Morgunblaðið - 07.10.2007, Page 28

Morgunblaðið - 07.10.2007, Page 28
alþjóðamál 28 SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ H ans Blix var í heims- fréttunum þegar inn- rásin í Írak vofði yfir. Hann stjórnaði vopna- eftirliti Sameinuðu þjóðanna og hafði það verkefni að leita gereyðingarvopna í Írak. Hann fann engin vopn og þau hafa ekki fundist til þessa dags. Blix verður áttræður á næsta ári, en hann hefur ekki látið af málflutn- ingi fyrir afvopnun og var tilbúinn að setjast niður í anddyri Hótel Færeyja í Þórshöfn til að ræða málin. Blix hefur mikið talað um hlýnun loftslags upp á síðkastið og notaði tækifærið í Færeyjum til að koma á framfæri boðskap sínum þótt svalt veðrið og rigningin bæri loftslags- breytingum ekki beinlínis vitni. Hann hefur meðal annars talað um að kjarnorka sé ein leiðin til að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. „Ég held að hlýnun loftslags reki okkur í örvæntingu til að leita að orku, sem ekki losar slíkar loftteg- undir,“ segir Blix. „Ég segi ekki að hættan sé engin, lítum til dæmis á kjarnorkuúrgang, en ég hef minni áhyggjur af að gramm af plútóníumi leki eftir tíu þúsund ár en af öllu koltvíildinu, sem er dælt út á hverjum degi. Kjarnorka er ekki allrameina- bót og ekki verður hægt að styðjast við hana eina og sér, en það eru þrjár leiðir til að taka á vandanum: í fyrsta lagi kjarnorka, í öðru lagi meiri skil- virkni í framleiðslu orku og neyslu orku og í þriðja lagi að hætta að höggva regnskóga.“ Að losna við hina ímynduðu þörf fyrir gereyðingarvopn Blix vill gera átak í afvopn- unarmálum. „Nálgun Evrópu í af- vopnunarmálum er að koma því til leiðar að að lönd telji sig ekki lengur þurfa á gereyðingarvopnum að halda, það er að segja stefna slökunar,“ seg- ir Blix. „Það besta sem gerst hefur í þessum efnum eru lok kalda stríðsins. Kjarnorkuvopnum fækkaði úr um 55 þúsund í 27 þúsund eftir að kalda stríðinu lauk og átökum og ágreiningi linnti víða um heim. Hins vegar erum við nú því miður í annarri stöðu. Það má sjá hvernig spenna eykst og nýtt vopnakapphlaup er að hefjast. Bretar hafa ákveðið að framlengja kjarn- orkukafbátaáætlun sína, Trident- áætlunina, Bandaríkjamenn vilja búa til nýja gerð kjarnorkuvopna, Kín- verjar hafa skotið niður gervihnött til veðurathugunar, sem þeir áttu sjálfir, til að sýna getu sína komi til átaka í geimnum, Rússar sögðu um daginn að myndu Bandaríkjamenn koma fyr- ir vopni úti í geimnum yrðu þeir ekki einir um það, Rússarnir hafa einnig hafið að nýju langflug í eftirlitsskyni með kjarnorkuvopn um borð og Bandaríkjamenn virðast ætla að láta slag standa með að setja upp eld- flaugaskildi í Póllandi og Tékklandi. Svo má benda á að um 1,3 trilljónum dollara var árið 2006 varið til hermála í öllum heiminum og Bandaríkja- menn áttu helming útgjaldanna.“ Blix segir að þarna séu nokkur dæmi um vopnakapphlaup og um leið hafi spenna aukist milli ríkja, einkum Bandaríkjanna og Rússlands. Eitt- hvað af því megi rekja til þess að stjórnarhættir hafi breyst í Rúss- landi, stefnu frjálslyndis sé ekki leng- ur fylgt eftir, höft sett á fjölmiðla, aukin glæpastarfsemi og skorður við starfsemi óháðra félagasamtaka. „Það er hluti af vandanum, en ég held ekki að það skýri allt,“ sagði hann. „Rússar og Kínverjar hafa áhyggjur af kjarnorkuskildinum, sem þeir óttast að komi í veg fyrir að þeir geti svarað fyrir sig verði gerð kjarn- orkuárás. Þeir óttast að skjöldurinn geri Bandaríkjamönnum kleift að gera árás, en þeim ókleift að svara. Bandaríkjamenn gætu ráðist á hvern sem er, hvar sem er í heiminum og enginn gæti svarað. Þetta er hluti af óttanum. Síðan er kjarnorku- samkomulag Bandaríkjamanna við Indverja, sem ég held að sé æskilegt frá umhverfissjónarmiði því að það mun auðvelda Indverjum að komast yfir nýjustu kjarnorkutækni og þar með að nýta kjarnorku, sem ekki blæs út koltvíildi, í meira mæli. Á hinn bóginn munu margir líta á sam- komulagið sem tilraun Bandaríkja- manna til að halda Kínverjum niðri og reisa múr milli þeirra og Indlands, Ástralíu, Kóreu og Japans.