson
sagði líka að orð er á Íslandi til um
allt sem er hugsað á jörðu. Ég held
hann hafi haft nokkuð til síns máls.“
Íslenzk fyrirtæki í fjármálum,
tölvum og vísindum eru mörg hver
þegar tvítyngd eða enskan er þeirra
vinnumál. Í grein Silju Bjarkar
Huldudóttur í Morgunblaðinu 18.
september sl. kom fram, að vinnu-
málið hjá deCode er enska og einnig
Actavis; vinnuskjöl eru á ensku og
formleg samskipti fara fram á því
máli, þótt gera megi ráð fyrir að Ís-
lendingar tali íslenzku sín í milli.
Fundir hjá deCode þar sem fund-
armenn eru allir Íslendingar fara
fram á íslenzku.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, sagði að vinnumál hvers fyrir-
tækis hlyti að taka mið af þörfum
fyrirtækjanna sjálfra; að enska sé
töluð þar sem við á. Af sjálfu leiði þá
að Íslendingum standi til boða þjón-
usta á móðurmálinu, líka í bönk-
unum og þeim fyrirtækjum þar sem
enskan er vinnumál. Þannig verður
töluð íslenzka í bankaútibúunum,
eins og Sigurjón Þ. Árnason tekur
fram, en ekki enska, hvað sem höf-
uðstöðvunum líður.
hafi verið tekin fyrir rétt tæplega
tveimur árum að gefa út ársskýrslu
einungis á ensku og hafa ársskýrsl-
urnar fyrir 2005 og 2006 komið
þannig út. „Þar réð mestu að enska
er ráðandi mál á alþjóðlegum fjár-
málamarkaði sem Glitnir starfar á
og sækir t.a.m. 80% fjármögnunar
sinnar þangað. Þetta endurspeglast
einkum í því að eftirspurn eftir árs-
skýrslu hefur að mestu, ef ekki öllu
leyti, komið erlendis frá.“
Vala segir, að bankanum hafi ekki
borizt kvörtun frá íslenzkum hlut-
hafa um að upplýsingagjöf bankans
sé ófullnægjandi.
William Fall, forstjóri fjárfesting-
arbankans Straums, er Breti og það
hefur áhrif á samskiptin innan bank-
ans, að sögn Jóhönnu Vigdísar Guð-
mundsdóttur, forstöðumanns Sam-
skiptasviðs bankans.
„Líkt og aðrir starfsmenn bank-
ans tala ég ensku nokkuð stóran
hluta vinnutímans og það segir sig
sjálft að öll samskipti við forstjórann
eru á ensku. En það þvælist ekki á
neinn hátt fyrir starfsmönnum, enda
kann meginþorri starfsmanna bank-
ans góða ensku.
Þar sem um 80% af starfsmönnum
Straums búa fyrir utan Ísland geng-
ur ekki upp að senda póst á alla
starfsmenn á íslenzku. Ef við skoð-
um starfsmannafjölda bankans út
frá þjóðerni þá starfa hlutfallslega
flestir Finnar hjá Straumi, eða rúm-
lega 170 af um 450 starfsmönnum.
Ef við hugsuðum samskiptatungu-
mál bankans út frá þessum hlut-
föllum starfsmanna mætti halda því
fram að við ættum að senda tölvu-
pósta á alla á finnsku, vegna þess að
flestir starfsmenn bankans eru
finnskir! En þó að finnskan sé, líkt
og íslenzkan, ákaflega fallegt tungu-
mál skilja hana fáir aðrir innan
Straums en Finnarnir. Þess vegna
sendum við tölvupósta sem fara á
alla starfsmenn á ensku, en vit-
anlega eru samskipti Íslendinga á ís-
af leiðandi sé vinnumálið víða orðið
enska.
„Það er til dæmis regla í sumum
fyrirtækjum að tölvupóstur er skrif-
aður á ensku, jafnvel þó að hann fari
á milli tveggja Íslendinga, því ef
hann er áframsendur til einhvers
sem ekki talar íslenzku verður við-
komandi að geta lesið forsöguna.“
Einnig bendir hann á að árs-
skýrslur margra fyrirtækja séu ein-
ungis á ensku og Landsbankinn hafi
verið síðastur bankanna til að taka
upp þann sið. En Sigurjón segist
ekki hafa áhyggjur af íslenzkunni.
„Menn munu áfram tala íslenzku
sín á milli. Það væri til dæmis fárán-
legt ef við töluðum ensku núna. Og
þannig verður það áfram, til dæmis í
útibúum Landsbankans, þar sem
engin þörf er fyrir samskipti á er-
lendu tungumáli. Ég held að menn
ættu frekar að taka upp hinn punkt-
inn í umræðunni, sem er að Íslend-
ingar þurfa að tala góða ensku til að
ná árangri á alþjóðlegum vettvangi.
Og til þess þarf að efla enn frekar
enskukennslu í skólum.“
97% hluthafa Glitnis eru íslenzkir,
en 40% starfsmanna bankans eru af
erlendu bergi brotnir. Vala Páls-
dóttir hjá Glitni segir að Glitnir gefi
bæði út reikninga bankans og frétta-
tilkynningar um uppgjör bankans á
íslenzku og ensku við ársfjórðungs-
uppgjör, þ.m.t. ársuppgjör bankans.
