Morgunblaðið - 07.10.2007, Síða 29
kljúfar og við flytjum úranið inn. Þeir
gætu haldið því fram að ástæðan sé
sjálfstæði, að hætta væri á að lokað
yrði á aðgang þeirra að úrani, en að
öðru leyti held ég að hægt sé að leysa
vandamálið um aðgang Írana að elds-
neyti og þeir hafi ekki sterk rök. Hins
vegar er undarlegt að Bandaríkja-
menn skuli hafa í hótunum við land,
sem á mörg ár í að koma sér upp
kjarnorkuvopnum. Þeir segjast munu
nota hervald vegna mögulegs ásetn-
ings Írana. Þeir héldu því fram að
Írakar væru að koma sér upp kjarna-
vopnum, þótt það reyndist á röngum
upplýsingum byggt, en þar var einnig
langt í að þeir kæmu sér upp kjarn-
orkuvopnum og í raun lengra en hjá
Írönum nú. Raunveruleikinn er sá að
hefji þeir auðgun að einhverju marki
geta þeir einnig framleitt auðgað úr-
an í vopn. En hvenær er ofbeldi rétt-
lætanlegt? Ef litið er á stofnskrá
Sameinuðu þjóðanna þá er það annað
hvort þegar öryggisráðið samþykkir
það eða í sjálfsvörn gegn vopnaðri
árás. Eiga Bandaríkjamenn eða ein-
hverjir aðrir á hættu að verða fyrir
vopnaðri árás Írana? Nei. Condo-
leezza Rice sagði um Írak að það væri
ekki ástæða til að bíða eftir svepplaga
kjarnorkuskýi. Það voru mörg ár í að
það gæti gerst og Íranar eru einnig
langt frá því að vera komnir svo
langt. Það er því verið að tala um
hernaðarárás vegna mögulegs ásetn-
ings Írana. Er hægt að fallast á það?“
Þegar Blix er spurður hvort rétt-
lætanlegt sé að beita valdi til að
steypa einræðisherrum, sem kúga
þjóð sína og beita hana valdi, kveðst
hann vilja halda sig við sáttmála Sam-
einuðu þjóðanna.
„Þar eru þessi tvö skilyrði fyrir því
að beita valdi,“ segir hann. „En ör-
yggisráðið þarf ekki að einskorða sig
við ógn vegna árásar heldur einnig
ógn við friðinn og það er mun víðtæk-
ara. Öryggisráðið gæti því komist að
þeirri niðurstöðu að friði stafaði ógn
af framferði einræðisherra, en árás
er allt annar hlutur og miklu áþreif-
anlegri. Ég held einnig að fallast
megi á að yfirvofandi árás myndi
réttlæta notkun valds. En ef árás vof-
ir ekki yfir er tími til þess að leita til
öryggisráðsins. Sumir myndu segja
að öryggisráðið geri ekki neitt, en það
þarf ekki annað en að líta til Íraks.
Rétt er að Bandaríkjamenn leituðu til
ráðsins, reyndu að knýja fram álykt-
un, en tókst það ekki vegna eftirlits
míns og sögðu þá að það sannaði
getuleysi þess. En ég held að það að
Bandaríkjamenn fengu ekki sínu
framgengt hafi sýnt visku örygg-
isráðsins. Ráðið neitaði að gefa leyfi
til að fara í stríð, sem hefði ekki átt að
eiga sér stað.“
Um ári eftir innrásina í Írak gaf Blix
út bók um leitina að gereyðing-
arvopnum í Írak, Disarming Iraq. Í lok
bókarinnar segir hann að innrásin í
Írak hafi ekki styrkt rökin fyrir fyr-
irbyggjandi íhlutun. Ríkin, sem vildu
ráðast inn í Írak, hefðu getað farið að
óskum öryggisráðsins um að veita
meiri tíma til vopnaeftirlits: „Þess í
stað var aðgerðin goldin hærra verði:
grafið var undan löggildi aðgerð-
arinnar, trúverðugleiki ríkisstjórn-
anna, sem stóðu að henni, beið skaða
og vald Sameinuðu þjóðanna beið
hnekki.“
Sameinuðu þjóðirnar virkuðu
Nú segir Blix að sumir myndu
segja að öryggisráðið hafi beðið
skaða vegna þess að Bandaríkjamenn
virtu það að vettugi. Þeir hefðu sagt
að öryggisráðið skipti ekki máli
vegna þess að það hefði ekki greitt at-
kvæði með þeim.