“ Sjálfur telur Blix að þetta sé að hluta til forsenda Bandaríkjamanna fyrir því að gera samkomulagið, en hins vegar sé hann ekki viss um að Indverjar láti setja sig í það hlutverk að verða hluti af tilraunum til að halda Kínverjum í skefjum. „Indverjar vilja halda í sjálfstæða utanríkisstefnu og þeir hafa mjög góða ástæðu til að vilja friðsamleg samskipti við Kína,“ sagði Blix. „Það er því ekki víst að þetta takist, en það er erfitt að fá ekki á tilfinninguna að þetta sé ætlun þeirra.“ En hvernig stendur á því að hlut- irnir fóru úr böndunum eftir að kalda stríðinu lauk? „Árið 1991 rann stund Sameinuðu þjóðanna í heiminum upp. Þá fór Bush eldri fyrir öryggisráðið og fékk heimild til að hrinda innrás Íraks í Kúveit og fékk með sér stórt banda- lag ríkja til að gera það. Þarna kom öryggisráðið að málum, aðgerðin gekk upp og fólk sagði að þetta væri dásamlegt, öryggisráðið og stofnskrá Sameinuðu þjóðanna væru nú farin að gegna því hlutverki, sem þeim hefði verið ætlað. En svolítið annað gerðist í upphafi tíunda áratugarins. Hernaðarmáttur Sovétmanna hrundi og Bandaríkjamenn urðu eina hern- aðarstórveldið í heiminum. Ég held að í Pentagon, bandaríska varn- armálaráðuneytinu, hafi menn ákveð- ið: svona ætlum við að hafa þetta. Þeir héldu áfram að halda uppi sama umfanginu í hernaðarmálum. Þegar síðan kom að Írak sögðu þeir: við þurfum ekki á Sameinuðu þjóðunum að halda, við getum séð um hlutina sjálfir. Við þurfum ekki eftirlitsmenn, við höfum okkar eigin upplýsingar. Ég held það hafi verið svolítið dramb- læti, þeir héldu að þeir gætu endur- innréttað heiminn og breytt Írak í lýðræðisríki.“ Hér hlær Blix hæv- ersklega og endurtekur orðið dramb- læti. „En eftir stríðið í Írak og hina misheppnuðu innrás Ísraela í Líb- anon hafa menn komið niður á jörðina í Bandaríkjunum og nú má heyra menn segja að fyrst þurfi að fara samningaleiðina í Íran, en á sama tíma eru þrjú bandarísk flugmóð- urskip í Persaflóa – þar er beitt tang- arsókn – en í Norður-Kóreu er ein- göngu samningaleiðin farin.“ Í kringum Bush var hópur svokall- aðra nýíhaldsmanna (e. neocons), sem taldi að Bandaríkin ættu að nýta hernaðarlega yfirburði sína til að knýja fram stefnu fyrirbyggjandi íhlutunar. „Nýíhaldsmennirnir biðu lægri hlut og það var heppilegt,“ seg- ir Blix. „Ég held að þeir hafi verið fullir ofdrambs. En ef þú lest orð Rudys Giulianis, sem vill verða for- setaframbjóðandi repúblikana, sérðu að þeir eru ekki horfnir. Hann vill fá tíu herdeildir til viðbótar og segir að Sameinuðu þjóðirnar dugi til ein- hverrar friðargæslu og mann- úðarverka, en ekki meira. Svo segir hann að kannski þurfi einhverjar al- þjóðlegar stofnanir, en reynslan sýni að þær séu bestar þegar Bandaríkja- menn leiði þær. Þetta er enn sama dramblætið.