Morgunblaðið - 07.10.2007, Page 35

Morgunblaðið - 07.10.2007, Page 35
Ásgeir er byrjaður að gera kvik- mynd í samvinnu við Leikfélag Fljótsdalshéraðs, sem tekin verður m.a. á Eiðum, Eskifirði og í Beru- firði. Hún er í grunninn sögur sem Ásgeir skrifaði úti, Þrjár dauðasög- ur, sem vefjast inn í hver aðra með því að sögupersónur búa saman í gömlum leiguhjalli og eru und- irlagðar af glæp, háska og samvisku sín í hverju lagi. Ásgeir segir að þetta séu skakkar sögur og myrkar og myndin verði frumsýnd næsta haust. Hluti af endurkomu skálds 21. september kom svo út bókin „Á flótta undan vindinum, lífs- reynsluskáldsaga,“ eftir Ásgeir. Um er að ræða frásagnir af ferðalögum hans ytra, m.a. siglingu á seglbát yf- ir Atlantshafið og ferðum í Skandin- avíu. „Bókin er mjög þýðingarmikil fyr- ir mig“ segir Ásgeir. „Hún er frá- sögn af því af hverju ungur maður leitar útrásar og að hverju þessi maður leitar. Hann upplifir margt mjög athyglisvert, létt og skemmti- legt og er að skoða, læra og skilja. Bókin er hluti af endurkomu minni heim og með henni held ég áfram þar sem frá var horfið. Ég er búinn að fá málið aftur. Ég er fullur af sög- um. Þær streyma út núna af því ég er búinn að vera svo lengi í málleysi. Bókin er minn stíll í hápunkti. Ég hef alltaf verið að þroska sjálfan mig í að geta skrifað nákvæmlega þenn- an stíl.“ Seinna bindið mun m.a. fjalla um Katmandu í Nepal og Woodstock. Hún spannar ferðir Ásgeirs allt til Íslands og endar á ferðalaginu með Norrönu frá Danmörku til Egils- staða. Eins og að vakna til lífsins Ásgeir segist helst veita því at- hygli í íslensku þjóðfélagi hversu verðbréfabraskið sé orðið umfangs- mikið. „Það er bara flott. Íslendingar eru stórir í dag, sterkir og duglegir, eins og þeir hafa alltaf verið. Við höfum verið kúguð en nú eru menn að vakna og sýna styrk sinn. Ísland tekur æðislega vel á móti mér, hér eru allar dyr opnar. Ég fæ að skrifa eins og mér er lífsnauðsyn, í blöðin, er að koma út með þessa bók, selja mynd í íslenska sjón- varpið, er að gera kvikmynd með leikfélaginu og það er bara eins og ég sé að vakna til lífsins úr gröfinni. Tíminn úti fór í að læra gott hand- verk og þroskast. Nú kann ég mitt fag, er öruggur um mitt myndmál og fullur af sögum. Hér get ég gert stóra hluti án þess að hafa mikla peninga ef ég skipulegg mig vel. Svo sit ég ofan í jörðinni á daginn og hvíli hugann, dunda líka við að smíða seglskútu og spila stundum golf. Og svo er ég að skapa.“ Jóhanna og drengirnir koma heim til Ásgeirs þegar hún er orðin örugg um að sagnasmiðurinn ætli að festa rætur á ný á Íslandi. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Víðsýni Ásgeir Hvítaskáld kemur reynslunni ríkari heim til Íslands og hefur strax tekið til óspilltra málanna við kvikmyndagerð og skriftir. »Ég er búinn að fá málið aftur. Ég er fullur af sögum. Þær streyma út núna af því ég er búinn að vera svo lengi í málleysi. Bókin er minn stíll í hápunkti. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 35 Viltu selja eða kaupa fyrirtæki? Firma Consulting, Þingaseli 10, 109 Reykjavík, GSM: (+354) 820 8800 og (+354) 896 6665, Fax: (354) 557 7766, Veffang: firmaconsulting.is Magnús Hreggviðsson viðskiptafræðingur og lög- giltur fyrirtækja-, fasteigna- og skipasali. Magnús er með áratuga reynslu af endurskoðunarstörfum, sem rekstrarráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali, útgef- andi, fasteignarekandi, „land-developer“ í Smára- hvammi og starfandi stjórnarformaður í nokkrum fyrirtækjum. Er aðalráðgjafi hjá Firma Consulting. (magnus@firmaconsulting.is) Firma Consulting (www.firmaconsulting.is) er ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf við kaup og sölu millistórra og stórra fyrirtækja. N1 BÍLAÞJÓNUSTA WWW.N1.IS Tilboðið gildir í október eða á meðan birgðir endast. Þetta tilboð gildir ekki með öðrum tilboðum. HAUSTTILBOÐ Á FELGUM Þú færð felgurnar á eftirtöldum stöðum: 14“ Verð áður: 11.490,- Verð nú: 8.990,- 15“ Verð áður: 13.490,- Verð nú: 9.990,- 16“ Verð áður: 15.490,- Verð nú: 10.990,- F í t o n / S Í A F I 0 2 2 9 5 6 Hafðu vetrardekkin klár á flottum felgum frá N1 N1 Réttarhálsi 2, Reykjavík, hjólbarða- og smurþj. 587 5588 N1 Fellsmúla 24, Reykjavík, hjólbarða- og smurþj. 530 5700 N1 Ægisíðu 102, Reykjavík, hjólbarða- og smurþj. 552 3470 N1 Langatanga 1a, Mosfellsbæ, hjólb.- og smurþj. 566 8188 N1 Reykjavíkurvegi 56, Hafnarfirði, hjólbarðaþj. 555 1538 N1 Dalbraut 14, Akranesi, hjólbarðaþjónusta 431 1777 Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • fax 511 4040 • utflutningsrad@utflutningsrad.is www.utflutningsrad.is Útflutningsráð heldur ráðstefnu um viðskipti og möguleg viðskiptatækifæri í Jórdaníu og Mið-Austurlöndum. Fyrirtæki sem hafa áhuga á viðskiptum og eru í viðskiptum á svæðinu eru hvött til þess að nýta sér þetta tækifæri. Dagskrá: • Samir Hasan, ræðismaður Jórdaníu á Íslandi • Dr. Maen Nsour, forstjóri, Jordan Investment Board (JIB) • Jóhanna Kristjónsdóttir, formaður Vináttu- og menningarfélags Mið-Austurlanda • Rakan N. Rshaidat, framkvæmdastjóri, Arab Pharmaceutical Company • Kolbeinn Arinbjarnarson, forstöðumaður sölu- og markaðsmála, Calidris • Mazen Abu Hamdan, framkvæmdastjóri, Arab Bank Fundarstjóri: Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs Að loknum erindum verður boðið upp á léttar veitingar. Skráning á ráðstefnuna er í síma: 511 4000 eða með tölvupósti á utflutningsrad@utflutningsrad.is. Nánari upplýsingar veita Hermann Ottósson, forstöðumaður, hermann@utflutningsrad.is og Inga Hlín Pálsdóttir, verkefnisstjóri, inga@utflutningsrad.is. Jórdanía Lykillinn að viðskiptum við Mið-Austurlönd Miðvikudaginn 10. október 2007 kl. 14.00-16.30 á Radisson SAS Hótel Sögu P IP A R • S ÍA • 7 18 89

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.