„Um leið spyr ég: hverjum augum
myndum við líta öryggisráðið í dag
hefði það leyft stríðið í Írak,“ segir
hann. „Hvað myndum við segja um al-
þjóðlegt eftirlit í dag hefðum við sagt
að við hefðum ekki fundið neitt, en við
vissum að upplýsingar leyniþjónust-
unna væru mjög góðar og við hefðum
enga ástæðu til að efast um það sem
þær segðu? Ég held því að bæði af-
staða öryggisráðsins og eftirlitsmann-
anna sýni að Sameinuðu þjóðirnar
virkuðu eins og þær áttu að gera, en
því miður voru þær hunsaðar.“
Mikill þrýstingur var á Blix þegar
hann stjórnaði vopnaeftirlitsnefnd
Sameinuðu þjóðanna (UNMOVIC) í
Írak. Í viðtali þremur mánuðum eftir
innrásina sagði hann að „óþverr-
arnir“ í Washington hefðu reynt að
grafa undan sér. Síðar gekkst hann
við að hafa notað orðið, en ekki hafa
átt von á að það yrði sett á prent. Á
ráðstefnunni í Færeyjum sagði Bill
Clinton, fyrrverandi Bandaríkja-
forseti, að hefði Blix fengið að ljúka
starfi sínu hefði stríðið í Írak aldrei
orðið. En hvernig fór hann að því að
standast þrýstinginn og halda trú-
verðugleika sínum?
„Í raun var þetta einfalt,“ sagði
hann. „Við litum á okkur sem al-
þjóðlega erindreka almennings.
Stjórnmálamennirnir voru með lýð-
ræðislegt umboð og ákveða hvað þeir
vilji gera í samræmi við sín gildi og
það er þeirra mál. Þeir þurfa hins
vegar að hafa staðreyndir málsins,
málskjölin, í höndunum. Þessi mál-
skjöl þurfa að vera eins hlutlaus og
hægt er. Enginn getur verið alger-
lega hlutlægur í þessum heimi, en
skiptir ansi miklu máli ef maður reyn-
ir að vera hlutlægur og óhliðhollur.
Við reyndum að vera faglegir og vor-
um það. Enginn hefur gagnrýnt okk-
ur, ekki einu sinni Bandaríkjastjórn.
Undir lokin var þrýstingur, sem gekk
út yfir það, sem leyfilegt er sam-
kvæmt stofnskrá Sameinuðu þjóð-
anna, en Bandaríkjastjórn í heild
gagnrýndi okkur ekki, heldur huns-
aði. Við störfuðum í umboði örygg-
isráðsins og fengum enga gagnrýni
þaðan. Bandarískir fjölmiðlar fláðu
okkur hins vegar lifandi og rifu okkur
í tætlur, en ekki öryggisráðið.“
En sér hann fyrir sér að hægt sé að
koma á yfirþjóðlegu kerfi, sem tryggi
frið í heiminum?
„Það er langt ferli, en hefur gengið
nokkuð hratt. 1889 var fyrsta frið-
arráðstefnan í Haag. Þá var engin al-
þjóðleg stofnun og stríð var ekki
bannað. Síðan kom Þjóðabandalagið,
sem bannaði heldur ekki stríð, en
sagði að fyrst yrði að leita frið-
samlegra leiða til að jafn ágreining.
1945 eftir síðari heimsstyrjöld var
beiting valds gerð útlæg nema örygg-
isráðið leyfði það eða í sjálfsvörn. Við
höfum því komið langan veg og ég
held að Persaflóastríðið 1991 hafi ver-
ið gott dæmi um aðgerð undir merkj-
um Sameinuðu þjóðanna og Bush
eldri fékk með réttu heiðurinn af því.
Innrásin í Írak 2003 var hræðilegt
bakslag, en ég held að Bandaríkja-
menn séu aftur að hverfa til þess að
fara samningaleiðina og snúa til Sam-
einuðu þjóðanna. Ég er ekki frið-
arsinni og ekki heldur stofnskrá Sam-
einuðu þjóðanna, því að hún leyfir
notkun valds í ákveðnum tilfellum.
Ég er hlynntur samningaleiðinni.
Sagt er að diplómatar hugsi sig um
tvisvar áður en þeir segja ekki neitt.
En það er betra að gera það, en
hugsa alls ekki neitt og gera eitthvað
heimskulegt.“
» Sagt er að diplómatar séu menn, sem hugsi
sig um tvisvar áður en þeir segja ekki neitt.
