Morgunblaðið - 07.10.2007, Page 23

Morgunblaðið - 07.10.2007, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 23 „undir eitt þak og eina stjórn. Eftir kosningarnar 9́8 mynduðu sjálfstæð- ismenn og framsóknarmenn meiri- hluta, en voru á öndverðum meiði í skólamálinu og framsóknarmenn mynduðu meirihluta með minnihlut- anum um að hafna okkur Björn- unum báðum sem skólastjóra. Reyndar var það orðið ljóst fyrir kosningarnar að svo myndi fara, en við Björn höfðum rætt saman um það, að yrði annar okkar skólastjóri, myndi hinn kenna hjá honum. Af því varð ekki af augljósum ástæðum. Björn fór úr bænum og ég ákvað að þessum kafla í mínu lífi væri lokið.“ – Var það erfið ákvörðun? „Já, hún var það og ekki sárs- aukalaus. Skólinn var mitt líf og yndi.“ – En svo rættist úr? „Já. Ég fékk nokkrar fyrirspurnir en þær fengu mig ekki ofan af ákvörðun minni. En svo kom upp á borðið að það vantaði skólastjóra á Hofsósi og þeir gerðu mér tilboð, sem ég gat ekki hafnað. Ég fór þangað og var þar skólastjóri í 7 ár. Ekki fékk ég nú alveg að vera í friði, því framsóknarmenn og vinstri menn vildu mig burt og auglýstu stöðu mína, en Hofsósbúar söfnuðu þá undirskriftum mér til stuðnings svo ég sat áfram til 2005 að ég komst á 95 ára regluna. Ég hafði löngu lof- að mér því að þá skyldi ég láta af skólastjórn. Ég gældi eitthvað við þá hugmynd að kenna áfram, en svo féllst ég á að það sem einn ágætur siglfirzkur skólastjóri sagði, því að „það eina sem ég kunni var að kenna, en eftir að hafa verið skóla- stjóri um árabil þá var það flest gleymt og þessvegna er aflagður skólastjóri til lítils gagnlegur og eig- inlega fátt eins ömurlegt.““ – Hvernig lögðust þessi skóla- stjóramál í þig? „Ég ber mig ekkert illa út af þeim. Pólitíkin getur oltið á ýmsa vegu. Mér finnst mestu skipta að vera hreinskiptinn og fyrir öllu að koma heill út úr málum. Það finnst mér að mér hafi tekizt.“ – Þú varst á móti sameiningu skól- anna. Var það ekki næg ástæða þess að þú fékkst ekki skólastjórastöð- una? „Ég hefði ekki sótt um stöðuna ef ég hefði ekki ætlað að sinna henni af fullum heilindum. Svo vel áttu menn að þekkja mig, að þeir þurftu ekki að hafa efasemd- ir um það. Þær voru bara yfirvarp, það var pólitík sem réð ferðinni. Annars hefðu þeir getað talað hreint út og sagt að ekki þýddi að sækja um.“ – Hvernig finnst þér svo samein- ingin hafa gengið? „Það er ekkert gaman fyrir mig að segja nú að ég hafi haft rétt fyrir mér, en varðandi sameininguna hef- ur allt farið á versta veg. Minn gamli barnaskóli er enn í fullum notum með tveimur lausum kennslustofum, þó að stefnt hafi verið að því að allt starf þar væri aflagt innan tveggja til þriggja ára..“ Komdu þá bara í peysu í skólann – Hvaða aðferðum beittir þú við skólastjórnina? „Minn stjórnunarstíll, ef ég hef þá haft einhvern stjórnunarstíl, hefur alltaf verið sá að vilja vera einn af hópnum, vinna með fólkinu og vera félagi þess.“ – Og allt gott í skólanum? „Það jafnast fátt á við það að sjá nemandann þroskast og komast til manns. Blessunarlega hef ég notið þess að sjá marga fara þá leiðina. Hitt er aftur að ég hef nokkrar áhyggjur af því að undirstöðurnar kunni að vera farnar að digna. Það er búið með ofskipulagningu að taka allt frumkvæði frá krökkunum, þau fara í leikskóla til þess að læra að umgangast önnur börn og leika sér, það er krafa um að allt eigi að vera skemmtilegt í grunnskólanum, for- eldrar eru búnir að setja allan tíma krakkanna inn í ramma; „Langar þig, elskan í skátana? Viltu æfa frjálsar? Hvað með tónlistarskól- ann?