Það gefur ítarlegustu mynd af
rekstri bankans og horfum hverju
sinni. Ársreikningar bankans eru
einnig bæði gefnir út á íslenzku og
ensku. „Bankinn hefur kappkostað
að miðla öllum upplýsingum og
fréttum úr starfseminni jafnt á ís-
lenzku og á ensku, og ef eitthvað er
mætti kannski halda því fram að
heldur hallaði á erlenda aðila sem
skilja ekki íslenzku.“
Ársskýrsla bankans er hins vegar
aðeins gefin út á ensku. Ársskýrslan
er samantekt á starfi bankans yfir
árið og segir Vala, að sú ákvörðun
Í
kjölfar ummæla Sigurjóns Þ.
Árnasonar, bankastjóra
Landsbankans, um að óhjá-
kvæmilegt kunni að vera fyrir
íslenzk fjármálafyrirtæki í út-
rás að taka upp ensku sem
vinnumál í höfuðstöðvum sínum á Ís-
landi og Ágústs Ólafs Ágústssonar,
formanns viðskiptanefndar Alþingis,
að við eigum að huga að tvítyngdri
stjórnsýslu, íslenzkri og enskri, hafa
orðið nokkrar umræður um stöðu ís-
lenzkunnar sem móðurmáls, heima-
brúksmáls og vinnumáls. Forseti Ís-
lands, Ólafur Ragnar Grímsson, sá
ástæðu til þess að leggja höf-
uðáherzlu á gildi móðurmálsins í
ræðu sinni við setningu Alþingis í
vikunni; „Engin efnisrök eru fyrir
því að nú verði að víkja íslenzkunni
til hliðar ef háskólar og fyrirtæki
eiga að ná í fremstu röð og hæpið að
halda því fram að íslenzkan geti ekki
áfram verið jafnoki heimsmálanna í
þekkingarsköpun og atvinnulífi,“
sagði forsetinn m.a.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra segir að þótt
útrásin sé eftirsóknarverð eigi hún
ekki að setja íslenzkuna í annað
sæti. Íslenzkan er lykillinn að okkar
lífi, hún er líka lykillinn að útrásinni
og á að undirstrika sérstöðu okkar í
alþjóðasamfélaginu. Það eigi ekki að
líðast að alþjóðasamfélagið tali ís-
lenzkuna niður frekar en krónuna.
Vinnumálið tekur
mið af þörfunum
Það segir sína sögu að Sigurjón Þ.
Árnason, bankastjóri Landsbank-
ans, er í leigubíl á erlendri grundu
þegar blaðamaður nær tali af hon-
um. Hann segir umræðuna í fjöl-
miðlum í kjölfar yfirlýsingar sinnar
bera keim æsifréttamennsku, reynt
hafi verið að blása þau upp. Mörg
fyrirtæki á Íslandi hafi vaxið mikið á
undanförnum árum, starfsemin sé
orðin alþjóðleg og margir starfs-
menn af erlendu bergi brotnir. Þar
Háskólarnir tals-
vert tvítyngdir
Í raun eru háskólarnir komnir
anzi langt áleiðis að vera tvítyngdir.
Þórður Kristinsson, sviðsstjóri
kennslusviðs HÍ sagði við Silju
Björk, að kennslutungumál skólans
væri íslenzka, en fjöldi námskeiða er
kenndur á ensku; flest á meist-
arastigi. Það er hins vegar hrein og
klár stefna Háskólans í Reykjavík að
verða tvítyngdur fyrir 2010, því skól-
inn þurfi að tryggja nemendum sín-
um alþjóðlega færni. Steinn Jó-
hannsson, forstöðumaður
kennslusviðs Háskólans í Reykjavík,
segir að nú sé allt MBA-nám í skól-
anum á ensku og allt að helmingi
meistaranámsins í viðskiptadeild. Í
grunnnáminu sé myndin allt önnur;
þar séu örfá prósent námsins kennd
á ensku; þetta 10-15 námskeið.
Svafa Grönfeldt rektor sagði að ís-
lenzkan yrði alltaf í hávegum höfð
við skólann. „Við munum ekki gefa
neinn afslátt á íslenzkunni,“ segir
hún.
Háskólinn á Akureyri er búinn að
samþykkja stefnu sem gildir frá
2007 til 2011 og þar segir: „Opinbert
tungumál háskólans er íslenska, en
tryggt verði námsframboð á ensku
sem svarar þörfum alþjóðlegs um-
hverfis í háskólanum.“ Einnig hefur
verið skipaður starfshópur um
tungumálastefnu háskólans, þar sem
á að útfæra stefnuna nánar.
„Við höfum þetta tvíþætta hlut-
verk, annars vegar að rækta skyldur
okkar við íslenzkt samfélag og þar
með þróun íslenzkrar tungu, en hins
vegar þurfa kennarar háskólans að
geta komið fram á alþjóðavett-
vangi,“ segir Þorsteinn Gunnarsson,
rektor Háskólans á Akureyri.
„Og við erum einnig að hugsa um
skiptinemendur sem við fáum er-
lendis frá og ekki er hægt að ætlast
til að geti nýtt sér íslenzkuna, þann-
ig að við þurfum að hafa framboð á
Morgunblaðið/Frikki
ÍSLENZKA
ER ÞAÐ, HEILLIN!
Til skamms tíma voru
íslenzkir flugmenn ein-
ir um að hafa annað
vinnumál en móð-
urmálið. Nú er öldin
önnur. Með útrás og al-
þjóðavæðingu ís-
lenzkra fyrirtækja hef-
ur þeim fjölgað sem
starfa í alþjóðlegu um-
hverfi og nota þar ann-
að tungumál en ís-
lenzku.
Eftir Freystein Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is