“ Bandaríkjamenn eiga að leiða hjörðina Blix telur að Bandaríkjamenn eigi að taka að sér forystu í heiminum. „Einu sinni voru Bandaríkjamenn úlfurinn, sem leiddi hjörðina, en síðan breyttust þeir í úlfinn einförula, en við vildum að þeir tækju aftur að sér hlutverk forustuúlfsins. Það er einhver tímaskekkja fólgin í að beita hervaldi á okkar tímum. Þjóð- ir heims eru orðnar svo háðar inn- byrðis. Allir átta sig á að við þurfum að vinna saman gegn hlýnun jarðar, fuglaflensu og halda efnahagslífi heimsins á réttum kili. Er þá svo und- arlegt að við þurfum einnig að vinna saman til að byrja ekki að skjóta hvert á annað? Ég er einnig frekar vongóður vegna þeirrar sögulegu þróunar, sem er að eiga sér stað. Ef horft er aftur um aldir vorum við á Norðurlöndum nokkuð iðin við að efna til átaka, en slíkt væri óhugsandi í dag. Sama gildir um ríkin í Evrópusambandinu, enginn trúir því að stríð muni brjótast út á milli Frakklands og Þýskalands, menn trúa því ekki einu sinni lengur að það geti komið til stríðs við Rússa. Banda- ríkjamenn og Mexíkanar fóru áður fyrr í stríð, en ekki lengur. Í Suður- Ameríku á enginn von á stríði lengur. Það eru nokkur svæði í Mið- Austurlöndum, Afríku, Indland og Pakistan, stundum Taívan, en meg- inþróunin hefur verið að eftir því sem lönd tengjast nánar og viðskipti aukast vænkast horfur á friði.“ Blix er þeirrar hyggju að það sé ýmislegt sameiginlegt með aðdrag- anda innrásarinnar í Írak og þeirrar atburðarásar, sem nú eigi sér stað í málefnum Írans, en einnig mik- ilvægur munur. „Líkindin eru fólgin í ásökunum Bandaríkjamanna um að Írakar hafi orðið berir að íhlutun, handtökur manna með stöðu sendiráðsmanna í Írak og yfirlýsingar um sprengjur á vegum úti, sem komi frá Íran og því- umlíku. Í þessu er stígandi, sem ótt- ast má að eigi að nota til að gera árás. Þá á ég ekki við að hermenn muni ráðast inn í landið, heldur verði gerð- ar sprengjuárásir á ýmsa staði. Ég útiloka ekki að gerð verði árás, en þegar allt er tekið held ég að svo verði ekki. Ég held að bandarísk stjórnvöld geri sér grein fyrir því að almenningsálitið í Bandaríkjunum sé þreytt á hernaðaraðgerðum og þau muni vega það og meta með tilliti til næstu kosninga – hvaða áhrif myndi árás í dag hafa á forsetakosning- arnar? Hvernig færu þeir að því að sýna fram á að þetta væri aðferð til að vernda heiminn og Ísrael sérstaklega gegn árásargirni Írana. Ég tel að sumt af því sem Evrópu- sambandið hefur gert gagnvart Íran sé jákvætt. Það hefur reynt að ýta undir efnahagssamskipti, bjóða þeim inn í Heimsviðskiptastofnunina hverfi þeir frá áætlunum sínum um auðgun úrans. Þá áætlun er ekki hægt að réttlæta með efnahagsrökum. Í Íran eru tveir kjarnakljúfar, 20 í Suður- Kóreu. Suður-Kórea flytur auðgað úran inn, í Svíþjóð eru tíu kjarna- Hervald er tímaskekkja Reuters Gagnrýninn Hans Blix, fyrrverandi formaður vopnaeftirlitsnefndar SÞ, er þeirrar hyggju að Bandaríkjamenn eigi að taka að sér forustuhlutverk í samfélagi þjóðanna í stað þess að vera einfari, sem fer eigin leiðir. Hans Blix var milli steins og sleggju þegar hann fór fyrir vopnaeft- irliti Sameinuðu þjóð- anna í aðdraganda inn- rásarinnar í Írak árið 2003. Í liðinni viku var hann í Færeyjum ásamt Bill Clinton fyrr- verandi Bandaríkja- forseta. Karl Blöndal ræddi við Blix. Í HNOTSKURN »Hans Blix á langan feril að baki bæði sem diplómat og stjórn-málamaður. Hann lærði í Svíþjóð, Bandaríkjunum og Bretlandi. »Frá því að hann settist í sendinefnd Svía í afvopnunarviðræðunumí Genf árið 1962 hefur hann verið viðriðinn þann málaflokk. »Hann var utanríkisráðherra Svíþjóðar frá 1978 til 1979.» Árið 1981 varð hann yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunar-innar og gegndi því starfi til 1997 þegar Mohamed ElBaradei tók við af honum. »Blix settist þá í helgan stein, en Kofi Annan, þáverandi fram-kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fékk hann árið 2002 til að taka að sér að stjórna vopnaeftirliti SÞ í Írak og gegndi hann því starfi fram á sumarið 2003.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.