“ og svo framvegis. Allt nið- urnjörvað og blessuðu barninu má aldrei leiðast. Það þarf alltaf að vera búið að finna eitthvað fyrir það til að gera. Enda geta börn ekki leng- „Í vor veitti ég kosningaskrifstofu Sjálfstæð- isflokksins hér forstöðu og kynntist þá Einari Oddi Kristjánssyni upp á nýtt. Ég sagðist muna eftir honum í MA og spurði hvenær hann hefði orðið stúdent. Þú kemur illa við mig núna, sagði hann á sinn sérstaka hátt. Ég kláraði aldrei. Ég fékk svo gott atvinnutilboð að ég hætti. Það ligg- ur enn á mér, að þessi hvíld sem ég ætlaði að taka í eitt ár varð svo miklu lengri, af því að ég lofaði Þórarni því að koma aftur, og við tókumst í hendur uppá það, en því miður ég stóð ekki við það og sé alltaf eftir því.“ „Ég var að glugga í dagbókina mína um dag- inn og rakst þá á þetta: Gangaslagur. Lenti í Ein- ari Oddi. Þarf að fara með leðurjakkann til Odds. Oddur var skósmiður og Einar Oddur hand- takagóður, eins og hann var jafnan!“ „Þremur dögum fyrir kosn- ingarnar frétti ég af því að ágætur bóndi hér í Skagafirði væri eitthvað stúrinn og hefði sagzt líklega ekkert mundi kjósa. Ég dreif í að fá Einar Odd til að hafa við hann sam- band. Einar kom manninum fyrir sig og sagðist myndu hringja. Skömmu seinna hringdi hann aftur og spurði hvað kona mannsins héti. Kona? sagði ég. Það skiptir ekki máli. Þú átt að tala við manninn. Og þá sagði Einar. En ef hún svarar, þá ávarpa ég hana auðvitað með nafni, vinur. Hálftíma síð- ar hringdi hann og sagði: þetta verður í lagi. Hann kunni þetta svo vel, hann Einar Oddur. Hann var eins og sópur.“ „Guðbjartur Hannesson Samfylking- arforkólfur sagði mér að hann hefði hitt Einar Odd á Ísafjarðarflugvelli nokkru eftir myndun ríkisstjórnarinnar og sagt við hann að fyrst svona væri nú komið að þeir væru orðnir sam- herjar í ríkisstjæórn yrðu þeir að fara að tala vel hvorir um aðra og flokkana hvors annars. Og þá kom svarið: „Er búinn að vera að æfa mig í þrjá morna í að segja: Hún er góð, - hún er góð, - hún er bara ágæt hún Ingibjörg Sólrún.“ „Ég veit að það er hægt að segja að allir séu góðir þá gengnir. En ég segi það satt að ég harma það að hafa misst af Einari Oddi síðan á menntaskólaárunum og þar til í vor.“ Einars þáttur Odds Einar Oddur Kristjánsson Íslenskur raforkumarkaður Einkavæðing - skipulagsbreytingar - samkeppni Opinn morgunfundur Samtaka iðnaðarins þriðjudaginn 16. október á Grand Hótel Samtök iðnaðarins efna til morgunfundar um íslenskan raforkumarkað á Grand Hóteli þriðjudaginn 16. október næstkomandi. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 8:15 og stendur til 10:30. Ræðumenn: Katrín Júlíusdóttir formaður iðnaðarnefndar Alþingis Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæ Bryndís Skúladóttir verkfræðingur hjá SI Friðrik Sophusson forstjóri Landsvirkjunar Tómas Már Sigurðsson forstjóri Fjarðaáls og stjórnarmaður í SI Fundarstjóri: Sveinn Hannesson framkvæmdastjóri SI Fundurinn er öllum opinn Félagsmenn SI eru eindregið hvattir til að sækja fundinn 

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.