En það er betra að gera það en hugsa alls ekki
neitt og gera eitthvað heimskulegt.
kbl@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 29
MANNAUÐUR er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík, Landsbankans,
Deloitte, Morgunblaðsins og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.
Landsbankinn er meginstyrktaraðili verkefnisins.
VIÐBURÐIR Í OKTÓBER
Nánari upplýsingar og skráning á mannaudur.hr.is
HÁSKÓLI FJÖLSKYLDUNNAR
Einn laugardagur í mánuði er tileinkaður foreldrum og börnum
þar sem fjölskyldan fær fræðslu í bland við skemmtun.
FRAMTÍÐARMARKMIÐ FJÖLSKYLDUNNAR
13. okt kl. 9:00 – 12:00
Hver eru framtíðarmarkmið þinnar fjölskyldu?
Á námskeiðinu mótar fjölskyldan sína stefnu og að hvaða
sameiginlegu verðmætum hún vill vinna að. Námskeiðið er
ætlað unglingum á aldrinum 13 til 18 ára og foreldrum
þeirra.
HÁDEGISFYRIRLESTRAR
Fyrirlestrar og hádegisverður fyrir þá sem vilja bæta við
þekkingu sína og nýta tímann vel.
SJÁLFHREINSANDI ELDHÚS ÁRIÐ 2030?
– TÆKNI Á 21. ÖLDINNI
12. okt kl.12:00 – 13:30
Yngvi Björnsson, heimsmeistari í gervigreind, útskýrir á
mannamáli hvaða tækifæri felast í notkun gervigreindar á
21. öld og hvaða tækni er verið að þróa sem mun koma
fram í dagsljósið á næstu árum.
SAMNINGAVIÐRÆÐUR VIÐ SAMSTARFSFÓLK
19. okt kl. 12:00 – 13:30
Fjallað verður um mismunandi nálganir að samningum og
þær áskoranir sem við mætum í samningum við
mismunandi samstarfsfólk.
NÁMSKEIÐ
Námskeið MANNAUÐS eru fjölbreytt og hafa ólíkar þarfir
einstaklinga fyrir betri árangur og lífsgæði að leiðarljósi.
EF ÉG VÆRI RÍK/UR – VERÐBRÉFAMARKAÐURINN
15., 17. og 22. okt kl. 19:30 – 22:00
Viltu fjárfesta á verðbréfamarkaði en vantar ítarlegri
þekkingu á umhverfi markaðarins? Þá er þetta námskeiðið
fyrir þig.
HJALLASTEFNA FYRIR FULLORÐNA
27. okt kl. 13:00 – 18:00
Þátttakendur læra að þekkja sjálfa sig og maka sinn í
gegnum fræðslu og leik þar sem að allar reglur eru brotnar
hvað varðar meðfædd kynjahlutverk.
UPPSPRETTA VIÐSKIPTATÆKIFÆRA
31. okt kl. 16:00 – 19:00
Á námskeiðinu verður fjallað um uppsprettur
viðskiptatækifæra og hvernig greina megi góð tækifæri frá
slæmum.
FYRIRLESTRAR OG NÁMSKEIÐ
FYRIR STJÓRNENDUR
Fyrirtæki sem vilja ná árangri þarfnast öflugra einstaklinga
innanborðs, einstaklinga sem hafa frumkvæði og vilja til að
ná langt. En hvað þurfa fyrirtækin að gera til að standa sig
betur í baráttunni um besta fólkið?
SAMRÆMI VINNU OG EINKALÍFS – ER ÞAÐ TIL?
11. okt kl. 11:30 – 13:00
Ashley Braganza, Prófessor í Cranfield School of
Management og kennari í MBA námi í Háskólanum í
Reykjavík, kynnir nýjar leiðir fyrir fyrirtæki til þess að skapa
aðstæður á vinnustað sem gera starfsfólki kleift að
samþætta fjölskyldulífið með vinnunni svo að allir hagnist.
ÁSKORANIR STJÓRNENDA Á 21. ÖLDINNI
15. og 16. okt kl. 13:00 – 16:00
Á námskeiðinu verður varpað ljósi á nýjustu skrif
sérfræðinga á sviði stjórnunar um áskoranir stjórnenda á
21. öldinni. Fjallað verður um það hvernig breytingar næstu
ára munu kalla á nýjar stjórnunaraðferðir.